Morgunblaðið - 09.12.1998, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Samráð
Kvennalist-
ans boðað
til fundar
SAMRÁÐ Kvennalistans hefur
verið boðað til fundar nk. laug-
ardag til að ræða framboðsmál
hreyfingarinnar við A-flokkana.
Að sögn Ingibjargar Sigurðar-
dóttur, frumkvæ mdastj óra
Kvennalistans, liggur ekki fyrir
á þessari stundu hvort einhver
formleg tillaga verður lögð fyr-
ir fundinn.
Fundi í framboðsnefnd flokk-
anna þriggja á Reykjanesi, sem
vera átti í vikunni, hefur verið
frestað vegna forfalla. Á síðasta
fundi lögðu A-flokkamir fram
tillögu um prófkjör um fimm
efstu sætin, en hún hefði þýtt
að fulltrúi Kvennalistans hefði
aldrei lent neðar en í fímmta
sæti. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins ætla Kvenna-
listakonur á Reykjanesi að
leggja fram málamiðlunartil-
lögu um að þær fái fjórða sætið.
Einkaframkvæmd
um hjúkrunarheimili
FORVAL hefur verið auglýst vegna útboðs um
einkaframkvæmd á byggingu, rekstri og fjár-
mögnun hjúkrunarheimilis í Reykjavík. Leitað er
að aðilum tO þátttöku í lokuðu útboði. Þeir þurfa
að vilja selja heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu
þjónustu sem felst í því að leggja til og reka í 25 ár
hjúkrunarheimili fyrir 60 aldraða sjúklinga með
öllu því sem til þarf. Tveir til þrír mánuðir eru þar
til útboðið sjálft fer fram. Stefnt er að þvi að
rekstur hefjist á fyrri hluta árs árið 2000. Fram-
kvæmdin er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Jón Ásbjörnsson, deildarstjóri útboðsdeildar
Ríkiskaupa, segir að nú sé verið að efna til forvals
og leita eftir áhugaaðUum sem standast þær kröf-
ur sem gerðar eru um getu og hæfni tU að fram-
kvæma verkið. Hér er um þjónustuútboð að ræða
sem felur í sér að sá aðili sem verður iyrir valinu
verður að útvega húsnæði, þjónustuna og fjár-
mögnun.
Utboð af þessu tagi, þar sem allir þættir þjón-
ustunnar eru boðnir út, hefur ekki farið fram áð-
ur. Einkaframkvæmd fólst í útboði Iðnskólans í
Hafnarfirði fyrir skemmstu en þar var kennslan
undanskilin. Því er gengið einu skrefi lengra
núna.
Jón sagði að gangurinn væri sá í slíkum útboð-
um að nokkrir aðilar tækju höndum saman um
verkefnið og mynduðu teymi. Bjóðendur í Iðnskól-
ann voru t.a.m. einn banki, einn byggingai-verk-
taki og einn rekstraraðili. „Ég sé þetta gerast
svona í þessum nýjum útboðum eins og einka-
framkvæmdarútboðin eru. Þetta gekk býsna vel í
Hafnarfirði. Við höfum kynnt okkur þessa tegund
útboða erlendis og þau eru í sjálfu sér ekki mjög
flókin,“ sagði Jón.
Hjúkrunarmælingar og tryggingar
Hann segir að kosturinn við einkaframkvæmdir
sé væntanlega sá að þeir aðilar sem veljast til
verksins þurfa ekki að leggja í stofnkostnað held-
ur fá greidda mánaðarlega eða árlega leigu af
framkvæmdinni. Framkvæmdaaðilar þurfa því
ekki að liggja með fast og bundið fjármagn heldur
taka aðrir það að sér.
Þátttakendur í útboðinu verða valdir 20. janúar
næstkomandi.
Hrafn Pálsson, deildarstjóri öldrunarmála í
heilbrigðisráðuneytinu, segir að til þess að tryggja
rekstur til svo langs tíma verði stuðst við svokall-
aðar hjúkrunarmælingar. Hann segir að mæling-
arnar verði líklega notaðar til viðmiðunar til þess
að tryggja báðum aðilum gæðaþjónustu og rétta
greiðslu. Hann segir að mælingar af þessu tagi
sýni glögglega ef starfsmannahald, efnisnotkun og
gæði þjónustunnar verða of mikil eða lítil miðað
við umfang rekstursins. Lögboðið er að nota
hjúkrunarmælingar á öllum hjúkrunarheimilum
aldraðra.
Hann segir að hjúki'unai'mælingar verði m.a.
notaðai’ til þess að gefa þátttakendum í útboðinu
hugmynd um kostnaðinn við þjónustuna. Einnig
sé gert ráð fyrir því að þeim sem bjóða í fram-
kvæmdina verði gefinn kostur á að setja fram sín-
ar hugmyndir um hvemig þeir vilji tryggja sig
gagnvart því að þjónustuþátturinn verði þeim ekki
ofviða á rekstrartímabilinu.
Morgunblaðið/Jón Sig.
Embætti ríkissaksóknara
Lögreglan í
Reykjavík atyrt
vegna handtöku
EMBÆTTI ríkissaksóknara hefur
atyrt lögreglustjórann í Reykjavík
fyrir hvernig lögreglumenn stóðu
að handtöku fertugrar konu síðast-
liðið sumar, en hún kærði meinta
ólögmæta handtöku og frelsisvipt-
ingu í kjölfarið.
Embætti ríkissaksóknara stóð að
rannsókn málsins með aðstoð emb-
ættis ríkislögreglustjóra og er nið-
urstaða rannsóknarinnar sú að ekk-
ert verði frekar aðhafst í málinu.
Ekki nægjanleg ástæða
Embætti ríkissaksóknara sendi
lögreglustjóranum í Reykjavík er-
indi vegna málsins 1. desember síð-
astliðinn, þar sem fundið var að því
að konan var handtekin án þess að
nægjanlegar ástæður væru fyrir
hendi. Lögreglumennirnir sem
stóðu að handtökunni hefðu þó unn-
ið eftir fyrirmælum sem gerðu ráð
fyrir þeirri framkvæmd, en í kjöl-
farið hefði fyrirmælunum verið
breytt.
Þá fann embættið að því við lög-
reglustjóra að ekki skyldi hafa verið
skrifuð skýrsla um handtökuna eins
og skylda er samkvæmt lögum og
reglum um þau mál. Einnig var
fundið að því að ljósmynd var tekin
af konunni, án þess að skýrar reglur
lægju til grundvallar myndatökunni
og engin bókun var gerð um hana,
svo sem hvenær myndin var tekin,
hver tók hana eða hvaða viðhorf
konan hafði til myndatökunnar.
Ljósið á undanhaldi
ÞÓ SVO að veður hafi verið ein-
muna hlýtt víða um land undan-
farnar vikur gleymist þó vart að
vetur ríkir með tilheyrandi
skammdegisdrunga. Þá sjaldan að
sést til sólar er hún lágt á lofti eins
og greina má á þessari mynd sem
tekin var í Húnavatnssýslu fyrir
skömmu. Enn mun dag stytta
næstu tvær vikur en að því loknu
snýst birtan til varnar á nýjan leik
og vinnur að lokum tímabundinn
sigur í samræmi við eilífa hringrás
náttúrunnar. Þar til geta lands-
menn glaðst yfir tilhugsuninni um
væntanlega hátíð Ijóssins.
Fara vel með þig
Fáanlegar beintengdar,hleðslu
og með rafhlöðum
Fást í raftækjaverslunum,
hársnyrtistofum og
stórmörkuðum um allt land
Markaðssetning Flugleiða í Bretlandi á Netinu
Breskir fótboltaáhang*-
endur boðnir til Islands
FLUGLEIÐIR ætla að bjóða sext-
án „karlmannlegum" breskum fót-
boltaáhangendum til fslands í apríl
næstkomandi og eiga þeir meðal
annars að keppa við fótboltalið
flugfélagsins sjálfs.
Samkeppni er nú í gangi á vef-
síðu Flugleiða og á síðum sextán
breskra fótboltaliða, meðal annars
Aston Villa, Leeds United,
Newcastle, Westham og Sheffield
Wednesday, og eru ævintýraferðir
til íslands í verðlaun fyrir einn
áhanganda hvers liðs.
Eiga að sanna
karlmennsku sína
Þátttakendur eru spurður
hvemig þeir myndu bregðast við
ákveðnum aðstæðum á íslandi og
eiga þeir með svörunum að sanna
karlmennsku sína. Meðal annars er
spurt hvernig þeir myndu bregðast
við ef þeir væru í færi við mark
andstæðinga sinna á íslandi en
stórvaxinn víkingur kæmi æðandi
Ekki „bullur“,
segir svæðis-
stjóri Flugleiða
og beindi hjálmhorni sínu að þeim.
Jafnframt er spurt hvað þátttak-
endur myndu segja við fyrrverandi
ungfrú heim eða sterkasta mann
heims ef þeir hittu þau fyrir í Bláa
lóninu.
„Samkeppnin miðar að því að
sem flestir skilji eftir tölvupóst-
fangið sitt, þannig að við söfnum
inn í sértilboðaklúbbinn okkar. Það
er góð markaðssetning að geta
sent tilboð til fólks vikulega með
tölvupósti, það kostar okkur ekki
neitt,“ segir Hannes Hilmarsson,
svæðisstjóri Flugleiða í Bretlandi.
Hannes segir að hugmyndin hafi
kviknað í viðræðum við fyrirtækið
sem sér um heimasíður fótboltalið-
anna sextán.
„Menn tengja fótbolta oft við bull-
ur sem eru með ólæti, en sá hópur
sem heimsækir þessar síður er að
okkar mati vel þess virði að honum
sé bætt við sértilboðaklúbbinn."
Samkvæmt upplýsingum fyrir-
tækisins, sem sér um heimasíðurn-
ar, eru þær skoðaðar ellefu milljón
sinnum á viku. Um 53% gestanna
er fólk með háskólapróf og 12% há-
skólanemar. Flestir þeirra eru á
aldrinum 20-40 ára. Hannes segir
að samsetning hópsins henti vel
íyrir þá stefnu fyrirtækisins að ná
til hópa ungs fólks í vetrarferðir til
íslands.
„Við eigum eftir að gera meira af
þessu í framtíðinni, að búa til alls
kyns samkeppni í samstarfi við
aðrar heimasíður. Mai-kmiðið er
tvíþætt, annars vegar að auglýsa
Island og Flugleiðir og hins vegar
að fá tölvupóstföng inn í gagna-
grunninn okkar. Það eru flestar
Flugleiðaskrifstofurnar að koma
sér fyrir á þessum markaði," segir
Hannes.