Morgunblaðið - 09.12.1998, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1998 9
FRETTIR
*
RUV með í nor-
• • /
rænm sjonvarpsras
í Bandaríkjunum
ÚTSENDINGAR hefjast í mars á
næsta ári á nýrri norrænni sjón-
varpsrás í Bandaríkjunum. Ríkis-
útvarpið mun taka þátt í henni og
hefur skuldbundið sig til að leggja
fram a.m.k. 40 klukkutíma af sjón-
vai-psefni á ári. Um er að ræða
bæði fréttatengt efni og efni al-
menns eðlis.
Nýja rásin kemur til með að
heita Scandinavian Channel. Að
sögn Markúsar Arnar Antonssonar
útvarpsstjóra er markmið sjón-
varpsstöðvarinnar, sem rekur rás-
ina, að ná til Norðurlandabúa sem
búsettir eru í Bandaríkjunum og
fólks af norrænum uppruna.
„Þetta verður áskriftarrás sem
menn borga fyrir sérstaklega og
verður send í gegnum gei*vihnött.
Það er verið að gera ráð fyrir að
rásin nái fljótlega til 76 þúsund
áskrifenda. Lokatakmarkið er að
ná til 140 þúsund norrænna fjöl-
skyldna á tiltölulega stuttum tíma.
Það verður enskur texti með því
íslenska efni sem sent verður út,
fyrir utan fréttaefnið. Fyrirtækið
sem sér um dreifinguna sér um
kostnaðinn og kemur til með að
greiða okkur fyrir það. Þetta hef-
ur því ekki í för með sér kostnað
fyrir Ríkisútvarpið,“ sagði Mark-
ús.
Markús sagði að miklar breyt-
ingar væru framundan í sjón-
varps- og útvarpsrekstri með til-
komu stafrænna útsendinga. Staf-
rænar útvarps- og sjónvarpssend-
ingar hafa í för með sér byltingu
að því leyti að sendarnir geta sent
efni á mörgum rásum. Til að taka
Jólakjólar, jólabuxur,
skyrtur, slaufur og bindi.
St. 62-128.
Ólavía'og Oliver
BARNAVÖRUVERSLUN
G L Æ S I B Æ
S í m i 5 5 3 3 3 6 6
við stafrænum útvarpsmerkjum
þarf stafræn móttökutæki. Þau
eru til á markaðinum í dag en eru
nokkuð dýr. Fullvíst er að kostn-
aður við þau á eftir að lækka á
komandi árum. Nú þegar eru
hafnar stafrænar útsendingar á
Norðurlöndunum. I Noregi er
sent út stafrænt á tveimur út-
varpsrásum, fréttarás og rás sem
flytur klassíska tónlist.
Áhugi á stafrænum sjónvarps-
sendingum á N-Atlantshafí
„Með stafrænni tækni sjáum við
einnig fram á möguleika á að dreifa
íslensku efni um hin Norðurlöndin
til íslenskra áhorfenda þar. Þetta
myndi væntanlega gerast í sam-
vinnu við hin ríkisútvarps- og sjón-
varpsfyrirtækin í eigu ríkisins.
Þetta er hlutur sem við höfum
skoðað og höfum mikinn áhuga á
að hrínda í framkvæmd strax og
aðstæður leyfa. Þetta kostar ein-
hverja milljónatugi að senda þetta
upp í gervitungl, en það má gera
ráð fyrir að sá kostnaður fari held-
ur lækkandi á komandi árum. Eg
vona að það verði ekki mjög langt í
að við getum gert þetta. Hugsan-
lega stæði þetta í sambandi við
framtíðardreifingu á sjónvarpi
Ríkisútvarpsins um Norður-Atl-
antshafssvæðið. Forsenda fyrir því
er hins vegar að skip verði komin
með búnað til að taka almennt á
móti gervihnattasendingum," sagði
Markús.
SLOPPAR
Dömusloppar
Herrasloppar
Velúrgallar,
renndir, hnepptir
og hnýttir.
I__I lympía.
Kringlunni 8-12, sími 553 3600
MIKIÐ
ÚRVAL AF
Jólaglugga-
tjöldum og
dúkum
Skipholti 17a, sími 551 2323
Aðsendar greinar á Netinu
<|> mbUs
\LL.TAf= eiTTH\SAÐ NÝTT
snitrtworur
mm' — furir íetfsuna og útCitið
Pantaðu nýja vörulistann
Mirandas-snyrtivörurnar eru að mestu framleiddar úr náttúrlegum
jurtum sem margar hverjar hafa heilsubætandi áhrif. Kynntu þér
úrvalið í nýja vörulistanum.
ýA!RANDArS
Upplýsingasími Mirandas á íslandi er 565-0500
ALUÖRU BLÓNABUÐ
, Jólagjafir - Jólaskreyfinöar
BLÓMASTOFA FRIÐFINNS
Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099, fax 568 4499.
Franskar kvöldbuxur
og toppar
TESSy
Neðst við Dunhaga,
sími 562 2230.
frá st. 34
TALSTÖÐVAR
Verð frá kr. 8.900 stk.
RAFÖGN ehf.
Ármúla 32, s. 588 5678
LAURA ASHLEY
K'. 1 Ú
Fatnaður og gjafavara
Tfistan
Laugavegi 99, sími 551 6646.
Laugavegi 99, sími 551 6646.
Helmilisbókhatd 1998
ÁSttMS
Það þarf aðeins eitt símtal
til að byrja að spara reglulega
með spariskírteinum
ríkissjóðs.
SVAR ISKfy
Mst
LANASYSLA RIKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð, sími 562 6040
Veffang: www.lanasysla.is Netfang: lanasyslan@lanasyslan.is
Eyddu i spamað!