Morgunblaðið - 09.12.1998, Síða 12

Morgunblaðið - 09.12.1998, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Miklir fjárhagserfíðleikar Ríkisspítala og Sjúkrahúss Reykjavíkur F yrirsj áanlegur halli 1,6 milljarðar króna Morgunblaðið/Árni Sæberg FRAMKVÆMDIR við Barnaspítala Hringsins eru að heíjast en byrjað er á að færa tré og girða athafnasvæðið af. Bæði stóru sjúkrahúsin í Reykjavík glíma nú við fjárveitingarvaldið um framlög næsta árs. Talsmenn þeirra segja mikið vanta til að tryggja megi óbreyttan rekstur. Jóhannes Tómasson kynnti sér stöðuna og óskir spítal- anna um fjárveitingar sem bæði snúast um uppsafnaðan halla og framtíðarverkefni. FJÁRHAGSVANDI sjúkra- húsanna stóru í Reykjavík er ærinn og er útlit fyrir að í lok næsta árs vanti nærri 800 milljónir króna inní rekstur Ríkisspítala og svipaða upphæð á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Um helmingur fjárhæðarinnar á hvorum stað er vegna halla síðustu ára en á næsta ári vantar yfir 300 milljóna króna framlag til SHR og 280 milljónir inní rekstur Ríkisspít- ala miðað við svipaðar rekstrarfor- sendur spítalanna. Er þá gert ráð fyrir að verðhækkanir vegna launa 1998 fáist bættar. Við þessa upphæð má bæta 450- 520 milljónum fyrir SHR og um 1.700 milljónum fyrir Ríkisspítala ef tekið verður tillit til óska yfir- stjóma þeirra um fjárveitingar meðal annars vegna vinnutímatil- skipunar, 2000-vandans, tækja- kaupa og nýrrar starfsemi, atriða sem ekki verður séð í fljótu bragði að hægt sé að sleppa alveg. Rekst- ur Ríkisspítala kostar á ári kring- um 9,5 milljarða króna og rekstur SHR tæpa 6 milljarða. Spyrja má af hverju sjúkrahúsin hafa ratað í þessar raunir. Af hverju stafar rekstrarhalli ár eftir ár? Áf hverju er ekki veitt meira fé af fjárlögum? Af hverju skera stjómendur ekki niður kostnað? Er búið að hag- ræða nóg? Má ekki sam- eina deildir til að ná fram enn meiri hagkvæmni? Er ekki sameining spít- alanna lausnin? Stjómendur sjúkrahúsanna staðhæfa að allt þetta hafi verið gert í einhverjum mæli - nema sameining spítalanna - en þær aðgerðir hafi ekki dugað. Nú verði að koma til ný og breytt hugsun við fjármögnun sjúkra- húsarekstrar á Islandi. Samhliða hagræðingum hefur fjárveitingavaldið skammtað sjúkrahúsunum nokkrar aukafjár- veitingar. Oft hafa þær verið skil- yrtar, sett fram gulrót í formi lof- orða um meira fjárframlag ef þetta eða hitt verður gert í hagræðingar- skyni. Sjúkrahússtjómum finnst hins vegar stundum hafa skort á forsendur til hagræðingar og efnd- ir um stuðning við aðgerðir verið minni en lofað var. Fjárveitingar oft miðaðar við rekstur eftir að- gerðir, sem ráðast þurfti í tii hag- ræðingar, en ekkert fjárhagslegt svigrúm veitt til að geta ráðist í þær. Endurskoða þarf fjárveitingakerfið Á nýlegum ársfundi Ríkisspítala sagði Vigdís Magnúsdóttir forstjóri nauðsynlegt að taka til endurskoð- unar kerfi fastra fjárveitinga án skilgreininga. Hún sagði kostnað- aráætlanir hafa verið raunhæfar miðað við umfang en fjármagn ekki fengist í samræmi við núverandi þörf. Magnús Skúlason, fram- kvæmdastjóri fjármála og rekstrar SHR, sagði á aðalfundi Félags for- stöðumanna sjúkrahúsa að þegar rekstrarskilyrði heillar atvinnu- greinar væra orðin með þeim hætti að hún byggi við stöðugan halla- rekstur væri kominn tími til að stokka upp spilin. Sé fyrst litið til Sjúkrahúss Reykjavíkur vantar á þessu ári vantar um 320 milljónir króna í reksturinn. Á næsta ári vantar 424,6 milljónir króna í reksturinn mið- að við óbreytta starf- semi. Stjórnendur spít- alans telja hugsanlegt að ná megi nokkram leiðréttingum og að miðað við það muni vanta 343 milljónir. Þeir segja veralegt van- mat í fjárlagafrumvarpinu á hækk- unum vegna kjarasamninga og að spítalanum sé ætlað að afla sér- tekna án þess að tilgreina hvernig svo megi verða. Á það að gerast með taxtabreytingum eða nýjum komugjöldum? Meiri kostnaður vegna vinnu- tíma og 2000-vandans Fyrir utan þetta hafa stjórnend- ur SHR lagt áherslu á eftirtalin at- riði: 95-100 milljónir þarf til að geta ráðið 13 nýja aðstoðarlækna, 30 hjúkranarfræðinga, 6 ritara auk þess sem fjölga þarf sérfræðingum á nokkram deildum. Þessi fjölgun starfsfólks er nauðsynleg til að geta uppfyllt ákvæði EES-sam- komulagsins um vinnutíma. 150-200 milljónir vantar til að leysa 2000-vandann. Þar vegur þyngst endurnýjun á tækjum og búnaði á gjörgæslu og röntgen- deild, alls um 95 milljónir og kostn- aður við upplýsingakerfi sem talinn er verða á bihnu 35-40 milljónir. 215 milljónir króna þarf til að geta endumýjað röntgenbúnað á æðaþræðingarstofu, en heilbrigðis- ráðuneytið hefur þegar heimilað útboð, og til kaupa á segulómtæki. Samtals er því verið að óska eftir 470 til 520 milljónum til viðbótar. Þá era ónefndar óskir um nýja starfsemi að upphæð um 100 millj- ónir króna. Má þar nefna atriði eins og öryggisverði á slysadeild, áfangadeild fyrir geðsjúka, aukna starfsemi göngudeilda og vegna reksturs sjúkrahústengdrar heimahlynningar. Einnig er farið fram á 432 milljónir til meiri háttar viðhalds. Er heildarkostnaður við viðgerð utan húss talinn 410 millj- ónir og sagt að kostnaður hækki um 3-5% árlega íyrir hvert ár sem viðhaldið dregst. Einnig er bent á að nauðsynlegt sé að halda áfram framkvæmdum vegna eldvarna í samræmi við kröfur Eldvamaeftir- lits sem veitt hafi spítalanum alvar- legar viðvaranir vegna málsins. Uppsafnaður vandi í tækjakaupum í rökstuðningi fyrir tækjakaup- um benda stjórnendur SHR á að síðustu árin hafi framlög til þessa liðar verið innan við 1% af rekstr- arkostnaði, sem era innan við 60 milljónir króna, en telja að fram- lagið þurfi að vera á bilinu 3-5% sem myndi þýða 180 til 300 milljón- ir. Alls er farið fram á 447 milljónir til tækjakaupa og bent á að vegna lágra fjárframlaga síðustu ára sé hér við uppsafnaðan vanda að etja. I ár vora 64 milljónir áætlaðar til tækjakaupa að meðtöldu framlagi Reykjavíkurborgar og á næsta ári tilgreinir fjárlagaframvarpið sömu upphæð frá ríkinu eða 55 milijónir. Tveir stærstu liðimir í tækja- kaupum eni annars vegar áður- nefnt segulómtæki, sem ekki hefur verið starfrækt áður á sjúkrahús- inu, og hins vegar endurnýjun bún- aðar á æðaþræðingarstofu. Nauð- synlegt er talið að endurnýja æða- þræðingarstofu röntgendeildar á næsta ári vegna veralegra traflana á rekstri hennar vegna bilana. Sífellt er að fjölga ábendingum um notkun segulómtækis við rann- sóknir sem einkum era fyrst og fremst vegna heila- og taugasjúk- dóma, ýmiss konar áverka og fleira. Þrátt fyrir að til séu tvö slík tæki í rekstri hjá einkaaðilum í höf- uðborginni segja stjómendur SHR nauðsynlegt að segulómtæki sé á spítalanum enda sé hann aðalslysa- spítalinn. Utilokað sé að flytja sjúklinga, ekki síst slasaða sem yf- irleitt er komið með á slysadeild- ina, á annan stað vegna slíkra rannsókna. Þeir spyrja einnig hvers vegna öðram aðil- um séu heimiluð kaup á slíku tæki, sem fjár- magnað sé óbeint með framlögum frá ríkinu með kaupum á þjónustu, en ekki SHR. Telja þeir fullvíst að þörfin sé fyrir hendi og verkefnin næg. títiiokað að Ríkisspítalar safni upp meiri halla Framkvæmdastjórn Ríkisspítala lagði áherslu á að fá í gegn nokkur forgangsverkefni á fundi sínum með fjárlaganefnd nýlega. Þau era í fyrsta lagi að tryggja fjármagn tii núverandi starfsemi og til að ráða bót á uppsöfnuðum halla, í öðra lagi framlag til endurnýjunar lækningatækja, í þriðja lagi að fá fjármagn í viðhald og í fjórða lagi er síðan Barnaspítalinn sem þegar er kominn með byrjunarfjái-veit- ingu. I ár verður halli Ríkisspítala um 307 milljónir króna. Hallinn stefndi í nærri 490 milljónir en þegar hafa fengist 166 milljónir af sérstakri fjárveitingu sem sjúkrahúsunum var skömmtuð síðasta sumar. Frá áranum 1995 til 1997 hafa safnast upp 200 milljóna ki-óna skuldir og miðað við fjárlagaframvarpið eins og það er nú vantar 280 milljónir uppí reksturinn á næsta ári. Alls vantar því um 787 milljónir í rekst- urinn til að jafnvægi komist á. For- ráðamenn Ríkisspítalanna segja útilokað að draga allan þennan vanda áfram. Vaxtakostnaður auk- ist sífellt og í ár verði hann kring- um 50 milljónir króna. I fyrra var hann 47 milljónir og árið 1996 32 milljónir. Þá segja þeir slæma fjár- hagsstöðu einnig hafa áhrif á við- skiptakjör spítalans. Þeir telja mögulegt að bera 200 milljóna króna skuld frá fyrri áram en segja alveg nauðsynlegt að fá 307 millj- ónirnar sem vantar uppá þetta ár og 280 milljónir fyrir næsta ár. Framlag ríkisins til Bamaspítala Hringsins á þessu ári, 200 milljón- ir, var tekið í reksturinn til að létta á vaxtabyrðinni en nú þegar fram- kvæmdir við spítalann era hafnar er byi-jað að greiða það fé til baka. Er það gert jafnóðum og Fram- kvæmdasýsla ríkisins innheimtir fyi-ir hvern verkáfanga. Lokað og dregið úr þjónustu Fái Ríkisspítalar ekki umbeðna viðbótarfjái-veitingu segja forráða- menn nauðsynlegt að draga úr þjónustu. Slíkt verði ekki gert nema loka deildum eða leggja nið- ur einhverja starfsemi. Allir þættir séu komnir upp að vegg í sparnaði og útilokað að ganga lengra í þeim efnum. Auk óska um fjánnagn til að tryggja núverandi starfsemi og til að ráða bót á uppsöfnuðum halla bára forráðamenn Ríkisspítala fram svipaðan lista og forráða- menn SHR og rakið verður hér á eftir. Fá þurfi fjármagn í brýna þörf á endumýjun lækningatækja. Meðalaldur tækja í dag er 8 ár en lífaldur þeirra er að mati sérfræð- inga 5 til 7 ár. Farið er fram á 493,7 milljónir vegna meiriháttar eignakaupa. Þar má nefna 55 millj- ónir til endumýjunar á myndgrein- ingartækjum röntgendeildar, 20 milljónir til endurnýjunar á ný- buragjörgæslukerfi, 32 milljónir til endumýjunar á ómsjá á sónardeild kvennadeildar, 15 milljónir til end- urnýjunar á tölvukei'fi fyrir rann- sóknadeildir Landspítalans, 18 milljónir til lagfæringar á geisla- hermi á krabbameinslækninga- deild og 20 milljónir til endurnýj- unar og uppbyggingar á miðtölv- um, netbúnaði og fleira fyrir tölvu- deild, svo nokkuð sé nefnt. Þá þurfa Ríkisspítalar 430 millj- ónir til að ráða fleira starfsfólk, lækna, lyfjafræðinga, hjúkranar- fræðinga, meinatækna og fleiri vegna vinnutímatilskipunar EES. Um 150 milljónir þarf vegna 2000- vandans og um 218 milljónir sam- tals vegna nýrrar starfsemi. Þar má nefna atriði eins og að taka upp beinmergsflutninga hérlendis sem kostað gætu 26 milljónir, sem þýddi millifærslu á fjár- munum en ekki viðbót- arútgjöld iyrir ríkið, 30 milljónir til átaks til að stytta biðlista í bæklunarlækningum og 25 milljónir í húsaleigu fyrir Templarahöllina. Ráðgert er að flytja þangað skrifstofur og aðra starfsemi Ríkisspítala sem nú er við Rauðarárstíg og Þverholt og raunar líka deild af Vífilsstöðum. Þá er farið fram á 200 milljónir vegna meiriháttar viðhaldsverk- efna. Er þar bæði um að ræða inn- an- og utandyraviðhald, verkefni sem kosta frá tveim til þrem millj- ónum króna upp í 10 til 20 milljónir auk endurnýjunar á einni legudeild á ári sem talið er nauðsynlegt að fara í en slíkt verkefni kostar kringum 44 milljónir. Séu öll þessi verkefni tekin saman er fjárþörfin kringum 1,7 milljarðar króna. Að viðbættum óskum SHR era bæði sjúkrahúsin að tala um 2,3 milljarða fjárþörf fyrir utan rekstrarvandann sem á þeim hvílir nú. „Mörg hundr- uð milljónir í tækjakaup“ „Kominn tími til að stokka upp spilin“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.