Morgunblaðið - 09.12.1998, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 09.12.1998, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1998 13 ■ FRÉTTIR Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti sjálfstæðismanna í borgarsljórn Reykjavíkur Skuldsetning veikir stöðu nýja orkufyrirtækisins INGA Jóna Pórðardóttir, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur, segir að með skuld- setningu hins nýja orkufyrirtækis í Reykjavík, sem ætlunin er að taki til starfa um áramót með samruna Hitaveitu Reykjavíkur og Raf- magnsveitu Reykjavíkur, sé verið að veikja fyrirtækið og gera því erfiðara um vik að sinna þeim verkefnum sem því var ætlað að sinna. Inga Jóna sagði að með því að færa eigið fé fyrirtækisins niður í 70% eða 21 milljarð króna væri heimild til að skuldasetja fyrirtækið fyrir hærri upphæð en nemur þeim 3,5 milljöðrum sem nú væru í bí- gerð. Staða fyrirtækisins mundi veikjast af þessum sökum gagnvart þeim verkefnum sem því hefði verið ætlað að sinna. Fráleit ráðstöfun Inga Jóna sagði að í orðum for- manns stjórnar veitustofnana fælist til viðbótar að þessum fjármunum yrði að mestu leyti varið til þess að greiða niður skuldir. í þessum orð- um fælist viðurkenning á því að nota ætti hluta þeiiTa fjármuna sem yrðu til fvrir tilverknað skuldsetn- ingar orkufyrirtækisins í rekstur borgarsjóðs sem væri fráleit ráð- stöfun. Þá segði formaður stjórnar veitustofnana að það væri eðlilegt að eigandi fyrirækisins hefði vexti af fjárfestingu sinni. í því sambandi væri nauðsynlegt að hafa í huga að bæði Rafmagnsveita Reykjavíkur og Hitaveita Reykjavíkur hefðu sjálfar staðið undir fjárfestingum sínum með tekjum af gjaldskrá sinni. Inga Jóna sagði að til viðbótar hlyti hún að nefna að veltufé Raf- magnsveitu Reykjavíkur og Hita- veitu Reykjavíkur hefði rýmað mjög mikið. Handbært fé myndi rýrna á næsta ári um rúmar 600 milljónir króna samanlagt og það stefndi í að vera ekki nema í kring- um 200 milljónir króna hjá Raf- magnsveitunni og 250 milljónir hjá Hitaveitunni, sem væru hættumörk því það væri á mörkunum að það nægði til þess að fjármagna veltuna og því stefndi í að afla þyrfti yflr- dráttarlána til þess. Á árinu 1999 væri gert ráð fyrir að arðgreiðslur þessara orkufyrirtækja næmu sam- anlagt 1.387 milljónum ki'óna í borgarsjóð og þessar tæplega 1.400 milljónir króna færu inn í almennan rekstur. Við þessar aðstæður væri aðeins um tvennt að ræða. Annað- hvort léti borgin af kröfum sínum um arðgreiðslur eða þá að gjald- skráin yrði hækkuð til þess að standa undir þessu. Slíkt lægi ekki fyrir við afgreiðslu fjárhagsáætlun- ar nú, en hún teldi að gjaldskrár- hækkanir fyrirtækjanna yrðu kynntar fljótlega á næsta ári. Inga Jóna sagði ennfremur að þessar tilfæringar í sambandi við orkufyrirtækin og hækkun út- svarsprósentunnar í Reykjavík væru áfellisdómur yfir fjármála- stjórn meirihlutans í borgarstjórn. Bryndís Hlöðversdóttir alþingismaður Einkaleyfi brot á jafnræðis- ákvæði? BRYNDÍS Hlöðversdóttir, alþing- ismaður og lögfræðingur, telur hugsanlegt að einkaleyfi til gerðar og starfrækslu miðlægs gagna- gi'unns á heilbrigðissviði stangist á við jafnræðisákvæði stjórnarskrár og ákvæði stjórnarskrárinnar um atvinnufrelsi í ljósi dóms Hæsta- réttar í máli Valdimars Jóhannes- sonar gegn íslenska ríkinu varðandi úthlutun veiðiheimilda. Bi-yndís bendir á að samkvæmt dómi Hæstaréttar standist úthlutun veiðileyfa til ákveðins hóps manna ekki ákvæði stjórnarskrárinnar um jafnræði og atvinnufrelsi. Hún seg- ist ekki vilja fullyrða að hið sama eigi við varðandi einkarétt til gerðar og starfrækslu gagnagrunns á heil- brigðissviði en sú spuming hljóti þó að vakna. „Er ekki verið að skerða jafnræðisreglu og atvinnufrelsi manna með því að veita einu fyrir- tæki, sem starfar á mai'kaði líf- tækniiðnaðarins, einkarétt til þess að búa til og starfrækja miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði? Sá aðili hefur einn óheftan aðgang að grunninum. Hann getur haft áhrif á að öðrum vísindamönnum verði neitað um aðgang að grunninum á þeim forsendum að það skerði við- skiptahagsmuni hans. Er þetta ekki hugsanlega brot á þessum sömu ákvæðum stjómarskrárinnar?" seg- ir Bryndís í samtali við Morgun- blaðið. Fyrr eða síðar kært til samkeppnisyfirvalda Bryndís skilar séráliti um gagna- gmnnsfrumvarpið í heilbrigðisnefnd Alþingis og telur að persónuvemd sé ekki nægilega tryggð í granninum. Einnig telm' Bryndís að frumvarpið feli í sér óeðlilega opinbera íhlutun í málefni atvinnuh'fsins. Veiting einka- réttai- til eins fyrirtækis á gerð og starfrækslu gagnagrannsins muni í krafti markaðsráðandi stöðu þess' hafa skaðleg áhrif á önnur fyiirtæki sem starfi á sama sviði. Bryndís segir að frjáls sam- keppni sé lífsnauðsynleg til þess að rannsóknarfrelsið sé virt og hún sé líklegust til þess að skila mestri framþróun til lengri tíma litið. Bryndís segir framvarpið brjóta í bága við samkeppnisreglur EES og málið muni fyrr en síðar verða kært til samkeppnisyfirvalda. Skora á Alþingi að samþykkja ekki gagnagrunnsfrumvarpið Senda ekki upplýsingar um sína sjúkiinga í grunninn „VIÐ undirrituð, læknar, skorum á Alþingi að samþykkja ekki fyrir- liggjandi framvarp um miðlægan gagnagi'unn á heilbrigðissviði," segir í áskoran 108 lækna sein send var al- þingismönnum í gær. I bréfinu segj- ast læknarnir ekki munu senda upp- lýsingar um sjúklinga sína í hinn væntanlega miðlæga gagnagrann nema samkvæmt skriflegri ósk þeirra. í áskorun sinni segja læknai’nir að frumvarpið stangist á við siðareglur, þar sem gert sé ráð fyrir rannsóknum á persónugreinanlegum upplýsingum um einstaklinga án samþykkis þeirra. Framvarpið sé hættulegt, þar sem engin lög séu til í landinu um vernd einstaklinga fyiir misnotkun á erfða- fræðilegum upplýsingum og frum- varpið sé skaðlegt vísindunum. „Framfarir í læknisfræði og nauð- syn vísindanna kalla á rannsóknir í erfðafræði, sem tengdar eru upplýs- ingum, sem fá má úr persónutengd- um og dreifðum gagnagrannum, þar sem allar upplýsingar eru látnar jafnt og þétt af hendi með upplýstu samþykki þátttakenda. Við teljum að frumvarpið um gagnagrunninn mæti ekki þessum kröfum. Ef það verður að lögum getur það spillt fyrir öðr- um rannsóknum, sem stundaðar kunna að verða á þessu sviði. Af þessum sökum munum við und- irrituð ekki senda upplýsingar um sjúklinga okkar í hinn væntanlega miðlæga gagnagrunn nema skv. skriflegri ósk þeirra,“ segir í áskor- un læknanna 108 til Alþingis. Gagnagrunnurinn verður aldrei að veruleika Læknarnir Sigurður Björnsson og Tómas Zoéga segja í bréfi sem fylgir áskoruninni að andstaða við frumvarpið sé svo mikil að ef frum- varpið verði samþykkt í því formi sem það er í nú verði gagnagrunn- urinn aldrei að veruleika. Sigurður segir í samtali við Morgunblaðið að mörg siðfræðileg og lagaleg álita- mál séu uppi og bendir hann m.a. á álit Samkeppnisstofnunar og Laga- stofnunar, máli sínu til stuðnings. Segir hann með ólíkindum hvað Al- þingi geri lítið úr þessum athuga- semdum. Pá komi fram mjög alvar- lega viðvaranir í bréfi samtaka tölvunefnda í Evrópu til dómsmála- ráðherra frá því seint í sumar. „Það verður að gæta jafnræðis og frelsis í þessu landi. Mér finnst illa komið fyrir stærsta flokki landsins, sem margir hafa stutt, að hann skuli beita sér fyrir jiessari takmörkun á frelsi manna á Islandi og veita einok- un eða sérrekstrarleyfi í tólf ár til fyrirtækis, sem er íslenskt til að byrja með en það veit enginn hvað verður þegar þetta fyrirtæki verður komið á hlutabréfamarkað í Banda- ríkjunum og menn geta farið að kaupa þetta á Wall Street. Þá ræður enginn örlögum þessai-ar þjóðar, þetta snertir því fullveldi þjóðarinn- ar,“ segh’ hann. Mun ekki brjóta læknaeið eða læknalög Sigurður segist hafa tjáð sínum sjúklingum að ástæðulaust væri fyr- ir þá að hafa áhyggjur því hann muni ekki senda upplýsingar um þá inn í gagnagrunninn, nema þeir gefi heimild til þess eða óski sérstaklega eftir því. „Eg mun ekki brjóta læknaeiðinn, ég mun ekki brjóta læknalög og ég mun ekki brjóta lög um réttindi sjúklinga með því að senda sjúkraskýrslurnar mínar frá mér svo fólk geti pikkað út úr þeim einhverjar upplýsingar sem ég veit ekki um, hugsanlega í andstöðu við skoðanir sjúklinganna," sagði Sig- urður. Hringbrautin sunnan við Umferðarmiðstöð NÝTT vegarstæði Hringbrautar- innar verður talsvert sunnar en núverandi vegarstæði og mun brautin verða lögð milli Reykja- víkurflugvallar og Umferðarmið- stöðvarinnar, eins og sést á með- fylgjandi korti sem hér er endur- birt vegna tæknilegra mistaka. Hafist verður handa um fram- kvæmdir árið 2001 og þeim Iokið árið 2002 samkvæmt samkomu- lagi ríkis og borgar þar um. STEINAR WAAGE kr. 14.900 kr. 13.900 kr. 14.900 lilll \() MAGLI kr. 14.900 lilil \<) MAGLI kr. 13.900 lilll\() MAGLI STEINAR WAAGE KRINGLAN Kringlunni 8-12, Reykjavík Sími 568 9212 '
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.