Morgunblaðið - 09.12.1998, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1998
MORGUNB LAÐIÐ
VIÐSKIPTI
/ x
Isak Olafsson kjörinn stjórnarformaður
Hraðfrystistöðvar Þórshafnar
Samruni felldur
á aðalfundi Skála
ÍSAK Ólafsson, sveitarstjóri á
Þórshöfn, hefur verið kjörinn
stjómarformaður Hraðfrystistöðv-
ar Þórshafnar hf. Hann tekur við
af Reinhard Reynissyni sem látið
hefur af stjómarstörfum í félaginu.
Frá þessu var gengið á hluthafa-
fundi á mánudag. Fyrir fundinum
lá einnig tillaga um að sameina fé-
lagið Skálum ehf. en sú tillaga var
tekin af dagskrá sökum þess að
ekki hafði náðst samkomulag um
sameiningu á aðalfundi Skála fyrr
um daginn.
Samkvæmt fréttatilkynningu lá
íyrir aðalfundi Skála afgreiðsla á
sammnaáætlun við Hraðfrystihús
Þórshafnar, sem stjóm félagsins
hafði þegar samþykkt. Við af-
greiðslu tillögunnar gerði minni-
hluti hluthafa í félaginu hins vegar
grein fyrir því að hann myndi ekki
samþykkja sammnann og krefðist
innlausnar ef sameining yrði sam-
þykkt. I framhaldi af því var sam-
ranatillagan felld.
Niðurstaðan
kom á óvart
Að sögn Reinhards Reynissonar,
fráfarandi stjómarformanns Hrað-
frystistöðvarinnar, kom þessi nið-
urstaða nokkuð á óvart í ljósi þess
að fulltrúar minnihlutans hafa ver-
ið aðilar að samranaferlinu frá því
að undirbúningur hófst á síðasta
ári. Hann segir ljóst að úr því sem
komið er þá sé sameiningin fyrir bí
að sinni og að félagið Skáli verði
því áfram rekið í óbreyttu formi,
sem hlutdeildarfélag Hraðfrysti-
stöðvarinnar.
Búlandstindur hf
Rekstrarreikningur fyrir tímabilið
september 1997 til ágúst 1998
Rekstrarreikningur 1998 1997 Breyting
Rekstrartekjur Miiijónir króna 1.013,3 991,2 2,2%
Rekstrargjöld 999,6 873,4 14,5%
Afskriftir (122,2) (94,0) 30,0%
Hagnaður (tap) fyrir fjármagnsliði Fjármagnsgjöld (108,5) (85,8) 23,8 (74,1) 15,8%
Tap tímabilsins (194,3) (54,5) 256,5%
Efnahagsreikningur 31. ágúst 1998 1997 Breyting
1 Eignir: | 354,1 1.447,3 406,0 1.019,5 ■12,7% 42,0%
Veltufjármunir Milljónir króna Fastafjármunir Eignir samtals
1.801,4 1.425,5 26,4%
1 Skuidir on eigiö fé: 1 Skammtímaskuldir 481,8 457,3 5,4%
Langtímaskuldir 1.264,1 678,8 86,2%
Eigið fé 179,7 370,4 -51,5%
Skuldir og eigið fé samtals 1.801,4 1.425,5 26,4%
Kennitölur 1998 1997
Veltufé frá rekstri Milljónir króna (89,5) 38,8
Handbært fé í lok tímabilsins 86,9 4,6
Vísir hf. í Grindavík kaupir 51% í Búlandstindi hf. á Djúpavogi
Ný stjórn hyggst snúa
taprekstri í hagnað
ÚTGERÐARFYRIRTÆKIÐ Vísir hf. í Grinda-
vík hefur eignast 51% hlut í Búlandstindi hf. á
Djúpavogi. Greint var frá kaupunum á aðalfundi
Búlandstinds sem haldinn var í gær. A fundin-
um kom fram að taprekstur varð á rekstrarári
félagsins upp á rúmlega 194 milljónir króna og
að skuldir jukust úr einum milljarði í rúmlega
1,6 milljarða. Fjórir nýir stjórnarmenn hafa tek-
ið sæti í stjórn félagsins.
Bjartsýnn á rekstur félagsins
Pétur H. Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis
og nýr stjórnarformaður Búlandstinds, vildi
ekki ræða um kaupverð né af hverjum hlutaféð
var keypt. Hann sagði aðeins að keypt hefði
verið af fyrrverandi meirihluta. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins eru fyrrverandi
hluthafar Olíufélagið og fyrirtæki sem tengjast
félaginu.
„Ég er bjartsýnn á rekstur Búlandstinds
þrátt fyrir taprekstur og er sannfærður um að
hægt sé að snúa tapi í hagnað. Það er margt í
umhverfi Búlandstinds og Vísis, sem mælti með
kaupunum. Við höfum róið mikið fyrir austan
og landað talsverðu af aflanum á Austfjörðum."
Vísir er fjölskyldufyrirtæki sem rekur fimm
línuskip og er með saltfiskvinnslu og útgerð í
Grindavík.
Breytingar í stjórn
Töluverðar breytingar hafa verið gerðar á
stjórn Búlandstinds. Fjórir nýir stjórnarmenn
tóku sæti á aðalfundinum í gær. I nýrri stjóm
era Andrés Oskarsson, Páll Jóhann Pálsson,
Pétur H. Pálsson, Ragnar Bogason og Jón
Karlsson.
Haraldur L. Haraldsson, sem tók tímabundið
við starfi framkvæmdastjóra Búlandstinds í
október, sagði í samtali við Morgunblaðið að
þrennt hefði einkum valdið auknum skuldum á
rekstrarárinu, en það er gert upp miðað við
kvótaár. „Félagið keypti nýjan togbát með
kvóta, Mánatind. Einnig var unnið að uppbygg-
ingu á bræðslunni á Djúpavogi. Þá hefur félagið
þurft að taka lán til þess að fjármagna rekstur-
inn vegna mikils tapreksturs."
Farsæl lausn
Haraldur sagði að meirihlutakaup Vísis í
Búlandstindi væri farsæl lausn fyrir Djúpavog
og Breiðdalsvík, en fyrirtækið rekur starfsemi á
báðum stöðum. Um 130 manns starfa hjá félag-
inu en það gerir út frystitogarann Sunnutind og
Mánatind, sem aflar fyrir landvinnsluna á
Breiðdalsvík. Á Djúpavogi hefur starfsemi fé-
lagsins einkum byggst upp í kringum vinnslu á
uppsjávarfiski, loðnu og sfld.
Umtalsverð
viðskipti
með hluta-
bréf SÍF
UMTALSVERÐ viðskipti
hafa átt sér stað með hluta-
bréf í SÍF hf. í vikunni eða
fyrir alls kr. 20.705.000 að
nafnverði. Á mánudag seldi
Lífeyrissjóður verslunar-
manna hlutabréf í félaginu að
nafnverði 8 milljónir króna.
Við söluna lækkaði eignar-
hlutur lífeyrissjóðsins um
1%, úr 5,09% í 4,09%. Þá
sendu Framleiðendur ehf.
Verðbréfaþingi Islands upp-
lýsingar i gær um sölu á
1,58% hlut í SÍF að nafnvirði
kr. 12.705.000. Eignarhlutur
Framleiðenda ehf. minnkar
því úr 6,20% í 4,62%. Ekki er
vitað hver eða hverjir standa
að ofangreindum kaupum en
sé tekið mið af gengi bréfa
SIF um þessar mundir nem-
ur söluverðmæti þeirra
2,58% .
GSM í Austur-
löndum fjær
LANDSSÍMI íslands hf. hef-
ur að undanfórnu gert reiki-
samninga við nokkur farsíma-
félög í Austurlöndum fjær og
geta GSM-notendur í kerfi
Landssímans nú notfært sér
þjónustu þessara fyrirtækja.
I fréttatilkynningu kemur
fram að frá og með 10. desem-
ber geta viðskiptavinir Lands-
símans notfært sér þjónustu
Mandarin Communications
Ltd., „SUNDAY“ í Hong
Kong. Þetta er GSM 1800-
kerfi og kerfisnúmerið er 454-
16.
Frá 2. desember hafa við-
skiptavinir Landssímans get-
að notfært sér GSM-þjónustu
CTM (Companhia de Tel-
ecomunicacoes de Macau) á
Macao. Þetta er GSM 900-
kerfi og GSM 1800 er að fara í
gang. Kerfisnúmer er 455-01.
Þá hafa GSM-notendur í
kerfi Landssímans getað not-
að þjónustu GSM 1800-kerfis
Tuntex Telecommunications á
Taívan frá 19. nóvember.
Kerfisnúmer er 466-06.
Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans
Skýrar leikreglur
verða að gilda
HALLDÓR J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbanka íslands hf., telur
að dómur Hæstaréttar í máli Valdi-
mars Jóhannessonar gegn íslenska
ríkinu hafi leitt til réttaróvissu og
geti haft truflandi áhrif á starfsemi
sjávarútvegsfyrirtækja. Hann segir
þá skyldu hvfla á löggjafanum að
eyða þessari óvissu hið fyrsta og
telur afar brýnt að það verði gert
fyrir árslok.
Um 35% af útlánum Landsbank-
ans era til sjávarútvegsfyrirtækja
og fyrirtækja sem tengjast sjávar-
útvegi. Halldór segir að þau skiptist
í grófum dráttum í þrennt, fyrir-
tæki í fiskveiðum, fiskvinnslu og
verslun með sjávarafurðir. „Þessi
viðskipti era í ólíkum greinum víða
um land og vel áhættudreifð. Lán
og veð bankans era því vel tryggð
og í viðunandi jafnvægi. I samfélagi,
þar sem svo stór hluti atvinnulífsins
hvílir á fiskveiðum og fiskvinnslu,
verða að gilda skýrar leikreglur,
sem tryggja að hægt sé að fjár-
magna nýfjárfestingar í greininni.
Ekki er óalgengt að endurgreiðslu-
tími fjárfestinga í sjávarútvegi sé
10-12 ár. Að sjálfsögðu er ekki
hægt að ráðast í slíkar fjárfestingar
né fjármagna þær nema viðkomandi
fyrirtæki hafi tryggt greiðsluflæði
til að standa undir þeim. Þegar um
fiskiskip er að ræða verður það að
byggja á tryggum aflaheimildum til
lengri tíma, Fjánnálastofnanir, sem
lána sjávarútvegsíyrirtækjum fé,
verða því að geta treyst á langtíma-
festu að þessu leyti og það hlýtur að
vera hlutverk löggjafans að tryggja
öraggt starfsumhverfi."
Brýnt að eyða óvissunni
Halldór segir að verði slíku jafn-
vægi raskað geti greinin tapað getu
til fjárfestingar og hagræðingar og
slíkt hefði mikið tjón í för með sér
fyrir þjóðina alla. „Það liggur því í
augum uppi að mikilvægt er að eyða
þegar í stað þeirri réttaróvissu, sem
dómur Hæstaréttar í hinu svokall-
aða kvótamáli, hefur haft í för með
sér. Það getur vissulega haft trafl-
andi áhrif á starfsemi sjávarútvegs-
fyrirtækja ef réttaróvissunni verður
ekki breytt hið fyrsta. Miklir þjóð-
hagslegir hagsmunir eru við það
bundnir að aðalatvinnuvegir lands-
ins geti eflst og endurnýjast. Ég er
reyndar sannfærður um að þessari
óvissu verður eytt fyrir árslok enda
lít ég svo á að það sé skylda lög-
gjafans að gera það sem fyrst. Eg
hef því í sjálfu sér ekki áhyggjur af
málinu og vara við því að dregnar
séu of víðtækar ályktanir um kerfið
í heild út frá þessum afmarkaða
dómi,“ segir Halldór.
ScottishPower
sækir til Banda-
ríkjanna
London. Telegraph
SCOTTISHPOWER, stærsta
veitufyrirtæki Skotlands, hefur
samið um kaup á bandarísku al-
menningsveitunni PacificCorp á
vesturströnd Bandaríkjanna fyrir
um 7,9 milljarða dollara í hlutabréf-
um, eða 553 milljarða íslenskra
króna.
Með samningnum verður komið á
fót fyrirtæki með 7 milljónum við-
skiptavina í Bretlandi og Bandaríkj-
unum.
Þótt fleiri erlend fyrirtæki han
fjárfest í orkuveram í Bandaríkjun-
um er þetta fyrsti samningurinn um
kaup á heilli bandarískri rafmagns-
veitu, ef samþykki eftirlitsyfirvalda
fæst.
PacificCorp er þriðja stærsta al-
menningsveita vestan Mississippi,
hefur 1,4 milljónir viðskiptavina í
sjö vesturríkjum Bandaríkjanna og
um 10.000 starfsmenn. Fyrirtækið
er eignarhaldsfélag Pacific Power
og Utah Power.
ScottishPower veitir 5 milljónum
brezkra heimila gas, vatn, rafmagn
og símaþjónustu og hefur um 15.000
starfsmenn.
Dræmar undirtektir
Verð hlutabréfa í ScottishPower
lækkaði um 66 pens í 609 í London
vegna dræmra undirtekta við tilboði
í bandarískt veitufyrirtæki, sem er
rekið með tapi. Sérfræðingum
finnst verðið of hátt og vafasamt að
skozkt fyrirtæki spjari sig við
bandarískar aðstæður. Verð hluta-
bréfa í Pacific Corp hækkaði um
21% vestanhafs.
Hluthafar Scottish Power eignast
64% hlut í Pacifíc Corp. Scottish-
Power tekur við 4,9 milljóna doll-
ara skuld bandaríska fyrirtækisins.
Aðalstöðvar nýja fyrirtækisins
verða í Glasgow, en PacificCorp
mun stjórna umsvifum Scottish-
Power í Bandaríkunum frá
Portland.