Morgunblaðið - 09.12.1998, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 09.12.1998, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1998 23 Ecevit skili umboðinu HELSTI leiðtogi íslömsku stjórnarandstöðunnar í Tyrk- landi, Recai Kutan, skoraði í gær á vinstri- manninn Bu- lent Ecevit að skila umboði sínu til að mynda nýja samsteypu- stjóm og sagði ljóst að Bulent hann myndi Ecevit ekki fá nægj- anlegan stuðning á þinginu. Suleyman Demirel, forseti landsins, veitti Ecevit umboðið í vikunni sem leið eftir að minnihlutastjórn Mesuts Yilmaz féll vegna ásak- ana um spillingu. Ecevit hefur reynt að mynda þriggja flokka stjóm með hægriflokkum Tansu Ciller og Yilmaz en Cill- er gaf til kynna í fyrradag að hún væri ekki hlynnt þeirri hugmynd. Tilræði undirbúin á N-írlandi? LÖGREGLAN á Norður-ír- landi telur að klofningshópur út úr írska lýðveldishemum (IRA), sem stóð fyrir mann- skæðu sprengjutilræði í bæn- um Omagh í ágúst, hafi skipu- lagt sprengjuárásir á næstu vikum þótt hann hafi lýst yfir vopnahléi. Lögreglan fann sprengju, svipaða þeirri sem notuð var í Omagh, við húsleit í Dundalk í fyrradag og telur að hópurinn hafi ætlað að nota hana í tilræði síðustu dagana fyrir jól eða í byrjun næsta árs. Rússar fresta staðfesting-u START II ÞING Rússlands frestaði í gær umræðu um staðfestingu START II-samningsins frá 1993 sem kveður á um að Bandaríkjamenn og Rússar fækki kjamaoddum sínum um helming, eða í 3.000-3.500. Meirihluti þingsins vill ekki samþykkja samninginn fyrr en lagt verður fram fmmvarp um framtíð kjarnorkuheraflans. Umræðan um frumvarpið átti að hefjast í gær en henni var frestað þar sem aðeins einn flokkanna, Jabloko, hafði lagt fram tillögur um frumvarpið áður en fresturinn til þess rann út. Nýr Þjóðar- flokkur í S-Afríku ÞJÓÐARFLOKKURINN í Suður-Afríku greindi frá því í gær að hann myndi taka þátt í kosningunum á næsta ári undir nafninu Nýi Þjóðarflokkurinn. Fylgi flokksins hefur minnkað veralega frá því F.W. de Klerk, fyi-rverandi forseti, sagði af sér sem flokksleiðtogi í fyrra. Fylgi hans er nú aðeins 10% en var 20% í fyrstu kosningunum eftir afnám kynþáttaaðskilnað- arins árið 1994. Höfuð fjögurra vestrænna gísla fínnast í vegarkanti í Tsjetsjníu Arás á mannræn- ingja var í bígerð Atsjkhoj-Martan. Reuters. HÖFUÐ fjögurra Vesturlandabúa, sem vopnaðar tsjetsjenskar sveith- tóku í gíslingu fyrir tveimur mánuð- um, fundust í gær í vegarkanti í Tsjetsjníu. Lík mannanna hafa ekki fundist. Þrír þeirra vora breskir en einn nýsjálenskur og unnu þeir að uppsetningu símkerfis í höfuðborg- inni Grozní er þeim var rænt í byrj- un október. Aslan Mashkadov, for- seti Tsjetsjníu, harmaði morðin í gær og kenndi „erlendum sérsveit- um“ og tsjetsjenskum aðstoðar- mönnum þeirra um verknaðinn. Vinnuveitandi mannanna sagðist hafa fengið upplýsingar um að tsjetsjensk yfirvöld hefðu haft upp á ræningjum mannanna og ætlað að gera árás á búðir þeirra í fyrra- kvöld. Svo virtist sem eitthvað hafi farið úrskeiðis með höi-mulegum af- leiðingum. Tsjetsjenskir embættismenn sögðu í gær að lífvörður mannanna hefði borið kennsl á höfuð Darrens Hickey, Rudolfs Petschi, Peters Kennedy og Stanleys Shaw. Mashkadov sagði í gær að morðunum hefði verið ætlað að ýta undir meira ofbeldi og koma í veg fyrir tilraunir hans til að koma á er- lendum tengslum við Tsjestsjníu. Þá sagði forsetinn að maður sem handtekinn var í síðustu viku, og talið er að tengist mannræningjun- um, hefði gefið upplýsingar um verustaði þeirra. Vera kynni að gísl- arnir hefðu verið myrtir af ótta við að til þeirra næðist. Robin Cook, utanríkisráðherra Bretlands, fordæmdi morðin í gær og Borís Jeltsín Rússlandsforseta var „afar brugðið" að sögn tals- manns hans. Að sögn rússneskra yfirvalda eru um 100 manns í haldi mannræn- ingja í Tsjetsjníu, flestir rússneskir hermenn. Fátækt og upplausnará- stand hafa einkennt síðustu tvö ár, á meðan á stríðinu við Rússa stóð og í kjölfarið. Ekkert land hefur viðurkennt sjálfstæði Tsjetsjníu en Rússar fara ekki lengur með stjórn þess. Er talsverð andstaða við Mashkadov heimafyrir og vopnaðar uppreisnar- sveitir hafa haldið uppi andstöðu við stjórn hans. Krefjast þær þess að íslömsk lög ríki og að öll tengsl við Rússa verði rofin. Staðalbúnaður meðal annars: Vökvastýri, samlæsing, upphituð framrúða, ræsitengd þjófavöm, 16 ventla, 1,25 lítra vél, rafdrifnir og upphitaðir speglar. Verð (á götuna): 3 dyra, kr. 1.098 þúsund, 5 dyra kr. 1.158 þúsund. a Líuxit'i 110.000 fer. jólapakki fylgir... Sjóðheit frétt! Besti smábíllinn 1 desemberhefti What Carr fær Fiesta 1,25 LX bestu einkunn í samanburði við þrjá helstu keppinautana: . Bestu aksturseiginleikarnir • Besta vinnslan . Besta staðsetning ökuxnanns Ford Fiesta, besta smábíl ársins 1998 að mati bílablaðsins What Car. í pakkanum er: • Geislaspilari • Rafdrifnar rúður • Loftpúði fyrir ökumann • Vetrardekk Verðmæti alls: 110.000 kr. Aðeins örfáir bílar til. Er eftir nokkru að bíða? Ford - fer vel með þig Brimborg-Þórshamar Bíley Betri bílasalan Tryggvabraut 5, Búðareyri 33, Hrísmýri 2a, Akureyri Reyðarfirði Selfossi sími 462 2700 sími 474 1453 sími 482 3100 Bílasala Keflavíkur Hafnargötu 90, Keflavík sími 421 4444 Tvisturinn Faxastíg 36, Vestmannaeyjum sími 481 3141 BRIMBORG FAXAFENI 8 • SÍMI 515 7010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.