Morgunblaðið - 09.12.1998, Side 24
24 MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Utanríkisráðherrar aðildarlanda NATO funda í Brussel
Hlutverk NATO í
breyttum heimi rætt
í Le Monde í gær að sá ótti Frakka
að stjórnvöld í Washington myndu
standa í vegi fyrir auknu varnar-
hlutverki ESB gerði hana „orðlausa
af undrun“. ,Af hverju ættum við
Bandaríkjamenn alltaf að þurfa að
hlaupa til og gera allt?“ spurði Al-
bright. „Það er fáránlegt ef Evrópu-
búar standa í þeirri trú að við séum
mótfallin því að þeir geti gripið til
aðgerða."
Bandaríkjamenn væru alls ekki
mótfallnir því að ESB geti „hreins-
að til í eigin bakgarði" en þeir vildu
hins vegar ekki að aukið varnar-
samstarf Evrópuríkjanna yrði til
að draga úr mætti NATO og sagði
Albright að mikilvægt væri að ekki
kæmi upp sú staða að núverandi
fyrirkomulagi á samstarfí NATO-
ríkjanna yrði stefnt í voða. Hafði
Albright varað við því í grein í The
Financial Times á mánudag að
varnarbandalag ESB yrði eftirlík-
ing NATO, eða að ESB myndi taka
ákvarðanir í varnarmálum sínum
án samráðs við önnur NATO-ríki.
Vilja bandarísk stjórnvöld koma í
veg fyrir að þeim NATO-ríkjum,
sem ekki eru í ESB, verði mismun-
að, en þar er m.a. litið til Tyrk-
lands.
Ekki var gert ráð fyrir að utan-
ríkisráðherrar NATO tækju nokkr-
ar ákvarðanir í gær en fundurinn
heldur áfram í dag, miðvikudag. Er
reiknað með að mótaðar verði hug-
myndir sem notaðar verða til við-
miðunar við samningu nýrrar
„markmiðaskrár" NATO, sem sam-
þykkja skal á hátíðarfundi banda-
lagsins í Washington í apríl næst-
komandi, en þá eru fimmtíu ár liðin
frá stofnun þess.
Rætt um varnarsamstarf ESB
Bretar og Frakkar urðu í síðustu
viku sammála um að Evrópusam-
bandið (ESB) ætti að geta staðið
fyrir hernaðaraðgerðum upp á sitt
eindæmi, en þetta er mikil stefnu-
breyting fyrir Breta sem hafa hing-
að til ekki viljað veita ESB hlutverk
í vörnum álfunnar. Var gert ráð fyr-
ir að Robin Cook, utanríkisráðherra
Bretlands, og Hubert Vedrine, ut-
anríkisráðherra Frakklands, myndu
kynna bandamönnum sínum í
NATO þessar hugmyndir á fundin-
um í Brussel.
Var haft eftir Madeleine Albright
Brussel, París. Reuters.
MADELEINE Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, hvatti í
gær aðildarríki Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO) til að sameinast í
baráttu gegn nýrri ógn sem stafar
af gereyðingarvopnum og vikka
sjóndeildarhring sinn svo hægt sé
að ræða almennar spurningar um
þá vá sem ógnar öryggi í heiminum.
Fullvissaði hún bandamenn Banda-
ríkjanna í NATO um að þarlend
stjórnvöld hefðu alls ekki í hyggju
að auka hlutverk NATO þannig að
það verði eins konar „alheims-
NATO“, eða alheimslögregla, en
sagði að bandalagið yrði samt sem
áður að vera reiðubúið að mæta at-
lögum að sameiginlegum hagsmun-
um aðildarlanda í öðrum heimshlut-
um.
Albright lét þessi orð falla á
fundi utanríkisráðherra NATO-
ríkjanna sem hófst í gær í Brussel í
Belgíu en þar er rætt um stöðu
NATO í aldarlok og hlutverk
bandalagsins á nýju árþúsundi.
Lagði Albright á fundinum til að
sett yrði á fót sérstök stofnun,
WMD, sem yrði vettvangur fyrir
NATO-ríkin til að skiptast á upp-
lýsingum þannig að bandalagið
verði betur fært um að meta þær
ógnir sem stafa af ríkjum eins og
t.d. Iran og Irak, og einnig samtök-
um og einstaklingum á borð við
hryðjuverkamanninn Osama Bin
Laden og hans sveitir.
Þessar tillögur Bandaríkjamanna
þykja hins vegar að mörgu leyti
endurspegla aðra umræðu, sem er
öllu umdeildari, um hvort NATO
eigi að færa út kvíarnar, bæði í Evr-
ópu og annars staðar. Vilja Evrópu-
ríkin ógjarnan verða „meðreiðar-
sveinar" Bandaríkjanna í aðgerðum
í öðrum heimshlutum sem einungis
tengjast hagsmunum Bandaríkj-
anna.
Vilja leyfa ein-
ræktun líffæra
Líkt við „tæknilegt mannát“
London. Reuters.
BRESKIR vísindamenn lögðu í
gær til við stjórnvöld, að þau
leyfðu notkun mannsfósturs við
einræktun og þá í þeim tilgangi
að lækna alvarlega sjúkdóma.
Yrði þá um að ræða ræktun á ein-
stökum líffærum eða vefjum, sem
kæmu í stað annarra sjúkra eða
skemmdra.
Kemur þetta fram í skýrslu,
sem nefnd sérfræðinga hefur
unnið, og þeir eru sammála
stjórnvöldum í því að banna ein-
ræktun manna. Hins vegar vilja
þeir halda dyrunum opnum fyrir
einræktun ýmissa vefja og líffæra
en við hana yrðu notaðar stofn-
frumur úr mannsfóstri. Segja
þeir, að þessi tækni geti til dæmis
komið að gagni við lækningu
sjúkdóma í heilavef, Alzheimers-
og Parkinsons-veiki, og ýmissa
tegunda ki’abbameins.
Sérfræðinganefndinni var falið
það í janúar sl. að vera stjómvöld-
um til ráðgjafar í þessum efnum,
jafnt hvað varðar lagalegar og sið-
ferðilegar hliðar þeirra, en ein-
ræktun manna hefur verið bönnuð
í Bretlandi fí’á 1990. Dolly, ærin
einræktaða, sem leit dagsins ljós í
íyrra, hefur hins vegar hleypt
nýju lífí í þessa umræðu.
Eftirmyndir í varahluti
Ymis samtök, sem berjast til
dæmis gegn fóstureyðingum,
hafa brugðist hart við yfirlýsingu
sérfræðinganna og segja tals-
menn þeirra, að verði leyft að ein-
rækta líffæri sé skammt í að böm
verði einræktuð. Segja þeir, að
sérfræðingamir séu að hvetja til
„tæknilegs mannáts", að gerðar
verði eftirmyndir af fólki og þær
síðan notaðar í varahluti.
Reuters
VERKFRÆÐINGUR rannsóknarstofnunar flugslysa í Bretlandi við flak þotunnar sem fórst í Lockerbie.
Alþýðuþing Líbýu ræð-
NATO hvatt til að
styðja stjórnar-
andstöðu í Serbíu
ir lfldega Lockerbie
Túnis. Rcutcrs.
ALÞYÐUÞING Líbýu kom saman
í gær og var gert ráð fyrir að
Lockerbie-málið yrði rætt á þing-
fundinum, sem talið er að geti var-
að í marga daga. Alþýðuþingið,
sem er æðsta löggjafar- og fram-
kvæmdavald í Líbýu, verður að
samþykkja formlega ákvörðun
stjórnvalda í Lockerbie-málinu, en
mikill þrýstingur er nú á Muamm-
ar Gaddafi, leiðtoga Líbýu, um að
framselja tvo Líbýumenn, Abdel
Basset Ali Mohamed al-Megrahi
og Lamen Khalifa Fhimah, til
Haag í Hollandi svo hægt sé að
rétta í máli þeirra. Fhimah og al-
Megrahi eru sakaðir um að hafa
staðið á bak við Lockerbie-
sprengjutilræðið árið 1988 þar sem
270 fórust.
A fundum alþýðuþingsins, sem
haldnir eru einu sinni til tvisvar á
ári, er rætt um öll meiriháttar mál
sem snerta hagsmuni Líbýu.
Á sama tíma og þingið kom sam-
an hófu líbýskir lögfræðingar fjár-
söfnun vegna varnar Líbýumann-
anna tveggja en Líbýa náði fyrr á
þessu ári fram þeirri kröfu sinni að
réttað yrði í máli þeirra í hlutlausu
landi, ef Líbýa samþykkti að fram-
selja þá. Enn er reyndar deilt um
þá kröfu stjórnvalda Bandaríkj-
anna og Bretlands að mennirnir
verði að sitja af sér dóm í
Skotlandi.
Aðild Danmerkur að Efnahags- og myntbandalagi Evrópu
Þj óðaratkvæða-
greiðsla 2001?
Kaupmannahöfn, London. Reuters.
DANSKA ríkisútvarpið hafði í gær
eftir Niels Helveg Petersen, utanrík-
isráðherra Danmerkur, að sennilega
yrði efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu
um þátttöku Dana í Efnahags- og
myntbandalagi Evrópu (EMU) árið
2001. Nýlegar skoðanakannanir hafa
bent til, að fylgjendum EMU-aðildar
í Danmörku hafi fjölgað.
Samkvæmt niðurstöðum breskrar
skoðanakönnunar er meh-ihluti Breta
enn andsnúinn EMU-aðild. Svipað
hlutfall brezkra kjósenda er hins veg-
ar sannfært um að landinu verði ekki
stætt á að standa utan við mynt-
bandalagið ef vel tekst til en það
verður að veruleika um áramótin.
I könnuninni sögðust 54% að-
spurðra myndu greiða atkvæði á
móti en 30% með EMU-aðild ef efnt
yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu um
málið. 16% voru óákveðin.
58% aðspurðra voru sammála
þein-i staðhæfingu, að komi mynt-
bandalagið til með að ganga vel, þá
muni Bretland ekki geta leyft sér að
standa utan við. Aðeins 30% voru
ósammála staðhæfingunni og 12%
voru óákveðin.
Brezka stjórnin hefur sagt, að
Bretland muni ekki ganga í EMU á
þessu kjörtímabili en komist hún að
þeirri niðurstöðu að það þjóni hags-
munum landsins bezt verði kosið um
myntbandalagsþátttökuna annað
hvort í næstu þingkosningum, sem
verða 2001 eða 2002, eða í þjóðarat-
kvæðagreiðslu í upphafi næsta kjör-
tímabils.
Brussel. Reuters.
MADELEINE Al-
bright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna,
hvatti í gær ríld Atl-
antshafsbandalagsins
(NATO) til að styðja
lýðræðissinnaða stjóm-
arandstæðinga í Serbíu
til að greiða fyrir var-
anlegum friði í Kosovo-
héraði.
„Kjarni vandamála
Kosovo er skortur á
ábyrgri, lýðræðislegri
forystu í Júgóslavíu,"
sagði Albright á fundi
utanríkisráðherra
NATO-ríkjanna í Brus-
sel í gær. „Og ég vona
að allar þjóðirnar, sem eiga hér full-
trúa, finni viðeigandi leiðir til að
efla lýðræðislöngun serbnesku
þjóðarinnar."
Þessi áskorun Albright bendir til
þess að Bandaríkjastjórn hafi tekið
UPP nýjar aðferðir í Kosovo-málinu,
sem feli m.a. í sér hreinskilnari og
hvassari gagmýni á Slobodan Milos-
evic, forseta Júgóslavíu, sambands-
ríkis Serbíu og Svartfjallalands.
Vopnahlésbrot af beggja hálfu
Utanríkisráðherrar NATO-ríkj-
anna gáfu út yfirlýsingu þar sem
þeir sögðust hafa áhyggjur af átök-
unum í Kosovo að undaníörnu og
sögðu að serbneskar öryggissveitir
og albanskir aðskilnaðarsinnar
hefðu brotið vopnahléssamninginn í
héraðinu.
Albright kvaðst hafa miklar
áhyggjur af „ögrandi
aðgerðum" Frelsishers
Kosovo og sagði að
Bandaríkjastjórn
reyndi að fá aðskilnað-
arhreyfinguna til að
láta af þeim. Hún lagði
hins vegar áherslu á að
„kúgun stjórnarinnar í
Belgrad" og „grimmd-
arleg valdbeiting
Milosevic fyrr á árinu“
væri helsta orsök
ófremdarástandsins í
héraðinu.
Samkomulag náðist
um vopnahlé í Kosovo í
október og það varð til
þess að NATO hætti
við hernaðaríhlutun í Serbíu til að
binda enda á árásir serbneskra ör-
yggissveita á albönsk þorp og bæi.
Yfirmaður herafla NATO í Evr-
ópu, bandaríski hershöfðinginn
Wesley Clark, hefur sagt að vopna-
hléssamningurinn hafi aðeins
tryggt fjögurra mánaða hlé á stríð-
inu og spáð því að það hefjist á ný ef
samkomulag næst ekki fljótlega um
aukna sjálfstjórn Kosovo.
Ráðherrarnir skoruðu einnig á
stjórnvöld í Júgóslavíu að tryggja
öryggi óvopnaðra eftirlitsmanna í
Kosovo á vegum Öryggis- og sam-
vinnustofnunar Evrópu og virða
ferðafrelsi þeirra í héraðinu. Javier
Solana, framkvæmdastjóri NATO,
sagði að bandalagið myndi kalla
Milosevie til ábyrgðar ef öryggi
eftirlitsmannanna yrði stefnt í
hættu.
Madeleine
Albright