Morgunblaðið - 09.12.1998, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1998 25
S Reuters
Utför í Manila
HUNDRUÐ manna vottuðu í gær
virðingu sína börnunum sem lét-
ust í bruna á munaðarleysingja-
hæli í Manila á Fiiippseyjum í
síðustu viku. Flest bömin, 25 að
tölu, voru borin til grafar í gær.
Bankers Trust og Deutsche Bank
Samruna frestað?
New York. Reuters.
FJARMALASTJORI New York-
borgar sagði í fyrradag, að fresta
bæri fyrirhuguðum samruna þýska
bankans Deutsche Bank og banda-
ríska bankans Bankers Trust þar til
skorið hefði verið úr kröfum fórnar-
lamba Helfararinnar á hendur fyrr-
nefnda bankanum.
Alan Hevesi, fjármálastjóri New
York-borgar, sagði, að þegar alrík-
isyfirvöld og yfirvöld í New York-
ríki fengju sameiningu fyrirtækj-
anna inn á sitt borð ættu þau að
huga að því hvernig Deutsche Bank
hefði tekið á kröfum gyðinga.
Stendur Heimsráð gyðinga nú í við-
ræðum við bankann og býst það við
að taka afstöðu til þessa máls eftir
tvær vikur.
Gyðingar, sem lifðu Helfórina af,
og ýmsir afkomendur þeirra, sem
létu lífið í útrýmingarbúðum nasista,
höfðuðu mál á hendur Deutsche
Bank í október sl. þar sem þeir saka
hann um að hafa unnið með nasistum
og hagnast á því að stela af banka-
reikningum gyðinga.
Verði af sameiningu bankanna
verður til stærsti banki í heimi hvað
eignir varðar.
Netanyahu reynir að forða stjórn sinni frá falli
Gæti þurft að falla
frá friðarsamningi
Jerúsalem. Reuters.
STJÓRNMÁLAMENN í ísrael,
jafnt stjornarsinnar sem stjómar-
andstæðingar, spáðu því í gær að
Benjamin Netanyahu forsætisráð-
herra myndi aðeins geta bjargað
stjóm sinni með því að falla frá frið-
arsamkomulaginu við Palestínu-
menn. Flest bendir til þess að um-
rótið í stjórnmálum Israels og átök
milli Palestínumanna og ísraelskra
hermanna á Vesturbakkanum eigi
eftir að varpa skugga á fyrirhugaða
heimsókn Bills Clintons Bandaríkja-
forseta til Israels og sjálfstjórnar-
svæða Palestínumanna í næstu viku.
Stjórn Netanyahus riðar til falls
vegna deilu milli harðlínumanna í
stjóminni, sem em andvígir því að
Israelar láti fleiri landsvæði á Vest-
urbakkanum af hendi, og stjómar-
andstæðinga er vilja að staðið verði
við friðarsamkomulagið. Netanyahu
fékk í fyrradag hálfs mánaðar frest
til að bjarga stjóm sinni en hann á
enn á hættu að þingið samþykki til-
lögu um vantraust á stjómina og
frumvarp um að boðað verði til þing-
kosninga innan tveggja mánaða.
Verður að færa sig til hægri
„A þessum tveim vikum verður
[Netanyahu] að færa sig til hægri,
taka öfgakenndari afstöðu - þ.e.a.s.
að falla að mestu leyti frá friðarum-
leitunum. Þetta er það sem hlýtur að
Stj órnmálaumrót-
ið varpar skugga
á ferð Clintons
valda okkur öllum mestum áhyggj-
um,“ sagði David Levy, fyrrverandi
utanríkisráðherra, sem gekk úr
stjóminni í janúar.
„Hann verður að ákveða hvort
hann vill frekar - þrýsting frá
Bandaríkjunum eða frá þjóðinni sem
kom honum til valda,“ sagði Moshe
Peled, þingmaður eins af hægri-
flokkunum í stjóminni.
I Israel er nú rætt um að Likud-
flokkur Netanyahus kunni að leita
eftir stjórnarsamstaifi við Verka-
mannaflokkinn, stærsta stjórnarand-
stöðuflokkinn. Ekkert hefur þó bent
til þess að Ehud Barak, leiðtogi
Verkamannaflokksins, sé hlynntur
þeirri hugmynd.
Líklegt að næsti áfangi tefjist
David Bar-Illan, fjölmiðlafuUtrúi
Netanyahus, kvaðst telja að Netanya-
hu myndi takast að styrkja stjóm
sína ef Palestínumenn stæðu við
skuldbindingar sínar í friðarsam-
komulaginu sem undirritað var í
Washington 23. október fyrir miUi-
göngu Bandaríkjastjómar. Hann
sagði að Palestínumenn yrðu að
hætta að hvetja tU ofbeldis, ógUda
grein í stofnskrá Frelsissamtaka Pa-
lestínumanna (PLO) þar sem hvatt er
til tortímingar Israelsríkis, og falla
frá áformum um að lýsa yfir stofnun
sjálfstæðs Palestínuríkis í maí.
Bandaríkjastjórn sagði í fyrradag
að Israelar yrðu að standa við friðar-
samkomulagið, sem kveður á um að
þeir flytji herlið sitt af 13% Vestur-
bakkans í þremur áföngum. Bar-Ill-
an sagði hins vegar í gær að ólíklegt
væri að ísraelsstjórn hæfi næsta
áfanga brottflutningsins í næstu
viku, eins og kveðið er á um í friðar-
samkomulaginu, nema Palestínu-
menn féllu frá áformunum um að
stofna Palestínuríki.
Bar-IUan sagði að ekkert væri hæft
í fullyrðingum um að Netanyahu væri
andvígur heimsókn Clintons, fyrstu
ferð Bandaríkjaforseta til sjálfstjóm-
arsvæða Palestínumanna. „Hann hef-
ur aldrei gefið tU kynna að hann hafi
efasemdir um heimsókn Clintons,"
sagði Bar-IUan. „Við vonum að Pa-
lestínumenn túlki hana ekki sem
stuðning við sjálfstæðisyfirlýsingu."
Ariel Sharon, utanríkisráðherra
ísraels, sem var staddur í Washing-
ton, sagði í fyrradag að ísraelar
kynnu að innlima hluta hernumdu
svæðanna á Vesturbakkanum ef
Arafat stæði við þá hótun síná að
lýsa yfir stofnun sjálfstæðs ríkis.
■
3 ára ábyrgð
Veglegur jólapakki fylgir Daihatsu Terios 4x4, án endurgjalds,
á meðan birgðir endast.
Fjarstýring fyrir samlæsingu 10.000 kr.
Toppbogar 29.700 kr.
Skíðafestingar 10.600 kr.
Vindhlífar á gluggum 15.400 kr.
Hlíf á afturstuðara 14.100 kr.
Ónelgd Nokia vetrardekk 45.000 kr.
Staðalbúnaður í Daihatsu Terios 4x4
Vökvastýri, rafdrifnar rúður að framan, rafdrifnir speglar, tveir
loftpúðar, samlæsing, útvarp og segulband, ræsitengd þjófavörn,
álfelgur, læsanlegur millikassi, tregðulæsing á afturdrifi,
sex ára ryðvarnarábyrgð og þriggja ára almenn ábyrgð.
Beinskiptur 1.598.000 kr.
Sjálfskiptur 1.678.000 kr.
Fyrir Daihatsu Terios Limited útgáfu, með ABS hemlakerfi,
Limited mælaborði og Limited lit, bætast aðeins 50.000 kr.
Brimborg-Þórshamar I Bíiasala Keflavíkur I Bíley
Tryggvabraut5#Akureyri Hafnargötu90*Reykjanesbæ Búðareyrií
Sími 462 2700 I Sími 421 4444 | Sími47414
DAIHATSU
ffnn í rekstri
Samtals verðmæti jólapakka
Tvisturinn
Faxastig 36 • Vestmannaeyjum
Sími 481 3141
Daihatsu
Terios 4x4
Jólaboð Daihatsu
I Bíiasala Keflavíkur I Bíley 1 Betri bílasalan
Hafnargötu 90 • Reykjanesbæ Búðareyri 33 • Reyðarfirði Hrísmýri 2a • Selfossi I
I Sími 421 4444 1 Sími 474 1453 1 Sími 482 3100 | 1