Morgunblaðið - 09.12.1998, Page 28
28 MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1998
MORGUNBLADIÐ
LISTIR
Upplýstur
foss
Myndlistarmaðurinn Ólafur Elíasson
opnar í dag kl. 16 sýningu í Ingólfsstræti 8.
Hann er nú búsettur í Berlín og þar hitti
Rósa Erlingsdóttir hann að máli rétt áður
en hann lagði upp til Islands, þar sem hann
sýnir upplýstan foss, teikningar og röð
ljósmynda, sem hann vann hér á landi
síðastliðið sumar. Myndirnar eru af ár-
kvísl á hálendinu sem Ólafur litaði græna
með lífrænum deyfðum litefnum
og nefnast „Rými fyrir einn lit“.
OLAFUR Elíasson lauk námi
frá Konunglegu listaaka-
demíunni í Kaupmannahöfn
árið 1995. Hann á íslenska for-
eldra, er fæddur og uppalinn í
Danmörku og er nú búsettur í
Berlín. A sínum stutta ferli hefur
hann haldið á annan tug einkasýn-
inga og tekið þátt í fjölmörgum
samsýningum. Listaferill hans sem
atvinnumanns byrjaði samfara
námi og síðan þá hafa verk hans
hlotið mikla athygli í evrópskum
sem og amerískum listheimi. Fyrir
skömmu var hann valinn, ásamt
þremur öðrum nútímalistamönn-
um, til þátttöku í árlegri ljós-
myndasýningu The Museum of
Modern Art, MoMA, í New York.
Ljósmyndirnar á sýningunni í
MOMA eru hluti af stærra verk-
efni sem hann hefur unnið að síð-
astliðin ár á Islandi. Verkin mynda
raðir ljósmynda af ísjökum, eyjum
og af hellum sem Olafur tók á ferð
sinni um Island.
Olafur segir að tíminn verði að
leiða í ljós hvaða áhrif þessi sýning
muni hafa á feril hans.
Snemma á þessu ári sýndi Olaf-
ur innsetningarverk á Kjarvals-
stöðum. I sumar setti hann upp
sýningu í litla listhúsinu að Kambi
þar sem hann sýndi ljósmyndaröð
er bar heitið „Leitað að heitu vatni
í landi Gunnars Arnars“. A sýning-
unni á Kjarvalsstöðum sýndi hann
einnig bókverk með ljósmyndum af
listagarðinum Hellisgerði í Hafnar-
firði. Hann ætti því ekki að vera
ókunnugur íslenskum listunnend-
um.
Mörg verka Olafs bera keim
af íslenskri náttúru en
eins má ætíð finna fyrir að
útfærsla verka hans er helst mótuð
af straumum og stefnum í listheimi
meginlandsins. Ólafur er mikill
grúskari og vel að sér í allri nú-
tímatækni. Náttúran er honum
hugleikin en hana notar hann sem
innblástur eða eins og hvern annan
efnivið fyrir list sína. Með hjálp
tækninnar leitast hann við að taka
náttúrufyrirbrigði úr sínu eðlilega
umhverfi og fyrir tilstilli listarinn-
ar verða upplifun og túlkun áhorf-
andans á afmörkuðum náttúrufyr-
irbrigðum önnur og sterkari. Á
Vsx-407 m .
Útvarpsmagnari
2x70w • Bms • 4x50w
30 stöðva minni • Rds
Pd-106 , .
Geisiaspilari
1 bit • forritanlegur
handahófsspilun
_ _ Morgunblaðið/Kristinn
IINGOLFSSTRÆTI 8 sýnir Olafur Elíasson eins konar upplýstan foss, ljósmyndaverk og teikningar.
þann máta eru mótsagnirnar nátt-
úra/menning eða náttúra/tækni og
jafnframt samhengi þeirra einna
helst einkennandi fyrir verk Ólafs.
Á þessu ári hefur Ólafur komið
víða við í hinum alþjóðlega list-
heimi. Hann tók þátt í Tvíæringn-
um í Sydney, var fulltrúi Danmerk-
ur á Tvíæringnum í Sao Paulo, þá
tóku við samsýningar í Vín, Varsjá
og nú síðast í Berlín auk einkasýn-
ingar í Leipzig. Fréttaritari Morg-
unblaðsins í Berlín átti stutt spjall
við listamanninn um sýninguna í
Berlín og ferðina til íslands nú íyr-
ir stuttu. Samsýningin í Berlín ber
nafnið Berlin/Berlin og er hluti af
mtm Vsx-906
Útvarpsmagnari
2x110w • Rms • 5x60w
30 stöðva minni • Rds-AC-3
.. Mjl-707
i Mini-disk spilari
Stafræn upptaka og afspilun
Hægt að setja inn nafn eða titla.
DV-505 .. “
Myndgeislaspilari
AC3 • framtiðinn i hljóð og mynd
Sv-606
Heimabió hátalarar
Aðeins 5sm þykkir • 150W Rms
+100w bassabox
Þegar hljómtæki skipta máli
B R
Lógmúia 8 • Sími 53 3 28 00
UMBOÐSMENN UM ALLT LAND
alþjóðlegu listahátíðinni „Bienale“,
sem nú er haldin íyrsta skipti í
sameinaðri höfuðborg Þýskalands.
/
Igamla pósthúsinu frá 1870,
sem stendur við hina frægu
OranienburgerstraBe tekur
Ólafur þátt í sýningu ásamt þekkt-
um samtímalistamönnum frá öllum
heimshornum. Sýningin í pósthús-
inu tengist öðrum sýningum sem
eru í göngufjarlægð frá hvor
annarri. Húsin eru öll í Berlin
Mitte, sem er í austurhluta borgar-
innar. Enn er verið að dytta að
þessum húsum, enn standa þau auð
innan um byggingarkrana og húsa-
grunna, rými sem á eftir að fylla
upp í eftir eyðileggingu sögunnar.
Umhverfið sjálft býður upp á kjör-
in skilyrði íyrir sýningu, sem rann-
sakar Berlín sem stað tíma og rým-
is. Ungir innsetningalistamenn
glæða gömlu yfirgefnu bygging-
amar nýju lífi.
Verk Ólafs Elíassonar kallast
„Stóra viftan". Stór rafmagnsvifta
hangir niður úr kúptu loftinu á
langri járnstöng. Viftan framleiðir
vind fyrir tilstilli rafmagns. Eina
stundina er hún grafkyrr, hina
flýgur hún fram og til baka.
Hreyfingarnar eru mismunandi,
annaðhvort hægar og langar eða
stuttar og ákafar. Flugleiðin er
óútreiknanleg og á meðan maður
fylgist hugfanginn með hreyfing-
um viftunnar heyrast alls konar
hljóð. Þú ert staddur við hafið og
heyrir í fuglunum en á svipstundu
breytist allt og þér finnst þú
heyra í litlum skordýrum í græn-
um þéttvöxnum skógi. Á sama
augnabliki er allt aftur hljótt en
viftan heldur áfram að framleiða
vind. Hún glæðir salinn og alla
bygginguna lífi þar sem tíminn
virtist standa í stað. Sjálfkrafa
stendur áhorfandinn frammi fyrir
þeirri áskoi-un að setja sjálfan sig
í samhengi við rýmið og verkið,
enda leyfilegt að sveifla viftunni
fram og aftur að vild og þannig
upplifir hver og einn verkið á sinn
hátt. Ólafur sagðist áður hafa
sýnt sama verk í Vín en þar hafi
virknin verið allt önnur þar sem
rýmið var minna.
• •
Onnur hugmynd listamanns-
ins hefur vakið mikia at-
hygli Berlínarbúa. Líkt og á
íslandi langaði hann að lita stóru
Spree-ána í Berlín græna á þeim
stað sem hún umlykur safneyjuna
skammt frá heimili hans í Berlin
Mitte. Verkið hefur ekki enn verið
framkvæmt og sóvist er að eitt-
hvað verði úr hugmynd lista-
mannsins. Hann sagði aðspurður
að hugmyndin hafi strandað hjá
skipulagsaðilum Bienale og að
hans mati var gert of mikið veður
út af henni. Ólafur sagði að þrátt
fyrir að Berlín væri stórborg og
fleiri á ferli en á hálendinu heima á
Islandi hefði hann viljað ná því
sama fram, nefnilega að gangandi
vegfarendur rati óundirbúnir og af
tilviljun á fyrirbrigði náttúrunnar
sem tekið hefur stakkaskiptum
fyrir tilstilli listarinnar.
En hver veit, kannski læðist
þessi framsækni listamaður út í
skjóli nætur ásamt fylgdarliði og
kemur borgarbúum á óvart.
Fréttir á Netinu ^mbl.is
ALLTAf= eiTTH\TAÐ NÝTl