Morgunblaðið - 09.12.1998, Side 32

Morgunblaðið - 09.12.1998, Side 32
32 MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Roa Var Titill/Höfundur/Utgefandi 1 2 AHYGGJUR BERTS/ Sören Olsson og Anders Jacobsson/ Skjaldborg 2 3 STEINGRÍMUR HERMANNSSON - ÆVISAGA/ Dagur B. Eggertsson/ Vaka-Helgafell 3 1 ÞORVALDUR GUÐMUNDSSON í SÍLD OG FISK/Gyifi Gröndal/ Forlagið 4 - ÉG HEITI BLÍÐFINNUR - EN ÞÚ MÁTT KALLA MIG BÓBÓ/ Þorvaldur Þorsteinsson/ Bjartur 5 4 ALDREI AÐ VITA!/ Guðrún Helgadóttir/ Vaka-Helgafell 6 7 NÓTTIN LIFNAR VIÐ/ Þorgrímur Þráinsson/ Fróði 7 - Ne-hei! SAGÐI EINAR ÁSKELL/ Gunilla Bergström/ Mál og menning 8 5 TALNAPÚKINN/BergljótArnalds/Virago 9 - SÉRÐU ÞAÐ SEM ÉG SÉ?/ Þórarinn Eldjárn/ Vaka-Helgafell 10 - ÚTKALL - FRAM AF FJALLI/ óttar Sveinsson/ íslenska bókaútgáfan Einstakir flokkar: ÍSLENSK OG ÞÝDD SKÁLDVERK 1 4 SÉRÐU ÞAÐ SEM ÉG SÉ?/ Þórarinn Eldjárn/ Vaka-Helgafell 2 3 NORÐURLJÓS/ Einar Kárason/ Mál og menning 3 7 BROTASAGA/ Björn Th. Björnsson/ Mál og menning 4 2 EINS OG STEINN SEM HAFIÐ FÁGAR/ Guðbergur Bergsson/ Forlagið 5 8 LÁTTU SEM EKKERT SÉ/ Mary Higgins Clark/ Skjaldborg 6 5 MARÍUGLUGGINN/FríðaÁ. Sigurðardóttir/Forlagið 7 9 GULLRÁNIÐ/JackHiggins/Hörpuútgáfan 8 1 LEIT/ Stephen King/ Fróði 9 - SVIPIR FORTÍÐAR/ Danielle Steel/ Setberg 10 - AUGUN í BÆNUM/SindriFreysson/Vaka-Helgafell ÍSLENSK OG ÞÝDD LJÓÐ 1 2 3 4 5 6 7 8-9 8-9 2 PERLUR ÚR LJÓÐUM ÍSLENSKRA KVENNA/ Silja Aðalsteinsdóttir valdi Ijóðin./ Hörpuútgáfan - HÁVAMÁL - ÝMIS TUNGUMÁL//Vaka-Helgafell - LOKAÐU AUGUNUM OG HUGSAÐU UM MIG/ Kristín Ómarsdóttir/ Mál og menning - SPÁMAÐURINN/ Kahlil Gibran/ íslendingasagnaútgáfan - LJÓÐMÆLI, 1978-1998/ Hallgrímur Helgason/ Mál og menning - STOFA KRAFTAVERKANNA/ Sveinbjörn l. Baldvinsson/ Mál og menning * SKAGFIRSK SKEMMTILJÓÐ - II/ Bjarni Stefán Konráðsson safnaði efni/ Hólar - TÍMINN OG VATNIÐ/Steinn Steinarr/ Vaka-Helgafell * TREASURES OF ICELANDIC VERSE/ Árni Sigurjónsson valdi efni/ Mál og menning 10 9 EDDUKVÆÐI/GísliSigurðssonsáumútgáfuna/Málog menning ÍSLENSKAR OG ÞÝDDAR BARNA- OG UNGLINGABÆKUR 1 1 AHYGGJUR BERTS/ Sören Olsson og Anders Jacobsson/ Skjaldborg 2 9*10 ÉG HEITI BLIÐFINNUR - EN ÞÚ MÁTT KALLA MIG BÓBÓ/ Þorvaldur Þorsteinsson/ Bjartur 3 2 ALDREI AÐ VITA!/ Guðrún Helgadóttir/ Vaka-Helgafell 4 5 NÓTTIN LIFNAR VIÐ/ Þorgrímur Þráinsson/ Fróði 5 7 Ne-hei! SAGÐI EINAR ÁSKELL/ Gunilla Bergström/ Mál og menning 6 3 TALNAPÚKINN/Bergljót Arnalds/Virago 7 - EVA OG ADAM - BESTU ÓVINIR/ Mons Gahrton/ Æskan 8 - BÍTTU Á JAXLINN BINNA MÍN/ Kristín Helga Gunnarsdóttir/ Mál og menning 9 - SALÓMON SVARTI OG BJARTUR/HjörturGislason/Skjaldborg 10 8 MÁLFRÍÐUR OG TÖLVUSKRÍMSLIÐ/SigrúnEldjárn/Forlagið ALMENNT EFNl OG HANDBÆKUR 1 1 HÆSTVIRTUR FORSETI/ Ritstj. Guðjón Ingi Eiríksson og Jón Hjaltason/ Hólar 2 - ANNAÐ ÍSLAND/ Guðjón Amgrímsson/ Mál og menning 3 5 LITLA BRANDARABÓKIN - 2//Steinegg 4 - LITLA GÁTUBÓKIN//Steinegg 5 - GÓÐIR ÍSLENDINGAR/ Huldar Breiðfjörð/ Bjartur 6 - UNDUR VERALDAR/ Ritstj. Þorsteinn Vilhjálmsson/ Mál og menning 7 7 ALMANAK HÁSKÓUNS -1999// Háskóli Islands 8 - ÍSLENSKIR FUGLAR/ Ævar Petersen. Myndir Jón Baldur Hlíðberg/ Vaka-Helgafell 9 3 ENSKI BOLTINN/Eggert Þór Aðalsteinsson og Þórlindur Kjartansson/ Hjálp-hugmyndabanki 10-11 - BETRA GOLF/ Arnar Már Ólafsson og Úlfar Jónsson/ Fróði 10-114 ÆVISAGA ÞORSKSINS/ Mark Kurlansky/ Hans Kristján Ámason ÆVISOGUR OG ENDURMINNINGAR 1 2 STEINGRÍMUR HERMANNSSON - ÆVISAGA/ Dagur B. Eggertsson/Vaka-Helgafell 2 1 ÞORVALDUR GUÐMUNDSSON í SÍLD OG FISK/Gylfi Gröndal/ Forlagið 3 3 ÚTKALL - FRAM AF FJALLI/ Óttar Sveinsson/ Islenska bókaútgáfan 4 5 PÉTUR BENyjakob F. Ásgeirsson/ Mál og menning 5 9 NÁÐUGA FRÚIN í RUZOMBEROK/ Jónas Jónasson/ Vöxtur 6 7-8 LÍFSGLEÐI -VII/ÞórirS. Guðbergsson/Hörpuútgáfan 7 6 GLYMJA JÁRN VIÐ JÖRÐU/Árni Gunnarsson/ Skjaldborg 8 4 ÞJÓÐSÖGUR JÓNS MÚLA ÁRNASONAR - II/ Jón Múli Árnason. Útg. Mál og menning 9 7-8ÁRNI MAGNÚSSON/ Már Jónsson/ Mál og menning 10 - SVIPÞING - MINNINGAÞÆTTIR/ Sveinn Skorri Höskuldsson/ Mál og menning Bókabúðir sem tóku þátt í könnuninni Höfuðborgarsvæðið: Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi Bókabúð Máls og menningar, Síðumúla Bókabúðin, Hlemmi Bókabúðin, Mjódd Bóksala stúdenta, Hringbraut Bónus, Holtagörðum Griffill, Skeifunni Hagkaup, Kringlunni Hagkaup, Skeifunni Eymundsson, Krínglunni Penninn-Eymundsson. Austurstræti Penninn, Hallarmúla Penninn, Kringlunni Hagkaup, Smáratorgi, Kópavogi Penninn, Hafnarfirði Utan höfuðborgarsvæðisins: Bókabúð Keflavíkur, Keflavík , Bókval, Akureyri KÁ, Selfossi, Tónspil, Neskaupstað Samantekt Félagsvísindastofnunar á sðlu bóka vikuna 30. nóv.-6. des. 1998 Unnið fyrir Morgun- blaðið, Félag Islenskra bókaútgefenda og Félag bóka- og ritfangaverslana. Ekki eru taldar með þær bækur sem seldar hafa verið á mörkuðum ýmiss konar á þessu tímabili, né kennslubækur. HIÐ STERKA KYN BÆKUR Nppkisaoiiir SNJALLAR STÚLKUR Endursagnir: Robert Leeson. Myndir: Axel Scheffler. Þýðing: Guðni Kol- beinsson. Prentun: Viðey ehf. Bók- band: Flatey hf. títgefandi: Æskan ehf. 1998 - 80 síður. SAGNAPULUM leika orð á tungu öld af öld. Sum grípur vind- urinn og feykir í gleymskuhylinn. Þau geta verið glæst og lofí krýnd, þá þau leika við eyra, en reynast samt ho! og því leikföng vindsins. Onnur, oftast skartminni, læðast að hlust, snerta gleðistreng vitundar þess er nemur, falla í gullasjóð vizkunnar, svo að elli réttir æsku meitlaðan kjarnann, og úr verður þjóðsaga. Þannig er um þessar sög- ur fimm. Þær eru ekki orð aðeins, heldur hjartslög ólíkra þjóða, en samt svo undur líkar, - myndh’ sannleikans. Hér er rætt um fá- tæku, lítilsmetnu stúlkuna, sem með vizku sinni reynist hroka prjálkarlsins miklu, miklu meiri: María er ensk, þjónusta á sveita- setri. Okkur er boðið til stofu, þar sem monthanar hafa drukkið í sig þau digurbarkalæti að metast á um, hver sé hugaðastur. Raggeitur reynast allir, en María hins vegar leysir þrautir, sem húsbóndinn, ekki hún, stórgi-æðir á. Fíona er írsk. Hún kemur sak- lausum aula til hjálpar, leysir þrautir hans, og þau giftast, því að heimskan karl er bezt að eiga. Karí er norsk. Haukur er gamall bóndi er leggur hug til hinnar ungu stúlku, telur henni mikið lán að eignast slíka gersemi sem sig. A gamansaman hátt smeygir stúlkan sér undan, ýtir mósóttri, gamalli meri í spor sín. Marúsja er úkranísk. Oðalsherra þykist fær um að lítillækka fátæk- an bónda. Vissulega er honum það auðvelt, en bóndadóttirin, snjöll, unir því illa og leikur svo á kauða, að það er hann sem verður barnið í gátuleiknum. Hrein spekisögn. Saína er egypsk, yngst þriggja systra. Þær eiga leið í skóla fram- hjá setri soldáns. Þar hreykir sér á svölum erfingi gullahrúgunnar. Hann er því vanur, að fólk lúti hon- um, en Saína sér enga ástæðu til þess, og kænska hennar kennir henni ráð að lækka rosta pilts, mýla hann. Allt eru þetta lýsingar á baráttu milli heimsku og vizku, og eðlilega hefir vizkan sigur. Það era ekki ný sannindi, heldur gömul, að karlinn er uppkast, - konan hreinskrift skaparans. Hinu verðum við að kyngja, að enn stjómar hnefaafiið, - ekki vizkan, heiminum, og á með- an halda stuttbuxnalallar, að han- inn sé fyrirmyndin æðst. Sérkenni- leg fullyrðing, því eg held að allir hnokkar eigi sér móður. Hvað veld- ur? Sú er spurn sagnanna til mín. Bókin er listavel þýdd, enda enginn viðvaningur við vefstólinn, heldur málsnjall, afburðafyndinn höfund- ur. Myndir lífga. Prentverk allt til sóma. Hafi útgáfan þökk fyrir. Sig. Haukur Þegar kynhvöt vaknar BÆKUR Kynlíf STELPUR OG STRÁKAR eftir Miriam Stoppard í þýðingu Hálf- danar Ómars Hálfdanarsonar. Teikn- ingar: Sally Artz. Islenzka bókaút- gáfan 1998. MIRIAM Stoppard hefur verið einn af vinsælustu rithöfundum í læknastétt í Bretlandi árum saman og gefið út fjölmargar bækur sem eiga það flestar sameiginlegt að miðla fróðleik um læknisfræðileg efni til almennings. í nokkrum af bókum hennar hefur kynlíf borið á góma. Bókin Stelpur og strákar fjallar um ástir og þroska unglinga. Hún er kynfræðslubók, skrifuð fyr- ir ungt fólk. Hún er með skýrum, litríkum teiknimyndum og liprum, áhugaverðum texta um samskipti milli unglinga, andlega og líkamlega líðan þeirra þegar þeir verða kyn- þroska og við hverju megi búast þegar áhugi vaknar á nánari kynn- um. Dr. Stoppard er þeirrar skoð- unar að ungmenni gæti þess að jafnaði að taka tillit hvort til annars, þau sýni vini/vinkonu virðingu og þohnmæði og beri ábyrgð á eigin hegðun en kemur með gagnlegar ábendingar um það hvað gera megi ef það bregzt. Höfundurinn leggur mikið upp úr virðingu við lesanda sinn, sem gæti verið hvar sem er milli tektar og tvítugs. Miriam Stoppard prédikar ekki en segir skoðun sína þó afdráttarlaust, fræð- ir en fordæmir ekki. Bók þessi, sem hér kemur út í kiljuformi, var fyrst gefin út í Englandi 1997 á vegum Dorling Kindersley Ltd., og eru í henni talin upp nöfn þeirra sem að útgáfunni hafa komið og gegnt hlutverki aðal- ritstjóra, aðallistritstjóra, verkefn- isstjóra, ritstjóra, aðstoðarritstjóra, yfirlistritstjóra, listritstjóra, hönn- uðar og framleiðslustjóra. Sannar- lega óvenjuleg upptalning fyrir ekki stærri kilju en rúmar 90 síður, en reyndar er bókin fremur óvenjulega hönnuð og teikningarnar gera það að verkum að bókin sker sig veru- lega frá því sem venjulega ber fyrir augu á markaðinum. Kannski einmitt vegna allra stjóranna. Eg held að þessi bók eigi eftir að slá í gegn, verða metsölubók og mæli svo sannarlega með henni við unglinga og foreldra þeirra, bóka- söfn, heilsugæzluna, og alla þá sem þekkja til þeirra vandamála og ráð- gátna sem kynlíf getur verið ung- mennum. í bókarlok eru staðfærð- ar upplýsingar og ráðgjöf um það hvert hægt sé að snúa sér til þess að fá fræðslu, og einnig hjálp þegar á bjátar. Þar koma til sögunnar hjúkrunarfræðingar og heimilis- læknar, bæði í skólum og á heilsu- gæzlustöðvum, auk fjölmargra annarra fagmanna og áhugasam- taka. Hins vegar saknaði ég þess að menningar- og upplýsingamið- stöð ungs fólks, Hitt húsið svokall- aða, skyldi verða útundan, en það er í miðbæ Reykjavíkur og hefur meðal annars sinnt fræðslu um þetta efni. Katrín Fjeldsted Liljur vallarins Nýjar bækur • TÁR úr steini er myndabók eftir Sveinbjörn I. Baidvins- son, með myndskreytingu eftir Önnu Vil- borgu Gunn- arsdóttur. í kynningu segir: „Sagan segir af litlum tröllastrák sem villist í þoku, kemst ekki heim fyrir sólar- upprás og verður að steini." Ævintýrið er úr samnefndri kvikmynd Sveinbjörns. Útgefandi er Mál og menn- ing. Bókin er 32 bls., prentuð í Danmörku. Verð: 1.680 krónur. • GETTU hve mikið ég elska þig er myndabók fyrír börn eftir breska höfundinn Sam McBratney í þýðingu Guð- mundar Andra Thorssonar. Anita Jeram myndskreytir. I kynningu segir að sagan segi frá litla og stóra héranum sem metast um hvorum þykir vænna um hinn, en eins og þeir komast að er erfitt að leggja mælikvarða á ástina. Útgefandi er Mál og menn- ing. Bókin er 32 bls., prentuð í Hong Kong. Verð: 1.680 kr. BÆKUR Ljóð LJÓÐÁRUR Ljóðárur eftir Kristjönu Emilíu Guð- mundsdóttur. Gerður Helga Helga- dóttir teiknaði myndir, Grímur Mar- ínó Steindórsson hannaði kápu. Ás- prent/pob, Akureyri. Ásútgáfan Akureyri 1998 - 74 bls. LJÓÐÁRUR er fjórða bók skáldsins. Hún skiptist í þrjá kafla: Létt flýgur Ijóð- ið, Daggartárin perla og Svo björt ertu móð- ir. Það er heildarblær yfír tveim fyrri hlutum bókarinnar. Þar eru ljóðin flest órímuð og virðist rýni sem skáld- inu takist þar betur og sum þeirra ljóða snerta lesanda eins og aðeins það bezta í ljóðlist get- ur gert. Samhljómur ljóð- anna er sterkur og yfir þeim hvílir viss heið- ríkja sem virkar eins og hægt sé að snerta þann hlutkennda veruleika sem felst í orðum með næmi fingur- gómanna. Rás tímans felst víða í einfald- leika lóðsins: /Skammt virðist / síð- an ég stóð við hné / ömmu minnar / og hlýddi á sögur / nú stendur lítill glókollur / við hné mér / og hlýðir á sögu/. Það er eins og trúin á hið fagra í náttúrunni og hið góða í manninum hafi yfirburði í ljóðunum, þótt oft drjúpi sorg og sársauki úr penna: / þegar myrkrið / lykur jörðina / og byrgir okkur sýn / þá festir Guð stjömur / um allan himininn / til þess að lýsa / okkur mönnunum /. Ljóðið um Reagan og Gorbatsjov er ekki dýrt kveðið, á varla heima í bókinni: / Á ís- landi / leiðtogar áttu fund / í Höfða settust / niður um stund / Um heimsfriðinn / ræddu þeir merku menn / al- þjóð vænti / þar afreka senn /. Rímuðu ljóðin í þriðja hluta bókarinnar virðast sanna að skáld- inu lætur betur að yrkja óbundið. Hvað um það sýnast Ljóðár- ur með því athyglis- verða sem kemur út af ljóðabókum á þessari vertíð. Stundum vísa útlínuteikningar veginn til ljóðanna - stundum ekki. Kápumynd laðar að. Útlit bókarinn- ar er vandað. Jenna Jensdóttir Sveinbjörn I. Baldvinsson Kristjana Emilía Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.