Morgunblaðið - 09.12.1998, Page 45
4
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1998
45.
SKOÐUN
I
minnkað eins snöggt og útlit var
fyrir.
Hinn möguleildnn, sem menn
urðu hvorki sammála né ósammála
um, var sá að kanadíska Hafró
hefði metið stofninn rangt á árun-
um fyrir 1990, þegar þeir héldu að
hann væri um 1 milljón tonn
(hnignun hans gat hafa hafist fyrir
þann tíma). Verið gat að stofninn
hefði verið minni og hefði farið að
minnka fyrr.
Það skiptir vísindamennina, sem
eru að reyna að skilja þetta, miklu
máli hvort hrunið var snöggt eða
hægfara, sama gildir um þá sem
stjórna nýtingunni, þeir verða að
reyna að koma í veg fyrir að þetta
endurtaki sig. Ofveiði, það að
þorskur hefði synt burt af svæðinu,
umhverfisstreita og át sela voru
þær skýringar sem áttu hvað
mestu fylgi að fagna.
Ofveiði og
vantalinn afli
Erlend veiðiskip juku sóknina
utan 200 mílnanna 1991, vegna
þess að meira var þá af þorski á
„nefinu“ á Miklabanka. Kanadísk
yfirvöld áætluðu að útlendingar
hefðu rösklega tvöfaldað aflann
miðað við fyrri ár og veitt helmingi
meira en þeir gáfu upp.
En þetta var með í stofnútreikn-
ingunum og verður því ekki kennt
um hið óvænta hrun. Jafnvel
tröllslegt vanmat á veiðum er-
lendra skipa getur ekki skýrt
hvarf á hálfri milljón tonna af
þorski. En margra ára vanmat og
falsanir á aflatölum heimamanna
og útlendinga hefði getað vanmet-
ið aflann og ofmetið stofninn.
Hvort svo hafi verið er ei'fitt að
segja til um.
Eftir er að athuga betur tíma-
setningu hrunsins. Ef það varð
snöggt getur ofveiði ekki skýrt
það. Ef það var hægfara tóku
menn ekki eftir því svo árum skipti
og þá verður að endurskoða öll
vinnubrögð við stofnmatið.
Far
Við nánari athugun stenst ekki
að óhemju magn af þorski hafi yfir-
gefið svæðið. Svo virðist sem
þorskurinn hafi fært sig nokkuð til
innan svæðisins, flutt sig sunnar og
á dýpra vatn, en ekki hefur orðið
vart við aukningu á þorski á nær-
liggjandi svæðum. Reyndar hefur
þorski einnig fækkað á nærliggj-
andi svæðum. Engar vísbendingar
eru um að þorskurinn hafi farið á
meira dýpi en togararallið nær til,
um 1.000 m.
U mh verfisstreita
Vísindamenn benda á að breytt
umhverfisskilyrði geti haft marg-
vísleg áhrif. Við vitum ekki nærri
nógu mildð um lífeðlisfræði fisks-
ins, hvemig líkami þeirra starfar.
En það er klárt að breytingar, t.d.
á fæðuframboði, sjávarhita og súr-
j| Herra-
r 't' undirföt
■I lÉ .'
KRINGLUNNI SÍMI 553 7355
efnismagni, geta gert honum erfið-
ara að þrífast. Þó enginn þessara
þátta einn sér hafi drepið fisk í
miklu magni þá gætu samverkandi
áhrif þeirra hafa gert það.
Rannsóknir í St. Lawrenceflóa
sýna að við langvarandi fæðuskort
getur orðið orkuþurrð hjá þorski.
Heilbrigðir fiskar geyma orkuna í
líkamanum, sérstaklega í lifrinni.
Lifrin er í raun orkuforðabúr sem
fiskurinn getur sótt í þegar illa ár-
ar eða þegar orkuþörfin er mikil.
Kynþroska fiskur gengur freklega
á fituforða sinn við hi-ygninguna
og verður að endumýja hann að
henni lokinni. Sé fiskurinn í slæmu
ástandi þegar líður að hrygningu
og tæmir fituforðabúrið við að
hrygna getur hann drepist, fái
hann ekki fljótlega að éta á eftir.
Við höfum búið við óvenju mikinn
sjávarkulda síðan 1983 og kuldinn
gæti verið orsök slíkrar orku-
kreppu. Ovenju kalt vatnslag,
þekkt sem Kalda millilagið (CIL),
var 40% stærra en véíijulega árin
1990 og 1991. Kaldara vatn getur
haft bæði bein og óbein áhrif, vald-
ið hægari vexti og minnkandi
fæðuframboði. Þetta gæti sett af
stað þá keðjuverkun sem lýst hef-
ur verið. Það sem styður kenning-
una um orkuskort er að áhrifin
ættu að vera mest á kynþroska
hluta stofnsins. Þetta er það sem
gerðist hjá norðurþorskinum. Það
er fyrst og fremst hrun fisks sem
var á kynþroskaaldri sem varð til
þess að stofninn í heild minnkaði
mikið.
Vísindamenn höfðu verið að vona
að sterku árgangarnir frá 1986 og
87 - sterkustu árgangar í áratug -
yrðu til þess að stofninn byggðist
upp þegar þeir færa að auka kyn
sitt. Þvert á móti, mikið magn
hvarf fljótlega eftir hrygninguna
1991. Afföll ungfisks virðast ekki
hafa orðið eins mikil.
Það sem einnig styður kenning-
una um umhverfisstreitu er að öðr-
um tegundum botnfisks hefur líka
fækkað. Eftir að hafa skoðað gögn
um aðrar tegundir sem veiddust í
togararallinu á undanfömum áram
komst Brace Atkinson að því að
þeim hafði nær öllum fækkað. Það
gilti jafnt um tegundir sem ekki
vora sérstaklega verðmætar og
vora jafnvel dæmi um að þeim
hefði fækkað enn meir en nytjateg-
undunum.
Það mun reynast erfitt að meta
hvort umhverfisstreita geti skýrt
þorskhvarfið. Margar tegundir
geta staðist streituálag í langan
tíma uns einhver ný áreiti verða
þeim að aldurtila. Slík áreiti gætu
verið smávægilegt og erfitt að
mæla þau.
Hér lýkur tilvitnun í hina
kanadísku grein. I greininni er
lýst næsta nákvæmlega fiskstofni
sem er á hungurmörkum. Skyndi-
legar breytingar á umhverfisþátt-
um til hins verra gera það að verk-
um að fæðuframboð minnkar og
fiskurinn sýnir sveltieinkenni. A
sama tíma er haldið aftur af veið-
um, fiskurinn deyr og afli tapast.
Langtíma veiðihömlur gerðu það
að verkum að vöxtur fiskstofnsins
var ekki upp skorinn, fiski fjölg-
aði, fæðubúrið tæmdist, náttúran
greip í taumana og stofninn féll úr
hor. Ekki er víst að óheftar veiðar
hefðu geta komið í veg fyrir fell-
inn, en það er alveg víst að mikill
afli tapaðist. Aðferðirnar sem vís-
indamennirnir ráðleggja til endur-
reisnar stofnsins er aukin friðun.
Það er með ólíkindum að menn
skuli enn reyna að byggja upp
fiskstofna með friðun eftir svona
reynslu. Þetta gera þeir þó. Sp-
urning vaknar um hvers vegna
menn sjá ekki eða vilja ekki sjá að
friðun fisks sem er í svelti er
gagnslaus og gerir illt verra. Is-
lensku sérfræðingarnir sem vora
á þessum fundi hefðu þó átt að
vita betur. Þeim hefur marg oft
verið bent á þetta en þeir hafa af-
neitað þessum rökum. Þó línurnar
séu e.t.v. ekki eins skýrar hér
heima hefðu þeir þó átt að sjá
hvernig Kanadagögnin beinlínis
hrópuðu framan í þá og hefðu þá
átt að nefna þá lausn að friðun
ætti alls ekki við. En þeir virðast
hafa þagað þunnu hljóði.
Sú spurning verður æ áleitnari
hvers vegna þessir menn séu að
verja rangar ráðleggingar um
nýtingu fískstofna. Má ekki vitn-
ast að þeir hafi allan tímann verið
að vaða í villu? Má ekki koma í
ljós að ráðin um friðun til upp-
byggingar fiskstofna eru röng og
leiða til rýrnunar þeirra? Ef sann-
leikurinn kæmi í ljós myndu þeir
þá missa starfið? Einn liður í því
að halda blekkingarleiknum
áfram er að segja ekki allan sann-
leikann.
Höfundur er fiskifræðingur.
I _ _ __ _ J
« TT^TT TTTVT 1
*
GANGAí GARÐ
r'ólasveinn í heimsókn ^
á hverjum degi frá
12. desember!
5FIÖLSKYIPU-OC
HOSDÝRACARÐURINN
mmmmmwmmmm
STEFNUMÓTUNARSKÝRSLA ESB IM
HAFNIR OG HAFNARMANNVIRKI
Þriðjudaginn 15. descinlser nk. kl. 12.00 iioða Samtök
verslunarinnar - FIS - lil fundar í Iðnó við tjörnina.
Fjallað verður um hafnarinál og nýlega stefnumótimarskýrslu
ESB um hafnir og hufiiarniunuvirki (Green Paper on Ports
and Maritime Infrastructure).
Gesl ur fundarins verður hr. F. Aragon Morales,
frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.
Fyrirlesarar:
F. Aragon Morales, scrn kynnir niðurstöðu
stefnumótunarskýrslu ESB.
Hannes Valdimarsson hafnarstjóri.
Að framsögu lokinni verða almennar fyrirspumir og
umræður. Fundurinn fer fram á ensku.
I’áltlökugjald með hádegisverði er kr. 2.500,-
Niðurstöður þessarar stefnmnótunarskýrslu ESB geta liaft
mikið gildi hér ú landi þur sem lögð er áhersla á að
hafnarsvirði séu aðgengileg öllum og að eignaraðild á
munnvirkjuin hafna liaiuli ekki samkeppni.
FUNDURINN ER ÖLLUM OPINN.
Vinsamlcga lilkvnnið þátltöku á skrifstofn samlakauna
ísíina 588 8910.
SAMTÖK VTHSl.lWHIWAH
-fclag íslenskra slórkaupmanna-
- Land og saga
Loksins er komið út
vandað yfirlitsrit um
þessa náttúruperlu
Reykjavíkur. Náttúru
og sögu dalsins eru gerð
ítarleg skil. Um 200
gamlar og nýjar Ijós-
myndir, teikningar og kort.
Ómissandi fyrir alla
náttúruunnendur _
Með framtíðina að vopni
- Hreyfing iðnnema, nám og lífskjör í 100 ár
eftir Helga Guðmundsson trésmið
og rithöfund. Fjallað er um iónað
og iðnmenntun á fyrri tímum,
fyrstu iðnnemafélögin og
baráttu iðnnema fyrir
réttindum sínum. Um 300
Ijósmyndir og teikningar
bregða enn skýrara Ijósi á
þennan mikilvæga þátt í
menningarsögu þjóðarinnar.
Jólabók iðnaðarmannsins
Skagfirzkur annáll
1847-1947
eftir Kristmund Bjarnason á
Sjávarborg. Fjallað er um það sem
fréttnæmast þótti hverju sinni á
þessu tímabili. Glæsilegt tveggja
binda verk með yfir 400 myndum af
einstaklingum, byggingum,
framkvæmdum og mannamótum.
Bók fyrir alla Skagfirðinga
*»
I
mannkynssogu
eftir Jón R. Hjálmarsson fyrrum
fræðslustjóra. Handhægt uppflettirit
fyrir nemendur og aðra þá sem þurfa
að nálgast sögulegar upplýsingar á
skjótan og einfaidan hátt.
Mál og mynd
Úrvalsbækur um þjóðlíf og sögu
habíba
Gíróseðlar liggja frammi í
öttum bönkum, spaiisjódum
og á pósthúsum.
Þú getur þakkaö fyrir þitt hiutskipti
Gefum bágstöddum von
BJARG
v/Suðurgötu 100, R.vík.
S. 893-7710/893-7080