Morgunblaðið - 09.12.1998, Síða 49

Morgunblaðið - 09.12.1998, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1998 4Sj^ + Elís P.G. Vi- borg trésmíða- meistari var fædd- ur á Flateyri við ÖnundarQörð 27. júlí 1918. Hann lést á Landspítalanum að kvöldi 1. desem- ber síðastliðinn. Foreldrar hans voru María Hálf- dánardóttir, f. 28. október 1889, d. 14. febrúar 1980, og Guðmundur Pét- ursson, f. 10. mars 1891, d. 21. apríl 1993. Systkini hans eru: Guðrún Hagvaag, f. 12. desember 1911, d. 18. mars 1956; Hálfdán G. Viborg, f. 29. júlí 1913; Jens G. Viborg, f. 15. ágúst 1915; Garðar G. Viborg, f. 29. janúar 1917; Marinó G. Viborg, f. 9. desember 1919; og Hreiðar G. Viborg, f. 3. febrúar 1923. Eb's kvæntist eftirlifandi eig- inkonu sinni Guðríði Þorsteins- dóttur frá Holtsmúla í Land- sveit 18. ágúst 1945. Þau eign- uðust þijú börn. Þau eru: 1) Viðar Guðmundur, f. 20. febrú- ar 1947. 2) Guðrún Elsa, f. 21. mars 1950, hennar sonur er Guðjón Ingi Gunnlaugsson, f. 24. nóvember 1983, faðir hans er Gunn- laugur Svein- björnsson, f. 28. maí 1954. 3) Þor- steinn, f. 8. mars 1953, kvæntur Astu Fríðu Baldvinsdótt- ur, f. 10. apríl 1957. Börn þeirra eru: a) Hildur Jóna, f. 14. aprfl 1976, sambýl- ismaður hennar er Siguijón Einar Þráinsson, f. 5. júní 1972, þeirra barn er Katrín Asta, f. 19. nóvember 1996. b) Þorsteinn Már, f. 6. aprfl 1979. c) Elísa Björk, f. 18. febrúar 1983. Elís ólst upp á Flateyri hjá foreldi-um sínum. Síðan flytjast þau til ísafjarðar. Þegar hann kvæntist Guðríði flytjast þau til Reykjavíkur. Hann vann fyrst hjá Gamla kompaníinu, síðan starfaði hann í Völundi í hart- nær 20 ár sem verkstjóri. Arið 1975 stofnaði hann Harð- málmsskerpingu í Barmahlíð 36 og starfaði við brýnslu til dauðadags. Útför Elísar fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. ELIS G. VIBORG Mig langar með nokkrum orðum að minnast tengdaföður míns. Hann var mikill sóma-, hugvits- og hagleiksmaður. Allt sem hann tók sér fyrir hendur var gert af mikilli vandvirkni. Hann var trésmíða- meistari að mennt og vann við það í mörg ár, en síðustu 23 árin vann hann við hugðarefnin sín, en það var að brýna. Hann brýndi sagar- blöð, hefíltennur og þess háttar hluti svo eitthvað sé nefnt en það að vinna við það að brýna var ekki allt, heldur það sem lá á bak við það, það var öll vinnan við að hanna og smíða vélarnar sem hann þurfti að nota við slíka vinnu, oftar en ekki sat hann í þungum þönk- um, þá vissi maður að einhver vélin var í fæðingu og oftar en ekki ef hann var að hanna vél þá kom það fyrir að hann sofnaði að kveldi með einhverjar vangaveltur með eitt- hvað í sambandi við vélarnar og þegar hann svo vaknaði að morgni var lausnin komin. Svo mikill hug- vits- og hagleiksmaður var hann. Ég vil þakka þér, Elís minn, fyr- ir samfylgdina í rúm 24 ár og fyrii- alla þá hjálp og aðstoð sem þú veittir okkar. Alltaf varstu boðinn og búinn til að aðstoða ef á þurfti að halda. Ég gleymi því aldrei þeg- ar ég eignaðist hana Hildi mína, hvernig þú opnaðist, þá sá ég nýja hlið á þér sem ég hafði ekki séð áð- ur, þú varst svo mjúkur og hlýr, þinn maður kom í ljós, sýndir meira af tilfinningum þínum en ég hafði áður séð. Svona var það líka þegar Þor- steinn og nafna þín hún Elísa voi-u lítil og þegar þú gekkst fram hjá þeim og straukst þeim um kollinn þá kom þessi hlýja í ljós, þú ljóm- aðir, það var alveg yndislegt að sjá. Þú varst ekki mikið fyrir að flíka tilfmningum þínum og sagðir ekki mikið en notaðir þína aðferð til að sýna þær og alltaf varstu hlýr. Jæja vinur, þá ert þú lagður af stað í þína hinstu för, mikil var þjáning þín í veikindum þínum. I Spámann- inum stendur: „Þjáningin er fæð- ingarhríð skilningsins. Eins og kjarni verður að sprengja utan af sér skelina, til þess að blóm hans vaxi upp í ljósið, eins hljótið þið að kynnast þjáningunni.“ Því trúi ég. Ég bið góðan Guð að styrkja þig, Gauja mín, Viðar, Gunna, Steini minn og okkur öll. Eigðu góða heimkomu, Elís minn, Guð veri með þér, blessuð sé minning þín. Ég vil fyrir hönd fjöl- skyldunnar þakka alla þá um- hyggju og allt sem starfsfólk deild- ar 12G Landspítalans veitti honum í veikindum hans. Far þó í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Þín tengdadóttir, Ásta Fríða. Elsku afí, um leið og ég kveð þig alltof snemma langar mig að þakka þér fyrir allt sem þú kenndir mér. Þú varst alltaf boðinn og búinn að hjálpa mér, hvort sem það var að laga hjólið ef það sprakk á því eða eitthvað annað. Þegar ég fór á smíðavöllinn sex ára gamall gafstu mér sög og hamar svo ég gæti byggt almennilegan kofa og svo fylgdist þú með efth- því sem kof- inn stækkaði og sagðir mér til. Þegar ég stækkaði og vildi fara heim í Alftamýrina og veðrið var vont var alltaf sjálfsagt að keyra mig heim. Mér finnst skrítið að eiga aldrei eftir að hitta þig aftur og leita ráða hjá þér eða fá smáfaðmlag og hlýju. Ég veit að ég á eftir að sakna þín. Elsku afí, takk fyrir allt. Ég vona að þér líði vel þar sem þú ert núna. Guð veri með þér. Þinn Guðjón Ingi. Elís bróðir minn var einn af sex bræðrum fæddum á Flateyri við Önundafjörð, ásamt einni systur sem fædd var á ísafirði. Foreldrai- okkar voru hjónin María Hálfdán- ardóttir og Guðmundur Pétursson, trésmiður, og áttu þau heima á Ránargötu 5. í því húsi var lengi vel símstöð staðarins og var húsið í daglegu tali kallað „stöðin“, þess vegna vora við kallaðir strákarnir á stöðinni, en oft heyrðumst við kall- aðir „stöðvarpúkarnir". Elís fór ungur að læra trésmíði hjá föður okkar og má segja að þeir hafi ekki skilist að fyiT en faðir okkar dó fyrir fáum árum. Þeir unnu jafnt í húsasmíði og bátasmíði. Til Isa- fjarðar flyst hann með foreldrum okkar og vinnur hjá Skipasmíða- stöð Marselíusar. A Isafirði kynn- ist hann efirlifandi konu sinni Guð- ríði Þorsteinsdóttur, ættaðri úr Rangárvallasýslu, og giftu þau sig í ágústmánuði 1945 í Holtskirkju í Önundarfirði. Elís og Guðríður byrjuðu sinn búskap með mér og Pálínu, konu minni, í Sundstræti 29 á ísafirði en flytjast síðan til Reykjavíkur síðla árs 1945. Þar byggðu þau sér hús í Barmahlíð 36, ásamt foreldram okkar, bræðram og systur. Elís vann hjá ýmsum fyrirtækjum hér í borg. Hjá Gamla kompaníinu vann hann í nokkur ár en fer síðan að starfa sem verk- stjóri véladeildar hjá Völundi hf. Hjá Völundi hf. starfar Elís í tutt- ugu ár uns hann stofnaði sitt eigið fyrirtæki Harðmálmsskerpingu í Barmahhð 36 og þar starfaði hann óslitið svo að segja til dauðadags. Hann seldi vélarnar (sem hann smíðaði að mestu leyti sjálfur) fyrir nokkram mánuðum. Samt var hann aldeilis ekki hættur því hann fór að smíða sér „hobbí vélar“ til að drepa tímann í ellinni. Hann ætlaði að lifa í mörg ár í viðbót og hugðist hjálpa mér í húsinu sem við feðgar voram að kaupa, en það fór á ann- an veg, þar kom til „maðurinn með ljáinn". Ehs var sérstaklega laginn bæði á tré og járn, enda sést það á mörgum hlutum sem hann hefur smíðað, en þar var vandvirknin alltaf í fyrirrúmi. Sundlaugarnar stundaði hann í mörg ár og fór alltaf klukkan 7 á morgnana með „morgunhönunum" sem kallaðir era. Þar undi hann sér vel því hann var félagslyndur mjög, en hafði auk þess mjög gaman af söng og allri músík. Trygglyndur var hann svo af bar og sést það best á því að þegar faðir okkar dvaldi á Hrafn- istu í ellefu ár, fór Elís á hverju einasta kvöldi til hans í heimsókn. Fyrir þremur mánuðum veiktist hann, fór í uppskurð, og náði ekki aftur heilsu. Við Pálína, Marinó yngri og hans fjölskylda kveðjum Elís með miklum söknuði og þökk- um honum góða viðkynningu. Gauju og allri hennar fjölskyldu biðjum við guðsblessunar í sorgum þeirra. Blessuð sé minning hans. Marinó G. Viborg. Þú leiðir oss, Drottinn, að lindunum hreinu. Þú ljósið þitt kveikir við himnanna stól. Um tíma þó syrti, þá bráðum aftur birtir, þú breiðir út þinn faðm og veitir oss skjól. (Þýð. Oskar Ingimarsson.) Ehs vinur okkar er kvaddur í dag. Hann fékk kærkomna lausn frá erfiðu veikindastríði, þar sem engin von var um bata. Við þökk- um fyrir það, því dauðinn er líkn frá ósjálfbjarga tilvera. Gauja og Elís hafa verið fastur þáttur í okkar lífi, glaðst með okk- ur á gleðistundum og alltaf tilbúin til hjálpar þegar veikindi herjuðu á. Fjölmennt heimili þeiira stóð alltaf opið, ef ættingja að austan vantaði gistingu. Gestrisni og glatt viðmót var þeim eiginlegt. Gjaf- mildi þeirra nutum við og dætur okkar í ríkum mæli. Ehs var það ekki eiginlegt að trana sér fram og sóttist ekki eftir lofræðum eða vegtyllum. Hann var fyrst og fremst ábyrgur fjölskyldu- faðir, reglusamur og einstaklega laghentur. Traustur vinur. Hinn 27. júlí sl. áttum við góða stund í Barmahlíðinni. Elís var léttur í spori, teinréttur og bar þess ekki merki að vera kominn á níræðisaldur. Við hugsuðum því að hann yrði í það minnsta 100 ára eins og faðir hans. En enginn ræð- ur sínum næturstað. A komandi jólum verður autt sæti við okkar borð. Skarð fyrir skildi, sem ekki verður fyllt. Að heilsast og kveðjast, það er lífsins saga. Við stöndum eftir í desem- bernepjunni, en höfum góðar og hlýjar minningar að ylja okur við. Élsku Gauja og aðrir aðstand- endur, innilegar samúðarkveðjur frá okkur öllum í Birkigrand 33. Guð blessi minningu Elisar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Guðný Margrét og Elías. Elís G. Viborg trésmíðameistari, sem nú hefur kvatt vini sína og vandamenn, var einstakur maður. Hógvær var hann og hjartahlýr, gekk hljóðlega um og vann verk sín af mikilli nákvæmni og með ein- stakri umhyggju. Það era fáir menn sem ég þekki sem kalla mætti með sanni þúsundþjalasmiði en það var Elís vissulega. Lengi vann hann við trésmíðar, t.d. í Völundi og í Gamla kompaní- inu, en í seinni tíð vann hann við að skerpa bitjám hvers konar tré- smíðavéla. Það einstaka var að hann hannaði og smíðaði skerping- arvélar sínar sjálfur. Hann undir- bjó þá vélsmíði á einstakan hátt. Hann hugsaði út hvern þátt fyrir sig, sá fyrir sér hvern íhlut, hverja tilfærslu arma, hverja stillingu og afstöðuna í heild. Hann kannaði hvað hann gæti notað úr öðram vélum og hvað þyrfti að sérsmíða eða sníða til. Ekki teiknaði hann eða gerði verklýsingar áður en hann framkvæmdi smíðina, hann hafði þetta allt í höfðinu. Það var unun að sjá hve vel og nákvæmlega áhöldin hans unnu og skiluðu góðu verki. Það var ekki síður gaman að heyra hann ræða um hvað og hvemig næsta vél átti að vinna. Það er óhætt að segja að hann hafi verið mekanikker af Guðs náð. Elís var traustur vinur og alltaf var hann tilbúinn að liðsinna ef til hans var leitað. Við höfum þekkst í nokkur ár og átt mörg og góð sam- töl. Hann var fastur gestur í Laug- ardalslaug. I áratugi var hann mættur hvern morgun þegar opn- að var. Þar fór allt fram eftir föst- um takti. Þar hittust vinir og félag- ar dag eftir dag, ár eftir ár. Orð- heppinn var hann en gat verið fast- ur á skoðunum. Hann var hégóma- laus og nægjusamur, gerði meiri kröfur til sjálfs sín en til annarra, undraðist stórum græðgi og aga- leysi samtímans. Hugsjón hans var, að hver og einn ætti að vera sjálfstæður og standa á eigin fót- um. Ekki rokkaði hann til í pólitík- inni, hélt sig æ við sinn flokk og hafði uppi vamir ef á þurfti að halda. Nú era margir sem sakna vinar í stað. Vel var fylgst með þegar fréttist að Elís væri orðinn veikur, kveðjur fóra á milli þann tíma sem hann var á sjúkrahúsi. Sárt var að vita hve mikið var á hann lagt í veikindunum, sem komu svo snöggt og ég vil segja svo óvænt, því ekki var annað að sjá en að þrek hans og framganga öll væri eins og hann væri miklu yngri en árin sögðu til um. Blessuð sé minning hans. Ég vil hér flytja kveðjur frá okk- ur félögum hans í Laugardalslaug og votta innilega samúð eiginkonu hans og öðram ástvinum. Sigursteinn Hersveinsson. Elsku afi, nú leggst þú í þína hinstu hvílu, þarft ekki að berjast lengur við lífið, sem þótti ekki ávallt létt. Við munum alltaf minnast þín sem yndislegs afa okkar. Þú varst alltaf svo flottur og fínn, leist alltaf jafn unglega út. Þú varst alltaf rólegur og yfirvegaður, það líkaði okkur vel, og var alltaf jafn gaman að koma í heimsókn í Barmahlíðina. Við minnumst þín alltaf bakvichp* afgreiðsluborðið í bílskúrnum (Harðmálmsskerping) að vinna þína vinnu, þér líkaði vel að vinna þar, því þar gastu gert það sem þér þótti skemmtilegast, nýbúinn að búa til stóra vél, sem þú ætlaðir að nota í ellinni til að geta dundað þér. Þú varst alltaf svo heilsuhraustur og duglegur. Þú fékkst það sem þér þótti vænst um, að geta unnið til áttræðs eins og þú ætlaðir þér. En svo eftir það veiktistu. «• Með þessum orðum kveðjum við elskulegan afa okkar og biðjum Guð að passa hann. Við viljum biðja Guð að passa Gauju ömmu og alla sem honum þótti vænt um. Blessuð sé minning þín, elsku afi. Þín afabörn, Hildur Jóna, Þorsteinn Már og Elísa Björk. t Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, KJARTAN TÓMAS GUÐJÓNSSON frá Hlíð, Austur-Eyjafjöllum, lengst af búsettur í Bolungarvík, andaðist á dvalarheimili aldraðra sjómanna í Hafnarfirði, mánudaginn 7. desemer sl. Kveðjuathöfn verður um hann í Fossvogs- kapellu í dag, miðvikudaginn 9. desember kl. 11.00. Jarðsett verður frá Hólskirkju, Bolungarvík, laugardaginn 12. desember kl. 11.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á að láta Slysavarnafélag íslands njóta þess. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, KJARTAN MAGNÚSSON kaupmaður, Lindargötu 11, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu- daginnn 11. desember kl. 13.30. Guðrún H. Vilhjálmsdóttir, Vilhjálmur Þór Kjartansson, Guðrún Hannesdóttir, Magnús Rúnar Kjartansson, Anna Kjartansdóttir, Kjartan Gunnar Kjartansson, Ingibjörg Ósk Kjartansdóttir, Birgir Kjartansson, Sveinn Sigurður Kjartansson, Stella Sæmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Jóhanna Björk Jónsdóttir, Sigurður O. Pétursson, Marta Guðjónsdóttir, Garðar Mýrdal,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.