Morgunblaðið - 09.12.1998, Side 50

Morgunblaðið - 09.12.1998, Side 50
•MO MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, HÖRÐUR BERGMANN, Hátúni 12, Reykjavík, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur laugardaginn 5. desember. Kristín Bergmann, Þröstur Gunnarsson, Steinunn Bergmann, Hafsteinn Guðmundsson, Þorsteinn Bergmann, Bergljót Þorsteinsdóttir, Margrét Bergmann, Axel Eyjólfsson, Lúðvík Bergmann, Elísabet María Jónsdóttir og barnabörn. t Ástkser eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, FRÍMANN JÓHANNSSON, Árskógum 8, lést á Grensásdeild Sjúkrahúss Reykjavíkur að morgni þriðjudagsins 8. desember. Jarðarförin auglýst síðar. Guðrún Þórhallsdóttir, Guðmundur Þ. Frímannsson, Margrét Pétursdóttir, Ingibjörg B. Frímannsdóttir, Guðleifur Sigurðsson, Jóhann G. Frímannsson Eyja Þóra Einarsdóttir, María E. Frímannsdóttir, Guðmundur Arnarson, Alma G. Frímannsdóttir, Páll Harðarson, barnabörn og barnabarnabarn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, JÓN JÓNSSON fyrrv. framkvæmdastjóri, Goðalandi 1, Reykjavík, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur mánudaginn 7. desember. Útförin auglýst síðar. Hólmfríður Einarsdóttir, Kristjana Jónsdóttir, Ásbjörn Jónsson, Sif Thorlacius, Gylfi Jón Ásbjörnsson, Ragnhildur Kristjana Ásbjörnsdóttir. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, MAGNÚS ODDSSON byggingameistari, frá Glerá, Akureyri, sem lést þriðjudaginn 1. desembersl., verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 11. desember kl. 13.30. Gyða Guðmundsdóttir, Guðmundur Oddur Magnússon, Ásthildur Magnúsdóttir, Gísli Ingvarsson, Uni Gíslason, Ingveldur Gyða Gísladóttir, Ingvar Gíslason. + Eiginmaður minn, faðir okkar og afi, SIGURÐUR S. SIGURÐSSON, Hólabraut 6, Hafnarfirði, sem lést miðvikudaginn 2. desember sl., verður jarðsunginn frá Garðakirkju fimmtu- daginn 10. desember kl. 13.30. Matthildur Páisdóttir, Halldóra Sigurðardóttir, Róbert Sigurðsson, Rósa Sigurðardóttir, Páll Sigurðsson, Sandra Sif Ingólfsdóttir og aðstandendur. GÍSLI GUÐMUNDSSON + Gísli Guðmunds- son fæddist Reykjavílí 26. júní 1916, en fluttist til Hafnarfjarðar 1920 frá Litla-Saurbæ í Ölfusi. Hann lést á Sölvangi í Hafnar- fírði 29. nóvember síðastliðinn. For- eldrar hans, sem lengst áttu heima á Hverfisgötu 6 í Hafnarfirði, vora hjónin Guðrún Sig- urðardóttir frá Króki í Ölfusi, f. 21. sept. 1892 í Strýtu í Ölfusi, d. 1. feb. 1974, og Guðmundur Gísla- son frá Reykjakoti í Ölfusi, verkamaður, áður bóndi, f. 22. okt. 1878, d. 5. okt. 1956. Þau eignuðust auk Gisia sex börn: 1) Ingigerði, f. 13. júní 1917, d. 26. mars 1951. 2) Sig- urð, f. 30. ágúst 1918, d. 19. maí 1997, 3) Guðlaugu, f. 7. nóv. 1919, bú- setta í Hafnarfirði. 4) Stefaníu, f. 3. okt. d. 3. apríl 1985. 5) Guðmund, f. 14. mars 1922, d. 28. okt. 1989. 6) Jón, f. 2. jan. 1933, d. 11. júní 1987. Hinn 20. júní 1970 kvæntist Gísli Sigurlaugu Sigurð- ardóttur, f. 11. jan. 1913, frá Höfða í Dýrafirði. Foreldr- ar hennar voru Margrét Jóna Petrúia Arnfinns- dóttir og Sigurður Jónsson, bóndi og vélstjóri, bæði ættuð frá Dýrafirði. Heimili Gísla og Sigurlaugar var alltaf í Hafnar- firði. Aðalstarf Gisla var akstur vönibifreiða. títför Gísla hefur farið fram í kyrrþey. Við fráfall Gísla Guðmundssonar vörubílstjóra hverfur af sjónar- sviði minnisstæður fulltrúi þeirrar stéttar vörubílstjóra í Hafnarfirði, sem setti svip á bæjarlífið á árum áður, en þeir önnuðust þá ýmsa þjónustu fyrir bæjarbúa og fyrir- tæki. Og mikið þótti okkur krökk- unum í þá daga gaman að mega sitja í bíl hjá þessum heiðursmönn- um við akstur um bæinn og víðar með kol, físk eða annan farm og reyna að muna númer bílanna og nöfn eigenda. Allt frá tvítugsaldri var akstur vörubfla aðalstarf Gísla, en á upp- vaxtarárum hafði hann meðal ann- ars verið við störf í sveit. Hann var snemma mjög vinnusamur og vildi fljótt leggja foreldrum sínum lið á erfiðum tímum. Nær samfellt frá 1942-88 átti Gísli og rak eigin vörubifreið. Gísli var mjög traustur og far- sæll ökumaður, lipur og greiðvik- inn, sanngjarn og áreiðanlegur í viðskiptum. Þá var hann ósérhlíf- inn og tók stundum að sér verk, sem aðrir veigruðu sér við. Sagði hann mér frá ýmsu skemmtilegu í sambandi við starfíð svo sem frá ferðum norður í land. Um tíma stundaði Gísli sjó og var á bv. Haukanesi. Þá átti hann trillubáta um ævina og einnig um tíma átta tonna dekkbát, sem hann lét smíða. Auk þess að sækja ná- læg mið reri hann á dekkbátnum eitt sumarið frá Þingeyri ásamt Guðmundi, bróður sínum, og Baldri Ólafssyni systursyni. Gísli var kappsamur við sjómennskuna, GRÍMUR PÁLSSON + Grímur Pálsson fæddist á Hjálmsstöðum í Laugardal 13. apríl 1907. Hann lést á Hrafnistu í Reykjavík 29. nóv- ember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Askirkju 8. des- ember. Látinn er í hárri elli móðurbróð- ir okkar, Grímur Pálsson frá Hjálmsstöðum í Laugardal. í hon- um áttum við glaðan og góðan frænda sem okkur þótti öllum vænt um. Hann og kona hans, Helga Valtýsdóttir frá Seli í Land- eyjum, koma mjög við sögu í kær- ustu bernskuminningum okkar. Framkoma Gríms öll var einstak- lega prúðmannleg og skemmtileg, hann var léttur í lund og manna glaðastur á góðri stund í hópi frænda og vina en slíkar stundir áttum við margar á þeim löngu liðnu árum þegar við vorum að vaxa úr grasi. En alvaran var þó aldrei langt undan enda var lífs- baráttan hörð á þessum árum. Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri 1 Tft blómaverkstæði I [ISlNNA I Skólavörðustíg 12. á horni Bergstaöastrætis, sími 551 9090 Frá blautu bamsbeini var Grím- ur vanur að taka til höndum og svo var sem hugur fylgdi máli í hverju því sem hann tók að sér. Okkur er kunnugt að Grímur var eftirsóttur og vel metinn starfsmaður. Hann var víkingur til verka en jafnframt bæði snyrtimenni og lipur í sam- skiptum. Hvarvetna þótti hans rúm vel skipað. Á bemskuheimili okkar voru Grímur og Helga jafnan nefnd í einni andrá enda vora þau sam- hent í starfi og rausn. Jólaboðin hjá Helgu og Grími gleymast okk- ur ekki. Þessi orð era fyrst og fremst til þess ætluð að koma á framfæri þakklæti okkar í þeima garð. Með áranum strjáluðust sam- skipti svo sem verða vill en alltaf var jafn gaman að hitta þau Grím og Helgu og viðmót þeirra hlýtt og elskulegt sem forðum. Grímur og Helga reyndu þunga sorg þegar Páll sonur þeirra féll frá í blóma aldurs. En á efri áram áttu þau styrka stoð í Valtý syni sínum og fjölskyldu hans. Öllum aðstand- endum Gríms sendum við bestu kveðjur og vottum samúð okkar. Bernskukynni af góðu fólki era dýrmætt veganesti á lífsins leið- um. Minning Gríms og Helgu verður okkur ætíð kær og blessuð. Börn Hildar Pálsdóttur og Björns Jónssonar. en þó ætíð með gætnina í fyrir- rámi. Hin síðari ár urðu kynni okkar Gísla all náin. Kom hann þá oft á skrifstofu mína til almenns spjalls. Rifjaði þá gjarnan upp atvik frá liðnum tíma, en Gísli hafði gott minni, sagði vel frá og veitti mér ýmsan fróðleik. Þá var hann glað- sinna og gat verið gamansamur. Gísli hafði góða söngrödd, kunni mörg ljóð og var söngelskur. Féllu því strengir okkar vel saman og var oft glatt á hjalla við komur hans. Einkum var honum hugstætt norska lagið „Til sólar ég lít“ eftir Ole Bull. Sönggleðina hefur Gísli án efa fengið í arf frá foreldram sínum, sem um tíma voru í kór Fríkirkjunnar í Hafnarfirði. Gísli var hávaxinn, myndarlegur á velli, stæltur og sterkur til verka. Hann lifði eftir dyggðum „kærleika, trámennsku, hógværð- ar og bindindis", sem um er ritað í Heilagri ritningu, en hann hafnaði alla tíð neyslu áfengis. Hann var dagfarspráður, sóttist ekki eftir vegtyllum og tranaði sér hvergi fram. Einn mælikvarði á mann- kosti er viðhorf manna til dýra, en þeim sýndi Gísli einlægan áhuga og hlýju allt frá unglingsárum í sveitinni. Þá var hann mikil hjálp- arhella foreldram sínum, systkin- um og öðram ættingjum. Dugnað og framtakssemi átti Gísli í ríkum mæli. Þannig byggði hann myndarlegt hús við Grænu- kinn og hóf þar búskap 1970 með eftirlifandi eiginkonu. Síðan réðust þau hjónin í byggingu vandaðs ein- býlishúss við Lyngberg og bjuggu þar frá 1988-94, er þau fluttust á Miðvang 41. Síðustu þrjú árin dvaldist Gísli á Sólvangi og var þakklátur fyrir þá góðu umönnun, sem starfsfólkið þar veitti honum. Kvaddur er góður vinur með þakklæti fyrir vinsemd og traust, sem þau hjónin, Gísli og Sigurlaug, hafa sýnt mér. Guð blessi minningu hans. Árni Gunnlaugsson. Frágangur afmælis- og minn- ingar- greina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentun- inni. Það eykur öryggi í texta- meðferð og kemur í veg íyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvu- pósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem við- hengi. Auðveldust er móttaka svo- kallaðra ASCII skráa sem í daglegu tali era nefndar DOS-textaskrár. Þá era rit- vinnslukerfin Word og Wor- dPerfect einnig nokkuð auð- veld úrvinnslu. Um hvem látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar gi-einar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar era beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.