Morgunblaðið - 09.12.1998, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1998 59“
BRÉF TIL BLAÐSINS
Hug'leiðing’ um
nýtingu hálendisins
Frá Friðríki Haraldssyni:
HÁLENDI íslands er meðal þess,
sem við eigum tiltölulega ósnert af
manna höndum. Það hefur að
mestu leyti verið eins og það er
enn þá nú á dögum frá örófi alda.
Slíkt er ekki hægt að segja um lág-
lendissvæðin á landinu, því að þau
hafa tekið miklum breytingum
vegna búsetu manna. Því er nauð-
synlegt fyrir alla, hvort sem þeir
hafa baiið hálendið augum eða
ekki, að taka ákvörðun um nýtingu
þess. Eigum við að halda því
óbreyttu eða ekki? Hvers konar
landi eigum við að skila til afkom-
enda okkar? Á nýtingar- og fram-
kvæmdagleðin að ráða eða eiga
sagan og rómantíkin að taka völd-
in? Erum við ein í heiminum? Eig-
um við landið okkar ein? Er okkur
falið að varðveita síðustu ósnortnu
víðerni Evrópu eða alls heimsins
óskert? Hver ræður ferðinni? Eru
það fljótfengnir peningar eða fórn-
ir til framtíðar, sem eiga að ráða
ferðinni? Hvað eigum við að gera í
nútíma þjóðfélagi, þegar orkan er
stýrandi miðill? Er þessi orkumiðill
hinn eini, sem er til ráðstöfunar?
Hvað ber framtíðin í skauti sér?
Við eigum margra kosta völ í
þessu landi, því að orkan býr ekki
síður í okkur en í landinu. Hvaða
stefnu eigum við að taka til að fá
salt í grautinn? Við vitum, að fáir
landar okkai- afla okkur tekna til
þess að getum gert það, sem við
viljum gera. Utflutningur okkar
byggist enn þá á meira en helmingi
á sjávarafurðum.
Kíkt á kvótann
Frá Sófusi Bertelssyni:
EINHVERS staðar las ég að fisk-
veiðistjómarkerfi okkai’ sé það
besta í heimi, ég sé enga ástæðu til
að rengja það. En þó ég sé ómennt-
aður og aldraður, tel ég mig hafa
fullan rétt til að hafa skoðun, en ég
álít mig hafa heilbrigða hugsun.
Nefndir hafa verið sægreifar
sem fengu kvóta gefins, eða svo er
sagt, og þeir safnað auði í milljarða
vís, og sagt er að bátaeigendur hafi
selt báta sína, en haldið eftir kvót-
anum, síðan leigt kvótann eða selt
og lifað sældarlífi á suðrænum sól-
ai'ströndum. Margir álíta að það sé
ekki rétt að ráðstafa kvótanum til
auðgunar fámenm'i stétt, og vilja
að ríkið taki kvótann til baka og
leigi síðan útgerðarmönnum gegn
gjaldi. Mér fínnst það ekki rétt
ráðstöfun, það gæti orðið til þess
að margir mundu ekki treysta sér
til að gera út og það mundi þýða
atvinnumissi verkafólks í fiskiðnaði
ásamt ýmiskonar missi í verslun og
öðram iðnaði. Væri ekki ráðlegra
að láta þá sem hafa kvótann að
halda honum, en banna að selja
hann eða leigja? Ef skip og bátar
eru seld, þá fylgi kvótinn, skipin
skulu eiga kvótann, ekki menn eða
útgerðir. Ef ekki tekst að fiska upp
í kvótann, þá falli það niður sem
óveitt er af kvótanum það árið, þá
lifir óveiddi fiskurinn áfram í haf-
inu og fjölgar sér.
Þungar sektir þurfa að vera fyrir
að selja eða leigja kvóta, því enginn
á hann nema skipin. Mér finnst
þetta mjög einföld ráðstöfun, hvað
sem hámenntaðir ráðherrar halda
fram, en líklega leggjast þeir ekki
svo lágt að lesa þetta pár mitt, en
ef svo er, þá finnst þeim ég víst
mjög einfaldur. En þrátt fyrir ein-
faldleika minn, þá finnst mér að
vernda þurfi fiskimiðin engu síður
en fiskveiðarnar. Togarar draga
vörpu eftir sjávarbotni, og hirða
allt lífrænt, og því, sem ekki er nýt-
anlegt, er mokað aftur dauðu í haf-
ið. Hvað ætli fari margar billjónir
af fiskseiðum forgörðum yfir árið?
Einnig eyðileggur botnvarpan
sjávarbotninn og malar niður kór-
alinn.
Banna ætti botnvörpungum að
veiða innan 100 mflna landgrunns
til að vernda gróður og fiskseiði.
Trillukörlum er gert erfitt fyrir
með því, að sífellt er verið að
minnka við þá það sem þeir mega
veiða á króka sína, svo það tekur
því varla að ýta úr vör. Þeirra
vinna er vistvæn, þeir eyðileggja
ekki sjávarbotninn, og ef fiskur
nær ekki löglegu máli, er honum
sleppt aftur lifandi í hafið. Því er
haldið fram að einstaka trillukarl
þéni nokkrar milljónir yfir árið. Því
skyldu þeir ekki mega það með
dugnaði sínum og erfiði, þegar sæ-
greifarnir þéna milljarða á dugnaði
og ei'fiði annarra? Trillukarlarnir
halda uppi litlum sjávai'plássum,
þar sem stærri bátar hafa verið
seldir burt. Væri það því ekki spor
í rétta átt að rýmka stórlega veiði-
leyfi trillukarlanna? Þetta era nú
bara hugrenningar 84 ára gamal-
mennis, sem stundaði sjó á sínum
manndómsáram.
SÓFUS BERTELSSON eldri,
Hjallabraut 33, Hafnarfirði.
Meirihlutinn er vaxandi og bygg-
ist að mestu á hyggjuviti og mennt-
un. Við erum smám saman að
breytast úr veiðimannaþjóð í hugs-
andi þjóð. Við vitum líka, að heim-
urinn er að vaxa í sömu átt og við.
Þess vegna eigum við líka að vita,
að við eigum auðlindir, sem eru
ákaflega aðlaðandi fyrir þá, sem
eignast sífellt meiri tíma til að
njóta þess að kynnast öðrum
heimshlutum.
Það er til forvitið fólk víðar en á
Islandi. Þetta fólk er í auknum
mæli að leita að því, sem landið
okkar býður í stað þéttsetinna
borga og byggðarlaga á megin-
löndum heimsins. Það þráir að
komast brott frá einsemd borg-
anna og öðlast bein tengsl við nátt-
úruna. Hana höfum við í miklum
mæli og skylda okkar er að varð-
veita hana fyrir alla jarðarbúa. Við
eram bara með landið að láni á
meðan við búum hér. Hver segir
okkur, að við getum ráðstafað öll-
um þess gæðum á meðan við lifum
án þess að hugsa til þeiraa, sem
koma á eftir okkur? Er það ekki
hroki að hugsa þannig? Islendingar
nútímans eru orðnir veraldarvanir,
hafa ferðast víða og eiga eftir að
halda því áfram. Við, þessir heims-
vönu menn þessa lands, eigum að
taka forystuhlutverk í náttúru-
vernd og stýra stórþjóðunum í
okkar átt. Við getum veitt hvali og
nýtt okkur allar auðlindir lands og
hafs eins og okkur sýnist án þess
að valda öðram skaða, ef við gerum
það skynsamlega.
FRIÐRIK HARALDSSON,
Hverafold 48, Reykjavík.
GJÖF * jk ’
SEM ***
GLEÐUR
GJAFALYKILL
AÐHÓTELÖRK
ERLAUSNIN
Verð frá kr. 6.900.
Uppiýsingar og
pantanir
í síma 511 6030
og fax 511 6031.
Sendum í póstkröfu.
Raðgreiðslur
Viðskiptanetið
i___________________________________________________________________________________________________________________________________________i
VIÐ HOFUM LÆKKAÐ LYFJAVERÐIÐ
p—®
INNSOGSLYF
6 stk. "startpakki" 499,-
18stk. fylling 799,-
NICORETTE
TYGGIGÚMMÍ
2 mg 105 stk. 1299,-
4 mg 105 stk. 1899,-
ÞJÓNUSTA AN ENDURGJALDS
Hjúkrunarfræðingur sinnir heimsendingarþjónustu á lyfjum.
Blóðþrýstingsmælingar.
INGÓLFS APÓTEK - MEÐ LÆGRA LYFJAVERÐ
KRINGLUNNI 8-12 SÍMI: 568 9970
Kœru œttingjar og vinir.
Hjartans þakkir til ykkar allra sem gerðu
mér 90 ára afmœlisdaginn ógleymanlegan,
með heimsóknum, gjöfum, blómum og skeyt-
um. Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól!
Ingileif Þóra Steinsdóttir.
I»ÍS
BOUTIQE
Á horni Laugavegs
og Klapparstígs,
sími 552 2515
Eftirlíking úr
Titanic
Jólagjöf bílamannsins - Uppkeyrslubúkkar
Ættu að vera til í hverjum bílskúr
Nærðu honum
Sendum um allt land H. Kristjúnsson
pöntunarsími 552-6415
NÝJU A5KO
UPPÞVOTTAVÉLARNAR
Þær eru svo ótrúlega hljóölátar - og þvílíkur árangur
Vínglosohilla
Hnífaskúffa
Há neöri
m ASKO fíokks /?cmx
Sænskar og serstakar fraa
HÁTÚNI6A REYKJAVIK SIMI 552 4420