Morgunblaðið - 09.12.1998, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1998 63
FÓLK í FRÉTTUM
ÞORFINNUR Guðnason vinnur við að klippa myndina um Lalla Jones. UR fjölskyldulífi hagamúsarinnar.
Hagamúsin sýnd á National Geographic í kvöld
Goðsögn í
lifanda lífí
HAGAMÚSIN er í aðalhlutverki í samnefndri mynd.
„Halló.“
Er þetta Þorfmnur?
„Já.“
Sæll og blessaður. Er ég nokkuð
að trufla?
„Eg er að klippa myndina Lalla
Jones,“ svarar Þorfínnur sem er
staddur í Nýjabíói sem framleiðir
myndina með honum. „Það er mynd
um smákrimma sem ég fylgdist með
í tvö ár. Þetta er saga af manni sem
gengur út af Litla-Hrauni á miðjum
aldri með eigur sínar í tveimur plast-
pokum og þúsund kall í vasanum og
þegar hann stígur út úr rútunni á
BSÍ á hann í engin hús að venda.“
Er þetta heimildnrmynd?
„Þetta er svolítið nýtt efni. Þetta
Ier heimildai-mynd en hún lýtur lög-
málum bíómyndarinnar því atburða-
rásin dregur söguna áfram.“
Er ekki erfítt að ná tökum á svona
söguefni?
„Það tók tíma að ná trausti fólks-
ins sem ég fjalla um,“ svarar Þor-
finnur. „Og Lalla,“ bætir hann við.
„En hann er skemmtilegur. Hann er
bæði harður og mjúkur og hann er
einn í heiminum. Hann á í baráttu
við sjálfan sig og kerfið.“
ÍHvar er þessi Lalli í dag?
„Hann er í Reykjavík en fer inn á
Hraunið 15. janúar. Hann losnaði
10. nóvember og ég tók á móti hon-
um og hef verið að fylgjast með
honum síðan. Kúnstin við svona
kvikmyndagerð er að verja tíma
með Lalla og mynda söguþráð.
Þetta er búið að taka mig tvö ár og
ég er enn að.“
Hvernig kviknaði hugmyndin?
„Ég er búinn að þekkja Lalla frá
Ígamalli tíð frá því hann spilaði ball-
skák á Klapparstígnum. Lalli Jones
er goðsögn í lifandi lífi. Ég fékk svo
hugmyndina þegar ég sótti heimild-
armyndaráðstefnu í Svíþjóð árið
1996. Með nýrri tækni hefur lands-
lag heimildarmynda breyst og menn
eru farnir að gera persónulegri
Stuttmyndin Hagamús-
in verður sýnd kl. 221
kvöld á sjónvarpsstöð-
inni National Geograp-
------?-------------------
hic. I framhaldi af því
stendur til að sýna
hana í 110 löndum um
allan heim. Pétur Blön-
dal talaði við Þorfinn
Guðnason sem er þegar
byrjaður að vinna að
næstu mynd og er hún
ekki síður spennandi.
myndir. Þá eru menn famir að segja
skilið við viðtalsformið og leita að
sögu. Og það er ríkjandi leikgleði í
þessum nýju myndum."
Hvað áttu við?
„Þá á ég við að kvikmyndagerðar-
menn eru orðnir sögumenn aftur í
heimildarmyndinni og nú getur nán-
ast hver sem er farið út á götu og
gert persónulegar myndir vegna
þess að það er orðið svo ódýrt að
framleiða þær. Hinn tæknilegi
kostnaður hefur minnkað ört. Búið
er að nefna þessa nýju kvikmynda-
gerð nýbylgju, sem er eiginlega
klisja, og myndh-nar eiga það sam-
merkt að þar eru sögumenn og þær
eru persónulegar og skemmtilegar
og daðra meira og meira við bíó-
myndaformið.“
Hver er kostnaðurinn ?
„Það er hægt að gera svona mynd
fyrir kvikmyndahús með því að blása
þetta upp fyrir innan við 20 milljónir
í fulla lengd.“
Hvenær verður myndin tilbúin?
„Þegar sagan er komin í hús. Ég
reikna með að ég verði að til ársins
2000 og kannski endar myndin
einmitt um aldamótin þegar Lalli
stígur á stokk og kemur með ný
áheit. Við höfum verið að fylgja eftir
áheitum og væntingum Lalla. Þráð-
urinn spinnst eftir því hvemig hon-
um tekst að standa við þau.“
Þetta hljómar mjög spennandi.
„Þetta tekur svolítið á sálina,“
svarar Þoi-finnur. „Ég þekki lítið til
þessa umhverfis og það er töluvert
mikið myrkm- þarna. En þetta er
ferðalag um undirheima Reykjavík-
urborgar og það fjallar um fólk sem t’
hefur orðið undir í lífinu, en líka um
vináttu og kærleika og það góða sem
býr í manninum.“
Ég hringdi eiginlega í þig til þess
að tala um Hagamúsina.
„Það verður Evrópufrumsýning á
henni í kvöld kl. 22 að íslenskum tíma
og síðan verður hún aftur sýnd á
morgun kl. 18. Hún verður svo sýnd
af og til næstu mánuði á sjónvarps-
stöðinni National Geographic. Auk
þess verður myndin sýnd á sjón-
varpsstöðvum víða um heim, fyrir ut>
an gervihnetti, meðal annars í Banda-
ríkjunum, Kanada, Norðurlöndunum,
Frakklandi, Þýskalandi..."
Hvað eru þetta eiginlega mörg
lönd?
„Hún verður sýnd í samtals 110
löndum.“
Ertu þá ekki orðinn margmilljóna-
mæringur?
„Nei, þessi mynd stendur undir
sér,“ svarai- Þorfinnur. „En þú verð-
ur að athuga að ég er ennþá að fjár-
magna myndina. Sem betur fer virð-
ist það ætla að takast því ég tapaði
svo á síðustu mynd.“
Hvaða mynd var það?
„Húsey,“ svai’ar Þorfinnur. „Hún
fékk menningarverðlaun DV árið
1994. En ég gat ekki selt hana er-
lendis vegna þess að það var atriði í
henni um seladráp. Ég fékk bréf frá
sjónvarpsframleiðanda þar sem
sagði: „Ef þú heldur að við ætlum að
sýna hér dráp á saklausum selkópum
þá hlýtur þá að vera brjálaðpr.“
Þá verðurðu þjóðhetja á Islandi?
„Þá skulum við endilega birta
þetta,“ segir Þorfinnur og hlær.
MYNPBONP________
Spilling í Evrópu
AL GORE bregður á leik í nýlegum þætti hjá Letterman.
Brjálaði Sex
(Crazy Six)_____________________
Spen ii ii iii v n «1
★
Framleiðendur: Tom Karnowski,
Schmoeller. Leikstjóri: Albert Pyun.
Handritsliöfundur: Galen Yulen.
Kvikmyndataka: George Mooradian.
Tónlist: Tony Riparetti. Aðalhlut-
verk: Rob Lowe, Ice-T, Mario Van
Peebles, Burt Reynolds, Nana
Milicevic. 93 mín. Bandarikin.
Myndform 1998. Myndin bönnuð
börnum innan 16 ára.
LEIKSTJÓRI þessarar myndar,
Albert Pyun, er þekktastur fyrir
myndir eins og „Nemesis", „Cyborg"
og „Adrenalin: Fear the Rush“, sem
|j eru allar frekar ómerkilegar harð-
aj hausamyndir. Það sem gerir þessa
|j mynd frábrugðna fyrri myndum
™ Pyuns eru leikararnir, en Rob Lowe,
Burt Reynolds og jafnvel Ice-T eru
langtum betri
leikarar en þeir
sem eru vanir að
vera í myndum
Pyuns. Sagan
sem er einföld og
götótt, fjallar um
baráttu smá-
glæpamannsins
Crazy Six við
hinn illa Mao
(Mario Van
Peebles, sem ætti að forðast að tala
með frönskum hreim) og aðra evr-
ópska skúrka.
Það gerist næstum því ekkert
fyrstu 35 mínúturnar af þessari
mynd en þeir sem þrauka þær finna
smáglaðning í nokkrum venjulegum
ofbeldisatriðum. Pyun leikstýrir
myndinni eins og löngu tónlistar-
myndbandi og passa lýsingin og
kvikmyndatakan engan veginn við
söguþráð myndarinnar.
Ottó Geir Borg
Skugga-
hlið frægð-
arinnar
AÐDÁENDUR eru misaðgangs-
harðir við átrúnaðargoð sín en
líklega eru fáir harðari af sér en
þeir sem elta spjallþáttastjórn-
andann David Letterman á
röndum.
Nú síðast var Nellie Shirley,
sem er 39 ára starfsmaður
póstsins í Honea Path, dæmd í
endurhæfingu eftir að hún var
handtekin í garðinum við heimili
Lettermans í New Canaan í
september.
Það var aðeins nokkrum dög-
um eftir að önnur kona, Margar-
et Ray, framdi sjálfsmorð með
því að krjúpa fyrir framan kola-
lest í Hotchkiss í Colorado.
Ray átti við geðræn vandamál
að stríða og hafði ítrekað kom-
ist í fréttirnar fyrir að brjótast
inn á heimili Lettermans, halda
því fram að hún væri konan
hans og jafnvel verið handtekin
fyrir að stela Porsche-bifreið-
inni hans.