Morgunblaðið - 09.12.1998, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 09.12.1998, Blaðsíða 66
'66 MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1998 MORGUNBLADIÐ FÓLK í FRÉTTUM HÉR sést Cantona ineð málglaða apann á höfðinu á flótta og franska munkinum í myndinni „Mookie“. FRANSKI leikarinn Jacques Villeret fer með hlutverk munksins og hér sést hann hvfla lúin bein á öxl fótboltakappans, nei hnefaleikakappans! Cantona á flótta með apa og munk HVAÐ eiga talandi api, munkur og Eric Cantona sameiginlegt? Jú, þeir leika allir í nýju myndinni „Mookie", sem frumsýnd er í dag í Frakklandi. Franski fótboltakapp- inn Eric Cantona sagði skilið við Manchester United á sínum tíma, lagði takkaskóna á hilluna og ákvað að leggja leiklistina að fót- um sér. Það hefur allt gengið eftir og í nýju myndinni má sjá flótta- ferð þar sem Cantona leikur hnefa- leikakappa á flótta með talandi apa og munki sem leikinn er af Jacques Villeret. Örugglega forvitnilegar samræður í þeirri flóttaferð. Mulan heldur fyrsta sætinu LITLAR breytingar eru á listan- um frá síðustu viku og trónir teiknimyndin Mulan frá Disney- fyrirtækinu ennþá í fyrsta sætinu. Hin ljóshærða Mary er lífseig í skammdeginu og fer aftur upp í annað sætið eftir að hafa verið í því þriðja í síðustu viku. Þorvaldur Arnason hjá Sambíó- unum segir að niðurstaða listans komi sér ekki á óvart. „Mulan virðist ætla að slá rækilega í gegn á Islandi eins og annars staðar, enda er önnur sýningarhelgin mun betri en sú fyrsta.“ Greinilegt er að fólk er að lyfta sér upp í skammdeginu og eru gaman- myndirnar í öðru og þriðja sæti dæmi um það. „Annars koma oft hasar- og spennumyndir sterkar inn á þess- um árstíma,“ segir Þorvaldur, „en þá förum við að sjá fleiri karl- menn í kvikmyndahúsunum. Ef til vill á meðan konurnar eru að sýsla í eldhúsinu eða við annan jó- laundirbúning." Ný mynd á lista er gott dæmi um hasarmynd sem .............. T¥TTTm''l'I 81 i'II fl VINSÆLUSTU KVIKMYNDIR Á ÍSLANDI Nr. vor vikur Mynd ; Framl./Oreifing Sýningarstaður 1. (1) 2 Mukm : Buena Vista Bíóhöllin, Bíóborgin, K 2. (3) 5 There's Something About Mary (Þoð er eitthvað við Mary) | 20th Century Fox Regnboginn 3. (2) 2 The Negotiotor (Samningamoðurinn) 1 Warner Bros. Bíóhöllin, Kringlubíó, 4. (4) 3 Blode (Blað) f New Line Cinema Laugarósbíó, Borgarbí 5. (5) 2 Taxi ; TFl Hóskólabíó 6. Ný - Knock Off (Hnefinn) i MDP Stjörnubíó 7. (7) 3 Out of Sight (líl úrsýn) ; Universal Hóskólabíó 8. (11) 6 Snoke Eyes (Snóksaugu) ; Buena Vista Bíóhöllin, Nýjn bíó Ak. 9. (6) 2 Con't Hnrdly Wait (Portýið) ; Columbia Tri-Star Stjörnubíó 10. (8) 5 AntZ (Mourar) : Dreamworks SKG Hóskólabíó 11. (9) 7 The Truman Show (Truman-þótturinn) ! Paramount Laugarósbíó 12. (10) 4 The Avengers (Hefnendumir) | Warner Bros. Bíóborgin, Kringlub.i 13. (12) 7 The Parent Trap (Foreldragildran) i Buena Visfa Bíóhöllin M 14. (13) 8 Wrongf ully Accused (Kærður snklnus) i Morgan Creek Bíóhöllin 15. (20) 13 Saving Private Ryan (Björgun óbreytts Ryans) i Dreamworks SKG Hóskólabíó 16. (18) 3 A Smile Like Yors (Brosið þitt) ; Rysher Ent. Bíóhöllin 17. (15) 10 Dr.DolÍttle (Dagfinnur dýralæknir) ; 20th Century Fox Regnboginn 18. Ný - Vor : Sonet Films Regnboginn 19. (27) 9 Small Soldiers (Smóir hermenn) ! Universal Hóskólobíó 20. (16) 11 Horse Wisperer (Hesiakvislorinn) i Buena Vista Bíóborgin .1.1.,.11.1. i ii 11 n n ii 111111111 n m ii i n n ii n 111111 ii fer beint inn í sjötta sætið, en þar er slagsmálahundurinn Claude Van Damme í aðalhlutverki. En mynd Luc Besson, Taxi, heldur fímmta sætinu og sama má segja um Blað og Út úr sýn. Snáksaugu hækka sig um eitt sæti en Partýið fer niður í níunda sæti. Sjón er sögu ríkari Öðruvísi blómabúð blómaverkstæði INNAs Skólavörðustíg 12, Bergstaðastrætismegin, sími 551 9090 Handboltinn á Netinu ^mbl.is /\LLTAf= €=/TTH\/A£J A/ÝT7 MYNPBÖNP Vandamál unglinga Skaparinn (The Maker)_______ Spnnnumynd ★ ★'/2 Framleiðendur: Andrew Lazar, Demtri Samaha, Schmoeller. Leik- stjóri: Tim Hunter. Handritshöfund- ur: Rand Ravich. Kvikmyndataka: Robert Taczanowski. Tónlist: Paul Buckmaster. Aðalhlutverk: Matthew Modine, Marie Lousie-Parker, Jon- athan Rhys-Meyer, Michael Madsen, Fairuza Balk, Jesse Borrego. 90 mín. Bandaríkin. Myndform 1998. Myndin bönnuð börnum innan 16 ára. JOSH er átján ára unglingur og eyðir mestum tíma sínum að sniffa lím og stela pósti. Hann bíður eftir að heimurinn í kring verði skilj- anlegri og að hann geti unnið ástir lögreglu- konunnar Emily Peck. Josh er mun greindari en fólkið sem hann umgengst en skortir allan metnað. Einn daginn kemur Walter Schmeiss til Josh og segist vera bróðir hans og ætlar hann að kynna Josh fyrir starfí fjölskyldunnar, sem auðvitað er ólöglegs eðlis. Þetta er nokkuð góð mynd um firringu hins nútíma unglings í sam- félaginu. Jonathan Rhys-Meyer er virkilega góður í hlutverki Josh og Matthew Modine, Mary Louise- Parker og Fairuza Balk standa sig vel í aukahlutverkum. Leikstjórinn Tim Hunter hefur gert myndir á borð við „Rivers Edge“ og „Saint of Fort Washington" og er hann eink- ar góður að gera myndir um fólk sem stendur fyrir utan samfélagið. Ottó Geir Borg Söngelsk Oskubuska Öskubuska (Cinderella) Söngleikur ★ Framleiðsla: Mike Moder. Leikstjórn: Robert Iscove. Handrit: Robert L. Freedman. Tónlist: Richard Rodgers. Aðalhlutverk: Brandy, Jason Alex- ander og Whoopy Goldberg. 84 mín. Bandarísk. Sam-myndbönd, nóvember 1998. Öllum leyfð. ÞESSI mynd er sjónvarpsupp- færsla Disney fyrirtæksins á söng- leik hins fræga tvíeykis Rodgers og Hammerstein á ævintýrinu fræga um Öskubusku. Afraksturinn verður hinsvegar sennilega aldrei frægur, nema ef vera skyldi af endemis leiðind- um. Það er e.t.v. örlítill möguleiki á að sanntrúaðir söngleikjaaðdáendur kunni að meta myndina, enda eru sjálfir söngvarn- ir mjög áheyrilegir. Allt annað minnir á kvalafullar stundir í tann- læknastólnum. I útliti er reynt að herma eftir teiknimyndum, sem nú eru eina kvikmyndaformið þar sem dans- og söngvaatriði halda velli (illu heilli). Myndin hefði mögulega getað gengið upp sem teiknimynd, en eins og hún birtist er erfítt að benda á jákvæðar hliðar. Leikur stjarnanna er vandræðalegur, því hvert atriðið er öðru afkáralegra. Tilvalin mynd fyrir þá sem vilja bjóða fjölskyldunni upp á þrautleið- inlega kvöldstund. Guðmundur Ásgeirsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.