Morgunblaðið - 09.12.1998, Qupperneq 72
Drögum næst
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
A
Sljórn Islenskra sjávarafurða hf. fundar
Engin afstaða
til sameiningar
STJÓRN íslenskra sjávarafurða hf.
tók ekki afstöðu til hugmynda um
samvinnu eða sameiningu við Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna hf. eða
samstarf við norska sjávarútvegs-
fyrirtækið Norway Seafood á fundi
sínum í gær, að sögn stjórnarfor-
manns fyrirtækisins. Formaðurinn
fundaði með starfsfólki fyrirtækis-
ins eftir fundinn og stjórnarmenn og
fulltrúar stórra hluthafa réðu ráðum
sínum fram á kvöld.
Ekki voru teknar neinar ákvarðan-
ir á stjórnarfundinum í gær, að sögn
Hermanns Hanssonar, stjómarfor-
manns IS. Hann sagði eftir fundinn
að það væri niðurstaða stjómarinnar
að ekki væri tilefni til ákvörðunar en
vék sér undan því að ræða efni máls-
ins. Spurður um framhald málsins
eða frekari fundahöld vísaði Her-
mann einungis tO þess að næsti
reglulegi stjómarfundur ÍS væri fyr-
irhugaður 16. desember.
Vísir í Grindavík kaupir
51 % hlut í Búlandstindi
ÚTGERÐARFYRIRTÆKIÐ Vís-
ir hf. í Grindavík hefur eignast
51% hlut í Búlandstindi hf. á
Djúpavogi. Pétur H. Pálsson,
framkvæmdastjóri Vísis og nýr
stjórnarformaður Búlandstinds,
vildi í samtali við Morgunblaðið
ekki ræða um kaupverð eða af
hverjum hlutaféð var keypt. Hann
sagði aðeins að keypt hefði verið af
fyrrverandi meirihluta. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
keypti Vísir meðal annars af Olíu-
félaginu hf. I kjölfar kaupanna
hefur verið gerð talsverð breyting
Breytingar gerðar
á stjórn
Búlandstinds
á stjórn Búlandstinds, en fjórir ný-
ir stjórnarmenn hafa tekið sæti í
stjórn félagsins.
A aðalfundi félagsins í gær kom
fram að taprekstur varð á rekstrar-
ári félagsins upp á rúmlega 194
milljónir króna og að skuldir hefðu
aukist úr einum milljarði í rúmlega
1,6 milljarða. Haraldur L. Haralds-
son, sem tók tímabundið við starfi
framkvæmdastjóra Búlandstinds í
október, segir að þrennt hafi eink-
um valdið auknum skuldum á
rekstrarárinu, en það er gert upp
miðað við kvótaár. Félagið hafi
keypt nýjan togbát, unnið að upp-
byggingu á bræðslunni á Djúpavogi
og tekið lán til þess að fjármagna
reksturinn vegna mikils taprekst-
urs. Hann segir að meirihlutakaup
Vísis í Búlandstindi sé farsæl lausn
fyrir Djúpavog og Breiðdalsvík, en
fyrirtækið rekur starfsemi á báðum
stöðum.
Morgunblaðið/RAX
Islenskt hjartalyf
leyft í Þýskalandi
Á ferðinni í
Firðinum
EINBEITNIN skín úr svip þess-
ara ungu hljóðfæraleikara sem
urðu á vegi ljósmyndara Morgun-
^hlaðsins í Hafnarfirði í skamm-
cieginu. Ekki er alveg útilokað að
tónlistarfólkið unga hafí verið að
koma af hljómsveitaræfíngu, þar
sem upprennandi snillingar hafi
látið jólalögin hljóma. Þrátt fyrir
daglegt amstur og háalvarlega
tónlistartíma er næsta víst að
börnin eru farin að hlakka til jól-
anna.
BÚIÐ er að viðurkenna hjartalyf
sem íslenska lyfjafyrirtækið Omega
Farma hefur þróað og framleiðir, á
lyfjamarkaði í Þýskalandi. Verið er
að kynna lyfið þar í landi um þessai-
mundir, að sögn Friðriks Steins
Kristjánssonar, framkvæmdastjóra
Omega Fai'ma, og kveður hann for-
svarsmenn fyrh'tækisins bjartsýna á
frekari landvinninga á Evrópumark-
aði.
Lyfið nefnist „doxazosin“ og er
gefið við háþrýstingi og í meðferð
vegna stækkunar blöðruhálskirtils.
Um er að ræða samheitalyf og kall-
ast samsvarandi lyf á íslenskum
markaði „carduran". Velta Omega
Farma á þessu ári nemur um 250
milljónum króna, að sögn Friðriks,
og er verðmæti framleiðslusamn-
ingsins ekki meira en 10% af veltu,
að hans sögn. Framlegð í þessum út-
flatningi nemur að hans sögn um 15
milljónum króna.
4 milljónir fluttar út
Það sem af er þessu ári hafa fjög-
ur hundruð þúsund skammtar af lyf-
inu „doxazosin“ verið fluttir til
Þýskalands, samtals um 14 milljónir
taflna. Lyfíð er framleitt fyrir þrjá
þýska aðila sem annast markaðs-
setningu þess og er það kynnt með
vörumerkjum þeirra en ekki íslenska
framleiðandans.
Friðrik Steinn segir óljóst hversu
lengi þessi framleiðslusamningur
muni gilda, enda velti það mjög á
viðtökum lyfsins ytra.
„Lyfið er nýskráð og nýkomið á
markað. Sú staðreynd að það hefur
verið viðurkennt á markaði ytra sýnir
að það er eins og frumlyfið, sem er
mjög mikilvægt fyrir okkur því upp-
fylla þai-f geysilegar kröfur um gæði
lyfjanna og þær upplýsingar sem
þeim fylgja til að komast inn á mark-
að þar. Þetta er því ákveðinn gæða-
stimpill. Við flytjum út þessar 14
milljónir taflna á þessu ári en óvíst er
hvað tekur við að því loknu. Við telj-
um hins vegai- að fleiri lyf frá okkui-
verði skráð á evrópskan markað á
næstunni, og velgengni „doxazosin"
mun sjálfsagt auðvelda okkur að fá
slíka skráningu," segir Friðrik.
24 tegundir lyfja
Omega Farma er átta ára gamalt
fyrirtæki sem 30 manns starfa hjá.
Fyrirtækið framleiðir 24 tegundir
lyfja fyrir íslenskan markað auk 16
tegunda vítamína.
Frumvarp um miðlæg-
an gagnagrunn
Stangast
einkaleyfi á
við stjórn-
arskrá?
BRYNDÍS Hlöðversdóttir alþingis-
maður telur hugsanlegt að einkaleyfi
til gerðar og starfrækslu miðlægs
gagnagrunns á heilbrigðissviði stang-
ist á við jafnræðisákvæði stjómar-
skrár og ákvæði stjómarskrárinnar
um atvinnufrelsi í ljósi dóms Hæsta-
réttar um svokallað kvótamál.
I fréttaskýringu í Morgunblaðinu í
dag kemur fram að ýmsan lærdóm
megi draga af kvótadómnum um við-
komandi stjómarskrárákvæði sem
megi svo aftur nýta sér til að skoða
gagnagrunnsfrumvarpið í nýju ljósi.
Kvótadómurinn marki einnig tíma-
mót að því leyti að þar gafst almenn-
um borgara sem átti engra sérstakra
hagsmuna að gæta færi á að láta
reyna almennt á tiltekna löggjöf.
Sömu formúlu virðist mega nota um
gagnagrunninn; þeir sem ekki hljóti
rekstrarleyfi geti borið synjun heil-
brigðisráðherra undir dómstóla.
I gær skomðu 108 læknar á Al-
þingi að samþykkja ekki fyrirliggj-
andi frumvarp um miðlægan gagna-
grunn á heUbrigðissviði og segjast
þeir ekki munu senda upplýsingar
um sjúklinga sína í hinn væntanlega
miðlæga gagnagrunn nema sam-
kvæmt skriflegri ósk þeirra.
■ Einkaleyfi brot/13
■ Senda ekki/13
■ UppfyIlir/37
Yfir 700
umsóknir
um kvóta
Á ÁTTUNDA hundrað um-
sókna um veiðileyfi og veiði-
heimildir hafði borist sjávarút-
vegsráðuneytinu síðdegis í gær.
Rúmlega 300 umsóknfr bárust
ráðuneytinu í fyrradag þannig
að ekkert lát virðist á umsókn-
um um kvóta. Ekki hefur verið
ákveðið hvenær eða hvernig
umsóknunum verður svarað.
Ríkisstjórnin kemur saman
til fundar í dag til að fjalla um
viðbrögð við dómi Hæstaréttar
í máli Valdimars Jóhannessonar
gegn ríkinu.