Morgunblaðið - 10.12.1998, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913
282. TBL. 86. ARG.
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Innanrrkisráðherra Breta úrskurðar framsalskröfu á hendur Pinochet gilda
Chilestjórn æf en mann-
réttindasamtök fagna
Reuters
3,6 millj-
óna ára
mannapi
SUÐUR-afrískir vísindamenn til-
kynntu í gær aö þeir hefðu fundið
beinagrind mannapa sem þeir telja
hafa verið uppi fyrir um 3,6 millj-
ónum ára. Segja þeir fundinn stór-
merkan og að hann kunni að gefa
ómetanlegar vísbendingar um þró-
un mannsins.
Beinagrindin fannst í kalksteins-
námu nærri Jóhannesarborg og
hefur hún ekki verið grafin upp að
fullu. Hún er af mannapa sem var
1,22 metrar á hæð, gekk uppréttur
og klifraði í trjám. Stærð heila
hans var um þriðjungur af heila
nútímamanns, á stærð við kaffi-
bolla.
Suður-afrísku vísindamennirnir
segja það mikið lán að finna heila
beinagrind, þar sem væntanlega
verði hægt að lesa úr henni hvern-
ig mannapinn hreyfði sig. Þá kunni
beinagrindin að færa vísindamönn-
um einhver svör um týnda hlekk-
inn í þróuninni frá apa til manns.
Beinagrindin er mun eldri en
þeir steingervingar sem áður hafa
fundist svo sunnarlega í Afríku.
Elsta beinagrind mannapa sem
fundist hefur var grafin upp í
Tansaníu. Hún var 3,75 milljóna
ára gömul og var gefið nafnið
Lucy. Mannapinn sem fannst í Suð-
ur-Afríku er sagður hafa verið
kominn mun lengra á þróunar-
brautinni en Lucy.
Pinochet fyrir rétt á föstudag
London, Santiago, Madríd. Reuters.
JACK Straw, innanríkisráðherra Bretlands, staðfesti í gær niðurstöðu dóm-
stóls bresku lávarðadeildarinnar um að taka mætti fyrir framsalskröfu
spænsks saksóknara á hendur Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra
í Chile. Chilestjórn brást ókvæða við ákvörðun Straws og kallaði sendiherra
sinn heim en mannréttindasamtök hafa fagnað henni. Hefst nú lagalegt ferli
sem dregist getur á langinn, þar sem lögmenn Pinochets segjast munu
áfrýja hverri einustu dómsniðurstöðu sem sé einræðisherranum fyrrverandi
í óhag. Er í raun óvíst að framsalskrafan yfir Pinochet nái fram að ganga,
þar sem hann er orðinn 83 ára og heilsulítill.
Pinochet
í niðurstöðu
sinni segir Straw
að aldur, heilsa eða
staða Pinochets
komi ekki í veg fyr-
ir að framsalskrafa
á hendur honum
verði tekin fyrir.
Veitti Straw bresk-
um dómstólum
leyfí til að taka fyr-
ir framsalsbeiðnina en Pinochet hef-
ur verið ákærður fyrir morð, pynt-
ingar og mannrán í stjórnartíð sinni
frá 1973-1990.
Lögmenn Pinochets höfðu haldið
því ft-am að hann hefði ekki heilsu til
að koma fyrir dómara, hann nyti
friðhelgi sem öldungadeildarþing-
maður, og að einn dómaranna sem
úrskurðuðu í máli hans fyrir hálfum
mánuði væri ekki hlutlaus þar sem
hann hefði starfað fyrir mannrétt-
indasamtökin Amnesty Inter-
national. Straw vísaði öllum rök-
semdum lögmannanna á bug og lagði
„sérstaka áherslu" á þá skyldu
breskra stjórnvalda að standa við
evrópska reglugerð um framsal.
Nú tekur við langt og flókið laga-
ferli. Pinochet á að mæta fyrir dóm-
ara á morgun, fóstudag, þar sem
framsalskrafan á hendur honum
verður formlega tekin fyrir. Falli
dómur um að framsalsbeiðnin eigi
fram að ganga mun Straw úrskurða
að nýju um framsal til Spánar.
„Við erum ákaflega glöð ... yfir
þessari afdrifaríku ákvörðun og þá
ekld síst vegna þess að hún kemur á
sama tíma og haldið er upp á fimmtíu
ára afmæli mannréttindayfirlýsingar
Sameinuðu þjóðanna,“ sagði Viviana
Diaz, varaformaður samtaka fjöl-
skyldna þeirra sem voru handteknir
eða hurfu í stjómartíð Pinochets.
Talsmenn mannréttindasamtaka
tóku undir fögnuð Diaz. í London
dönsuðu chileskir útlagar á götum
úti en fylgismenn Pinochets gerðu
hróp að þeim. Viðbrögð almennings í
Chile voru hófstillt en stjómvöld
bragðust æf við, sögðu úrskurðinn til
marks um nýlendustefnu Breta, sem
leituðust við að „refsa litlu landi sem
reyndi að þróast fram á við“.
Spænsk stjórnvöld lögðu á það
áherslu að málið væri nú í höndum
breskra og spænskra dómstóla og að
þau kæmu þar hvergi nærri.
Bandaríkjastjórn
tjáir sig ekki
Talsmaður bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins sagði allt of snemmt
að tjá sig um niðurstöðu Straws.
Elisabeth Guigou, dómsmálaráð-
herra Frakklands, fagnaði henni og
sagði hana marka nýtt skeið í barátt-
unni fyrir mannréttindum. Þá lýsti
innanríkisráðherra landsins því yfir í
gær að Frakkar væra „ekki andvíg-
ir“ því að sækja fyrrverandi einræð-
isherra Haítí, Jean-Claude „Baby
Doc“ Duvalier, til saka fyrir svipuð
grimmdarverk og Pinochet. Baby
Doc hefur dvalist í Frakklandi frá
1986.
Reuters
FJÖLSKYLDUR þeirra, sem hurfu eða létu lífið í stjdrnartíð Pin-
ochets, fögnuðu í gær í Santíagd úrskurði breska innanrfkisráðherr-
ans um að framsalskrafa á hendur Pinochets yrði tekin fyrir.
Ekkjum í útlegð
sagt að höfða mál
Nýju-Delhí. The Daily Telegraph.
YFIRVÖLD á Indlandi hafa hvatt
þúsundir indverskra ekkna til að
höfða mál gegn börnum sínum
fyrir að hrekja þær burt til að
deyja í soralegum fátæki-ahverf-
um í borginni Varanasi við bakka
Ganges-fljóts.
Fjölskyldur í Bengal hafa öld-
um saman hrakið ekkjur í útlegð
skömmu eftir andlát eiginmanna
þeirra til að deyja í Varanasi og
öðlast þannig „sáluhjálp". Ind-
verska stjórnin telur að 16.000
konur séu í útlegð í borginni.
Bengalai- telja að útlegð kvenn-
anna í Varanasi leiði til „nirvana“,
eða lausnar frá hringrás endur-
holdgunar. Líf þeirra í borginni er
hins vegar ömurlegt. Margar
þeiraa sjá sér farborða með betli
og glæpahópar hafa þröngvað
öðrum í vændi til að greiða leigu
fyrir hreysi sín.
Indverska stjórnin hefur skor-
að á Bengala að binda enda á
þessa hefð og segja að yfirvöld í
héraðinu hafi ekki gert nóg til að
hindra hana. Indverskur dómari
úrskurðaði nýlega að konurnar
hefðu rétt til að höfða mál gegn
börnum sínum fyrir að svipta þær
réttinum til að „lifa sómasamlegu
og heiðvirðu lífi“. Hann sagði að
líta bæri á ekkjurnar sem „hjálp-
arvana fórnarlömb fjölskyldu-
ógæfu og úrkynjaðra gilda“.
frakar hindra störf vopnaeftirlits SÞ
SÞ sakaðar um
„ögrandi“ eftirlit
Bagdad, New York. Reuters.
IRAKAR sökuðu vopnaeftirlitsmenn
Sameinuðu þjóðanna, SÞ, í gær um
að hafa farið án heimildar inn á „við-
kvæmt“ svæði í vopnaleit og brotið
þar með samkomulag þeiiTa við SÞ
um eftirlitið. Fjórir eftirlitsmenn
gerðu tilraun til að skoða höfuð-
stöðvar stjórnarflokksins, Baath, en
urðu frá að hverfa. Sagði Richard
Butler, yfinnaður þehra, að Irakar
hefðu engan rétt tfl að koma í veg
fyrir störf vopnaeftirlitsmanna og að
hann liti atvikið í gær „mjög alvar-
legum augum“.
Tólf eftirlitsmenn hugðust gera
óvænta vopnaleit í húsakynnurr.
Baath, en voru stöðvaðir við inn-
ganginn. Sagði Amir Muhammad
Rasheed, olíumálaráðherra Iraka, að
fjórir úr hópnum hefðu farið inn í
bygginguna en þeir hefðu hætt við
skoðun eftir að hafa ráðfært sig við
Butler, þar sem ljóst hefði verið að
hinir átta fengju ekki að fara inn.
Rasheed og aðrir ráðamenn hafa
mótmælt skoðuninni harðlega, sagt
hana „ögi;andi“ og því brjóta sam-
komulag íraka og SÞ. Butler vísar
þessu á bug, segir það Iraka sem
brjóti gerða samninga.
Rasheed sagði í gær að leystist
málið ekki gæti það leitt til alvar-
legrar „kreppu, deilna og vanda-
mála“. Svaraði Bandaríkjastjórn
þegar í sömu mynt en talsmaður
Bandaríkjaforseta lýsti því yfir að
stjórnin væri reiðubúin til að grípa
til aðgerða hvenær sem væri.
Reuters
Nóbelshátíð undirbúin
BORGARSTARFSMENN í
Stokkhólmi moka snjó af tröpp-
um ráðhúss borgarinnar en í
dag verða Nóbelsverðlaunin af-
hent þar og í Ósló. Mikil ofan-
koma hefur verið í Svíþjóð síð-
ustu daga og er þar allt á kafí í
snjó.
■ Kom í veg fyrir að Gandhi/28
Repúblikan-
ar leggja til
málshöfðun
Washinglon. Reuters.
REPUBLIKANAR í dómsmála-
nefnd fulltrúadeildar Bandaríkja-
þings lögðu í gær til að höfðað yrði
mál á hendur Bill Clinton Banda-
ríkjaforseta, byggt á fjórum ákæra-
atriðum. Verður tillaga þeirra tekin
fyrir í dag en tvö ákæruatriði vai’ða
meinsæri, eitt misbeitingu valds og
eitt hindrun framgangs réttvísinnar.
Repúblikanar í nefndinni telja
Clinton sekan um að hafa sagt ósatt
við yfirheyrslu Kenneths Starrs, sér-
skipaðs saksóknara, í ágúst sl. og í
vitnisburði í janúar sl. í máli Paulu
Jones. Clinton er sagður hafa hindr-
að framgang réttvísinnar með því að
„tefja og leyna“ sönnunargögnum í
máli Jones. Þá telja repúblikanar
forsetann hafa misnotað vald sitt er
hann hélt því fram að hann nyti sér-
stakra réttinda.