Morgunblaðið - 10.12.1998, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Leikskóli Sandgerðis
Kviknaði
í út frá
jólaseríu
SUÐURÁLMA leikskólans Sól-
borgar í Sandgerði skemmdist mik-
ið í eldi aðfaranótt miðvikudags.
Enginn var í húsinu þegar eldurinn
kviknaði, en að sögn rannsóknar-
deildar lögreglunnar í Keflavík er
orsök eldsins rakin til rafmagns.
Kviknað mun hafa í út frá framleng-
ingarsnúru í jólaseríu.
Slökkvilið Sandgerðis kom á vett-
vang fjórum mínútum eftir útkall
eða klukkan 3.55 um nóttina. Þá
logaði í suðurálmu hússins, en
slökkviliðið réð niðurlögum eldsins
á fáeinum mínútum. Þurfti að rjúfa
þak hússins á kafla, en skemmdir
vegna vatns urðu vart teljanlegar.
Skemmdir vegna sóts og reyks urðu
talsverðar, en aðrir hlutar bygging-
arinnar eru óskemmdir.
Reyndi ekki
á brunavarða veggi
Leikskólinn er um 280 fermetrar
að flatarmáli og hann sækja daglega
um 80 börn. Leikskólinn verður lok-
aður næstu daga vegna hreinsunar
og er vonast til að unnt verði að
taka á móti bömum í norðurálmu
hússins bráðlega en gera þarf end-
urbætur á þaki suðurálmu hússins
og innréttingum áður en hún kemst
aftur í gagnið.
í byggingareglugerð Skipulags-
stofnunar er þess m.a. krafíst að
leikskólar með fleiri en 50 böm upp-
fylli strangari skilyrði en leikskólar
með færri en 50 börn. Skal hvert
dagvistarherbergi með samliggj-
andi hópherbergi vera sjálfstætt
brunahólf og hver dagvistardeild
vera sjálfstæð brunasamstæða. Ein-
ungis er um að ræða tvö rými í Sól-
borg með brunavörðum vegg á
milli. Að sögn lögreglunnar í Kefla-
vík reyndi aldrei á bmnavarða
veggi leikskólans þar sem fljótt var
komið að eldinum og hann slökktur.
Leikskólar um land allt þurfa
samþykkti viðkomandi slökkviliðs-
stjóra en treysti slökkviliðsstjóri
sér ekki til að taka út bygginguna
tekur Brunamálastofnun við mati á
henni.
Morgunblaðið/Golli
Grísir í
Húsdýra-
garðinum
GYLTAN Gjóla gaut 12 grísum í
Húsdýragarðinum fyrir tveimur
vikum og braggast þeir allir vel.
Gjdla er þriggja ára og faðirinn,
Darri, er sex ára. Allir sem
áhuga hafa eru hvattir til að
heimsækja grísina sem fyrst þar
sem þeir eru fljótir að stækka.
Frumvörp til laga um alþjóðleg viðskiptafélög
Undanþegin gjöld-
um og eignarskatti
FINNUR Ingólfsson viðskipta-
ráðherra kynnti á ríkisstjórnar-
fundi í gær framvarp til laga um
alþjóðleg viðskiptafélög. Samhliða
lagði fjármálaráðherra fram fram-
varp sem gerir ráð fyrir breyting-
um á ákvæðum skattalaga í
tengslum við alþjóðleg viðskipta-
félög. í framvarpi viðskiptaráð-
herra er gert ráð fyrir að alþjóð-
legum viðskiptafélögum verði
skapaður starfsgi’undvöllur hér á
landi, m.a. með því að undanþiggja
þau stimpilgjöldum og eignar-
skatti og að tekjuskattur þeirra
verði 5%.
I fylgiframvarpi með framvarpi
viðskiptaráðherra er gert ráð fyrir
breytingum á lögum um álagningu
skatta og opinberra gjalda vegna
alþjóðlegra viðskiptafélaga og
mælir fjármálaráðherra fyrir því
framvarpi.
Frumvörpin byggjast á starfi og
tillögum verkefnisstjómar sem for-
sætisráðherra skipaði 1997 til að
vinna að athugun á tækifærum til
Gert verður ráð
fyrir 5%
tekjuskatti
að efna til sérhæfðrar alþjóðlegrar
viðskiptastarfsemi utan lögsögu á
íslandi.
Frumvarp viðskiptaráðherra
gerir einnig ráð fyrir því að al-
þjóðleg viðskiptafélög geti annast
milligöngu um viðskipti með þjón-
ustu milli aðila erlendis. Þar er
einnig gert ráð fyrir því að sköpuð
verði skilyrði fyrir starfsemi eign-
arhaldsfélaga sem eingöngu eigi,
fjárfesti og njóti arðs af eignar-
hlutum í atvinnufyrirtækjum er-
lendis eða í eignar- eða notkunar-
réttindum á óhlutlægum réttind-
um sem skráð era opinberri
skráningu erlendis, auk útgáfu-
réttinda erlendis.
Ennfremur er gert ráð fyrir að
alþjóðleg viðskiptafélög geti átt
eða haft umráð yfir og skráð hér á
landi flugvélar og skip, önnur en
fiskiskip.
Sérstök nefnd sinni eftirliti
Gert er ráð fyrir að einungis
hlutafélög eða einkahlutafélög
sem stofnuð eru hér á landi geti
fengið starfsleyfi sem er forsenda
þess að þau geti talist alþjóðleg
viðskiptafélög. Félögin geta hins
vegar verið að öllu leyti í eigu er-
lendra aðila.
Verði frumvarpið að lögum er
gert ráð fyrir að með stjómsýslu
fari sérstök nefnd sem i eigi sæti
fulltrúar nokkurra ráðuneyta. Er
henni ætlað að veita starfsleyfi,
fara með eftirlit og afturkalla
starfsleyfi. Sérstaklega er kveðið á
um víðtækai' heimildir nefndarinn-
ar til að meta hvort þeir sem að fé-
lagi standa teljist hæfir til að eiga
eða stjóma alþjóðlegu viðskiptafé-
lagi. Þannig er reynt að tryggja að
aðilar sem tengjast með einhverj-
um hætti glæpastarfsemi geti ekki
nýtt sér þessa leið.
Lengd viðvera í skólum í Reykjavík
Gjald hækkar
um allt að 36%
um áramótin
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
hækka gjald sem forráðamenn
barna greiða fyrir lengda viðvera í
skólum. Hækkunin tekur gildi 1.
janúar og hækkar gjald fyrir hverja
klukkustund úr 110 krónum í 150 kr.
eða um 36%. Hámarksgjald er hú
6.500 krónur á barn á mánuði en
hækkar 1. janúar í 8.500 krónur, eða
um tæplega 31%. Efnisgjald vegna
matarkaupa í heilsdagsskóla verður
óbreytt.
Lengd viðvera í skólum er þjón-
usta sem börnum er veitt utan
kennslustunda og stundum er nefnd
heilsdagsskóli. Misjafnt er að hve
miklu leyti forráðamenn nýta sér
þessa þjónustu, en á síðasta ári
komu 2.800 einstaklingar í 1.-4. bekk
við sögu í heilsdagsskólum á vegum
borgarinnar. Sumir staldra aðeins
við fáeina tíma á viku en aðrir dag-
lega.
„I lengdri viðvera er veitt gæsla,
aðstoð við heimanám, tómstunda-
þjónusta, fæði og fleira," segir Ólaf-
ur DaiTÍ Andrason, forstöðumaður
rekstrarsviðs hjá Fræðslumiðstöð
Reykjavíkur. „Borgin hefur niður-
greitt starfsemina frá því hún hófst
haustið 1992 en gjald fori'áðamanna
hefur verið óbreytt frá upphafi. Á
sama tíma hafa laun samkvæmt
launavísitölu hækkað um þriðjung
og síðan verður almenn launahækk-
un nú um áramót. Af þessum sökum
þótti tími til kominn að hækka gjald-
ið nú í samræmi við þróun launa en
borgin mun eftir sem áður þurfa að
niðurgreiða þjónustuna. Hugmyndin
var að gjöldin myndu standa undir
auknum launakostnaði við lengda
viðvera, en það næst naumast þótt
gjaldið sé hækkað nú.“
Færri stundir en hærra
verð fyrir hverja
Ólafur Darri bendir á að vegna
lengingar kennslutíma og einsetn-
ingar skóla þurfi börn nú ekki á
þjónustu heilsdagsskólans að halda
í eins margar stundir og áður.
Þannig greiði foreldrar að vísu
hærra verð fyrir hverja stund en á
móti komi að stundirnar séu færri
en áður. „Það er líka rétt að taka
fram að hámarksgjald á mánuði
hækkar hlutfallslega minna en
klukkustundargjald og því kemur
hækkunin ekki verst við þá sem
mest nýta sér þjónustuna," segir
Ólafur Darri.
Morgunblaðið/Kristinn
SLÖKKVILIÐSMENNIRNIR Erling Þór Júlínusson, Óli Ragnar
Gunnarsson, Björn Hermannsson, Arni Ómar Árnason, Lúðvík Lúð-
víksson, Ólafur Sigurþórsson og Jón Viðar Matthíasson með viður-
kenningarnar. Fyrir framan þá er Þorsteinn Ólafsson, formaður
Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna.
Sjö slökkviliðs-
menn heiðraðir
STYRKTARFÉLAG krabbameins-
sjúkra barna heiðraði í gær, mið-
vikudag, sjö starfsmenn í Slökkviliði
Reykjavíkur, sem hjóluðu umhverf-
is landið síðastliðið sumar til styrkt-
ar börnum með krabbamein.
Reyndist framtak þeirra vera
stærsta fjáröflun sem einstaklingar
hafa staðið að að eigin frumkvæði í
þágu barna með krabbamein frá því
Styrktarfélag krabbameinssjúkra
barna var stofnað.
Slökkviliðsmennirnir og stuðn-
ingsfólk þeirra söfnuðu áheitum alls
staðar þar sem þeir fóra um og
jafnvel víðar, en með þeim til halds
og trausts fór Björn Hermannsson,
starfsfélagi þeiraa, akandi ásamt
hundinum Patta.
Áheitin sem þeir félagar söfnuðu
voru send til skrifstofu Styrktarfé-
lags krabbameinssjúkra barna
sem innheimti með því að dreifa
gíróseðlum til þeirra sem skráðu
nöfn sín á áheitablöðin. Alls söfn-
uðust áheit upp á rúmlega 2,9
milljónir króna og af þeim höfðu
innheimst rúmlega 2,2 milljónir L
desember síðastliðinn, eða 76% af
áheitunum.
I hófí þar sem slökkviliðsmenn-
irnir voru heiðraðir kom fram að
þeir hygðust taka fyrir nýtt sam-
bærilegt verkefni næsta sumar.
VlDSIOFn MVINNULÍF
ísl. álfélagið
Nýtt
skipu-
rit
/C10
Fram l
Á leið á :
hlutabréfa- •
markad :
/C2 •
KRINGMN
Blaðinu
í dag fylgír
auglýsingablað
frá Kringlunni
Bladinu
í dag fylgir
auglýsingablað
frá íþrótta- og
ólympíusambandi
íslands
• Liverpool vill fá Indriða
• Sigurðsson/B1
• ••••••••••••••••••••••••••••
: Hermann allt of góður fyrir
: Brentford/B1