Morgunblaðið - 10.12.1998, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.12.1998, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Nýtt fræðslusetur Rafmagnsveitu Reykjavíkur formlega opnað Börnum kynnt beislun og nýting raforku ÓLAFUR Ragnar Grímsson, for- seti Islands, opnaði í gær form- lega Rafheima, fræðslusetur Rafmagnsveitu Reykjavíkur, en auk hans var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri við- stödd opnunina ásamt öðrum gestum. Rafheimar eru á 1. hæð minja- safns Rafmagnsveitunnar í El- liðaárdal og er þeim ætlað að vera fræðslusetur fyrir grunn- skólabörn á orkuveitusvæði fyr- irtækisins. Markmiðið er að auka skilning þeirra og áhuga á vís- indum og tækni sem tengist ís- lenskum orkuiðnaði og um leið að hvetja börn til náms í raun- greinum. Hefur fyrirtækið staðið að þessari framkvæmd með Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, en ákvörðun um stofnun Rafheima var tekin á síðasta ári. í Rafheimum verður lögð áhersla á kynningu raforkunnar, beislun hennar og nýtingu. Lögð verður áhersla á lifandi upplýs- ingar um nýtingu rafmagns, flutning þess frá orkuveri til neytanda, orkunotkun og orku- þörf. Fjallað verður um umhverf- ismál, rafmagn og umhverfi og umhverfisstefnu Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Ennfremur verður sjónum beint að öðrum orkugjöf- um, svo sem jarðhita, vindorku, sjávarföllum, kjarnorku, vetni og verður litið til framtíðar að þessu leyti. Þá verður ítarleg fræðsla um hættur af rafmagni og lagður grunnur að forvörnum á þessu sviði. Miðað er við að öll 11 ára börn á orkuveitusvæði Raf- magnsveitu Reykjavíkur eigi þess kost að heiinsækja Raf- heima undir leiðsögn kennara og fræðsluyfirvalda. Við kynn- ingu og nám verður notast við myndmál, spjöld og skyggnur, kvikmyndir, tölvur og annan þann tækjabúnað sem nútíma upplýsingatækni býður upp á. Nemendum verða falin verkefni til úrlausnar, bæði verkleg og skrifleg, og verða þau byggð á þeim upplýsingum sem veittar verða á staðnum. Morgunblaðið/Ásdís ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti íslands, og Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir borgarsljóri kynntu sér meðal annars við opnun Rafheima hvernig virkja má orku úr sítrónum. Meirihluti hafnarnefndar Reykjavíkur hafnaði erindi KEA-Nettó KEA-Nettó verður ekki á hafnarbakkanum HAFNARNEFND Reykjavíkur hafnaði í gær að breyta kvöðum um hafnsækna starfsemi sem eru á Geirsgötu 11, sem er hús í eigu Heildverslunar Jóns Asbjömssonar. Þetta þýðir að ekkert verður af sölu hússins til KEA, sem áformaði að setja þar upp matvöruverslun. Bæði Borgarskipulag og borgarverkfræð- ingur lögðust gegn erindi KEA. Meh-ihluti R-listans klofnaði við afgreiðslu málsins. Fjórir nefndar- menn studdu tillögu um að hafna er- indinu, Ami Þór Sigurðsson, formað- ur hafnarnefndar, Rúnar Geir- mundsson, Inga Jóna Þórðardóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson. Guð- mundur Gíslason, vai-amaður Sig- rúnar Magnúsdóttur, vildi hins veg- ar jeyfa breytta notkun á húsinu. í bókun sem Guðmundur lagði fram á fundinum er lýst vonbrigðum með afgreiðsluna. „Rekstur mat- vörumarkaðai' á Miðbakka myndi auka mannlíf við höfnina, sem hefur verið stefna Reykjavíkurlistans. Ég vek athygli hafnarstjómai' á því að aukin samkeppni á matvörumarkaði á undanförnum árum hefur leitt til lægra matvöruverðs neytendum til hagsbóta. Nú hefur þróunin snúist við og eignarhald á matvömverslun- um færst yfir á færri hendur sem mun draga úr samkeppni og leiða til hærra vöruverðs.“ í bókun Ingu Jónu og Guðlaugs Þórs, borgarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins, er þeim áhuga sem KEA- Nettó hefur sýnt á verslunarrekstri í miðborginni fagnað. Hvatt er til þess að fyrirtækinu verði fundinn staður þar og bent á lausar lóðir við Tryggvagötu í því sambandi. „Borg- arfulltrúai- Sjálfstæðisflokksins hafa ítrekað sett fram hugmyndir og til- lögur varðandi verslun í miðborginni til að skapa meira rými og tryggja fjölbreytni og samkeppni á því sviði. Það er hins vegar ekki verkefni Reykjavíkurhafnai' að bjarga R-list- anum úr þeirri stöðu sem fyrir- hyggjuleysið í þessum málum hefur leitt til.“ Vilja að þarna verði áfram hafnsækin starfsemi „í þeirri vinnu sem fram hefur farið af hálfu hafnarinnar og borgar- innar varðandi aðalskipulag Reykja- víkur og skipulag á hafnarsvæðunum er gert ráð fyrir hafnsækinni stai'f- semi á þessum stað. Þetta er lóð sem er algerlega fram á hafnarbakka og verslunarstarfsemin fellur einfald- lega ekki undir þá skilgreiningu. Hún er ekki hafnsækin starfsemi. Við værum þá að gjörbylta í raun og veru öllu skipulagi og þróunarvinnu hafnarinnar ef við hefðum samþykkt þetta erindi," sagði Arni Þór. Hann sagði að það breytti engu um niðurstöðuna þó að Jón As- björnsson yrði áfram með skrifstofur í húsinu. Þarna hefði verið gerð til- laga um að breyta meginstarfsemi hússins. „Við höfum fengið úrskurði frá úrskurðamefnd skipulags- og byggingarmála hvað eftir annað, um að nýting á lóðum verði að vera í samræmi við landnotkun á aðal- skipulagi. Við getum ekki komist framhjá því. Við hefðum þá þurft að breyta aðalskipulagi og út af fyrir sig væri hægt að gera það. Við höf- um verið að hafna umsóknum um landnotkunarbreytingum á hafnar- svæðum, þar sem menn hafa beðið um leyfi til að breyta landnotkun á hafnarstarfsemi í eitthvað annað. Það væri ekki í samræmi við það sem við höfum verið að gera ef við heimiluðum þetta núna. Það gengi á svig við jafnræðisreglu gagnvart okkar viðskiptavinum." Árni Þór sagðist geta tekið undii' að matvöruverslun á höfuðborgar- svæðinu hefði verið í of miklum mæli að færast yfir á hendur eins aðila. Hann sagðist raunar vera þeirrar skoðunar að þetta væri ískyggileg þróun, en það gæti ekki verið hlut- verk hafnarinnar að leysa það mál. Svartur dagur fyrir verslun í miðborginni „Ég tel að þetta sé svartur dagur fyrir verslun í miðborginni,“ sagði Jón Ásbjörnsson fiskverkandi og formaður Samtaka verslunarinnar. „Ef þetta hefði verið samþykkt hefði falist í þessu ákveðið mótvægi við verslunarkjarna sem standa utan við miðborgina. Þetta kemur því veru- lega á óvart.“ Jón sagði að áformum KEA um matvöruverslun í húsinu hefði verið fagnað bæði í stjórn Þróunarfélags Reykjavíkur og af Miðborgarsam- tökunum. Hann sagði athyglisvert að erlendur ráðgjafi, sem hefði unnið deiliskipulag fyrh' Reykjavíkurborg að miðbænum, væri jafnframt ráð- gjafi Hagkaups-Bónuss í sambandi við framkvæmdir við Kringluna. Hann sagðist vona að borgin hefði ekki byggt ákvarðanir sínar í þessu máli á ráðum þessa manns. Jón sagði að þessi niðurstaða þýddi að hann myndi áfram reka fiskverkun í þessu húsi. Þar væri mjög gott að vera, en því væri ekki að leyna að hann gæti rekið þessa starfsemi í ódýrara húsnæði. Tilboð KEA hefði komið óvænt og þess vegna hefði þetta mál hafist. Jón sagði að með ákvörðun sinni hefði hafnarstjórn líklega verði að verð- fella húsið um 100 milljónir. Það væri ekki óeðlilegt að borgin tæki til- lit til þessa við álagningu fasteigna- gjalda. KEA heldur áfram leit að húsnæði „Þetta eru vonbrigði ekki síst vegna þess að við höfum fengið mjög jákvæð viðbrögð að sunnan við áformum okkar um að reka þarna KEA-Nettóverslun. Menn hafa þama ákveðin rök í þessu máli. Það er horft til hafnsækinnar starfsemi og fiskihafnar á þessu svæði. Við verðum að beygja okkur undir þau rök þó ég sjái ekki mikla framtíð fyr- ir fiskihöfn á þessum stað,“ sagði Sigmundur Ofeigsson, framkvæmda- stjóri verslunarsviðs KEA. Sigmundur sagði að forsvarsmenn KEA hefðu rætt við hafnarnefnd og forystumenn borgarinnar. Þeim hefði á engu stigi málsins verið lofað að kvöðum á húsinu yrði breytt. Þeir hefðu kynnt fyrir hafnarstjórn að burðarþungi rekstrarins í húsinu yrði matvöruverslun, en einnig yrði þar rekin kostsala fyrii' skip, auk þess sem Jón Ásbjörnsson yrði þar áfram með heildverslun sína. Sigmundur sagði að KEA myndi halda áfram að leita að húsnæði undir verslun fyrir KEA-Nettó. Það væri búið að bjóða KEA hús- næði víða í borginni. Þetta væri allt til skoðunar. Það væri hins vegar ljóst að það væri ekki völ á eins góðu húsnæði með góðan aðgang að bílastæðum annars staðar í mið- borginni. HOLTACARÐAR OND í DAC KL« -22 rrrr% Islandsbanki Hækkun afturvirk í KJÖLFAR þess að íslands- banki hækkaði gengi sitt á kauprétti á hlutabréfum í Bún- aðarbanka úr 2,28 í 2,40 hefur verið ákveðið að láta alla þá 10 þúsund einstaklinga, sem strax á fyrsta degi framseldu bankan- um rétt sinn með bindandi samningum á genginu 2,28 njóta þessarar hækkunai- að fullu. I fréttatilkynningu frá Is- landsbanka segir að óvíst sé um frekari hreyfingar gengis til lækkunar eða hækkunar, en ákveðið hafi verið að framan- greint gengi, 2,4, verði látið standa óbreytt gagnvart öllum þessum aðilum, hvort sem gengið lækkai- eða hækkar á næstu dögum. Segir einnig að reikna megi með því að þessi ákvörðun hafi í för með sér að hagnaður þess- ara 10 þúsund aðila af þessum viðskiptum hækki um um það bil 10 milljónii' króna. Lán á kenni- tölu gæti skert ör- orkubætur LÁN á kennitölu til kaupa á hlutabréfum gæti skert bætur frá Tryggingastofnun ríkisins til þeiiTa öryrkja sem það gera ef þeir eru á skerðingarmörk- um, að sögn Jóhannesar Þórs Guðbjartssonar, framkvæmda- stjóra Sjálfsbjargar. Jóhannes sagðist í samtali við Morgunblaðið vita til þess að öryrkjar hefðu t.d. lánað kennitölu sína til kaupa á hluta- bréfum í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins. „Þetta er sök sér ef fólkið fær sjálft peninginn, en ef fólk er að gera þetta fyrir aðra með því að lána því eða selja kenni- töluna sína er ég ansi hræddur um að mörgum geti brugðið í brún þegar í kjölfarið kemur skerðing á lífeyrinum,“ sagði Jóhannes. Borgarstjóri um kjaradeilu Riftun samn- inga ólögleg HALLDÓR Björnsson, for- maður Dagsbrúnar/Framsókn- ar, hitti Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra að máli í gærmorgun í kjölfar þess að félagsmenn í Dags- brún/Framsókn sem starfa hjá Reykjavíkurborg hafa sam- þykkt í atkvæðagreiðslu heim- ild til að segja upp kjarasamn- ingum við borgina vegna deilna um skólaliða. Ingibjörg Sóh'ún sagði í sam- tali við Morgunblaðið að riftun samninga væri ólögleg og að óreyndu ætlaði hún ekki að gefa sér að þeim yrði rift. Hún sagði að ákveðið hefði verið að halda annan fund um skólaliðamálið og hugsanlega væri hægt að finna á því lausn ef allir aðilar væru tilbúnir til að teygja sig nokkuð í átt til samkomulags. „Þó að þeir séu búnir að efna til þessarar atkvæðagreiðslu þá eru þeir ekki þar með búnir að rifta samningum. Riftun á kjara- samningi væri algjörlega ólög- leg, enda engin efnisati'iði til hennar. Mér finnst reyndar orka mjög tvímælis að vera að efna til atkvæðagreiðslu í félaginu um ólöglegt athæfi,“ sagði hún.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.