Morgunblaðið - 10.12.1998, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 10.12.1998, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Stj órnarandstæðingar um nefndarfor- mennsku Kristins H. Gunnarssonar Þing*flokksfor- menn ræði for- mennskuna Morgunblaðið/Ásdís Jólagjafir handa mömmu og pabba JÓLAUNDIRBÚNINGUR er víða hafínn og leik- leikskólanum Vesturborg, voru í óða önn að skólar borgarinnar eru þar engin undantekning. pakka inn jólagjöfum til mömmu og pabba Elín Þóra og Dagmar Þórhildur, sem báðar eru á í gær. Önnur umræða um gagnagrunninn Mörgum spuming- um enn ósvarað ÖNNUR umræða um frumvarp til laga um gagnagi-unn á heilbrigðis- sviði hélt áfram í gær, þriðja daginn í röð, og var að sögn Olafs G. Ein- arssonar, forseta Alþingis, stefnt að því að ljúka umræðunni í nótt. Stjómarandstæðingar sögðu í um- ræðunum í gær að þeir gætu alls ekki sætt sig við frumvarpið eins og það liti út nú. Þeir hafa gert fjöl- margar athugasemdir við fram- varpið, segja mörg atriði enn óljós og enn fleiri spumingum ósvarað. Nokkrir stjórnarþingmenn hafa einnig haft á orði að nauðsynlegt sé að vinna frumvarpið betur á milli annarrar og þriðju umræðu og hafa hvatt til þess að víðtækari sátt verði náð um það. Auk þess virðist vera nokkur munur á því hvemig ein- stakir þingmenn túlka ákveðna þætti framvarpsins og greinir þá til að mynda á um það hvort einkaleyf- ið standist ákvæði EES-samnings- ins. Meðal þeirra atriða sem gagn- rýnd hafa verið er ákvæðið um veit- ingu einkaréttar til gerðar og starf- rækslu gagnagrunnsins, þátttaka rekstrarleyfishafa í svokallaðri að- gengisnefnd og að ekki sé enn ljóst hvaða upplýsingar fara inn í gagna- granninn og hvaða ekki. Nokkrir þingmanna jafnaðar- manna hafa rétt fram sáttarhönd og lagt fram ákveðin skilyrði fyrir því að þeir samþykld frumvaipið. Þeirra á meðal er Ágúst Einarsson en hann leggur m.a. til að aðgengi vísindamanna að gagnagranninum verði auðveldað, einkaleyfíð verði takmarkað í sex ár en ekki tólf, lögin verði endurskoðuð eftir fímm ár en ekki tíu ár og að staða og réttur bama við ákvarðanatöku um þátt- töku í granninum verði betur tryggð. Þingmenn óháðra telja að framvarpið þurfí að vinna mun bet- ur og hafa reyndar lagt fram þingsá- lyktunartillögu um dreifða gagna- grunna á heilbrigðissviði, en auk þess hafa þeir lagt fram tillögu til rökstuddrar dagskrár um að fram- varpinu verði vísað til ríkisstjómar- innar. Þá hafa þeir tekið sér góðan tíma til þess að fara yfir einstaka þætti frumvarpsins og stóð Hjörleif- ur Guttormsson í pontu í nær fímm tíma í fyrrinótt eða frá kl. hálf eitt til rúmlega fímm um morguninn. Ögmundur Jónasson hefur eins og Hjörleifur gagnrýnt frumvarpið harðlega og kvaðst hann í umræð- unum í gær telja að hið eina rétta í þessari stöðu væri að samþykkja vantraust á ríkisstjórnina. „Ég leyfi mér að segja að ríkisstjóm Islands gangi erindis bandarísks stórfyrir- tækis hér á Alþingi íslendinga. Gangi erindis fyrirtæksins Decode Genetics Incorporated og sé hér í strangri hagsmunagæslu fyrir það,“ sagði Ögmundur. Einkaleyfí í 12 ár orkar tvímælis Hjálmar Jónsson og Tómas Ingi Olrich, þingmenn Sjálfstæðisflokks, eru meðal þeirra stjórnarþing- manna sem lagt hafa áherslu á að frumvaipið verði unnið betur eftir aðra umræðu. Þá hefur Lára Mar- grét Ragnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, skrifað undir nefndarálit meirihluta heilbrigðis- og trygginganefndar með fyrirvara. í máli hennar í gær kom m.a. fram að hún teldi orka tvímælis að einum aðila skuli veitt sérleyfi til rekstrar miðlægs gagnagrunns með heilsu- farsupplýsingum íslendinga til svo langs tíma sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu eða til 12 ára. Þá segir hún m.a. að æskilegt hefði verið að fínna aðra leið en þá að hafa fulltrúa rekstrarleyfishafa í aðgengisnefnd- inni og að skýrar hefði verið tekið á upplýsingum um látna. NOKKRAR umræður urðu um nefndarformennsku Rristins H. Gunnarssonar, þingmanns Fram- sóknarflokks, í sjávarútvegsnefnd Alþingis í upphafi þingfundar á Al- þingi í gær og kröfðust þingmenn jafnaðarmanna sem og formaður Alþýðubandalagsins þess að sú for- mennska yrði endurskoðuð í ljósi þess að Kristinn hefði nýlega geng- ið til liðs við framsóknarmenn. Eins og kunnugt er gekk Kristinn form- lega úr þingflokki Alþýðubanda- lagsins fyn’ í haust en skömmu áður hafði hann tekið við formennsku í sjávarútvegsnefnd af Steingrími J. Sigfússyni sem þá hafði sagt sig úr Alþýðubandalaginu. Ágúst Einarsson, þingflokki jafn- aðarmanna, hóf umræðuna og benti á að Kristinn hefði verið tilnefndur sem formaður sjávanítvegsnefndar af stjómarandstæðingum í samræmi við samkomulag stjómar og stjórn- arandstöðu um að þeir síðamefndu fengju á kjörtímabilinu formennsku í þremur fastanefndum Alþingis. Nú væra stjórnarandstæðingai’ hins vegar með tvo nefndarformenn, í fé- lagsmálanefnd og heilbrigðis- og trygginganefnd, þar sem Kristinn væri genginn til liðs við framsóknar- menn. í ljósi þess þyrftu fulltrúar stjómar og stjómarandstöðu að ræða íyrrnefnt samkomulag að nýju. „Ég er ekki að gagnrýna með þessu persónuna Kiistin H. Gunnarsson," sagði Ágúst. Kristinn H. Gunnarsson gaf ekki til kynna að hann hygðist láta af formennsku í nefndinni en sagði að sér fyndist málið, þ.e. það að hann skyldi vera kominn í Framsóknar- flokk, vera þingflokki jafnaðar- manna óviðkomandi. „Þeir samn- ingar sem snerta þingflokk jafnað- armanna standa allir óbreyttir, bæði hvað varðar nefndarsæti og formennsku í nefnd,“ sagði hann. „Tilefni Ágústs Einarssonar er ekk- ert annað en pólitískt vegna þess að hann óttast áhrifin af því að fylgið streymi frá vinstri og inn á miðj- una,“ fullyrti Kristinn. Rætt í hópi þingflokksformanna Þegar hér var komið sögu sagði Guðni Ágústsson, 3. varaforseti Al- þingis, að það væri fyrst og fremst nefndarinnar að skera úr um for- mennskuna í nefndinni. Össur Skarphéðinsson, þingflokki jafnað- armanna, kvaðst hins vegar ósam- þykkur þeirri túlkun. „Þetta er ekki mál sem varðar einungis sjávarút- vegsnefnd. Þetta varðai’ samninga sem gerðir voru milli stjórnar og stjómarandstöðu í haust,“ Össur kvaðst á hinn bóginn ekki vera að gera neinar athugasemdir við það að Kristinn skyldi skipta um flokk. „í mínum augum hefur hann verið framsóknarmaður um talsvert skeið.“ Margrét Frímannsdóttir, formað- ur Alþýðubandalagsins, tók undir þær óskir sem fram höfðu komið hjá þingmönnum jafnaðai-manna og beindi því til forseta Alþingis að hann kallaði saman þingflokksfor- menn til að ræða þetta mál. „Ef ekki er lengur um samkomulag að ræða [milli stjórnar og stjórnarand- stöðu] þarf það að koma formlega fram,“ sagði hún. Davíð Oddsson forsætisráðherra tók upp hanskann fyrir Kristin og sagði að það þyi’fti að vera festa í þessum málum. „Nú höfum við þeg- ar haft tvo formenn með skömmu millibili á þessum þingtíma og það er algjörlega ómögulegt fyrir þing- meirihluta að fara að taka einn inn nýjan frá Alþýðubandalaginu sem kannski yrði ekki mjög margar vik- ur í þeim flokki, eins og þar hefur gerst að undanförnu. Þannig að slíkt hringl getur bara ekki gengið." Vilhjálmur Egilsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, tók fram eins og reyndar Margrét Frímannsdóttir að formennska Kristins í sjávarát- vegsnefnd hefði verið með miklum ágætum. Hann fjallaði hins vegar um málið á gamansömum nótum og sagði að það væri „greinilega hættulegt að vera formaður sjávar- útvegsnefndar" þar sem þeir sem hefðu gegnt starfinu á þessu kjör- tímabili hefðu báðir horfíð til ann- arra flokka úr Alþýðubandalaginu. Hann velti því einnig fyrir sér hvort ætlun stjórnarandstæðinga væri að fá öðrum þeirra jafnaðarmanna, sem sæti ættu í nefndinni, for- mennskuna í sjávarútvegsnefnd eða hvort ætlunin væri að annar þing- maður Alþýðubandalags hlyti það embætti. „Eg myndi hins vegar at- huga það í ljósi sögunnar að það gæti verið ákveðið hættuspil. Það er kannski ekki bara sótt frá Alþýðu- bandalagi yfir í Framsóknarflokk- inn heldur gætu nú kannski ein- hverjir í þeim ágæta þingflokki leit- að inn í Sjálfstæðisflokkinn ef fram heldur sem horfir.“ Óvíst hvenær þingmenn fara íjólafrí ÖNNUR umræða um frumvarp til laga um gagnagrunn á heilbrigðis- sviði hefur tekið lengri tíma á Al- þingi en ráð var gert fyrir og því óljóst hvenær þingi verður frestað fyrir jólin. Starfsáætlun Alþingis gerir ráð fyrir að þingfrestun verði 19. desember nk. en að sögn Ólafs G. Einai’ssonar, forseta Alþingis, gæti farið svo að þingið héldi áfram störfum eftir það takist ekki að ljúka ákveðnum þingmálum fyrir til- settan tíma. Þeirra á meðal eru gagnagrunnsfrumvarpið og fjár- lagaframvarpið. Auk þess bíða nokkur þingmál annai-rar og þriðju umræðu en um tíu þingmál bíða fyrstu umræðu. Aðspurður kvaðst Ólafur hins vegar ekkert geta sagt til um hvort þingið ætti eftir að starfa milli jóla og nýárs. LJADP ÞEIM EYRA í kvöld á Súfistanum í Bókabúð Máls og menningar UGLUR He,gl Ingóifsson: Þægir Strákar nn Kristín Helga Gunnarsdóttir: Elsku besta Binna mín AÐRAR Roy Jacobsen: ísmael YERUR Sigurður G. Tómasson les úr þýðingu sinni Sholom Aleikhem: Tevje kúabóndi Ingibjörg Bergþórsdóttir les úr þýðingu sinni Forrest Carter: Uppvöxtur litla trés Gyrðir Elíasson les úr þýðingu sinni Helen Fielding: Dagbók Bridget Jones Sigríður Halldórsdóttir les úr þýðingu sinni Hjörtur Hjartarson leikur á klarínettu Fjárlaganefnd fjallar um vanda sjúkrahúsa Tillögur starfshóps ræddar næstu daga Aðgangur ókeypis - Hefst kl. 20.30 Mól og menning • Laugavegi 18 • Simi 515 2500 FJÁRHAGSVANDI sjúkrahúsa verður tekinn til umræðu hjá fjár- laganefnd Alþingis milli annarrar og þriðju umræðu fjárlaganna en búist er við að þriðja umræða fari síðan fram í lok næstu viku. Fjár- laganefndin mun hafa til hliðsjónar tillögur starfshóps heilbrigðisráðu- neytis sem búist er við að skili á næstu dögum. Jón Kristjánsson, formaður fjár- laganefndar, tjáði Morgunblaðinu í gær að talsverðum viðbótarfjár- munum væri veitt til sjúkrahúsanna bæði á fjáraukalögum og fjárlögum næsta árs, en eitthvað myndi samt sem áður vanta uppá uppí halla fyrri ára. Hann sagði fjárlaganefnd skoða málið milli annarrar og þriðju umræðu og fá þá til athugunar til- lögur starfshóps heilbrigðisráðu- neytisins. Honum var komið á snemma á árinu og falið að leggja fram tillögur um ráðstöfun viðbótar framlaga til sjúkrahúsanna tveggja í Reykjavík og nokkurra sjúkrahúsa út um land. Jón sagði hópinn senn ljúka störfum og kvaðst vænta til- lagna hans einhvern næstu daga. Formaður fjárlaganefndar sagði æskilegt að koma á þjónustusamn- ingum í heilbrigðiskei’finu. Til að svo mætti verða þyrfti að skilgreina ýtarlega og meta hvern verkþátt og væri nú unnið að þeim undirbún- ingi. Sagði hann viðbúið að í fram- haldi af því yrði reynt að koma slík- um samningum á smám saman
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.