Morgunblaðið - 10.12.1998, Page 32
32 FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
/BJFfilA
****¥****♦**** ***
orðið 10% meðeigandi í Taeco. En
hvernig stendur á því að þoturnar
eru leigðar út?
„Cathay Pacifíc er að minnka við
sig vegna efnahagssamdráttar í
Asíu. Þar eru allir að búa sig undir
meiri samdrátt og þess vegna eru
þessar þotur settar á markaðinn.“
Kemur kreppan til með að hafa
áhrif á rekstur Atlanta?
„Hún hefur tvenns konar áhrif,“
svarar Amgrímur. „Til að byrja
með er meira um vélar á markaðn-
um sem kemur okkur tfí góða. Svo
virðist líka sem félög í Austur-Asíu
séu að losa margar vélar inn á
markaðinn sem þýðir að þau geta
oft ekki uppfyllt þær kröfur sem
gerðar eru til þeirra. Þannig að
kreppunni fylgir líka að það er
vöntun á vélum í Austur-Asíu
vegna þess að þær hafa verið losað-
ar úr rekstrinum þrátt fyrir skuld-
bindingar. Af þessum sökum er
bæði nóg framboð á þotum og næg
eftirspurn á markaðnum þannig að
kreppan virðist ekki ætla að hafa
neikvæð áhrif, að minnsta kosti
ekld á rekstur Atlanta.“
A það eftir að halda til lang-
frama?
„Þessi samningur við Iberia er
langur, 18 mánuðir frá því sem nú
er, og við erum ánægðir með það.“
Frá Kína var haldið til Madrid
þar sem Atlanta sér um flugrekst-
ur fyrir Iberia á tveimur þotum og
forráðamenn Iberia og Cathay
Pacifíc mættu í móttöku á nýjum
skrifstofum Atlanta. Hvernig leist
Arngrími á aðstöðuna í Madrid?
„Eg var mjög ánægður með það
sem ég sá bæði í viðhalds- og flug-
rekstrardeildinni. Þetta er eins
gott og það getur verið og það er
vel haldið á spöðunum.“
I hvaða verkefnum verða þessar
nýju þotur og hvað verður um hin-
ar eldri?
„Þær verða í áætlunarflugi fyrir
Iberia og fljúga daglega frá Ma-
drid til Buenos Aires. Þær munu
einnig fljúga til Havana og Kanarí-
eyja. Eldri vélarnar fara í önnur
verkefni. Önnur þeirra fór 1. des-
ember til Saudi-Arabíu. Hin fer í
viðhaldsskoðun og svo fylgir hún í
kjölfarið.“
Er bara flogið með pílagríma í
þessum pílagrímaflugum?
„Við fljúgum ekki aðeins með
pílagríma heldur einnig með kenn-
ara,“ segir Arngrímur. „Þarna eni
um 230 þúsund kennarar og fjöl-
skyldur þeirra sem þurfa að kom-
ast í frí á vorin og eru þá flutt til
síns heima, sem er í Egyptalandi
og löndunum í kring. Þannig að
þetta eru flutningar af þeirri
stærðargráðu að geta tahst þjóð-
flutningar.“
Verður samdráttur í pílagríma-
flugi?
„Þetta er eins og vertíð," svarar
Arngrímur. „Annars erum við að
reyna að koma rekstri okkar í
langtíma og stöðug verkefni.
Þannig að við verðum í mesta lagi
með þrjár vélar í pílagrímsflugi í
sumar.“
Hvernig gengur samstarfíð við
Ibería?
„Við erum mjög ánægðir með
Kreppan í Asíu hefur jákvæð áhrif á rekstur Atlanta
...!...«•
_
lf AlR ATUMJ4 8747 acceptance check in taeco
|J| l wk mm?
ARNGRIMUR og Þóra ásamt starfsfólkinu í Kína sem sá um að gera upp nýju þotuna að innan auk þess að skoða hana fyrir afhendingu.
Höfum verið alls staðar
nema á Suðurskautinu
í síðustn viku sóttu forráðamenn Atlanta
aðra af tveimur nýjum þotum til Kína og
flugu henni til Madrid þar sem hún mun
sinna áætlunarflugi fyrir Iberia. Pétur
Blöndal kynnti sér aðstöðu Atlanta í
Madrid og skoðaði nýju þotuna.
NÝVERIÐ gerði Atl-
anta samning við Cat-
hay Pacific um leigu á
tveimur breiðþotum
sem síðan hafa verið
framleigðar til áætlunarflugs hjá
Iberia. Þoturnar sem eru frá 1983
eru af gerðinni Boeing 747 og eru
úr 200-línunni. Þær verða að teljast
sérlega glæsilegar því Cathay
Pacifíc lét endurinnrétta þær eftir
400-línu Boeing og standast þær
allar nútímakröfur hvað þægindi
og tækni varðar. Enda kostar end-
urnýjunin rúman milljarð króna á
hvora vél. En hvemig gekk Kína-
ferðin?
„Hún gekk mjög vel og var
ánægjuleg í alla staði,“ segir Am-
grímur Jóhannsson, forstjóri Atl-
anta. „Móttökumar vom alveg
konunglegar og virðast flugfélagið
Cathay Pacifíc og viðhaldsfyrir-
tækið Taeco, sem sá um að koma
sætaskipan og útliti í það horf sem
Iberia gerir kröfur um, kunna
virkilega að meta samstarfíð við
okkur.“
GARÐAR Forberg, Arngrímur Jóhannsson og Þóra Guðmundsdóttir
við nýju vélina í flugskýli Iberia.
Cathay Pacifíc er flugfélag á
heimsmælikvarða með yfír 70
breiðþotur og fjárfesti það nýlega
ríflega 70 milljarða króna í nýja
flugvellinum i Hong Kong. Taeco
er dótturfyrirtæki viðhaldsfyrir-
tækisins Haeco í Hong Kong sem
er í eigu Cathay og nú er Boeing
ÓLÖF Dagfinnsdóttir bókhaldari Atlanta í Madrid lætur fara vel um sig í nýju innrétting-
unni og er með tölvuskjáinn fyrir framan sig.
SAGREDO frá Iberia, Robert Lemeroy frá Cathay Pacific, Arngrímur Jóhannsson, Pa-
lencio frá Iberia og Kesey Kelly frá Cathay Pacific á nýjum skrifstofum Atlanta í Madrid.