Morgunblaðið - 10.12.1998, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 10.12.1998, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998 33 það og ánægjan virðist vera gagn- kvæm,“ svarar Ai-ngrímur. Aþað eftir að vinda upp á sig? „Eg vil ekki spá um það.“ Hvað er flugvélafloti Atlanta orðinn stór? „Við erum með 6 Tristar í verk- efnum aðallega í Englandi og hér á Islandi. Þá erum við með 6 Boeing 747. Tvær verða í Madrid, tvær í pílagrímsflugi og tvær verða í verkéfnum í Evrópu. Loks enim við með tvær 737 fraktvélar sem eru í verkefnum fyiir Lufthansa." Hvað hefur Atlanta flogið til margra landa? „Þetta er erfið spurning," svarar Arngi-ímm- og grettir sig. Hvað hefur Atlanta fiogið til margra heimsálfa? „Þessi er betri,“ svarar hann og glaðnar yfír honum. „Við höfum verið í öllum heimsálfum nema á Suðurskautslandinu." Hvernig hefur reksturinn gengið á þessu ári? „Hann hefur gengið vel,“ svarar Arngrímur. „Reyndar hafa komið skuggar á okkur að undanförnu. Við lentum í uppákomum í Bret- landi sem vora leiðinlegar en erum komnir í gegnum það. Veltutölur fyrstu átta mánuðina voru rúmir sjö milljarðar og ætli þær nálgist ekki níu milljarða í enda ársins sem er aukning frá í fyrra.“ HJÓNIN Arngrímur Jóhannsson og Þóra Guðmundsdóttir ásamt starfsfólki viðhaldsdeildarinnar í Madrid. Garðar Forberg stöðvarstjóri Atlanta í Madrid Mohammed Znaki viðhaldsstjóri Atlanta í Madrid MOHAMMED Znaki við nýju breiðþotuna. Alltaf gaman að eiga Rolls Royce Skilum Iberia hagnaði ATLANTA er með 250 starfs- menn í Madrid og er Garðar For- berg stöðvarstjóri. Þar hefur Atl- anta umsjón með útgerð tveggja Boeing 747 breiðþota sem Iberia hefur tekið á leigu. Garðar segir að nýju þoturnar, seni leysa af tvær eldri, muni koma í góðar þarfir. Einkum vegna þess að þrátt fyrir að nýju þoturnar séu af 200-línunni séu þær að innan eins og 400-línan frá Boeing sem sé mun nýrri og fullkomnari en í þotunum sem skipt var út. „Þetta verður að teljast afar óvenjulegt ef ekki einsdæmi í veröldinni," segir hann. „Þá skiptir það sköpum að hreyflarnir, sem eru af gerðinni Rolls Royce í nýju vélunum, eru mun öflugri og við getum fiogið lengra en áður. Við fljúgum núna til Miami, Rio de Janeiro og Ha- vana en Iberia vill selja okkur með þessar nýju glæsilegu vélar á flugleiðina til Buenos Aires sem er 12 tímar. Við eigum að byrja að sjá um þá flugleið 15. janúar og skiptir hún Iberia miklu máli.“ Atlanta byrjaði 1. júlí árið 1997 að fljúga fyrir Iberia frá Madrid. I fyrstu var Iberia með eina þotu á leigu en mest liafa þoturnar verið þrjár. „Nýi samn- ingurinn við Iberia er til átján mánaða og er Iberia mjög ánægt með þjónustuna," segir Garðar. „Enda erum við nýbúnir að flytja í glæsilegt húsnæði í miðborg Madrid og sjáum þaðan um alla stjórnun, ferðalög, húsnæði, launamál, áhafnaskrár og tengsl við Iberia. Auk þess erum við með viðhaldsdeild á flugvellinum og aðra skrifstofu þar.“ Ahafnirnar á þotunum tveimur í Madrid eru tólf og standa þær saman af 180 manns. Flugfreyjur og flugþjónar eru um 150 og eru tveir þriðju þeirra frá Spáni og þriðjungur starfsmenn Atlanta. „Allir verða að vera spænsku- mælandi," segir Garðar sem tal- ar Ijölmörg tungumál enda ólst hann upp í Lúxemborg og út- skrifaðist úr liðsforingjaskóla þýska hersins árið 1995. Hann byrjaði að vinna hjá Atlanta í febrúar árið 1997. En hvernig stendur á þörf Iberia fyrir þjónustu Atlanta? „Ástæðan er aðallega sú að Iberia er að breyta flugflotanum yfír í Airbus. Afhendingai’tíminn er langur og þá vantar vélar í ákveðinn túna. I staðinn fyrir að leggja niður flugleiðir er þetta lausnin. Það hefur líka komið í Morgunblaðið/Pétur Blöndal GARÐAR Forberg stöðvarstjóri ásamt föður sinum og alnafna sem er flugvirki hjá Atlanta í Madrid. ljós að þetta fyrirkomulag marg- borgar sig fyrir Iberia. I fyrsta skipti í langan tíma var hagnað- ur hjá félaginu í ár og í því dæmi hjálpa til þessi þrjú til fjögur fyr- irtæki sem eru að fljúga fyrir fé- lagið. Þar af erum við eina flug- félagið á langdrægum vélum. Þeir voru með annað erlent flug- félag áður en höfðu slæma reynslu af því og fengu okkur í staðinn. Eftir það hefur allt gengið eins og í sögu.“ Þetta hljómar óneitanlega eins og dálítið ævintýri fyrir allt þetta unga fólk sem vinnur fyrir Atlanta. Að síðustu er Garðar því spurður á hvaða ákvörðunar- staði förinni hefur verið heitið frá Madrid síðan hann tók við fyrir einu og hálfu ári. „Við höf- um flogið til Havana, Rio de Jan- eiro, Sao Paolo, Miami, Moskvu, Tókýó og Kanarí,“ svarar hann og brosir. Hann hefur ástæðu til að brosa því hann getur hlakkað til Buenos Aires upp úr áramót- um. „ÞAÐ ER alltaf gaman að eiga Rolls Royce,“ segir hinn brosmildi og bráðfjönigi Mohammed Znaki sem er viðhaldsstjóri Atlanta í Ma- drid. „Þá gildir alveg það sama um hreyflana og bílana. Á hinn bóginn hefur fólk gjarnan inglað saman bílum og flugvélum þegar kemur að viðhaldi og heldur að þar sé hið sama upp á teningnum en það er algjör misskilningur." Hann nefnir sem dæmi að það þurfi heila herdeild með 25 manns til að halda tveimur þotum gang- andi í Madrid. I deildinni sé þó mikið af málaliðum því hún standi saman af Bretum, Frökkum, Kanadamönnum, Bandaríkja- inönnum, Spánverjuin, Lúxem- borgurum og Islendingum. „Viðhald er veigameiri þáttur í rekstri flugvéla en bifreiða, mikhi veigameiri," segir Znaki. „Á með- an bifreiðir úreldast á fáeinum ár- um er viðhald flugvéla þannig að þær eiga alltaf að vera eins og nýj- ar. Eina þýðingin sem aldur flug- véla hefur er meira og kostnaðar- samara viðhald þar til á endanum það svarar ekki kostnaði og vélun- um er skipt út.“ Hann segir að hverri þotu fylgi viðhaldsáætlun og að auki geri flugfélögin sjálf ákveðnar kröfur um viðhald. I hvert skipti sem vél- ar lendi sé farið yfir fasta við- haldsþætti og einnig athugasemd- ir flugmanna. En það er bara brot af viðhaldinu því auk þess eru ljöl- mörgar reglulegar athuganir. Á 24 tíma fresti er enn umfangs- ineira viðhald þar sem allt niður í dekkin er tekið til skoðunar. „Þegar liðnir ei-u 325 flugtímar er gerð Al-athugun á vélinni sem tekur 24 klukkutíma,“ segir Znaki. „Eftir 650 flugtíma er gerð A4-athugun sem tekur þijá daga. Þá eru allar rásir opnaðar og farið inn í þær. Eftir 1.300 flugtíma er svo gerð C-athugun. Þá er vélin næstum niánuð í flugskýli og skipt er um allt í vélinni og ástand hennar kannað ofan í kjölinn. Þessi athugun tekur mánuð.“ Þar með er ekki allt upptalið. Eftir 20 þúsund flugtíma á Boeing 747 þarf að lenda þotunni og skoða frampart hennar. Þá er allt tekið úr vélinni, alveg niður í „hörund“ og er það gegnumlýst í leit að mögulegum sprunguin. Bara efniskostnaður við þessa könnun er 7,2 milljónir. Þegar talað er um aldur flug- véla gefur það því ekki rétta mynd af ástandi hennar, að sögn Znakis. „Hver hlutur í vélinni hefur ákveð- inn líftíma, allt niður í minnsta sknifbolta. Sumir eru mældir út frá flugtímum, aðrir eftir lend- ingafjölda og enn aðrir eftir daga- tali. Þegar þeir renna út á tíma er skipt um þannig að vélin er í raun alltaf eins og ný. Eini munurinn á gömlum og nýjum vélum er því sá að flugfélagið eyðir meiri fjár- munum í viðhald eftir því sem vél- in eldist og útlit hennar verður ekki eins framúrstefnulegt." Glæsilegt sem prýða úrval af mottu hvert heimili! m 60 x 77 x 150 sm:.......1.290.- 115 x 165 sm:......1.990.- 160 x 225 sm: ....3.990.- Sjá nánar jólabækling Rúmfatalagersins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.