Morgunblaðið - 10.12.1998, Page 34
34 FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
ÆYINTÝRI
Á AÐVENTU
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna,
einsöngvarar og Kammerkór Kópavogs,
-----------------------7----
ásamt dönsurum úr Listdansskóla Islands,
frumsýna óperuna Amal og næturgestirnir
eftir Gian-Carlo Menotti í Neskirkju á
laugardag kl. 17. Alls verður verkið sýnt
fjórum sinnum. Orri Páll Ormarsson hafði
tal af Ingvari Jónassyni stjórnanda og
stofnanda hljómsveitarinnar en langt er
um liðið frá því Amal og næturgestirnir
var síðast flutt hér á landi.
Morgunblaðið/Þorkell
AMAL ræðir við einn vitringanna. Rúrik Fannar Jónsson og Skarp-
liéðinn Þór Hjartarson í hlutverkum sínum á æfingu.
AAÐVENTUNNI er fátt
mönnum hugleiknara í hin-
um kristna heimi en jóla-
guðspjallið. Óteljandi
sagnaþulir og skáld hafa lagt út af
sögunni um fæðingu Jesúbarnsins í
Betlehem fyrir bráðum tvö þúsund
árum. Líka tónskáld. Eitt þeirra er
Gian-Carlo Menotti sem samdi óper-
una Amal og næturgestirnir um
miðja öldina. ðperan, sem Sinfóníu-
hljómsveit áhugamanna og gestir
munu flytja fjórum sinnum í Nes-
kirkju fyrir jólin, fjallar um ungan
fatlaðan dreng og móður hans en
einnig koma við sögu vitringarnir
þrír og skósveinn þein’a á leið til
Betlehem til að finna Jesúbamið og
færa því gjafir. Amal og næturgest-
imh' hefur notið mikilla vinsælda og
er flutt víða um heim fyrir hver jól,
oft í kirkjum.
Hugmyndin að uppfærslunni er
komin frá Ingvari Jónassyni, aðal-
stjórnanda Sinfóníuhljómsveitar
áhugamanna. „Rótin er eiginlega sú
að ég spilaði sjálfur í hljómsveitinni
þegar óperan var fyrst flutt hér á
landi árið 1962, á vegum Musica
Nova í Tjarnarbíói,“ segir Ing\'ar.
„Sigurður Rúnar Jónsson, betur
þekktur sem Diddi fiðla, söng þá
hlutverk Amals og Svala Nielsen lék
móðurina. Magnús Blöndal Jóhanns-
son stjómaði flutningnum. Óperan
var síðan tekin upp fyrir sjónvai’p,
1969 að mig minnir - það var alla
vega fyrir daga litasjónvarpsins. Síð-
an hefur Amal og næturgestirnh- að-
eins einu sinni verið flutt með hljóm-
sveit og öllu tilheyrandi, það gerði
Óperusmiðjan. Mér þótti því tíma-
bært að taka verkið á ný til flutn-
ings.“
Hjalti Magnússon og Rúrik Fann-
ar Jónsson fara til skiptis með hlut-
verk Amals en hlutverk móðurinnar
syngur Hulda Guðrún Geirsdóttir.
Skarphéðinn Þór Hjartarson, Ólafur
Rúnarsson og Benedikt Ingólfsson
leika vitringana þrjá, Kaspar,
Melkíor og Baltasar, og Egill Gunn-
arsson er skósveinn þeirra. Auk
þeirra koma fram Kammerkór
Kópavogs og dansarar úr Listdans-
skóla Islands. Ljósahönnuður er
Bjöm Bergsteinn Guðmundsson,
danshöfundur og aðstoðarleikstjóri
Astrós Gunnarsdóttir og leikstjóri
Randver Þorláksson. Ingvar Jónas-
son stjórnar flutningnum.
Fyrsta óperan
Amal og næturgestirnir er fyrsta
óperan sem Sinfóníuhljómsveit
áhugamanna tekst á hendur og von-
ar Ingvar að hún muni vaxa af verk-
efninu - áhugann vanti að minnsta
kosti ekki. „Fólk leggur sig allt fram.
Við höfum þurft að bæta við fjöl-
mörgum æfingum, sérstaklega síð-
ustu tvær vikurnar, en að jafnaði æf-
um við bara einu sinni í viku.“
Að sögn Ingvars leikur enginn vafi
á því að Amal og næturgestimir er
stærsta verkefni sem hljómsveitin
hefur ráðist í. „Við fluttum að vísu
Sinfóníu nr. 2 eftir Brahms á síðustu
tónleikum, undir stjórn Olivers
Morgunblaðið/Þorkell
SINFÓNIUHLJÓMSVEIT áhugamanna á æfingu. I forgrunni eru fiðluleikararnir
Ragnheiður E. Þorsteinsdóttir og Helga Óskarsdóttir.
Kentish, sem er afar vandasamt
verk. Þetta er aftur á móti mun
stærra í sniðum enda fylgir svo
margt ópemflutningi. Við höfum al-
veg lagt undir okkur Neskirkju sem
er eiginlega fullmikið af því góða fyr-
ir það ágæta fólk sem þar starfar -
við erum alls staðar fyrir,“ segir
Ingvar og hlær.
Operan er stutt, tekur um 46 mín-
útur í flutningi, og verð-
ur því flutt önnur dag-
skrá með. Kór Nes-
kirkju syngur með
hljómsveitinni í fjórum
þekktum lögum eftir
Atla Heimi Sveinsson.
Voru þau frumflutt í
nýjum útsetningum
höfundar á jólatónleik-
um hljómsveitarinnar í
fyrra. Þá verður leikinn
Jólakonsert Corellis og
mun hópur dansara úr
Listdansskóla Islands
dansa með leik hljóm-
sveitai’innar.
Sinfóníuhljómsveit
áhugamanna var stofn-
uð árið 1990. Ingvar var
þá nýfluttur heim eftir
sautján ára dvöl í Svíþjóð og veitti
því athygli að engin áhugamanna-
hljómsveit var starfrækt á landinu.
Kom þetta honum spánskt fyrir
sjónir, þar sem gróska í tónlistarlíf-
inu var mikil. „Eg færði þetta í tal
við Jón Nordal tónskáld og hann
leiddi okkur Pál Einarsson sellóleik-
ara og jarðeðlisfræðing saman en
Páll hafði verið félagi í Sinfóníu-
hljómsveitinni í Reykjavík sem
Garðar Cortes stýrði um árið. Leist
honum strax vel á hugmyndina.“
Ingvai' tók að sér starf hljómsveit-
arstjóra og Páll var kjörinn formað-
ur. Segir Ingvar hljómsveitina hafa
byi'jað smátt - „ekki með neinu
brambolti“. Á bilinu tuttugu til þrjá-
tíu manns mynduðu hljómsveitina í
upphafi en nú eru um fjörutíu hljóð-
færaleikarar starfandi í henni.
„Starfandi og ekki starfandi - þetta
er áhugamannastarf. Þetta fólk er
allt í annan-i vinnu dags daglega.
Þarna eru tónhstar-
nemendur, tónlistar-
kennarar og í raun fólk
alls staðar að úr þjóðfé-
laginu, lögfræðingur,
jarðeðlisfræðingur, há-
skólaprófessor, flug-
stjóri og svona mætti
lengi telja.“
Ingvar segir allt
þetta fólk eiga það sam-
eiginlegt að hafa ein-
hvern tíma lært á hljóð-
færi en farið út í önnur
störf, að tónlistarkenn-
urunum undanskildum,
en á móti kemur að þeir
starfa ekki við flutning
tónlistar. „Það er líka
fullt af fólki sem ekki
hefur komið til okkar
ennþá. Heldur annað hvort að það
hafi ekki tíma eða er hreinlega ragt,
hefur kannski ekki æft sig lengi. Við
höfum hins vegar alltaf lagt áherslu
á að hljómsveitin sé öllum opin - það
eru engin inntökupróf.“
Góður andi
Ingvar segh' ákaflega góðan anda í
hljómsveitinni enda sé fólk fyrst og
fremst að þessu til að skemmta sér.
Ekki svo að skilja að hljómsveitin
hafi ekki sín listrænu markmið.
„Henni hefur farið mikið fram á
þessum árum - þróunin hefur verið
jöfn og stöðug."
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna
heldur að minnsta kosti þrenna sjálf-
stæða tónleika á ári, auk þess að
koma fram við ýmis tækifæri, meðal
annars með kórum. Fjöldi lista-
manna hefur komið fram með hljóm-
sveitinni en Ingvar segir hana velja
til skiptis unga einleikai'a eða ein-
söngvara á þröskuldi atvinnu-
mennskunnai'_ eða listamenn í
fremstu röð. Ur síðarnefnda hópnum
má nefna Gunnai' Kvaran og Bryn-
dísi Höllu Gylfadóttur sellóleikara,
Sigrúnu Eðvaldsdóttur fíðluleikara
og Sólrúnu Bragadóttur sópransöng-
konu.
Þegar framtíð Sinfóníuhljómsveit-
ar áhugamanna ber á góma kveðst
Ingvar vera bjartsýnn - annað sé
ekki hægt. „Við erum I uppsveiflu,
fólk bætist jafnt og þétt við. Áður
þurftum við yfírleitt að styrkja
hljómsveitina fyrir tónleika með
nokkrum atvinnumönnum, þar sem
sumai' raddir vantaði, en nú er það
liðin tíð - ekki nema upp komi veik-
indi eða flugstjórinn sé í Amer-
íku..."
Ingvar áréttar þó að hljómsveitin
geti enn tekið við fleiri strengjaleik-
urum. Næstu tónleikar verða um
mánaðamótin febrúar/mars þegar
flutt verða tvö verk: Konsert fyrir
fiðlu, hörpu og hljómsveit eftir Moz-
art, en þar koma Áshildur Haralds-
dóttir flautuleikari og Elísabet
Waage hörpuleikari til liðs við hljóm-
sveitina, og sinfónía Dvoráks, Frá
nýja heiminum.
Næstu sýningar á Amal og nætur-
gestunum verða sunnudaginn 13.
desember kl. 20.30, laugardaginn 19.
kl. 17 og sunnudaginn 20. kl. 20.30.
INGVAR Jónasson
stjórnandi liljóm-
sveitarinnar.
Asta Erlings-
dóttir sýnir
myndverk í
Gerðubergi
f FÉLAGSSTARFI Gerðu-
bergs verður opnuð sýning á
verkum Ástu Erlingsdóttur á
morgun, föstudag, kl. 16.
Ásta Erlingsdóttir er fædd
12. júní 1920. Ásta er kunn
fyrir grasalækningar sínar og
áhuga á íslenskum jui’tum.
Hér er um þriðju einkasýn-
ingu Ástu að ræða en mynd-
imar spanna um 10 ára tíma-
bil, eða frá 1988-1998. Mynd-
irnar eru unnar með blandaðri
tækni og flestar úr íslenskum
jurtum sem Ásta sjálf hefur
blandað.
í tilefni dagsins mun Gerðu-
bergskórinn syngja undir
stjórn Kára Friðrikssonar, við
harmónikkuundirleik Bene-
dikts Egilssonar og píanóund-
irleik Unnar Eyfells, félagar
úr Tónhorninu, Big bandi
Gerðubergs, leika létt lög.
Lestur úr nýj-
um bókum í
Hafnarborg
í KAFFISTOFU Hafnar-
borgar, menningar- og lista-
stofnunar Hafnarfjarðai-,
verður lesið úr núútkomnum
bókum í kvöld, fimmtudag, kl.
20.30.
Aðalsteinn Ingólfsson les úr
bókinni Sigurjón Ólafsson, líf
og list, I hluti; Ái-ni Þórarins-
son les úr bókinni Nóttin hef-
ur þúsund augu; Dagur Egg-
ertsson les úr bókinni Stein-
gi'ímur Hermannsson, ævi-
saga; Haraldur Jónsson les úr
bókinni Fylgjur; Ki'istín
Ómarsdóttir les úr bókinni
Lokaðu augunum og hugsaðu
um mig; Thor Vilhjálmsson les
úr bókinni Morgunþula í strá-
um og Vigdís Grímsdóttir les
úr bókinni Nætursöngvar.
Einsöngstón-
leikar Nönnu
Maríu Cortes
NANNA María Cortes,
mezzósópransöngkona, og
Kolbrún Sæmundsdóttir, pí-
anóleikai'i, halda einsöngstón-
leika í tónleikasal Söngskól-
ans, Smára,
Veghúsastíg
7, Reykjavík,
í kvöld,
fimmtudag,
kl. 20.30.
Tónleikarnir
eru loka-
áfangi burt-
fararprófs
Nönnu Mar-
íu frá Söng-
skólanum í Reykjavík.
Á efnisskránni eru ítalskar
antiqui-ai'íur eftir Gluck og
Caldara, Sígaunaljóð op. 55
eftir Dvorák, aríur úr óperum
Donizettis og Rossinis og ís-
lensk sönglög eftir Markús
Rristjánsson og Garðar
Cortes.
Nanna María hefur sungið í
kór Islensku óperunnar frá
1993 og er einnig félagi í kór
Aðventkirkjunnar og kór
Fella- og Hólakirkju og hefur
komið fram sem einsöngvari
við ýmis tækifæri.
Nanna María stundar nú
nám við söngkennaradeild
Söngskólans í Reykjavík og er
Kolbrún Sæmundsdóttir pí-
anóleikari einn af kennurum
hennar þar.
Nanna María
Cortes