Morgunblaðið - 10.12.1998, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998 35
LISTIR
Það kemur
úr djúpinu
FRÁ sýningu Steingríms Eyfjörð, Guðlaugs K. Óttarssonar og Margrétar H. Blöndal í Gallerfi Sævars Karls.
MYJVPLIST
Gallerf Sævars Karls,
Bankastræti
BLÖNDUÐ TÆKNI
STEINGRÍMUR EYFJÖRÐ,
GUÐLAUGUR K. ÓTTARSSON,
MARGRÉT H. BLÖNDAL
Til 15. deseinber.
Opið á verslunartíma.
TILRAUNASTARFSEMI hef-
ur ekki átt upp á pallborðið hjá
myndlistarmönnum á undanfórn-
um árum. Sú hugmynd að lista-
verkið skuli vera fullmótað, faglega
unnið og sýnt með veglegum hætti,
hefur leitt til þess að sköpunarferl-
ið verður ógagnsætt og óljóst.
Gerjunin - hvernig hugmyndir
fæðast og taka á sig mynd - hverf-
ur í skuggann fyrir fullkominni af-
urð sem er tilbúin til sölu.
I sjálfu sér er ekkert við full-
komnunina að athuga; hún er
góðra gjalda verð, einkum ef mað-
ur ætlar sér bara að njóta listar
formálalaust, án allra frekari hug-
leiðinga um tilurð hennar. Alla öld-
ina hafa togast á þau gagnstæðu
sjónarmið; að listin eigi að bjóða
aðnjótendum upp á hreina og
ómengaða upplifun, og; að listin
skuli kenna fólki að sjá hlutina
skýrt og umbúðalaust.
I flestum tilvikum fara bæði
sjónarmið saman í misjöfnum
skömmtum, en hafi eitthvað dregið
úr því fyrrnefnda frá því sem gerð-
ist og gekk á öldinni sem leið má
þakka það minnkandi löngun lista-
manna fyrir að vera teknir fyrir
„galdramenn“, „snillinga" eða
„guðdómlega handhafa neistans".
Pörfin fyrir taumlausa dýi’kun er
nefnilega blandin súrum eftirkeim.
Hún reynist oftast „ódýr“ og inn-
antóm þegar öll kurl koma til graf-
ar, enda er það ávallt innihalds-
rýrasta tegundin af listamönnum
sem njóta mestrar aðdáunar.
Michael Jackson, Madonna,
Arnold Schwarzenegger og Pa-
mela Anderson eru dæmi um
heimsins dáðustu listamenn, og þó
er ekki hægt að segja að þau njóti
virðingar í samræmi við aðdáun.
Lýðræðislegar útjöfnunartilraunir
póstmódernismans hafa í engu
breytt þeirri skipan menningar-
mála.
Frjálsleg opinberun Steingi'íms
Eyfjörð, Guðlaugs K. Ottarssonar
og Margrétar H. Blöndal á hug-
myndaflæði sínu er þess vegna
kærkomin sending inn í fágaða
markaðssali Sævars Karls. Sýning-
unni er haldið saman með langri
röð litljósrita af margvíslegu hug-
myndaflæði í einstaklega hagan-
legum umbúðum. Umhverfis
standa svo verk, veggskreytingar
og hangandi hlutir sem tengjast
hugmyndaröðinni. Þannig má
skoða rými gallerísins sem riss -
eða impróvísasjón - þar sem lista-
mennirnir þrír stilla saman krafta
sína og leyfa huganum að reika um
víðan völl. Þeir sem njóta þess að
finna fyrir list í mótun og leyfa sér
að uppgötva óblandna fegurð fram-
draga og óvæntra, stundum óreiðu-
kenndra smáatriða, er hér ekki í
kot vísað.
Halldór Björn Runólfsson
20" LG sambyggt sjónvarp og video.
Með Black Hi-Focus skjá, skarparí
mynd, PAL/SEGAMBG með NTSC
video, 100 rása mynni, rafraen
barnalæsing og fjarstýring.
2ja hausa VHS- video með NTSC
afspilun, Dígital AutoTracking, hægt
að stilla á “replay".
Hágæðatæki á góðu verði.
20“ LG sjónvarp með Black Hi-Focus skjá sem gefur
einstaklega skarpa mynd. Hátalarar að framan, ACMC
sjálfvirkuur stöðvaleitarí, 40 rása minni,
Fjarstýring og rafræn barnalæsing og fl.
Black Line myndlámpi, flatari skjár, Nicam Stereo,
íslenskt textavarp, allar aðgerðir á skjá, Pal/NTSC,
barnalæsing, tenqi fyrir höfuðtól, 2x20 W magnari,
2 Scarttengi o.mfl.
NYTT bRau,
LG 6 hausa stereo videotæki. Topptækið
frá LG, NICAM HiFi sterea Gefur fullkomna
upptöku og afspilun: Long play, fjarstýring,
80 stöðva minni, barnalæsing og fl.
LG Brauðvél, tilbúið brauð J
vegur ca. 700 gr.
Tímastillir hægt að stilla v
vélina allt að 13 timum fyrir
bakstur. 3 stillingar Ijóst
meðal, eða dökkt
MS-283MC örbylgjuofn, 28 lítra,
Multiwave 900W, öflugur og vandaður
Ummál: (h,b,d) 53 x 32,2 x 39,2 /16,3 kg.
LG uppþvottavél.lítil en öflug
Ummál 50x54 cm. Vegur aðeins 24
kg, úr ryðfriu stáli.
Mál: (b,h,d.)35x33x25,5 cm. 7,2kg.
Wð erum í hus' v,ð 'K£a,
fj Opið allar helgar til jóla!
VERIÐ VELKOMIN I VERSLUN OKKAR
RflFTfEKMUERZLUN ÍSLflhDS JE
- ANNO 1 929 -
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776