Morgunblaðið - 10.12.1998, Side 42
42 FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Sjö sígild ævintýri
BÆKUR
Barnabækur
RAUÐHETTA
MJALLHVÍT OG
DVERGARNIR SJÖ
ÞYRNIRÓS
GALDRAKARLINN f OZ
PÉTUR PAN
GÚLLIVER í PUTALANDI
YNDISFRÍÐ OG ÓFRESKJAN
Islenskur texti: Stefán Júlíusson.
Setberg, Reykjavík 1998.
SETBERG hefur gefið út 7 smá-
ar bækur undir samheitinu Sígildu
ævintýrabækurnar. Bækurnar eru
útdráttur úr þekktum ævintýrum
um Rauðhettu, Mjallhvíti,
Þyrnirós, galdrakarlinn í Oz, Pétur
Pan, Gúlliver í Putaiandi og Yndis-
fríð og ófreskjuna. Flest, eða öll,
þessi ævintýri eru til í
nokkrum útgáfum og
hér fáum við að sjá eina
til af hverju þeirra þar
sem stiklað er á stóru
og smáatriðum sleppt.
Stefán Júlíusson ís-
lenskaði allar bækurn-
ar sjö. Orðalag er alla
jafna einfalt og skiljan-
legt ungum börnum
enda eru bækurnar
áreiðanlega ætlaðar
þeim fyrst og fremst.
Þó koma fyrir orð og
orðasambönd sem
þarfnast útskýringa og
er það vel. Það á t.d.
við um óvígan her í
Gúlliver í Putalandi og að vera
heillum horfm í Galdrakarlinum í
Oz.
Myndir eru ungum lesend-
um/hlustendum ómissandi og hér fá
þeir sannarlega eitthvað fyrir sinn
snúð. Myndirnar í
þessum bókum eru í
senn litríkar og fjör-
legar og segja fleira
en mörg orð.
Sígildu ævintýra-
bækurnar eru ljóm-
andi ágætar bækur til
að grípa til á hátta-
tíma barnanna og til
að kynna yngstu kyn-
slóðinni sígildar sögur
sem við fullorðna fólk-
ið þekkjum flest svo
vel úr okkar eigin
barnæsku.
Það eina sem hægt
er að setja út á er að
einstaka sinnum er
erfítt að lesa textann vegna þess
hversu dökkur bakgrunnurinn er.
Músíkgáfa Þyrnirósar hefði líka
mátt vera tónlistargáfa.
María Hrönn Gunnarsdóttir
Stefán
Júlíusson
BÆKUR
Þ.uld sakamálas«i»a
MORÐINGI ÁN ANDLITS
Glæpasaga eftir Henning Mankell.
Þýðandi Vigfús Geirdal. Prentun. Nor-
haven a/s, Viborg, Danmörku. Mál og
menning 1998 - 336 bls. 999 kr.
SÆNSKAR lögreglusögur hafa
öðlast sinn sess hér á landi sem víð-
ar, ekki síst fyrir atbeina Sjöwalls og
Wahlöö. Sænskir höfundar hafa ver-
ið duglegir við að fylgja þeim hjón-
um í kjölfarið og sumir orðið ríkir af.
Henning Mankell, höfundur
Morðingja án andlits, er ekki ein-
ungis höfundur í peninga- og
frægðarleit heldur verður að telja
hann meðal betri höfunda í Svíþjóð
nú. Auk skáldsagna af framandi
slóðum má geta þess að hann hefur
látið frá sér fara ágætar bækur fyr-
ir börn.
Mannlegar löggur eða öllu heldur
Lögga
grætur
og keyr-
ir full
gallaðar eru í uppáhaldi hjá sænsk-
um sakamálahöfundum. Mankell
skrifar um löggu sem á í miklum
persónulegum vanda vegna hjóna-
skilnaðar, óhóflegrar drykkju og
samviskubits sem nagar hann.
Hann lætur eftir sér að gráta
frammi fyrir konu sem hann var
einu sinni kvæntur, drekkur sig
fullan, ekur drukkinn og er gómað-
ur af félögum sínum sem sjá aumur
á honum og brjóta þar með af sér í
starfi.
Svona persónuleg vandkvæði eru
þó fremur krydd en aðalsöguefni
hjá Mankell. Álvarlegin hlutir vaka
fyi-ir honum, ekkert minna en kyn-
þáttahatur í sinni verstu mynd.
Þegar óhugnanlegt morð er framið
á afskekktum sveitabæ í Svíþjóð
eru menn ginnkeyptir fyrir þeÚTÍ
tilgátu að útlendingar, innflytjend-
ur hafí verið að verki. Alda ógna og
morða er hafín.
Henning Mankell lýsir afar vel
hversdagslífi og þreyttum og ringl-
uðum mönnum í starfi. Hann gleym-
ir ekki heldur mannlegum freisting-
um. Spennu byggir hann upp smám
saman og fléttan er hagleg hjá hon-
um. Allt stuðlar þetta að notalegum
lestri fyrir þá sem hneigjast að
sakamálasögum með félagslegu
ívafi. Þýðing Vigfúsar Geirdals á
texta Mankells er yfirleitt lipur.
Jóhann Hjálmarsson
Enski boltinn á Netinu
<§> mbl.is
^ALLTAT G!TTH\SA1D A/YTT
Fríða
framhleypna
BÆKUR
Barnabók
FLOTT, FRÍÐA FRAMHLEYPNA
eftir Lykke Nielsen. Jón Daníelsson
þýddi. Gunnar Greiding mynd-
skreytti. Skjaldborg, 1998 - 86 síður.
SÖGURNAR um Fríðu fram-
hleypnu eru úr danski’i ritröð sem
hefur hlotið talsverðar vinsældir hér
á landi. Höfundur er sagður vera
dönsk ieikkona í sínu heimalandi og
fyrsta bókin um Fríðu kom út í Dan-
mörku árið 1984. Þessi bók um Fríðu
er níunda bókin um hana sem út
kemur á íslensku.
I bókinni segir frá Fríðu sem er
hress stelpa sem hefur sínai’ skoðanir
á hlutunum og er skemmtilega hug-
myndarík. Bókin byggh’ á smáfrá-
sögnum úr hversdagslífinu en milli
þeirra er ekkert samhengi sem gæti
gert sögurnar áhugaverðari. I einni
frásögninni er Fríða til dæmis á
Grænlandi og lærir þar eitt græn-
lenskt orð, qujanak, og getm- sýnt
hæfni sína í að pilla rækjur. Hvorki er
gerð grein fyrir ferðalaginu sem ætla
mætti að væri níu ára telpu mikið æv-
intýri né lífinu þarna yfirleitt og lýs-
ingin á Umanak er ákaflega lítilfjör-
leg. Ekki kynnist Fríða heldur nein-
um grænlenskum bömum sem henni
hefði þó verið eðlislægt miðað við
framkomu hennar á öðrum vettvangi.
Sama gildir um kynni hennar af
múslimastúlkunni Vesnu sem vinnur
fyrir sér með því að bera út blöð.
Þetta gæti verið mjög áhugaverð lýs-
ing en rennur út í sandinn. Vesna ber
skýlu á höfðinu og ræðir lítillega við
Fríðu um merkingu þessarar skýlu
og af hverju þetta er tákn um þau
trúarbrögð sem hún aðhyllist. En
Fríða er trúlaus og eins og segir í
sögunni þá á Fríða „það sameiginlegt
með flestu öðm fólki í Danmörku að
standa ekki í sérstaklega náu sam-
bandi við Guð, Jesú eða kirkjuna“ (s.
23), en Vesna er aftur á móti mjög
trúuð. Fríða varður trúuð einn dag-
inn þegar hennar fyrsta bæn kemur í
veg fyrir að hún geri í buxurnar.
Trúnni heldur hún til loka kaflans en
þar með er viðfangsefnið tekið út af
dagskrá og Vesna þar með.
Að ýmsu leyti er þetta ærslasaga
þar sem Fríða tekur upp á ýmsu, lit-
ar á sér hárið, og hárið á hundinum,
misskilur það sem aðrir segja og fer
í megrunarkúr svo einhver dæmi séu
tekin. Sagan sjálf er ákaflega grunn
og skilur lítið eftir, en eflaust má
brosa að sumum tiltækjunum sem
lýst er í sögunni.
Sigrún Klara Hannesdóttir
Endurmat í
nýju umhverfi
STOFA kraftaverkanna
nefnist fimmta Ijóðabók
Sveinbjöms I. Baldvins-
sonar, sem nú er komin
út hjá Máli og menn-
ingu. Eftii- Sveinbjöm
liggja þijú kvikmynda-
handrit, sögur og leik-
rit.
Stofu kraftaverkanna
er skipt í tvo hluta,
Land mannanna og Þar
sem þú kemur sjaldan.
Ljóðin í Landi mann-
anna voru blásin höf-
undi í bijóst er hann
dvaldi í Jakobshöfn á
Grænlandi um sumarið
1996. Ekki var þó beinn
tilgangur ferðarinnar sá að sækja
sér innblástur fyrir ljóð, heldur var
Sveinbjörn staddur á Grænlandi
vegna verkefnis á vegum danska
ríkissjónvarpsins. Hætt var við
verkefnið vegna fjárskorts, en eftir
sat þó reynsla Sveinbjörns af Landi
mannanna, sem er í raun merking
orðsins Kalaallit Nunaat sem Græn-
lendingar kalla föður-
land sitt á eigin tungu.
„Mér fannst ákaf-
lega niikil upplifun að
komast til þessa
lands,“ segir Svein-
björn. „Það er eitthvað
við þetta land og þetta
samfélag, sem grípur
mann ansi sterkt. Ég
punktaði hjá mér ýms-
ar upplifanir og færði
þær síðar yfir í ljóða-
form.“
I síðari hluta bókar-
innar, Þar sem þú
kemur sjaldan, lýtur
inntak ljóðanna að
reynslu höfundar af
hinum margvíslegustu stöðum sem
höfúndur hefur heimsótt á liðnum
ánim. „Þegar maður er ekki í sínu
hversdagslega umhverfi staldrar
maður gjarnan við og þegar maður
er einn á ferð gefst manni tækifæri
til að velta vöngum yfir stöðu sinni í
tilverunni, sem maður er ekki alla
jafna með í kollinum í hinu daglega
amstri. Það fer með öðrum orðum
alltaf fram pínulitið endurmat hjá
manni í nýju umhverfi," segir
Sveinbjöm.
Notalega villtur
í gamalli bíómyndaþoku
meira að segja
svarthvítur ómur
af sellósvítum Bachs
snögglega
utan úr frostgrárri
skímunni
smellir
á hellunum
þröngogbrött
strætin
allt í einu á lífi
illa klæddur drengur
með handfylli
afkalkvistum
býður greinar tD kaups
kaupi eina
fyrir augum hans
munda greinina
þegar hann er horfmn
sópa þokunni burt
Úr Stofu kraftaverkanna