Morgunblaðið - 10.12.1998, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 10.12.1998, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998 53 vega mér herbergi á hentugum stað skammt frá kennarabústöðun- um við Urðai-veg, sem þá voru ný- byggðir. Helgi var fastur kennari við Barnaskólann en auk þess stundakennari við Gagnfræðaskóla ísafjarðar og kenndi þar bæði stærðfræði og esperanto í 3. bekk. Skólastjóri þá var Hannibal Valdi- marsson. Helgi var afbragðsgóður kennari. Hann þurfti ekkert fyrir aga að hafa og gat gefið sig óskipt- an að námsefni dagsins sem hann útskýrði vel hverju sinni, enda náði hann ágætum árangri með kennslu sinni. Það ber mannkostum Helga glöggt vitni, að á hann hlóðust auk kennslunnar fjölmörg ábyrgðar- störf á sviði þjónustu- og félags- mála. Hann tók drjúgan þátt í stjórnmálum og beitti sér íyrir bættum hag verkamanna undir merkjum Alþýðuflokksins. Hann sat í bæjarstjórn Isafjarðar 1938-49 og var formaður verka- lýðsfélagsins Baldurs í tíu ár. Um eitt skeið eða frá 1943-45 fékk hann leyfi frá kennslustörfum með- an hann var framkvæmdastjóri Al- þýðuflokksins og bjó á þeim árum í Reykjavík. Arið 1948 kvaddi Helgi ísafjörð fyrii- fullt og allt og fluttist með fjölskylduna til Hafnarfjarðar þar sem hann var ráðinn bæjarstjóri. A því sama ári fæddist þeim hjónum langþráð dóttir, er hlaut nafnið Erla Margrét, síðar hjúkrunar- fræðingur í Hafnarfirði. Eins og nærri má geta var það sama upp á teningnum eftir að Helgi fluttist suður, - aukastörfín hlóðust á hann hvert af öðru. Hann var þá strax kosinn forseti Alþýðu- sambands íslands og gegndi því embætti til 1954 og formaður fræðsluráðs Hafnarfjarðar var hann jafnlangan tíma. Eftir að Helgi hætti sem bæjarstjóri vann hann hjá Tryggingastofnun ríkis- ins, fyrst sem fulltrúi en síðan var hann deildarstjóri til 1977. En kennarastarfið var honum alltaf hugstætt og frá 1958 hafði hann á hendi stundakennslu í Armúlaskól- anum um tuttugu ára skeið, og síð- an kenndi hann hjá Námsflokkum Reykjavíkur til 1983. Voru þá liðin 52 ár frá því að hann hóf kennslu- störf á ísafirði haustið 1931. Helgi var bindindismaður á vín og tóbak alla ævi og var formaður Abyrgðar, tiyggingafélags bindind- ismanna í tuttugu ár til 1983. Helgi gekkst fyi-ir stofnun Samtaka syk- ursjúkra árið 1971 og var formaður þeirra í átta ár. Sjálfur þekkti hann sykursýkina af eigin raun og við fleiri sjúkdóma átti hann að stríða sem reyndu mjög á þrek hans og þol. Áður hefur verið minnst á spít- alavist hans á Isafirði, sem stafaði af berklum er hann fékk á ung- lingsárum. Á síðari hluta starfsæv- innar gekkst hann undir áhættu- sama hjartaskurðaðgerð í Banda- ríkjunum. En öllum þessum erfið- leikum og mótlæti tók hann með þolgæði og karlmennsku. Þegar haft er í huga hvað Helgi Hannesson var heilsutæpur er enn- þá meira undrunarefni hversu miklu hann fékk áorkað og komið í verk af þeim velferðarmálum, sem hann beitti sér fyrir. Er þó framan- skráð upptalning hvergi nærri tæmandi. Má því ljóst vera að Helgi hefur á langri ævi haft óskorað traust samferðamanna sinna og þótt vel til forystu fallinn. En sjálf- ur var hann í raun hlédrægur og mótfallinn allri upphefð og per- sónulegum viðurkenningum fyrir störf sín. Sem dæmi um það má nefna, að hann frábað sér jafnan allar lofræður í fjölmiðlum á merk- isafmælum sínum, vinum hans til undrunar og vonbrigða. En þannig var Helgi Hannesson. Hann kaus að vinna störf sín í kyrrþey með áhuga og skyldurækni, hvort held- ur það var í þágu nemenda hans eða til að bæta hag láglaunafólks í verkalýðsfélögunum. Þau Helgi og Margrét skildu árið 1962. Margrét dó árið 1981. Seinni kona Helga er Þórunn Bjarney Garðarsdóttir. Þörn þeirra eru Helgi Þór kennari í Reykjavík og Hanna Ragnheiður búsett í Dan- mörku. Þórunn bjó þeim Helga hlý- legt heimili og var stoð hans og stytta í lífsbaráttunni síðustu ára- tugina. Helgi, kæri vinur. Eg þakka þér alla umhyggju, stuðning og velvild í minn garð. Guð blessi minningu þína. ÖUum ástvinum Helga send- um við hjónin innilegar samúðar- kveðjur. Torfi Guðbrandsson. Það var mikið lán fyrir mig og mína og marga, marga fleiri, þegar Helgi Hannesson gekk í það að stofna „Samtök sykursjúkra“, haustið 1971. Ég var svo heppinn að lenda þar í stjórn með honum og öðrum ágætismönnum og kynntist því Helga vel. Það höfðu margir sykursjúkir fundið fyidr því að þeir voru mjög einangi-aðir og þekktu varla nokkurn mann sem var sykur- sjúkur og eins voru læknar á þess- um árum almennt ekki mjög fróðir um sjúkdóminn. Félag fyrir sykursjúka var því sjálfsagt. En það var Helga sem datt það í hug og það var Helgi sem gekk í að auglýsa eftir fólki sem hafði áhuga á að hittast og athuga málið. í mörg horn var að líta þegar bú- ið var að stofna „Samtök sykur- sjúkra“ og vann Helgi sem kosinn var foimaður vel og skipulega að þeirri uppbyggingu allri. Margir gengu í félagið, fundir voru haldnir, fræðsla veitt, tekið í spil, jólakort prentuð og seld og fræðslublaðið „Jafnvægi“ gefið út og peningastyrkir veittir til aðila sem lögðu á sig erfiði fyrir félagið eða fyrir lækna sem læra vildu meira um sykursýki. Það var ótrú- legt hvað Helgi var hugmyndaríkur og vakandi í stjórnarstarfi sínu. Eitt mál stóð þó lengi í okkur og það var að koma upp göngudeild fyrir sykursjúka. Ökkur fannst sjálfsagt að hún fengi inni í húsnæði Landspítalans, en þar fannst Helga, og fleirum að göngudeildin ætti að vera. Mörg áhlaup voni gerð en loksins tókst að fá farsæla lausn sem notast var við, og göngudeild hefur starfað með góðum árangri, mjög mörgum til mikils gagns. Ég er einn af þeim sem hafa lengi verið sykursjúkir, hef sprautað mig tvisvar á dag í 38 ár. Þeir sem þekkja þennan sjúkdóm vita hvaða aga menn þurfa að hafa, á insúlín- inu, matnum og hreyfingunni. Fyrir börn, unglinga og foreldra þem-a er sykursýki mikill ki-oss. Með stofnun samtakanna tókst Helga að „sá í sandinn" og fá upp ávöxt sem margir hafa nú í tæplega 30 ár haft mikið gagn af. Það var lærdómsríkt fyrh' mig að kynnast Helga Hannessyni og áhuga hans, að vilja láta svo mikið gott af sér leiða í svo mörgum og ólíkum framfaramálum, því hann kom víða við. Helgi var kjörinn heiðursfélagi í Samtökum sykursjúkra. Ég og fjölskylda mín vottum að- standendum Helga okkar dýpstu samúð. Hjalti Pálsson. Kveðja frá Alþýðu- sambandi Islands Við kveðjum í dag einn af félög- um okkar sem um langt árabil átti þátt í að móta starf og stefnu verka- lýðshreyfingarinnar hér á landi. Helgi Hannesson var einn af for- ustumönnum verkalýðshreyfingai’- innar á Vestfjörðum til margra ára. Hann var í forystusveit Verkalýðs- félagsins Baldurs á Isafirði tæpa tvo áratugi, þar af foimaður 1939- 1949. Þá var hann í forustusveit Al- þýðusambands Vestfjarða um líkt leyti. En starfsvettvangur Helga innan íslenskrar verkalýðshreyfing- ar var ekki eingöngu bundinn við stéttarsamtök verkafólks á Vest- fjörðum. Helgi var virkur á vett- vangi Alþýðusambands íslands í. meh-a en áratug. Á miklu átaka- þingi Alþýðusambandsins árið 1948 er Helgi Hannesson kjörinn forseti ASÍ og gegndi hann því starfi til ársins 1954. Það voru erfiðir tímar fyrir verkalýðshreyfinguna þegar Helgi varð forseti ASI. Árin á undan höfðu einkennst af uppgangi í ís- lensku efnahags- og atvinnulífi. At- vinna var jafnari og meh'i en áður og verkalýðshreyfingin vann marga stóra sigra. Kaupmáttur launa jókst til muna og samtök verkafólks náðu fram mörgum mikilvægum úrbót- um á réttindum og kjörum félags- manna sinna. Hér nægir að nefna almenna viðurkenningu á rétti verkafólks til lágmarksorlofs og stytting vinnutíma. Þegar Helgi tekur við forystu er staðan í ís- lensku atvinnulífi mikið bi'eytt og við tók hörð varnarbarátta. Atvinna minnkaði, dýrtíð fór vaxandi en launahækkanir skiluðu sér seint og illa. í desember 1952 hófst hörð vinnudeila sem endaði með fjöl- mennasta verkfalli sem háð hafði verið hér á landi. Deilunni lauk með samningum þar sem tókst að rétta nokkuð hlut verkafólks og ná fram umbótum á almannati-yggingunum. Það var ekki aðeins að tekist væri á við atvinnurekendur og ríkisvald um kjör og réttindi verkafólks. Á þessum tíma var tekist á af hörku innan verkalýðshreyfingarinnar sjálfrar. Annars vegai' voru sósí- alistar og bandamenn þeiira og hins vegar hægfara jafnaðannenn og sjálfstæðisverkamenn. Kjör Helga sem forseta ASI var niðurstaða eins slíks uppgjörs milli andstæðra íylk- inga innan verkalýðshreyfingarinn- ar. Helgi var forsetaefni Breiðíylk- ingarinnar, bandalags krata og sjálfstæðisverkamanna og var kos- inn sem slíkur. Allan þann tíma sem Helgi sat í stól forseta ASI héldu sósíalistar og bandamenn þeirra uppi harðri stjórnarandstöðu og höfðu að lokum sigur á þingi ASI 1954. Það er erfitt fyrir þá sem ekki tóku þátt í þessum átökum að ímynda sér hversu grimm og óvæg- in þau voru oft á tíðum. Slíkt hlýtur að hafa tekið á þá sem stóðu í slagn- um miðjum. I dag höfum við lært að starfa saman innan verkalýðshreyf- ingarinnar að sameiginlegum hags- munamálum. í grein sem Helgi ritaði og birtist í Vinnunni á 50 ára afmæli Alþýðu- sambands Islands árið 1966 segir hann m.a.: „Verkalýðssamtökin hafa verið byggð upp af hetjum, sem frægar hafa orðið af stórorr- ustum og stórsigrum, sem féllu en héldu þó velli, en þau hafa umfram allt átt sína óþekktu hermenn, kon- ur og kalla, sem eru hversdagsleg nöfn, er bregður íyrir í fundargjörð, en af þeim fara annars engar sögur. En ef vel er að gáð, þá er það þetta fólk, sem með staðfestu sinni, skyldurækni og trúmennsku við góðan málstað hefur tryggt sigr- ana.“ I þessum orðum felst djúpur skilningur á gangi sögunnar. Þegar litið er yfir æviferil Helga Hannessonar má glöggt sjá að hann var jafnaðarmaður að upplagi, hafði ríka réttlætiskennd og var tilbúinn að leggja góðum málstað lið. Þannig var Helgi ekki aðeins virkui' félags- maður verkalýðshreyfingarinnar. Hann var lengi í forystusveit bind- indismanna og lagði fjölmörgum öðrum málum lið sem hann taldi horfa til framfara fyrir alþýðu manna. Þar naut hann óskoraðrar virðingar samferðamanna sinna. Alþýðusamband Islands sendir eftirlifandi eiginkonu Helga, Þór- unni Garðarsdóttur, og afkomend- um þein-a samúðarkveðjur. Megi gæfan vera með þeim. Grétar Þorsteinsson. Ég vil með nokkrum orðum fyrir mína hönd og annarra fyrrverandi starfsmanna Ábyrgðar hf., trygg- ingafélags bindindismanna, minnast og þakka Helga Hannessyni fyrir langt og afar ánægjulegt samstarf. Helgi var einn af tíu stofnendum Ábyrgðar hf. haustið 1960 og tók hann við formennsku í því félagi við andlát Benedikts S. Bjarklind í september 1963 og gegndi því starfi allt til ársins 1983, eða í 20 ár. Hann var einnig einn af stofnendum Landsambands bindindisfélags öku- manna, sem stofnað var 1953, og sat í stjórn félagsins um mjög langt skeið, lengst sem forseti þess, en það var fyrir tilstuðlan BFO að tryggingafélagi fyrh' bindindismenn var komið á fót hér á landi. Helgi hafði ungur að árum gengið til liðs við bindindishugsjónina og var alla ævi sína ötull liðsmaður í hópi bind- indisáróðursmanna. Þannig notaði hann hvert tækifæri til að halda merki albindindis á lofti, t.d. minn- ist ég þess ekki að hann hafi sleppt að minnast á ágæti bindindis í þeim mörgu ræðum sem ég heyrði hann flytja við ýmis tækifæri, en hann var snjall ræðumaður og átti létt með að flytja mál sitt af rökfestu og sannfæringu. Mín íyrstu kynni af Helga voru þegar ég réðst til starfa hjá Ábyrgð vorið 1961. Félagið var þá að ná fót- festu á íslenskum vátryggingar- markaði og við, sem þá vorum að- eins þrjú á skrifstofunni, þurftum mikið að reiða okkur á aðstoð og hjálp frá stjórnarmönnum. Helgi var þá og ætíð síðar sú trausta hjálparhella sem gott var að leita til og ávallt var reiðubúinn að veita góð ráð og aðstoð. Það er margs að minnast frá þessum mörgu sam- starfsárum. Ábyrgð var lengst af að mestum hluta í eigu Ansvar, tiygg- ingafélags bindindismanna í Stokk- hólmi, sem rak vátryggingarstarf- semi bindindismanna í 13 þjóðlönd- um þegar best gekk. Helgi bar hag Ábyi'gðar mjög fyrir brjósti og og áttum við mai'ga fundi saman með fulltrúum Ansvar bæði hér heima og í Svíþjóð. Þegar leið að 25 ára af- mæli Ábyrgðar árið 1986 bauðst Helgi til að skrifa sögu félagsins sem var þegið með þökkum. Er af- mælisritið hin veglegasta bók upp á 60 síður þar sem rakin er forsagan að stofnum félagsins og sagan 25 fyrstu ár þess. I lok ritsins lét Helgi, sjálfum sér líkur, fylgja bind- indisáróður, grein um bindindislífs- stíl og hlutverk bindindisfélaga. Mér þykir við hæfi að ljúka minn- ingargrein minni um Helga Hann- esson með hans eigin orðum úr af- mælisritinu: „Meirihluti íslensku þjóðarinnar viðurkennir að áfengis- neysla hennar sé langt um of mikil og leiði til ófarnaðar. Og margir þessfr sömu einstaklinga leggja hart að sér við að koma á fót og efla meðferðarstofnanir fyrir þá sem hafa drukkið frá sér heilsuna. Slíkt er kærleiksverk segja ýmsir og víst er það svo. En þessir sömu einstak- lingar margir hverjir telja sjálfsagt að fjölga vínveitingarstöðum, koma upp sem allra flestum vínbörum, og auðvelda landsmönnum þannig að- gang að áfenginu. Jafnvel að veita bjórflóði yfir þjóðina, svo að börn og unglingar geti neytt áfengis sem fyrst og þá hlotið sumir hverjir þau örlög sem þeir hafa skapað sér, er þurfa á meðferðarstofnunum að halda. Er nú ekki þversögn í þessu? Er ekki áhrifaríkara að vinna kær- leiksverkið á þann veg að taka þátt í og efla hina fyrirbyggjandi Starf- semi? Vinna heilshugar að auknu bindindi, skera upp herör og heyja öflugt stríð gegn Bakkusi - bölvald- inum mikla." Þannig var Helgi, lét aldrei ónot- að tækifæri til að koma á framfæri hvatningu um heilbrigðan lífsstíl, lífsstíl bindindis og hollustu. Ég þakka honum fyrir allt og allt, ég mun varðveita í huga mér ljúfa minningu um einstakan mann og fé- laga. Eg færi Þórunni, konu hans, og börnum innilegar samúðarkveðj- ur. Jóhann E. Björnsson. Kveðja frá Bindindisfélagi ökumanna Félagsmálafrömuðurinn Helgi Hannesson er látinn í hárri elli. Helgi bar það með sér að vera leið- togi og var einn af þeim mönnum sem kjörnir eru til forystu. Hann hafði mikla persónutöfra, var rök- fastur og öruggur í málflutningi, enda farsæll maður í öllum sínum störfum. Það var Bindindisfélagi öku- manna mikil gæfa að fá Helga til liðs við samtökin í árdaga þeirra. Hann hafði yfirgripsmikla reynslu og þekkingu á félagsmálum, hafði m.a. verið forseti Alþýðusambands Islands og bæjarstjóri i Hafnar- firði. Helgi var um áratuga skeið kjölfestan í starfi BFÖ og átti mik- ilvægan þátt í mótun stefnu og starfsemi samtakanna. Við stofnun landssambands BFÖ árið 1957 var Helgi kjörinn í stjórn þess auk þess sem hann var í forystu fyrir Reykjavíkur- og Hafnarfjarðar- deild BFÖ. Hann var átti sæti í stjórn sambandsins frá 1957 til 1975 og var forseti samtakanna ár- in 1967 til 1975. Þegar hann lét af starfi forseta var hann gerður að heiðursfélaga BFÖ í þakklætis- skyni fyrir óeigingjarnt og heilla- drjúgt starf. Eitt framfaramála sem Helgi og félagar hans í BFÖ beittu sér fyrir vai' stofnun Ábyrgðar, trygginga- félags bindindismanna, árið 1960, og sat í fyrstu stjórn þess. Hug- myndin að baki stofnun félagsins var sú, að þeir sem tækju afstöðu gegn neyslu áfengis yllu hlutfalls- lega færri óhöppum en þeir sem neyttu áfengis. Það væri því rétt- lætismál að bjóða þeim tryggingar gegn lægri iðgjöldum. Helgi var stjórnarformaður Ábyrgðar í tvo áratugi, 1963-1983. Baráttan fyrir auknu bindindi var Helga afar hugleikin. Hann talaði tæpitungulaust og lét ekkert tækifæri ónotað til að leiða fólki fyrir sjónir mikilvægi bindindis. Forystuhæfileikar hans og per- sónutöfrar nutu sín þar vel og hann hreif aðra félagsmenn með sér. Það er óhætt að segja að Helgi hafi verið einn af áhrifamestu máttarstólpum íslenskrar bindind- ishreyfingar á síðari hluta þessar- ar aldar. Það er sjónarsviptir að Helga Hannessyni, þessum glaðsinna og tígulega manni sem bar aldurinn vel. Stjórn BFÖ kveður heiðursfé- laga sinn með virðingu og þökk og vottar fjölskyldu hans innilega samúð. Halldór Árnason. H H H H H H H H H H Erfidrykkjur H H H H H H H H H H ^ Sími 562 0200 rxTxixiiiiixl Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Útfararstofa íslands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.