Morgunblaðið - 10.12.1998, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998 61
AÐSENDAR GREINAR
Um inn-
flytjendur
I DAG er tilefni til
hátíðar. Fyrir 50 árum,
þann 10. desember
1948, var Mannrétt-
indayfirlýsingin sam-
þykkt á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna.
Þótt að hún sé ekki
þjóðréttarsamningur
sem knýr aðildarlöndin
samstundis til laga-
breytinga er hún
rammi’sem allar þjóðir
ættu að staðsetja sig
innan. Með mannrétt-
indayfirlýsingunni var
brotið blað í sögu
mannkyns. Nýtt skref
var stigið fram á við í
málefnum þeirra sem fyrr höfðu
verið seldir undir mannréttinda-
brot af ýmsum toga og nýjar dyr
voru opnaðar fyrir þá sem vilja
hafa áhrif á og breyta þeini illu
meðferð sem minnihlutahópar
hljóta oftar en ekki ef réttinda
þeirra er ekki gætt í hvívetna. Is-
lendingar stæra sig gjarnan af því
að vera allra þjóða bestir á mörgum
sviðum. Oft eru þá nefnd atriði eins
og heilsugæsla, menntun, efnahag-
ur, tækni og mannréttindi. Eg full-
yrði hins vegar að mikið skorti á,
hvað varðar mannréttindin þar til
við eigum svo góða einkunn skilið.
Sannleikurinn er sá að mannrétt-
indi eru brotin hér á fleiri en einu
sviði sem öll þarf að fjalla um. Eg
ætla hins vegar aðeins að minnast
hér á ein ólög sem berja á fámenn-
um minnihlutahópi.
Innflytjendur og
fjölskyldur þeirra á Is-
landi eru í þeirri stöðu
að vera ekki til í lögum
landsins. Fádæma
vandræði herja á
þennan hóp er hann
leitar eftir því að vera
til í samfélaginu. Til-
vist innflytjenda er
hreinlega sniðgengin
hvað varðar félagsleg-
an- og efnahagslegan
jöfnuð við aðrar fjöl-
skyldur, aflahæfi og
möguleika til mann-
sæmandi lífs. Hafi
maki ekki íslenskt rík-
isfang fær hann ekki
atvinnuleyfi hér á landi fyrr en eftir
þrjú ár í fyrsta lagi. Náinn ættingi
fær ekki einu sinni dvalarleyfí og er
Með mannréttindayfír-
lýsingunni, segir Guð-
jón Atlason, var brotið
blað í sögu mannkyns.
meinað að heimsækja eða dvelja
hjá fjöskyldu sinni. Þegar maki Is-
lendings ætlar að fara út á vinnu-
markaðinn mæta honum þykkir
múrar. Eina leiðin er að finna
vinnuveitanda sem þarf erlent
vinnuafl og er tilbúinn að takast á
hendur það erfiða verkefni að
sækja um slíkt. Honum má veita
leyfið tímabundið ef ekki fæst ís-
lenskur starfskraftur og gildir það
Guðjón
Atlason
aðeins um tiltekið starf. Veiting at-
vinnuleyfisins er m.a. háð því að
Útlendingaeftirlitið hafi áður gefið
út tímabundið dvalarleyfi, verka-
lýðsfélag hafi veitt samþykki sitt og
vinnumálaskrifstofa félagsmála-
ráðuneytisins hafi kannað hvort Is-
lendingur fmnist til starfans. Dval-
arleyfið er líka eifitt að fá útgefið.
Hjúskapur, sambúð eða önnur
tengsl við landið jafngilda alls ekki
dvalarleyfi. Ef tímabundið dvalar-
og atvinnuleyfi er veitt er björninn
enn ekki unninn. Lögin eru fram-
kvæmd þannig að útlendingum sem
vinna undir slíku atvinnuleyfi ber
að víkja ef Islendingur sækist eftir
starfinu á starfstímanum.
Mál innflytjenda og fjölskyldna
þeirra á Islandi eru í ólestri og þeir
eru nauðbeygðir undir léleg lög um
erlent vinnuafl. Við sem stöndum
að undirbúningshópi að stofnun
mannréttindasamtaka fyrir inn-
flytjendur og fjölskyldur þeirra
teljum að það sé kominn tími til að
setja lög um málefni innflytjenda, á
Alþingi, lög sem eru hlutlæg og
taka tillit til grundvallarmannrétt-
inda. Innflytjendur eru ekki stór
hópur hérlendis, engu að síður eiga
fjölskyldur þeiiTa rétt á að búa við
sömu aðstæður og bjargir í samfé-
laginu og aðrir þegnar. Það hefur
komið fram í fjölmiðlum að oftast
sé það huglægt mat starfsmanna
við stofnanir þær sem að málefnum
útlendinga koma sem ræður því
hver fær og hver ekki. Þessu verð-
ur að breyta. Nú eru í vinnslu hjá
stjórnvöldum ný lög um útlendinga.
Sem fyrr er þar hvergi minnst á
innflytjendur. Eg skora á þing-
menn og almenning að kynna sér
málið og beita sér fyrir því að
mannréttindi landsmanna allra
verði virt án tillits til þjóðernis,
kynþáttar, uppruna, tungu eða lit-
arháttar. I dag er tilefni til hátíðar.
Eða, er ekki svo?
Höfundur er kennari.
Takmarkaö magn
35.910-s
FS Z00 frystir
■ i?l x54xS8
190 lítra
FS 3? frvstir
Carad uppþvottavél
6 manna
þvottaefnisskammtari
Mál: 47x44x51
ULLARPEYSUR
KR STK
FLISPEYSUR
FLÍSBUXUR
KR STK
FLISHUFUR
FLÍSHANSKAR
FLÍSTREFLAR
FLÍSENNISBÖND
KR STK
DRESS
MANN
Ath Sendum í póstkröfu.
Grænt númer 800-5730. Simi 562-9730.
Fax 562-9731
LAUGAVEG118 B - REYKJAVIK