Morgunblaðið - 10.12.1998, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998 69
gjaldþrotastaða þjóða þar sem
skortur ríkii’, jafnvel allsleysi, og
ekki er hægt að sinna brýnni fé-
lagslegri uppbyggingu, heilsugæslu
eða menntun. Skuldirnar eru í
mörgum tilfellum á ábyrgð einræð-
isstjórna, sem hafa hrökklast frá
völdum, en skilja eftir óbærilega
skuldabyrði - án þess að lántökurn-
ar hafi nokkurn tíma gagnast al-
þýðu manna. Nýjasta dæmið um
þetta er ástandið í Indónesíu.
Það er ástæða til að minna á, að
mannréttindayfirlýsingin er ekki
óumdeild. Því hefur veríð haldið
fram, að hún sé vestræn, kristin,
hugmynd sem gangi gegn félags-
legum veruleika og hefðum annarra
þjóða. Gagnrýnt er hversu mikil
áhersla er á rétt einstaklingsins
hvað varðar pólitísk, félagsleg og
trúarleg réttindi. Með því að tefla
hagsmunum samfélagsins gegn
réttindum einstaklingsins er hins
vegar verið að segja, að mannrétt-
indi séu afstætt fyrirbæri; ein regla
um tjáningarfrelsi geti gilt á Is-
landi, önnur í Kína; að hætta að
vera múslími og skírast til kristinn-
ar trúar megi leyfa í Danmörku, en
banna að viðlagðri dauðarefsingu í
Pakistan, líkt og gert er nú.
Þetta er umhugsunarefni. Samfé-
lag þjóðanna þarf að halda vöku
sinni og verja hugmyndafræðilegar
undirstöður mannréttindayfirlýs-
ingarinnar. Mannréttindi eru al-
gild, óháð búsetu eða félagslegu
umhverfi. Mannkyn sem nú er að
kveðja blóðugustu öldina í sögu
sinni hefur ekki leyfi til þess að
setja kvóta á líf, rétt og mannhelgi,
líkt og lifandi fólk sé verslunarvara
sem hægt er að semja um, hækka í
verði eða gengisfella, ef svo ber
undir.
Höfundur er prófastur á Borg á
Mýrum og formaður stjórnarnefnd-
ar Lútlwrska heimssambandsins um
alþjódleg málefni og mannróttindi.
Ár aldraðra
Jenna Jensdóttir
„Kjörinn til krafta-
verka er kærleik-
urinn einn.“
Það er svo með kærleikann að hann gnæfir hátt yfir allt
hið góða í þessu lífi. Hver og ein trúarbrögð eru máttlaus
ef hann stjórnar ekki framgangi. Hann er æðsti vegvísir
til þess guðsríkis er við flest í innsta hugskoti okkar vilj-
um eiga víst er lífi á jörðu lýkur.
Aldraðir bera kærleikann í brjósti sér engu síður en aðrir. Og
þeh- hafa það fram yfir stressað samferðafólk á athafna aldri að
þeir gefa sér tíma til þess að huga að honum og leita hans gjama í
brjóstum nánustu ættmenna til þess að geta sameinað hann sín-
um eigin kærleika. En það gengur oft býsna erfiðlega í lífsþæg-
inda græðgi og hraða nútímans.
Þeir eru margir sem mega ekki vera að því að rækta þetta „til-
finninga lítilræði" í vitund sinni, hvað þá gefa öldruðum hlutdeild í
því. Það er staðreynd að minnsta teikn um kærleika vekur ótrú-
lega mikla gleði í öldruðum brjóstum og breytir jafnvel lundemi
og útliti þess aldraða, sem hefur
Heilög jól eru í nánd,
því er ekki úr vegi að
vekja athygli á því að
nærgætni og kærleikur
eru bestu jólagjafir
sem öldruðum getur
hlotnast frá afkomend-
um sínum.
leyft beiskju og vonleysi að setj-
ast að kærleikanum í vanmætti
sínum og einsemd. Sú gleði eyk-
ur líkur á jákvæði gagnvart líf-
inu og stuðlar að bættri heilsu.
Það gerir heilbrigðiskerfinu létt-
ara íyrir og því að bætt andleg
líðan dregur úr læknishjálp og
meðalanotkun oftar en ekki.
Ungur leiðsögumaður gaf mér
nokkur kínversk spakmæli, á ensku, í Peking 1984. Eitt þeirra
hljóðar á þessa leið: „Ekkert særir aldraða dýpra en afskiptaleysi
afkomenda, því fátt er þeim dýrmætara en kærleiksrík fjölskyldu-
tengsl.“
Heilög jól eru i nánd, því er ekki úr vegi að vekja athygli á þvi
að nærgætni og kærleikur eru bestu jólagjafir sem öldruðum get-
ur hlotnast frá afkomendum sínum.
I síðasta pistli íyi’ir jól ætlar ungur, athygliverður prestur, Sig-
urður Grétar Helgason, að ræða um mikilvægi kærleikans í lífi
aldraðra á jólahátíð.
n "•-’itraldai
-lilara
Betra golf - eftir Amar Má Ólafsson og Úlfar
Jónsson. Á undanförnum áruin hefur áhugi á
golfíþróttinni aukist gífurlega hérlendis og
segja má að golfið sé nú vinsælasta almenn-
ingsíþróttin. Peir Amar Már og Úlfar em báð
ir mjög vel þekktir, Amar Már sem golfkenn-
ari og Úlfar sem afreksmaður í íþróttinni.
Allir kylfingar, hvort: sem þeir em bvrjendur
eða lengra komnir, eiga að geta haft vemleg
not af ráðleggingum höfunda bókarinnar,
sem eru jafnt á liinu tæknilega sviði og
hinu sem lýtur að leiknum sjálfum úti á
vellinum. I bókinni er mikill fjöldi ljós-
mynda í lit, flestar teknar af hinurn kunna
ljósmyndara Friðþjófi Helgasyni.
„(Bókin).. ber þess merki að þar eru miklir kunnáttumenn á ferð. Litmyndir Friðþjófs Helga-
sonar af höfundunum í ýmsum golfstellingum gefa efni þeirra félaga líka aukið gildi..”
„Betra golf er að mörgu leyti sérstök. Hún er samin af fslendingum með íslendinga í huga,
tekur mið af íslenskum aöstæðum og lögð er áhersla á málrækt, en helstu hugtök í golfinu
eru ýtskýrð á sérstökum oröalista á öftustu síðu. Bókin er jafnt fyrir byrjendur sem atvinnu-
menn í íþróttinni. Allir, sem áhuga hafa á golfi, finna eitthvað við sitt hæfi. Síðast en ekki síst
ertekið á andlega þættinum, sem oft vill gleymast, og skýrt með reynslusögum hvað hann
hefur mikið að segja.
Öll uppsetning og frágangur ertil fyrirmyndar.”
Steinþór Guðbjartsson Mbl. 22/11 '98
Góð bók frá
IRODI
Gefðu
Ef þú kaupir fyrir 7.000 krónur eða meira, fer nafn þitt í
lukkupott þar sem dregið er í hverri viku um
100.000 krónur
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SfMI 569 15 OO
http.//www.ht.is
umboðsmenn um land allt