Morgunblaðið - 10.12.1998, Qupperneq 76
76 FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
í DAG
Safnaðarstarf
Helgistundir
í Grindavíkur-
kirkju
FJÖLBREYTTAR samverustundir
eru haldnar í Grindavíkurkirkju á
aðventu nú sem endranær.
I kvöld, fimmtudagskvöld 10. des-
ember, verður samverustund „Kór-
söngur á aðventu“. Þar munu tveir
kórar, Kór Kálfatjarnarkirkju og
Kór Grindavíkurkirkju, syngja sam-
an jóla- og aðventulög. Stjórnendur
eru þeir Frank Herlufsen og Sigur-
óli Geirsson, organistar. Sr. Hjörtur
Hjartarson flytur hugvekju og svo
verður almennur söngur. Stundin
hefst kl. 21 og eru allir hjartanlega
velkomnir.
Sunnudaginn 13. desember verður
„Helgistund á aðventu" haldin hátíð-
leg kl. 17. Þá munu kórar kirkjunnar
syngja saman og sér, aðventu- og
jólalög, fermingarböm verða með
upplestur og flytja helgileik og sókn-
arprestur flytur hugvekju.
Sóknarnefndin hvetur alla bæjar-
búa til að koma og taka þátt í undir-
búningi hátíðarinnar.
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa kl. 14-17.
Bústaðakirkja. Foreldramorgnar
kl. 10-12.
Dómkirkjan. Opið hús í safnaðar-
heimilinu kl. 14-16.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl.
12. Orgelleikur, íhugun, altaris-
ganga. Léttur málsverður í safnað-
arheimili eftir stundina. Æskulýðs-
félagið Örk (yngri deild) kl. 20.
Háteigskirkja. Starf fyrir 10-12 ára
böm kl. 17.1 auga stormsins, kyrrð,
íhugun, bæn, lofsöngur og fræðsla:
Kl. 19.30 innri íhugun, kl. 20.15 trú-
arreynsla, -fræðsla, kl. 21 Taizé-
messa.
Langholtskirkja. Opið hús fyrir for-
eldra yngri barna kl. 10-12.
Smákökur bakaðar og jólasöngvar
sungnir. Jólafundur safnaðarfélags
Langholtskirkju kl. 20.30.
Laugarneskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Gunnar Gunnarsson leikur á
orgel frá kl. 12. Léttur málsverður
að stundinni lokinni.
Breiðholtskirkja. Mömmumorgunn
á föstudögum kl. 10-12.
Digraneskirkja. Mömmumorgnar
kl. 10-12. Leikfimi aldraðra kl.
11.20. Bæna- og kyrrðarstund kl.
18. Bænarefnum má koma til sókn-
arprests eða kirkjuvarðar, einnig
má setja bænarefni í bænakassa í
anddyri kirkjunnar.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 11-
12 ára kl. 16.
Grafarvogskirkja. Mömmumorgn-
ar kl. 10-12. Dagskráin í vetur verð-
ur fjölbreytt og boðið verður upp á
áhugaverða fyrirlestra og skemmti-
legar samverustundir. Kyrrðar-
stundir í hádegi kl. 12. Fyrirbænir
og altarisganga, léttur hádegisverð-
ur. Æskulýðsfélagið 10. bekkur kl.
20-22 í kirkjunni.
Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar. St-
arf fyrir 7-9 ára börn kl. 16.30.
Kópavogskirkja. Starf eldri borg-
ara í dag kl. 14-16 í safnaðarheimil-
inu Borgum. Kyrrðar- og bæna-
stund í dag ki. 18. Fyrirbænaefnum
má koma til prests eða kirkjuvarð-
ar.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
fyrir 10-12 ára börn frá kl. 17-18.30 í
safnaðarheimilinu, Linnetstíg 6.
Æskulýðsfundur kl. 20-22.
Hafnarfjarðarkirkja.
Mömmumorgnar kl. 10-12 í Vonar-
höfn. ÁTN-starf fyrir 8-9 ára kl. 17-
18.30 í Vonarhöfn.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 22. Kaffi eftir athöfn. Bibl-
íulestur kl. 21.
Víðistaðakirkja. Foreidramorgunn
milli kl. 10-12. Opið hús fyrir 10-12
ára börn kl. 17-18.30.
Akraneskirkja. Fyrirbænastund kl.
18.30.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl.
14.30 helgistund á Sjúkrahúsinu.
Ki i7 TTT-starf. Piparkökuskreyt-
ingar og fóndur.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opin 16-
18. Starfsfólk verður á sama tíma í
Kirkjulundi. Þeir sem vilja geta
komið til kirkju og tendrað ljósa-
bænir.
Fréttir á Netinu & mbl.is
ALL7y\/= e/T-TH\SA& /K/ÝT7
Sanpelleqrino
sokkabuxur
fást í öllum helstu stórmörkuðum
BARNASKÓR
LEÐURFÓÐRAÐIR
4067 og 4062
háir lágir
Stærðir: 23-30
Litur:
Svartir m/lakki
Verð 2.995
MIKIÐ ÚRVAL AF BARNASPARISKÓM
5% staðgreiðsluafsiáttur Póstsendum samdægurs
T
oppskórinn
VELTUSUNDI V/INGÓLFSTORG SÍMI 552 1212
VELVAKAJVPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Fermingar
ÞEGAR ég hugsa um
fermingar finnst mér alltaf
vera eitthvert ráðabrugg í
gangi, eða eitthvað óheið-
arlegt. Þegar ég fermdist
var ég ekki spurður hvort
ég vildi fermast, það var
bara sagt við mig að á
morgun ætti ég að mæta í
fermingafræðslu niðrí
Kirkjulundi í Keflavík. Ég
jánkaði því auðvitað, ég
var ekki nema þrettán ára
gamall, og vissi bara að all-
ir myndu fermast og skildi
því ekki afhverju ég ætti
ekki að gera það.
I fermingafræðslunni
var mér aldrei kennt að ég
yrði eilífur syndari eða það
að hinar myrku miðaldir
urðu myrkar vegna krist-
inar trúar. Auk þess var ég
yfirleitt rekin út fyrir að
haga mér eins og krakki,
það skildi ég aldrei, þvi ég
var auðvitað ekkert annað
en ósköp venjulegur
ki-akki.
Ég spáði oft í það því við
þurfum að vera svona ung
þegar við fermumst. En
það er langt síðan ég
komst að því. Ástæðan fyr-
ir því er mjög líklega sú að
við erum svo ung að við
sjáum bara græjurnar og
vitum ekkert hvað við er-
um að fara útí. Og þetta
vita þeir. Mér einfaldlega
býður við þessum óheiðar-
leika. Hvað haldið þið að
myndi gerast ef ferm-
ingaldurinn myndi hækka
upp í átján ára, ég held að
kirkjan færi einfaidlega á
hausinn „búmmbang". En
kirkjan passar upp á það
með því að notfæra sér
sakleysi barnsins.
Og ég spyr: Af hverju er
til eitthvað sem heitir
„þjóðkirkja"? Af hverju
fær þjóðkirkjan hluta af
skattinum í sinn vasa. Við
könnumst öll við Votta
Jehóva, það er trúfélag
sem kann að vinna fyrir
sér, eða kaþólikkar. Ég til-
heyri hvorugu trúfélaginu
en ég veit að þeir fá ekki
peninga frá ííkinu heldur
hafa þeir vit til að afla fjár
og standa á eigin fótum.
Mér líst ekki á siðleysið
innan kirkjunnar á Islandi,
þess vegna bið ég ykkur
sem hafið þetta vald í
höndum ykkar um að hug-
leiða orð mín.
Kristján Þ. Kristjánsson,
kt: 210981-4709.
Enn er til
ómerkilegt fólk
ÞAÐ var keyrt á nýja bíl-
inn okkar síðdegis sunnu-
daginn 29. nóvember þar
sem hann stóð á götunni
við innkeyrsluna á Vallar-
gerði 11, Sandgerði. Ég
var að hjálpa tengdasyni
mínum frá kl. 1-18 þennan
dag, inni við, og gerði él
þannig að snjófól var yfir
öliu og bíllinn þakinn snjó
og ætlaði ég að opna bíl-
stjóramegin en þá var
hurðin föst. Þá sá ég að
brettið yfir framhjólinu
var meira og minna og
dældað. En enginn hafði
gefið sig fram og lögregla
var kölluð til en fann ekki
neinn sem hægt væri að
sanna þetta á. Við urðum
að kaupa nýtt bretti sem
Birgir Guðna í Keflavík sá
um að koma á og kostaði
brettið 14 þúsund og vinn-
an 22.000. Og fór þá sjálfs-
ábyrgðin öll í þetta en hún
er 36.500 og varð því kon-
an mín sem á bílinn fyrir
þó nokkru peningaútlátum
en sá sem skaðanum olli er
því ómerkilegri í alla staði
fyrir að stinga af.
Björn í Sandgerði.
ísland í 1000 ár
KONUN GAÆTTUM og
ambáttakyni við teljum oss
vera af. Skógarnir hurfu
og landið var nakið, við
áttum þátt í þvi. Með doll-
ara í augum og athyglis-
sjúkir þeir sökkva Þjórsár-
verum. Virðulega Álþingi
hvai' er ættjarðarástin og
virðing á landi og þjóð?
Haraldur Sigfús
Magnússon.
Þakkir fyrir góðan
upplestur
ÉG hafði ekki gert mér
grein fyrir hvílíkt listaverk
Sjálfstætt fólk er fyrr en
ég hlustaði á upplestur
Arnars Jónssonar. Kærar
þakkir, Arnai'.
H.G.
Tapað/fundið
Hver fann bílnúmerið
KONAN sem fann bílnúm-
erið KR 453 er vinsamlega
beðin að hafa samband við
Stein í 899 8602.
Svört skólataska
týndist í Hafnarfirði
SVÖRT mjúk skólataska.
með mynd af fíl utan á,
týndist sl. föstudag eða
laugardag við Suðurbraut
eða verslunina Miðbæ í
Firði í Hafnarfirði. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 555 4295, 565 3697 og
565 4105.
Myndavél í óskilum
MYNDAVÉL fannst í
Þingholtunum rétt fyrir
síðustu mánaðamót. Upp-
lýsingar í síma 551 0912.
Svart seðlaveski
týndist
SVART seðlaveski týndist
sl. sunnudag 6. desember í
Laugarásbíói síðdegis.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 421 2095.
Geisladiskahulstur
týndist
BLEIKT Spice-Girls
geisladiskahulstur fyrir
u.þ.b. fimmtán diska týnd-
ist líklega í Seljahverfi eða
í Mosfellsbæ um mánaða-
mótin október/nóvember
sl. Finnandi er vinsamlega
beðinn að hringja í síma
898 5172.
Farsími týndist
ERICSSON farsími týnd-
ist á Iðnskólaballi á In-
ferno um miðjan síðasta
mánuð. Finnandi er vin-
samlega beðinn að hringja
í síma 553 0711.
Dýrahald
Högni í óskilum
á Bergstaðastræti
HÖGNI, grábröndóttur
með hvítar loppur, var
með gyllta sanseraða ól.
Hann fannst á Bergstaða-
stræti íyrir 2 vikum síðan.
Eigandinn eða þeir sem
kannast við hann eru beðn-
ir að hafa samband í síma
551 9702.
/0/7
VEÐURSPÁ okkar
hefur verið að þróast
mikið að undanförnu.
Nú erum við farnir að
geta sagt til um veðr-
ið í gær.
NEI, við veitum
þessar upplýsingar
ekki hér. Spurðu
foreldra þina.
Víkveiji skrifar...
LANDNÁMSÖLD hefst, að því
talið er, um eða fyrir 870. Þjóð-
veldisöld hefst síðan með stofnun
allsherjarríkis, þjóðveldis, á Þing-
völlum árið 930.
Fáeinir landnámsmanna voru
kristnir og reistu kirkjur á jörðum
sínum. Fyrir voru í landinu papar,
kristnir einsetumenn. I fylgdarliði
landnámsmanna, sem flestir voru
ásatrúar, var og kristið fólk frá
Bretlandseyjum. Þar höfðu margir
norrænna landnámsmanna nokkra
dvöl áður en haldið var út hingað.
Það má því ganga út frá því sem
vísu að heilög jól hafí verið haldin
hér á landi allt frá því að papar sett-
ust hér að fyrir norrænt landnám.
Heiðnir menn héldu og sín jól á
landnámsöld. Þeir fógnuðu vetrar-
sólhvörfum síðla í desember, þegar
dag tekur loks að lengja á nýjan
leik. Aðalblót þeirra voru þrjú: vor-
blót, haustblót og jólablót (miðs-
vetrarblót).
Því var fagnað á miðsvetrarblót-
um að sókn birtunnar á hendur
myrkrinu var hafín. Vissan um að
framundan væri náttlaus voraldar-
veröld, bjargi-æðistími bænda og
sjósóknara, var styrkur landnáms-
manna í veðrum og skammdegi
vetrar.
Kristin jól eru einnig birtuhátíð.
Þau boða sól í sinni, vorkomu hið
innra sem í hinum ytra heimi. Þau
era og verða höfuðhátíð íslenzkra
fjölskyldna og heimila um ókomna
tíma.
XXX
HARALDUR Sveinbjömsson
sendir Víkverja eftirfarandi at-
hugasemd:
„I þætti þínum 6.12. sl. fjallar þú
um hvernig jafna megi kosningarétt
landsmanna með því að láta tölvu
reikna út atkvæðavægi þingmanna í
hlutfalli við kjósendafylgi og telur
að með þessu megi notast við nú-
verandi kjördæmaskipan áfram.
Þú virðist gleyma því eins og
margir aðrir sem fjallað hafa um
þetta mál að í núverandi kosninga-
kerfí er jöfnun á atkvæðavægi milli
kjördæma, þannig að þingmanna-
fjöldi flokka hefur verið í samræmi
við fylgi þeirra, sem auðvitað þýðir
ekkert annað en það að vægi at-
kvæða er það sama alls staðar á
landinu. >
Dæmi um þetta var þegar Borg-
araflokkurinn fékk þingmann á
Norðurlandi eystra. Flokkurinn
fékk sárafá atkvæði í kjördæminu,
en átti rétt á uppbótarþingmanni og
búið var að fylla kvótann í kjör-
dæminu þar sem fylgi hans var.
Þessi þingmaður var ekki kjörinn á
þing af okkur á Norðurlandi eystra,
heldur af Reykvíkingum og
Reyknesingum.
Vinnustaður þingmanna er í
Reykjavík, og margir þingmenn af
landsbyggðinni kjósa af eðlilegum
ástæðum að hafa heimili sitt á höf-
uðborgarsvæðinu. Þeir sem þar búa
hafa því ekki síður aðgang að þeim
en kjósendur í kjördæminu.
Ég held því ekki að niðurstaðan
af þessum jöfnuði sem þú ert að
stinga upp á verði sú, eins og oft
hefur fylgt aðgerðum af því tagi að
sumir verði jafnari en aðrir (von-
andi þó ekki jafnaðir út).
En úr því við erum að tala um
jöfnun þá kemur mér í hug að í
blaði allra landsmanna eru þrír fast-
ir pistlar sem fjalla um þjóðfélags-
mál (a.m.k. að hluta). Það eru rit-
stjórnargreinar, Reykjavíkurbréf
og Víkverji. Mér skilst að Víkverji
sé marghöfða, gaman væri að vita
hvað stór hluti er af landsbyggðinni,
eða er Víkverji bara stytting úr
Reykjavíkurverjandi?
Með kveðju, Haraldur
Sveinbjörnsson, Kotár-
gerði 24, Akureyri."