Morgunblaðið - 19.01.1999, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1999
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Atvinnuleysisbætur til félaga
í verkalýðsfélögum í Eyjafírði
Um 184 millj-
ónir greiddar
á liðnu ári
Framkvæmdir í viðbyggingu Sundlaugar Akureyrar í fullum gangi
- Morgunblaðið/Kristján IÐNAÐARMENN vinna nú af krafti við frágang og
NYJA 25 metra laugin á sundlaugarsvæðinu var innréttingu á viðbyggingu Sundlaugar Akureyrar
tekin í notkun í sumar og einnig nýr útipottur.
og er stefnt að því að taka hana í notkun í vor.
Húsnæðið tekið
í notkun i maí
ALLS fengu félagsmenn í fímmtán
verkalýðsfélögum í Eyjafirði
greiddar atvinnuleysisbætur á síð-
asta ári að upphæð um 184 milljónir
króna. Svæðisvinnumiðlun Norður-
lands eystra sér nú um að greiða út
atvinnuleysisbætur og þegar horft
er til alls kjördæmisins kemur í ljós
að 246,7 milljónir króna hafa verið
greiddar út á liðnu ári.
Áður en Svæðisvinnumiðlun var
stofnuð á síðasta ári sá Verkalýðsfé-
lagið Eining um greiðslu bóta fyrir
stærstu félögin í Eyjafirði, eða tíu
talsins og nam upphæð útborgaðra
bóta árið 1997 alls 168,5 milljónum
króna. Á síðasta ári fengu félags-
menn þessara tíu verkalýðsfélaga
alls 182 milljónir króna í bætur,
þannig að upphæðin hefur hækkað
um rúmar 15 milljónir á milli ára.
Félagsmenn í Verkalýðsfélaginu
Einingu fengu 113,2 milljónir króna
í atvinnuleysisbætur á liðnu ári, en
Eining er langstærsta félagið í
Eyjafirði. Upphæðin er heldur
hærri en var árið á undan, þegar
100,6 milljónir króna voru greiddar
í atvinnuleysisbætur.
Sama upphæð var greidd til fé-
laga í Félagi verslunar- og skrif-
stofufólks á Akureyri bæði í fyrra
og árið á undan eða 33,8 milljónir
króna. Félagsmenn í Iðju fengu 19,2
milljónir greiddar á síðasta ári sem
er örlítið meira en var árið á undan
UMBOÐSMENN erfingja Kristín-
ar Jónasdóttur, Aðallandi 3 í
Reykjavík, afhentu forsvarsmönn-
um Háskólans á Akureyri andvirði
íbúðar hennar við athöfn sem efnt
var til í sal háskólans á Sólborg í
gær.
Kristín Jónasdóttir var gift Geir
Jónassyni, borgarskjalaverði í
Reykjavík. í kjölfar stofnunar Há-
skólans á Akureyri árið 1987
ánafnaði Kristm háskólanum bók-
um þeirra hjóna og voru þær með-
al fyrstu bóka bókasafns hans.
Þær eru að mestu á sviði íslenskra
fornbókmennta og sögu og hafa
verið bókasafninu ómetanlegar,
enda margar þeirra löngu ófáan-
legar í verslunum landsins og dýr-
keyptar væru þær falar annars
staðar frá.
Geir fæddist á Akureyri árið
1909, en hann lést 1985. Hann
varð stúdent frá Menntaskólanum
á Akureyri og lauk magistersprófi
í sagnfræði frá Óslóarháskóla. St-
arfaði hann sem framkvæmda-
stjóri bókaútgáfunnar Eddu á
Akureyri og var kennari við
Gagnfræðaskólann á Akureyri, en
þegar 18,8 milljónir voru greiddar í
bætur. Svo til sama upphæð var
einnig greidd félagsmönnum í Sjó-
mannafélagi Eyjafjarðar, 7,3 millj-
ónir í fyrra en 7,4 árið á undan og
hið sama er að segja um Sjómanna-
félag Ólafsfjarðar, 1,3 milljónir á
móti 1,1 árið þar á undan.
Félagsmenn í Félagi bygginga-
manna í Eyjafirði fengu 1,7 milljón-
ir í atvinnuleysisbætur á móti 1,9
árið 1997, en tölurnar hjá Félagi
málmiðnaðarmanna eru 2,1 milljón í
fyrra á móti 1,7. Hjá Verkstjórafé-
lagi Akureyrar og nágrennis voru
atvinnuleysisbætur 1,6 milljónir á
liðnu ári en 1,5 milljónir árið á und-
an.
Skipstjóra- og stýrimannafélag
Norðlendinga greiddi um 620 þús-
und í bætur á liðnu ári en þær námu
tæpri milljón árið á undan. Alls var
hálf milljón greidd í atvinnuleysjs-
bætur til félaga í Vélstjórafélagi ís-
lands/Eyjafirði en 700 þúsund árið á
undan.
Tvö félög, Félag framreiðslu-
manna og Rafiðnaðarfélag Norður-
lands greiddu um hálfa milljón í
fyrra í atvinnuleysisbætur og Félag
kjötiðnaðarmanna rúmlega 400 þús-
und. Þá fengu félagar í Félagi mat-
reiðslumanna 332 þúsund í atvinnu-
leysisbætur og 235 þúsund voru
greiddar út til félagsmanna í Múr-
arafélagi Akureyrar.
árið 1944 hóf hann störf á Lands-
bókasafni og var bókavörður þar
allt til ársins 1972 er hann gerðist
borgarskjalavörður. Kristín var
fædd að Stuðlum við Reyðarfjörð
en ólst upp á Bakka. Hún fluttist
til Reykjavíkur og starfaði m.a.
hjá Glitni, Islenskum heimilisiðn-
aði, Borgarskjalsafni og síðast á
Árbæjarsafni.
Snortnir yfír hlýhug og velvilja
Bækur þeirra Geirs og Kristín-
ar hafa verið Bókasafni Háskólans
á Akureyri mikill fengur. Með
erfðafénu skapast færi á að kaupa
vönduð og eftirsótt íslensk rit fyr-
ir bókasafnið, m.a. bókmenntir
fornar og nýjar, bókmenntafræði
og safnfræðirit auk rita um ís-
lenska menningu og atvinnulíf
sem nýtast munu nemendum og
kennurum háskólans við nám sitt,
kennslu og rannsóknir í framtíð-
inni. Fram kom við athöfnina að
starfsmenn og nemendur Háskól-
ans á Akureyri eru snortnir yfír
þeim hlýhug og velvilja sem há-
skólanum er sýndur með ofan-
greindum gjöfum.
IÐNAÐARMENN vinna hörðum
höndum við að innrétta viðbygg-
ingu Sundlaugar Akureyrar en
stefnt er að því að framkvæmdum
við húsið ljúki í kringum 20. maí í
vor. Byggingu nýrrar laugar er
lokið og var hún tekin í notkun í
byrjun júlí á síðasta ári og einnig
nýr útipottur.
Áfallinn kostnaður við fram-
kvæmdir á svæði sundlaugarinnar
frá árinu 1993 og til síðustu ára-
móta er um 275 milljónir króna en
áætlaður heildarkostnaður við end-
urnýjun og uppbyggngu á sund-
laugarsvæðinu er áætlaður um
hálfur milljarður króna og jafnvel
rúmlega það. Kostnaður við hönn-
un er áætlaður um 10% af heildar-
kostnaði.
Magnús Garðarsson, eftirlits-
maður framkvæmda á sundlaugar-
svæðinu, sagði að eftir væri því að
framkvæma fyrir um 225 milljónir
króna. Á þessu ári eru lagðar til 80
milljónir króna í framkvæmdina og
sagði Magnús að sú fjárhæð ætti
að duga til að taka nýbygginguna í
notkun. Hann sagði að einnig væri
vilji til að ráðast í framkvæmdir
vegna aðkomu að aðalanddyri við-
byggingarinnar en ekki væri ljóst á
ÓVEÐRIÐ um helgina og slæm
færð í kjölfar þess setti mark sitt á
prófkjör Framsóknarflokksins í
báðum Norðurlandskjördæmun-
um. Var því ákveðið að hafa kjör-
staði opna í dag, þriðjudag, en talið
verður á miðvikudag. Vegir voru
víðast hvar mokaðir í gær þannig
að flestir ættu að komast á kjör-
stað.
Árni V. Friðriksson, formaður
kjörstjórnar á Norðurlandi eystra,
sagði að víða hefði gengið hálfbrös-
uglega og einhverjar kjördeildir
verið alveg lokaðar um helgina, en
betur hefði gengið annars staðar.
Þannig var kjörfundi lokið á Rauf-
arhöfn um helgina, en opið var á
Þórshöfn í klukkustund í gær,
mánudag. „Almenna reglan er sú
að kjörstaðir verða opnir á þriðju-
dag, 19. janúar, frá kl. 16 til 22,“
sagði Árni. Að sögn Arna kusu
um 550 manns á Akureyri um helg-
ina en um 900 til 1.000 manns
þessari stundu hvort fjárveiting
fengist til þeirra framkvæmda á
þessu ári.
Framkvæmdir þokkalega
á áætlun
Magnús sagði að áætlaður
kostnaður við aðkomuna væri um
22 milljónir króna en jarðvegs-
skiptum væri lokið og að eftir
stæðu framkvæmdir upp á um 18
milljónir króna. „Aðkoman að
Sundlauginni tengist einnig að-
komunni að íþróttahúsinu við
Laugagötu, þar sem í framtíðinni
er gert ráð fyrir að snúa anddyrinu
í íþróttahúsinu."
Framkvæmdir eru þokkalega á
áætlun, að sögn Magnúsar, en
framkvæmdahraðinn hafi ráðist af
fjárveitingum til verksins. Við-
byggingin er samtals um 1.265 fer-
metrar, kjallari, hæð og stigahús.
Öllum tækjabúnaði hefur verið
komið fyrir í kjallara viðbyggingar-
innar en á fyrstu hæð eru pottasal-
ur, anddyri og kvennaklefar.
Töluvert eftir enn
Frá því að framkvæmdir við
endurnýjun mannvirkja og sund-
laugarsvæðis hófust er búið að
höfðu kosið í kjördæminu öllu.
Áætlað er að talning atkvæða hefj-
ist kl. 16 á morgun, miðvikudag, og
úrslit liggja væntanlega fyrir þá
um kvöldið eða fyrri part að-
faranætur fimmtudags.
Góð kjörsókn
Magnús Ólafsson, formaður
kjördæmissambands Framsóknar-
flokksins í Norðurlandi vestra,
sagði að allar kjördeildir yrðu opn-
ar í dag, þriðjudag, frá kl. 17 til 22.
Þegar hafa um 1.600 manns tekið
þátt í kosningu í prófkjörinu og var
Magnús ánægður með þátttökuna.
Hann sagði veður víða í kjördæm-
inu hafa verið ágætt á sunnudaginn
og þá hefði kjörsókn verið góð,
m.a. á Sauðárkróki og Siglufirði.
Talning atkvæða hefst í Fram-
sóknarhúsinu á Sauðárkróki seinni
partinn á morgun, miðvikudag, og
úrslit liggja væntanlega fyrir síðla
kvölds eða fyrri part nætur.
gera upp svæðið norðan við sund-
laug, byggja nýja 25x16,6 metra
sundlaug, steypa nuddpott og
tengigang milli viðbyggingar og
íþróttahúss í Laugagötu og steypa
upp viðbyggingu.
Einnig er búið að byggja eim-
bað, setja upp vatnsrennibrautir
með tilheyrandi lendingarlaug,
gera barnalaug, steypa stoð- og
skjólveggi, reisa geymslu- og sölu-
skúr, endurnýja heita potta, hellu-
leggja svæði í kringum potta, lend-
ingarlaug og vaðlaug, leggja lagnir
og gróðursetja tré og runna. Þá er
búið að helluleggja og ganga frá
svæði í kringum nýju laugina,
tengja eldri lagnir, setja upp
hreinsibúnað og lagnir fyrir eldri
laug, girða af fjölskylugarð og
skipta um jarðveg í aðkomu að að-
alanddyri.
Þótt mikið hafi verið framkvæmt
á svæðinu er töluvert eftir enn.
Magnús sagði að mikill áhugi væri
fyrir því að ljúka byggingafram-
kvæmdum á næsta ári en þær snúa
m.a. að gamla húsnæðinu og gömlu
lauginni. Akvörðun um slíkt væri
hins vegar í höndum framkvæmda-
nefndar bæjarins og bæjaryfir-
valda.
Samfylkingin í
N orðurlandskj ör-
dæmi eystra
Prófkjör
um efstu
sætin
FULLTRÚAR Alþýðubanda-
lags og Alþýðuflokks í Norð-
urlandskjördæmi eystra hafa
undirritað samkomulag um
val frambjóðenda á sameigin-
legan framboðslista til Al-
þingis í vor. Þar er gert ráð
fyrir opnu prófkjöri um skip-
an fjögurra efstu sæta listans
en þó að fulltrúar sama fram-
boðsaðila geti ekki fengið
bæði 1. og 2. sætið.
Öllum félögum flokkanna
sem að prófkjörinu standa,
svo og óflokksbundnum ein-
staklingum, er heimilt að
bjóða sig fram í prófkjörinu.
Framboðsfrestur er til 25.
janúar nk. en prófkjörið fer
fram 13. febrúar nk. Niður-
staða prófkjörsins er bindandi
en allir kosningabærir stuðn-
ingsmenn listans í kjördæm-
inu eiga atkvæðisrétt.
Morgunblaðið/Kristján
AUÐUR Jónasdóttir, til hægri, systir Kristínar afhendir Sigrúnu
Magnúsdóttur peningagjöf við athöfn í Háskólanum á Akureyri.
Háskólanum á Akureyri
færð höfðingleg gjöf
Prófkjör Framsóknarflokksins
í Norðurlandskjördæmunum
Kjörstaðir opnir
í dag vegiia óveð-
urs um helgina