Morgunblaðið - 19.01.1999, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 19.01.1999, Blaðsíða 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM MYNDBÖND fslenskur strákur nær langt í poppheiminum Krúttlegur hryðju- verkamaður Denni dæmalausi snýr aftur (Dennis Strikes Again)_ Barna/gaman iiivihI ★ ‘/2 Leikstjórn: Charles T. Kangais. Aðal- hlutverk: Don Rickles og George Kennedy. 72 nn'n. Bandarísk. Warner myndir, desember 1998. Óllum leyfð. ÞEIR sem nutu þeirrar gæfu sem börn að hafa aðgang að dagblaðinu Tímanum muna án efa eftir Denna dæmalausa, ómót- stæðilegum sein- heppnum hryðju- verkadreng sem of- sótti aldraðan ná- granna sinn Hr. Wilson. „Dennis Strikes Again“ er önnm- myndin um piltinn ógurlega og miklum mun síðri en hin fyrri; ódýr og metnaðarlaus sjónvarpsfram- leiðsla sem er markaðssett í skjóli gæða fyrri myndarinnar. Enginn af þeim gæðaleikurum sem skipuðu hvert hlutverk í fyrri myndinni sést hér og staðgenglarnir eru mun síðri. Sömu sögu er að segja um sviðs- mynd og tæknileg gæði. Myndin fær það sem hún fær út á nokkra vel heppnaða brandara sem hitta í mark hjá hópnum sem hún er ætluð, ærslabelgi frá 5-10 ára. Guðmundur Asgeirsson ------«-«-»---- Gæði skipta máli Godzilla (Godzilla)________________ Spennumyiid >/2 Framleiðandi: Dean Devlin. Leik- stjóri: Roland Emmerich. Handrits- höfundar: Dean Devlin og Roland Einmerich. Kvikmyndataka: Ueli St- eiger. Aðalhlutverk: Matthew Broderick, Jean Reno, Maria Pitillo og Hank Azaria. (134 mín) Banda- rísk. Skffan, janúar 1998. Ekki við hæfi barna. MENNIRNIR sem stóðu á bak við geimtryllinn „Independence Day“ ráðast hér í gerð stórmyndar um eðluskrímslið Godzillu, sem er hugarfóstur jap- anskrar kvik- myndagerðar. En í stað þess að vinna á einhvem hátt með sjarmerandi B-mynda-lélegheit japönsku mynd- anna, nálgast Hollywood-garparnir viðfangsefni sitt af fullri alvöru. Út- koman er sýnidæmi um hvers kyns roteggjum Hollywood er fært um að verpa, þegar gróðasjónarmið fá öllu ráðið. Ekki er að finna sjálfstæða hugs- un í handritinu sem stelur óspart frá þeim geim-, hamfara- og skrímsla- myndum sem hendi eru næstar. Þá eru samræður svo klisjumettaðar að sjálfir leikararnir roðna við að mæla þær fram. Atburðarás er staglkennd og þvæld og þróast út í furðanlega óskammfeilna „Jurassic Park“-eftir- hermu á tímabili. Tæknibrellur bera vott um mikið fjármagn en ekkert hugvit og er áberandi hvernig stöðug rigning er notuð til að draga úr skyggninu í brelluatriðunum. Vesalings stirðbusalega Godzillan sem allt umstangið er í kringum vek- ur fremur meðaumkun en ótta, því hún virðist ekkert vita hvað hún á 'af sér að gera þarna á miðri Manhatt- an-eyju, en þangað kom hún aðeins í sakleysi sínu til að verpa. Heiða Jóhannsdóttir ►UNGLINGA- STJÖRNURNAR í 98 Degrees brostu fyrir myndavélarnar þegar þær mættu á opnun Motown Cafe í Universal Studios CityWalk í Orlando um helgina. Hljómsveitin vinsæla kom fram ásamt fleiri tón- listarmönnum við þetta tækifæri, en hana skipa frá vinstri: Jeff Timmons, Drew Lachev, Justin Jefferes og Nick Lachev. ARNÞÓR Birgisson er bæði poppstjarna og upptökustjóri í Svíþjóð þar sem hann hefur búið frá tveggja ára aldri. Hann kemur heim á hverju sumri og hefur alltaf talað ís- lensku við foreldrana og nú við kærustuna. Þótt hann sé bara 22ja ára hefur hann öðiast mikla virð- ingu fyrir upptökustjóm við fyrirtækið Merlin Music í Stokkhólmi, auk þess að semja lög fyrir erlendar hljómsveitir sem hann stýrir upptökum fyrir. Arnþór gaf út sína fyrstu sólóplötu fyrir tveimur árum og er núna við upptökur á sinni annarri plötu, ásamt því að vinna fyrir aðra aðila. 1,2 milljónir eintaka „Ég hef verið 1 tónlistar- skóla frá tíu ára aldri. Þegar ég var táningur lék ég mikið í djasshljómsveitum, og þá var kontrabassinn mitt hljóðfæri. Ég byrjaði að semja lög svona fimmtán ára og þá notaði ég mikið píanó. Vinir mínir hvöttu mig óspart því þeim líkaði lögin mín, og þar sem mér fannst það mjög gaman þá gerði ég það. Ég sleppti þvi að fara í háskóla eins og vinimir og fór að vinna í tónlistargeiranum, og lærði ýmislegt á tæknilegum námskeið- um. En það er bara að semja og semja og vinna með fólki, maður lærir mest af því.“ - Og núna ertu með lag á lista í Bandaríkjunum ? „Já, ég samdi lag sem heitir „Because of You“ fyrir hljómsveitin 98 Degrees. En þeir sömdu lag með Stevie Wonder fyrir teiknimyndina Mulan. Lagið mitt er komið út á smáskífu og er í þriðja sæti á Billbo- ard-listanum, og hefur selst í 1,2 milljónum eintaka. Það hefur verið þónokkuð spilað í Evrópu og kemur vonandi til Islands núna í janúar.“ Gæti orðið ríkur - Pú lifir og hrærist í tónlistinni dag og nótt? „Já, ég vinn voða mikið, en kærastan mín skilur það mjög vel. Hún er íslensk stúlka sem ég hitti hér í Svíþjóð. Við búum saman og erum trúlofuð og svona. Já, það hef- ur verið mikið að gera í haust. Breska hljómsveitin Boyzone kom og ég var að vinna með þeim, og nokkrum öðrum svona strákahljóm- sveitum. Það var mjög gaman.“ - Hvaða fleiri þekkta aðila hefur þú samið fyrir og stjórnað upptök- um hjá? „Eg veit ekki alveg hverjir eru þekktir á íslandi og hverjir ekki. ARNÞÓR er á fljúgandi uppleið. Frelsi til að gera það skemmtilega Arnthor er íslenskur tónlistarmaður í Svíþjóð sem starfar m.a. með Boyzone og á lag í þriðja sæti Billboard-listans. Hildur Loftsdóttir spjallaði við þennan afskaplega hógværa, unga mann. Veistu hver Jay-Z er? Hann er með stærri röppurum í Bandaríkjunum. Svo er það söngkonan Hinda Hicks, sem er vinsæl í Evrópu. Platan með henni kemur útí febrúar." - Ertu ekki orðinn forríkur? „Nei, en það gæti faríð þannig, ef ég held áfram að vinna í þessum geira, og lögin seljast alltaf vel þá fæ ég mjög vel borgað fyrirþað. Eg hef það fínt núna og þarf ekki að hafa áhyggjur af ýmsu eins og áður fyrr. Það er ótrúlega þægilegt og gefur manni frelsi til að gera það sem mann langar." Kýs að vinna með strákahljómsveitum - Hvernig tónlist semur þú helst? „Mest sál, hip hop, eigin- lega allt frá gítarpopptónlist til mun þyngri tónlistar. Bara það sem mér finnst gaman að vinna með.“ - Attu auðvelt með að setja þig inn í hvaða tónlist- arstíl sem er? „Já frekar, nema mjög mikla danstónlist eins og t.d. teknótónlist. En ég geri bara það sem mér finnst spenn- andi og þar af leiðandi vinn ég mikið með strákahljóm- sveitum eins og Back Street Boys og fleirum." - Færðu ný tilboð á hverj- um degi? „Já, það hefur orðið þannig núna eftir að lagið komst á lista í Bandaríkjunum. Þá hef ég fengið mjög mikið af til- boðum frá hljómsveitum sem vilja samstarf, líka sþngvur- um og söngkonum. Ég verð bara að taka því sem mér finnst mest spennandi og skemmtilegast að starfa við. Þannig er mjög gaman hjá mér, það er nóg að gera.“ - Hvort kýstu að starfa með einhverjum sem að- hyllist tónlist sem þér finnst skemmtileg eða mjög fræg- um tónlistarmanni? „Bæði og. Það er gaman að vinna með þeim sem maður veit að mun selja mikið af plötum, en samt er alltaf skemmtilegast að vinna við það sem manni sjálfum finnst gott, en hefur kannski ekki slegið í gegn. Það er svo gaman að vinna að og vera með í því sem kannski mun slá í gegn.“ Lag á íslensku - En hvernig verðurplatan þín? „Þetta verður venjuleg poppplata og ég stefni að því að koma smá- skífu út fyrir sumarið og plötunni sjálfri í byrjun hausts. Við ætl- um að reyna að fá plötuna utgefna á Islandi, því eitt laganna er á íslensku. Af fyrri plötunni minni kom út eitt lag á Pottþétt- plötu, en þar sem Island hefur bara samning við Warner á Bret- landi en ekki í Svíþjóð, þá gat hún ekkþkomið út á íslandi. Næsta plata verður hins veg- ar gefin út á Bret- landi og þá getur ís- land tekið hana inn.“ Ný tilboð streyma til Arnþórs á hverjum degi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.