Morgunblaðið - 19.01.1999, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 19.01.1999, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ Úr dagbók lögreglunnar Mestar annir vegna aðstoðar í óveðrinu Helgin 15. til 18. janúar 1999 FÁMENNT var í miðborginni að- faranótt laugai-dags enda hvasst og fólk fauk til og frá, sem var á ferðinni. Ölvun var ekki mikil og ástandið þokkalegt. Þó þurfti að handtaka nokkra vegna ölvunar eða óspekta og þrír voru fluttir á slysadeild vegna minni háttar meiðsla. Það var einnig fámennt í miðborginni aðfaranótt sunnudags og ölvun ekki mikil. Fjórir menn voru handteknir vegna óspekta og þrír unglingar færðh- á lögreglu- stöð vegna ungs aldurs. Veðrið Mikið var að gera hjá lögreglu vegna veðursins um helgina en alls eru 75 bókanir undir liðnum aðstoð, veðurfar um helgina. Mest var það vegna lausra hluta eða þakplatna sem fuku til, en mikið var um fok á timbri og fleiru frá nýbyggingum víða á svæði LR. Talsvert tjón varð vegna þessa, m.a. urðu allmargar bilreiðh' fyrir skemmdum. Björg- unarsveitin Ingólfur var kölluð út um kvöldmatai’leytið á fóstudag vegna foks á þakplötum af húsi við Norðurgarð og hún aðstoðaði einnig mann sem hafði fest bíl sinn á Nesjavallavegi skammt frá Ha- fravatni á fóstudagskvöld. Almenn- ingsvagnar hættu að aka inn í Mos- fellsdal um kl. 21 á fóstudagskvöld en lögreglan aðstoði við að koma fólki á áfangastað. Aðfaranótt laug- ardags var lögreglan kölluð til að- stoðar vegna muna sem fokið höfðu út úr íbúð í Húsahverfí og bíls í Mosfellsbæ er hurðir sviptust upp vegna veðurs. Kl. 3 aðfaranótt laugardags voru björgunarsveitir kallaðar út til að hjálpa fólki í vand- ræðum. Um svipað leyti fuku bygg- ingamót af efri hæð á stórri ný- byggingu í Mosfellsbæ og þurfti að vekja upp íbúa í nágrenninu til að láta þá færa bíla sína frá nýbygg- ingunni. Ekki var vitað um tjón á öðru en mótunum. Suðurlandsvegi var lokað rétt fyrir kl. 5 á laugar- dagsmorgun vegna veðurs og ófærðar og stuttu síðar þurfti að hreinsa grjót sem brimið hafði skolað upp á Sæbraut. Fram eftir degi á laugardag var lögreglan mikið á Suðurlandsvegi vegna veð- urs, ófærðar og lokana. Björgunar- sveitir voru meira og minna stöðugt á ferðinni þar til síðdegis á laugardag. Umferðin Vinna lögreglu í tengslum við umferð var mest vegna veðurs og ófærðai’ en þó voru sex teknir gi’unaðir um ölvun við akstur og 20 fyrir of hraðan akstur. Umferðar- slys var á Vesturlandsvegi við Blikastaði síðdegis á fóstudag. Bifreið var ekið aftan á bifreið sem var kyrrstæð við vegarbrún en verið vai- að flytja farm yfir í þá bifreið úr annarri. Annar mann- anna sem var að flytja fai-minn varð á milli kyrrstæðu bifreiðar- innar og þeirrar aðvífandi og brotnaði hann illa á báðum fótum. Þarna var hvasst, hált og skafrenn- ingur. Það kemur stundum fyrir, sem gerðist á fostudag, að áminna þurfti ökumann sem ók helmingi hægar en leyfður hámarkshraði er og tafði þar með umferðina. Á laugardagskvöld missti ökumaður vald á bifreið sinni á Skothúsvegi og hafnaði hún úti í tjörninni. Oku- mann sakaði ekki og lítið sem ekk- ert tjón varð á bifreiðinni. Innbrot og þjófnaðir Á föstudagsmorgun var tilkynnt um innbrot í nokkrar bifreiðir á Lágholtsvegi. Stolið var ferðaút- varpstæki og geislaspilara. Um svipað leyti var tilkynnt um inn- brot í hús við Nýlendugötu en það- an var stolið ýmsum hljómtækjum og fleiru. Þá var tilkynnt um inn- brot í fyrirtæki við Engjateig þar sem stolið hafði verið tölvum. Þá var brotist inn í hús í vesturbænum og stolið verðmætum forngripum, en lögreglan hafði uppi á gripunum um helgina og kom þeim til skila. Aðfaranótt laugardags var tilkynnt um innbrot í íbúð við Vatnsstíg, en þaðan vai’ stolið GSM-síma og fleiru. Þá var einnig brotist inn í íbúð við Aragötu og unnar nokkrar skemmdh’. Sá sem þarna var að verki var handtekinn í nágrenninu stuttu síðar. Annað Nokkrir piltar réðust á unglings- stúlku í Foldahverfí síðdegis á fóstudag. Meiðsli hennar voru minni háttar. Hald var lagt á nokk- urt magn af landa í Breiðholts- hverfi á föstudagskvöld og tveir menn handteknir. Þá var einnig sprengdur flugeldur í ruslatunnu sem eyðilagðist. Bifreið var stöðv- uð á Laugavegi á fóstudagskvöld og reyndist ökumaður hafa lítil- ræði af fíkniefnum meðferðis. Á laugardagsmorgun varð vinnuslys í Vogahverfi er maður missti framan af þremur fingrum í hjólsög. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild. ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1999 49 KIRKJUSTARF Safnaðarstarf Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs- hópa kl. 10-14. Léttur hádegisverð- ur. Samverustund foreldra ungra barna kl. 14-16. Fundur í æskulýðs- félaginu kl. 20. Bústaðakirkja. Æskulýðsstarf kl. 20.30. Grensáskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.10. Orgelleikur, ritningalestur, altarisganga, fyrirbænir. Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eftir stundina. Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs- þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk- um. Háteigskirkja. Starf fyrir 6-9 ára böm kl. 17. Laugarneskirkja. Fullorðins- fræðsla kl. 20. „Þriðjudagur með Þorvaldi" kl. 21. Lofgjörðarstund. Seltjarnarneskirkja. For- eldramorgunn kl. 10-12. Æskulýðs- starf íyrir 8. og 9. bekk kl. 20-22. Árbæjarkirkja. Foreldramorgunn í safnaðarheimili kl. 10-12. Digraneskirkja. Æskulýðsstarf kl. 20 á vegum KFUM & K og Digra- neskirkju. Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 9-10 ára stúlkur kl. 17.30. Grafarvogskirkja. Eldri borgarar, opið hús kl. 13.30. Söngur, spil, spjall og handavinna. Veitingar í lok samverustundarinnar. „Kirkju- krakkar" í Rimaskóla. Börn 7-9 ára kl. 17-18. KFUM íyrir drengi 9-12 ára kl. 17.30-18.30. Æskulýðsstarf fyrir 8. og 9. bekk kl. 20-22 í kirkj- unni. Hjallakirkja. Bæna- og kyn’ðar- stund kl. 18. Prédikunarklúbbur presta kl. 9.15 í umsjá dr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar. Kópavogskirkja. Mæðramorgunn í safnaðarheimilinu Borgum í dag kl. 10-12. Frikirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 7-9 ára börn frá kl. 17-18.30 í safnaðarheimilinu, Linnetstíg 6. Vídalínskirkja. Opið hús fyi’ir eldri borgara í Kirkjuhvoli milli kl. 13 og 16 alla þriðjudaga í sumar. Vfðistaðakirkja. Opið hús fyrir 8-9 ára börn kl. 17-18.30. Aftansöngur og fyrirbænir kl. 18.30. Hafnarfjarðarkirkja. TTT-starf fyr- ir 10-12 ára kl. 17-18.30 í Vonarhöfn Strandbergs. Ki-istin íhugun í Stafni, kapellu Strandbergs, kl. 21.30-22. Heimsborgin - Rómverjabréfið, lest- ur í Vonarhöfn kl. 18.30-20. Grindavíkurkirkja. Foreldramorg- unn kl. 10-12. Borgarneskirkja. Mömmumorgunn í safnaðarheimilinu milli kl. 10 og 12. Helgistund í kirkjunni sömu daga kl. 18.30. Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl. 16-17 kirkjuprakkarar (7-9 ára) hefja starfið að nýju á nýju ári. Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í Hlíðasmára 5. Allir vel- komnir. &ui//kyV Brúðhjón Allur boröbúnaöur - Glæsileg gjafavara - Briiöhjónalistar /VityVyV-. VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244. Taktu fyrsta skrefið Internetinu Ef þú ert að hugsa um að koma þaki yfir höfuðið geturðu gert þitt eigió bráðabirgðagreiðslumat á Internetinu. Með því að fara inn á slóðina www.ibudalanasjodur.is, geturðu á einfaldan og skilvirkan * hátt reiknað út h»e,su dýra íbúðalánasjóður fasteign þú ræður við að kaupa. Opnar dyr að eigin húsnæði Suðuriandsbraut 24 | 108 Reykjavík I Stmir 569 6900 | Fax: 569 6800 | www.ibudalanasioduEÍs ÁHUGAFÚLK um bætt kjör aldraðra siúkra og öryrkja: Munið LANDSÞINGIÐ 23. - 24. jan. að Borgartúni 6 [Rugbrauðsgerðinl. , FRJALSLYNDI nDMKURINN v Vlðbooumbreytingar Hlíðasmári 10, 200 Kópavogur. Sími 564-6050. Fax 564-2090. Netfang: frjalslyndiflokkurinn@centrum.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.