Morgunblaðið - 19.01.1999, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1999 47
+ Þorsteinn Þor-
steinsson var
fæddur í Reykjavík
hinn 9. september
1944. Hann lést í
Sjúkrahúsi Suður-
lands 3. janúar síð-
astliðinn og fór út-
för hans fram frá
Selfosskirkju 9. jan-
úar.
Látinn er ágætur
vinur minn og sam-
ferðamaður til margra
ára, Þorsteinn Þor-
steinsson, eða Steini
Þorsteins, eins og við kölluðum
hann gjarnan. Það er 614311 að
sætta sig við þá hugsun að Steini
Þorsteins sé farinn, hann sem
aldrei lét sig vanta þegar kosningar
vora framundan og þjóðmálaum-
ræðan var í hámarki. En það verð-
ur ekki við allt ráðið, Steini barðist
hetjulegri bai-áttu við illvígan sjúk-
dóm sem lagði hann að velli langt
um aldur fram, á nýbyi'juðu ári.
Okkar leiðir lágu fyrst saman
gegnum knattspyrnuna á Selfossi á
árunum 1964-65. Steini var eins og
aðrir ungir menn á þessum áram
áhugasamur um knattspyrnu, bæði
sem leikmaður og síðar sem stjórn-
armaður. Það var mjög þægilegt að
starfa með Steina að stjórnarstörf-
um í knattspyrnuráði. Hann var
úrræðagóður og reyndist góður fé-
lagsmálamaður og átti m.a. sinn
þátt í að ná fram deildaskipting-
unni árið 1971, innan Ungmennafé-
lags Selfoss.
Við áttum margar góðar stundir
saman á þessum vettvangi, á fund-
um og sérstaklega á nokkrum
minnisstæðum knattspyrnusam-
bandsþingum. Árið 1980 liggja leið-
ir okkar saman á ný, nú á vettvangi
stjórnmálanna. Steini var mikill
sjálfstæðismaður og
gegndi mörgum trún-
aðarstörfum lýrir
sjálfstæðisflokkinn.
Hann var í stjórn Fé-
lags ungra sjálfstæðis-
manna, formaður
sj álfstæðisfélagsins
Oðins, Selfossi, sat í
nefndum bæjarins fyr-
ir flokkinn, átti sæti í
fulltrúaráði og kjör-
dæmisráði flokksins,
einnig sat Steini
marga landsfundi. Það
var ánægjulegt að fá
að fylgjast með Steina
í hinu pólitíska starfi, hann var af-
skaplega glöggur maður, minnugur
og þekkti marga og hafði oft gott
til málanna að leggja. Hann var lít-
illátur á sjálfan sig, en hvetjandi til
annarra og ólatur að gefa góð ráð
og hjálpa til.
Eg veit að ég tala fyrir hönd
margra sjálfstæðismanna, sem
munu sakna nærveru hans í því
starfi sem framundan er. Fyrir síð-
ustu alþingiskosningar starfaði
hann á skrifstofu flokksins og skil-
aði því starfi með miklum sóma. Eg
er ekki í nokkrum vafa um að hann
mun fylgjast grannt með fram-
gangi stjórnmálanna úr fjarlægð
að þessu sinni, þegar vora tekur.
Þorsteinn gegndi mörgum trúnað-
arstörfum innan sinnar starfsstétt-
ar, var m.a. formaður Félags raf-
iðnaðarmanna á Suðurlandi í ára-
tug. Ég vil með þessum fátæklegu
orðum þakka Þorsteini Þorsteins-
syni framlag hans til félagsmála á
Selfossi. Við erum öll þakklát fyrir
störf hans og dugnað, en hann tók
ávallt virkan þátt í þeim störfúm
sem hann tók að sér. Að lokum
langar mig að þakka Steina góð
kynni, gott samstarf og góðan
stuðning.
Ég votta eiginkonu hans, sonum
og aðstandendum öllum mína
dýpstu samúð og vona að góður
Guð veiti þeim styrk í sorginni.
Minningin um góðan dreng mun
lifa.
Björn Ingi Gíslason.
Kveðja frá
sjálfstæðisfélaginu Óðni
Við leiðarlok langar okkur félag-
ana í sjálfstæðisfélaginu Oðni á
Selfossi að þakka allar þær góðu
stundir sem Þorsteinn veitti okkur
með nærveru sinni og krafti, og
fyrir mikil og góð störf í þágu fé-
lagsins. Þorsteinn vai- félagi í Óðni
um áratugaskeið. Faðir hans Þor-
steinn Sigurðsson var lengi for-
maður félagsins, og seinna tók Þor-
steinn sonur við því hlutverki, en
hann var formaður félagsins á ár-
unum 1972-1973.
Kosningar vora Þorsteini hug-
leiknar og fór hann þá jafnan á
kostum og hleypti lífi í starfíð.
Hann þekkti alla Selfyssinga og
skarpskyggni hans og pólitískt inn-
sæi var með ólíkindum. „Þessi er
okkar“ var stundum viðkvæðið
þegar verið var að fara yfír kjör-
skrár til að athuga hverja ætti að
hringja í. Þú átt að hringja í þenn-
an og þessi í þessa, hann kunni
þetta allt saman. Þetta var okkur,
sem störfuðum í þessu, ómetan-
legt, og er nú skarð fyrir skildi.
Það kom reyndar strax í ljós í síð-
ustu sveitarstjómarkosningum að
Þorstein vantaði, hann tók reyndar
þátt eftir bestu getu frá sjúkrabeði
og helsjúkur kom hann á kjördag
upp í sjálfstæðishús. Þess æðru-
leysis og þeirrar karlmennsku
verður lengi minnst.
Fyrir hönd Óðins færum við fjöl-
skyldunni dýpstu samúð og biðjum
Guð að styrkja hana í sorg sinni.
Guðrún Jóhannsdóttir,
form. Óðins,
Ólafur Björnsson,
fyrrv. form. Óðins.
ÞORSTEINN
ÞORSTEINSSON
+ Þuríður Guð-
inundsdóttir
(Gógó) fæddist á
Karlsstöðum í
Vaðlavík í Helgu-
staðahreppi 31.
október 1920. Hún
lést á Landspítalan-
uin 31. desember
síðastliðiun og fór
útför hennar fram
frá Fossvogskirkju
11. janúar.
Gógó var ung þegar
hún fór frá Karlsstöð-
um. Hún var vinnu-
kona hjá ýmsu fólki á Norðfirði og
víðar. Hún varð fyrir því óhappi
þegar hún var ung að handleggs-
brotna. Það var mjög vont brot og
varð hún aldrei söm eftir það.
Þessu þurfti hún bara að lifa með.
Gógó var ráðskona við vertíðarbáta
sem gerðir voni út frá Hornafirði.
Guðbrandur og Gógó fluttu til
Reykjavíkur og bjuggu í Herskála-
kampi við Suðurlandsbraut. Þá var
nú öðruvísi aðstaða í Reykjavík en
er í dag. Þá þurfti að sækja allt
vatn sem þurfti að nota fyrir heim-
ilið og fara með allan þvott suður í
þvottalaugar. Ég sem þetta rita
var tímabil hjá þeim. Nútímakon-
um fyndist það erfítt.
Svo taka þau sig upp og flytjast
að Melabergi við Sandgerði. Þar
eru þau með kúabú. Þegar þau
voru búin að vera þar góðan tíma,
þá veikist Gógó. Var flutt til Akur-
eyrar, þar sem hún gekkst undir
eifiðar aðgerðir. Þá þurfti að koma
börnunum fyrir. Þau fóru til fóður-
ömmu og móðurömmu. Gógó náði
svo með tímanum allgóðri heilsu og
börnin tekin heim. Svo kom að því
að þau skilja Guðbrandur og Gógó.
Fer hún til Reykjavík-
ur með börnin og bjó
ein eftir þetta með
börnin.
Það er sárt að
kveðja hana Gógó fóst-
ursystur því það var
alltaf svo gott sam-
starf á milli okkar. Það
er sagt svo að tíminn
græði öll sár, en í dag
eru það góðar minn-
ingar sem hún skilur
eftir.
Gógó var myndar-
kona til allra verka, en
saumaskapur var
hennar áhugamál. Hún fór á nokk-
ur námskeið en það var eins og hún
væri fædd með þessa hæfileika.
Hún hafði mjög gaman af að
skemmta sér. Hún elskaði að dansa
og var hrókur alls fagnaðar þar
sem hún var. Hún átti líka góða
vini, karla sem konur. Hún vann
lengi á Þórskaffí og víða á
skemmtistöðum. Eins vann hún við
húshjálp. Það var mjög gestkvæmt
heima fyrir og alltaf nóg pláss að
hýsa fólk. Mín fjölskylda fór ekki
varhluta af því að gista þar. Við
fóstursysturnar áttum það sameig-
inlegt að hafa gaman af því að ferð-
ast um landið. Eftir að ég eignaðist
bíl gátum við komið því við að ferð-
ast um landið.
Við áttum sömu ömmuna sem
var ættuð úr Meðallandinu. Við
tókum okkur saman þrjár ásamt
föður mínum og fórum á æskuslóð-
ir ömmu. Það var ógleymanleg
ferð. Það var alls staðar svo vel
tekið á móti okkur. Einu sinni tók-
um við okkur til og fórum út í
Grímsey. Gógó kom fljúgandi frá
Reykjavík til Akureyrar, en ég var
mætt á bílnum á vellinum. Fórum
við svo fljúgandi til Grímseyjar.
Vorum þar í tjaldi í þrjá daga. Þeg-
ar upp á land var komið þá var
keyrf um Norðurland og síðan
haldið heim til mín og var Gógó vön
að dvelja hjá okkur hjónunum á
sumrin þegar heilsa hennar leyfði.
En oft var það svo að hún var
heilsubetri fyrir austan en í
Reykjavík. Við vorum búnar að
fara í marga steinaleiðangra. Oft
var komið með fallega gersemi.
Elsku fóstursystir hafði yndi af
kristalsvösum og styttum. Hún var
svo lagin við það að koma þessu
fyrir alveg á dásamlegasta máta
þótt plássið væri ekki mikið. Og
gamla hluti gat hún gert sem nýja.
Ég kom til hennar í ágúst sl. sum-
ar. Þá var hún sæmilega hress. Svo
ég fékk mér bíl og við fórum út að
versla. Þegar ég kom til hennar 14.
desember þá var hún á hjartadeild
Landspítalans en búin að ná sér
eftir eitt kastið. Þá sagði hún við
mig að þau hefðu komið sér vel inn-
kaupin okkar til blessaðra barna-
barnanna. Þau fengu sína jólagjöf.
Ég veit að ég tala fyrir hönd
bai-na Gógóar, tengdabarna og
barnabarna þegar ég segi að hún
hafí verið einstök sem móðir,
tengdamóðir, amma og langamma.
Hún bar umhyggju fyrir þeim öll-
um og reyndi eins og kostur var að
gleðja hópinn sinn ásamt öðrum
sem þurftu þess með.
Elsku Gógó, hafðu þökk fyrir allt
gott. Hvíl þú í friði við hlið móður
og ömmu á þínum æskuslóðum.
0, Drottinn lát þú ljóma
þitt ljós í vorri sál
og hjörtun enduróma
þitt elsku dýrðarmál.
Með sálaraugum sjáum
að svip þinn berum vér
og ætíð fundið fáum
þinn frið á jörðu hér.
(V.J.)
Blessuð sé minning þín.
Þín fóstursystir,
Þóra Ólöf.
ÞURIÐUR
GUÐMUNDSDÓTTIR
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma
PÁLÍNA VALGERÐUR
ÞORSTEINSDÓTTIR
frá Hlíð
í Álftafirði,
verður jarðsunginn frá Súðavíkurkirkju laugar-
daginn 23. janúar kl. 14.00.
Kveðjuathöfn verður í Fossvogskapellu
fimmtudaginn 21. janúar kl. 13.30.
Ragnheiður Ragnarsdóttir,
Erla Ragnarsdóttir,
Jón Ragnarsson,
Þóra Ragnarsdóttir,
Ásdís Ragnarsdóttir,
Bragi Ragnarsson,
Kjartan Ragnarsson,
Svanur Jóhannesson,
Sigurður Guðjónsson,
Ásthildur Torfadóttir,
Magnús Steindórsson,
Hjalti Samúelsson,
Bryndís Jóhannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ÓLAFAR MATTHÍASDÓTTUR,
Kópavogsbraut 1b,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð,
fimmtudaginn 14. janúar sl., fer fram frá Foss-
vogskirkju fimmtudaginn 21. janúar kl. 13.30.
Stefán Svavars,
Þorsteinn J. Stefánsson, Margrét Kristjánsdóttir,
Svavar Stefánsson, Auður B. Kristinsdóttir
og fjölskyldur.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
JÓHANNA MARÍA HAFLIÐADÓTTIR,
Kópavogsbraut 1,
er lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlið þriðju-
daginn 12. janúar, verður jarðsungin frá Lága-
fellskirkju á morgun, miðvikudaginn 20. janúar,
kl. 13.30.
Hafliði Örn Björnsson, Maja Guðmundsdóttir,
Hilmar Þór Björnsson, Svanhildur Sigurðardóttir,
Steinunn Ásta Björnsdóttir, Jón Frímann Eiríksson,
Sigríður Birna Björnsdóttir, Steen Haugaard,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Við þökkum af alhug öllum þeim, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÁSFRÍÐAR GÍSLADÓTTUR
frá Viðey,
Hæðargarði 29.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarþjón-
ustu Karitas fyrir góða umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Þorvaldur ísleifur Helgason,
Haukur H. Þorvaldsson,
Málfríður Á. Þorvaldsdóttir,
Helgi Þorvaldsson,
Margrét Þorvaldsdóttir,
Þorvaldur í. Þorvaldsson,
Sigurður Þorvaldsson,
Guðleif Sigurðardóttir,
Stefán Pálsson,
Aileen A. Þorvaldsson,
Guðmundur Gíslason,
Hrefna Brynjólfsdóttir,
Guðrún S. Reynisdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við
andlát og útför systur okkar,
GUÐFINNU JÓNSDÓTTUR,
Bakkagerði 9,
Reykjavík.
Systkini og aðrir vandamenn.