Morgunblaðið - 19.01.1999, Síða 18
Stórhríð í
fjörutíu
klukku-
stundir
Vaðbrekku, Jökuldal - Stór-
hríð, sem stóð í 40 klst., gekk
yfír Jökuldal og nágrenni um
helgina. Hríðin byrjaði upp úr
hádegi á föstudag og gekk
ekki niður fyrr en á sunnu-
dagsmorgun.
Veður hélst gott á sunnudag
og þá var góð aðstaða til að
líta á ummerki eftir hana.
Ekki virðist hafa komið mikill
snjór í allri þessari hríð, en
mikil veðurhæð var allan tím-
ann svo snjóinn skóf og nú má
segja að slétt sé af öllu.
Fært er um vegi fyrir mikið
breytta jeppa sem fljóta ofan
á snjónum en vegurinn var
ruddur á mánudag fyrir aðra
bfla vegna þess að þó að mesta
snjóinn hafi skafið af veginum
hefur sett í nokkra stóra
skafla.
Ekki tjón á mannvirkjum
Ekki varð tjón á eignum
manna hér á svæðinu en sím-
inn datt út á efra Jökuldal í
nokkrar klst. á sunnudags-
morgun en var kominn í lag
um nónbil eftir að viðgerðar-
menn komu frá Egilsstöðum
svo ekki var sambandslaust
nema í 6-10 klst.
MORGUNBLAÐIÐ
18 PRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1999
LANDIÐ
Morgunblaðið/Halldór Gunnarsson
VIGFÚS Andrésson, bóndi í Berjanesi.
Fárviðri og 17 vind-
stig undir Eyjafjöllum
Rúður brotnuðu og
plötur losnuðu
Fagradal - Pakjám losnaði af íbúð-
arhúsi á bænum Presthúsum í
Reynishverfi í Mýrdal þegar sem
hvassast varð þar um hádegisbil
síðastliðinn laugardag. Menn frá
björgunarsveitinni Víkverja í Vík
voru kallaðir á staðinn og náðu þeir
að festa járnið niður.
Ymislegt tjón varð í Vík og ná-
grenni í rokinu á laugardag. Þannig
brotnuðu rúður í íbúðarhúsi í Vík,
allar rúður í tveimur bflum í eigu
sama mannsins brotnuðu og nokkr-
ar rúður í fjórum öðrum bflum, rúð-
ur og plast á gróðurhúsum
skemmdist og rusladallar fuku um.
Á þessum slóðum varð þó hvergi
stóralvarlegt tjón.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
MENN frá björgunarsveitinni Víkverja í Vík festa niður
járnplötur á Presthúsuni í Reynishverfi.
Holti - Að kveldi föstudags skall á
ofsaveður undir Eyjafjöllum, eink-
um undir Austur-Eyjafjöllum og
jókst veðurhamurinn þannig að að-
faranótt laugardags náði vindhrað-
inn mest 17 vindstigum í vindhvið-
unum samkvæmt vindmæli í Stein-
um. Veðurhamurinn hélst fram á
sunnudag og fauk víða til skaða,
húsþök, vélar og bifreiðar. Raf-
magnslaust var í um 20 klst. undir
Austur-Eyjafjöllum vegna þess að
sex rafmagnstaurar brotnuðu ná-
lægt Hrútafelli.
Brynjar Svansson, viðgerðarmað-
ur hjá rafmagnsveitunni, sagði að
þegar á laugardeginum hefði verið
reynt við viðgerðir, staurum hefði
verið komið út, en kl. 6 um kvöldið
hefðu viðgerðarmenn orðið frá að
hverfa vegna veðurofsans. Um kl. 5 á
sunnudagsmorgni var hafist handa á
ný við mjög erfiðar aðstæður, útilok-
að hefði verið að komast upp í
staurana í böndum en með tveimur
kranabflumvar talið óhætt að fara
upp og koma línunum á staurana.
Viðgerð lauk eftir hádegi og komst
þá rafmagn á.
í Steinum og að Hvassafelli, þar
sem bræðurnir Sigurjón og Magnús
Pálssynir búa með heimilisfólki sínu,
fauk ofan af hlöðu í heilu lagi aðfara-
nótt laugardags, steyptir veggir
brotnuðu, nær allar vélar og bflar
heimilanna urðu fyrir rúðubrotum
og skemmdum vegna áfoks jám-
platna og ýmissa annarra hluta. Peir
bræður sögðu að þetta væri eitt
versta veður sem þeir myndu eftir
og líklega hefðu verstu byljirnir
komið að kveldi laugardags. „Þá
skalf allt og nötraði í byljunum og
við héldum að húsið færu þá og þeg-
ar,“ sögðu þeir.
Veggir og glerbrot
á víð og dreif
I Berjanesi varð mikið tjón,
steinsteyptir veggir voru á víð og
dreif eins og glerbrot og sagði Vig-
fús Andrésson bóndi að nú væri í
fyrsta skipti uppgjöf hjá honum og
fjölskyldu hans gagnvart þessum
gemingaveðrum sem kæmu eins og
í streng frá fjöllunum yfir heimili
hans og legði allt í rúst. Þetta væri
eins og eftir sprengingu í útihúsun-
um núna. Gluggar í íbúðarhúsinu á
efri hæð með gluggapóstum moln-
uðu og þegar hann reyndi að negla
fyrir einn gluggann varð hann fyrir
slíku útsogi að hlerinn brotnaði og
sogaðist út og hann næstum með.
„Þá var ekkert að gera annað en
að gefast upp og yfirgefa efri hæð-
ina“, sagði Vigfús. Hann sagði einnig
að tryggingafulltrúi VÍS á Hvolsvelli
hefði neitað sér um foktryggingu og
því væri hann ótryggður gagnvart
þessu tjóni, útihús ónýt, íbúðarhús
skemmt og vélar gluggalausar og
skemmdar vegna áfoks.
I Vallatúni fauk þak af fjárhús-
hlöðu en bóndinn í Ormskoti, Olafur
Sigurþórsson, hefur nýtt útihúsin
þar. Olafur sagði að þetta veður væri
það versta sem hann myndi eftir,
rúður úr flestum dráttarvélum hans
hefðu brotnað, þótt þær hefðu verið í
því skjóli sem reynt var að finna, göt
væru á rúðum íbúðarhúss eftir
steina, eins og eftir byssukúlur,
hringlaga göt án nokkurra spmngna
og lýsti það að hluta þessum veður-
ham sem þó væri ekki hægt að lýsa
með orðum.
Víða annars staðar urðu bændur
undir Eyjafjöllum fyrir tjóni í þessu
fárviðri, allt að 17 vindstigum sem
ekkert íslenkt orð nær yfir.
Snjóflóðahættan liðin hjá
FARFUGLAHEIMILI í jaðri
Seyðisfjarðar var opnað aftur á
sunnudag eftir að hafa verið
rýmt vegna snjóflóðahættu um
helgina. Sextán pólskir farand-
verkamenn, sem búa á farfugla-
heimilinu og fengu inni í sum-
arhúsum Seyðfirðingafélagsins
á meðan snjóflóðahættan var
yfirvofandi, hafa því komið sér
fyrir á nýjan leik á farfugla-
heimilinu.
Oveður ger-
ir usla í
Skagafírði
Sauðárkróki - Þegar snjóraðnings-
menn á Siglufjarðarleið komu að
bænum Krossi í Óslandshlíð rétt íyr-
ir klukkan átta á sunnudagsmorgni
var ljóst að veralegt snjóflóð hafði
fallið úr hlíðinni fyrir ofan bæinn.
Hafði það að mestu stöðvast við veg-
inn en þó farið lítillega yfir hann.
Ljóst var að þarna höfðu allmörg
hross lent í flóðinu sem hafði einnig
sópað með sér öllum girðingum á
stóru svæði og tvístrað stæðu af
heyrúllum, á annað hundrað talsins,
sem gengið hafði verið frá rétt ofan
vegarins.
Heimamenn á Krossi fóru þegar
að bjarga hrossunum en flóðið var
um sjö hundruð metra breitt, hafði
tekið 26 hross og voru tvö þeirra
dauð þegar að var komið. Björgun-
arsveitarmenn úr Hofsósi komu
fljótlega á vettvang og fór þá að
ganga fljótar að ná skepnunum og
að sögn Guðjóns Björgvinssonar á
Krossi var því lokið um hádegi.
Ljóst er að um verulegt tjón er að
ræða þar sem girðingar á nokkurra
kílómetra kafla eyðilögðust og bróð-
urparturinn af heyinu er stór-
skemmdur eða ónýtur, auk hross-
anna sem drápust.
Þá sökk trilla í höfninni á Hofsósi
og er talið að ísing hafi hlaðist svo
mjög á hana að hún hafi loks sokkið
undan þeim þunga.
Morgunblaðið/Björn
TRILLA sökk undan ísingu í
höfninni á Hofsósi.
-----------------
Snjóflóð í
Dalsmynni og
Fnjóskadal
UM 700 metra breitt snjóflóð féll í
Dalsmynni í Fnjóskadal, við bæinn
Þverá og yfir Fnjóská og að eyðibýl-
inu Skuggabjörgum handan árinnar.
Erlingur Ai-nórsson bóndi segir tjón
einkanlega á girðingum og skóglendi
en flóðið féll hvorki á hús né olli slys-
um á fólki.
Erlingur segir mikinn snjó hafa
safnast í hlíðina ofan við bæinn og
þaðan falli iðulega lítil flóð. Hér var
um flekaflóð að ræða og segir hann
það hafa sópað með sér birkitrjám
úr hlíðinni sín megin og það síðan
náð inn í skógræktargirðingu hjá
Skuggabjörgum þar sem skógi’ækt
er stunduð. Talið er að flóðið hafi
fallið aðfaranótt sunnudagsins. Það
varð að fá aðstoð frá næsta bæ til að
moka snjó frá íbúðarhúsinu hjá Erl-
ingi svo heimilisfólkið kæmist út.
Þá féllu flóð innarlega í Fnjóskadal,
nálægt Þórðarstöðum, þar sem mikið
er um orlofshús í eigu stéttarfélaga
og fyi-irtækja. Virðist flóðið ekki hafa
valdið tjóni á mannvirkjum. Sérfræð-
ingar Veðurstofu íslands könnuðu
flóðin í gær og halda því áfram í dag.
Snjóflóðavakt var alla síðustu helgi á
Veðurstofu Islands. Eru þá lögregla,
Vegagerðin og almannavamaráð á
viðkomandi stöðum upplýst um stöð-
una. Vakt var vegna snjóflóðahættu
um helgina á Seyðisfirði, Siglufirði og
í Neskaupstað.