Morgunblaðið - 19.01.1999, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1999 21
VIÐSKIPTI
Morgunblaðið/Golli
BJÖRGÓLFUR Thorsteinsson segir miklar breytingar hafa orðið í
íslensku ijármálalífí og því spennandi verkefni framundan hjá FBA.
FBA stofnar dótturfyrirtækið
FBA-Ráðgjöf
Stoð um ummæli Steingríms Her-
mannssonar, stjórnarformanns Remex
Engar viðræður
eða samstarf
VEGNA fréttar í blaðinu fyrir helgi
um fyrirtækið Remex vill Sveinn
Finnbogason stjórnarfonnaður Stoð-
ar hf. koma því á framfæri að Stoð hf.
á ekki í neinu samstarfi við Remex
eða Stoðtækni Gísla Ferdinandsson-
ar ehf. eins og stjórnarformaður
Remex gefur í skyn í fréttinni.
I Morgunblaðinu segir Steingrím-
ur Hermannsson stjórnarfoi-maður
Remex að ætlunin sé að sameina
undir einu merki sölu á framleiðslu
Stoðar hf. og stoðtækni Gísla
Ferdinandssonar ehf. á erlendum
markaði, en síðarnefnda fyrirtækið
er stór hluthafi í Remex. „Þessi fyr-
irtæki í Flórída munu ásamt fleiri
erlendum aðilum framleiða og mark-
aðssetja undir einu merki fullkomin
stoðtæki og íþróttavörur sem fyrir-
byggja meiðsl,“ sagði Steingrímur í
blaðinu.
Sveinn segir að þessi ummæli
Steingríms komi sér á óvart. Hann
segir að engar viðræður hafi farið
fram á milli fyrirtækjanna síðastlið-
in tvö ár. „Við höfum rætt við þessi
fyrirtæki, og Össur hf. líka, um
hugsanlega sameiningu eða sam-
starf en því er öllu lokið og engar
formlegar viðræður hafa farið fram
sl. tvö ár,“ sagði Sveinn.
Hann sagði að Stoð hf. væri fyrst
og fremst þjónustufyrirtæki og því
miðist öll framleiðsla hjá fyrirtæk-
inu við að smíða og aðlaga stoðtæki
fyrir þá þrjúþúsund einstaklinga
sem leita til þess á hverju ári. „Til
þess veljum við þau tæki og aðferðir
sem henta hverjum einstaklingi
best.“
Hann sagði að ef farið yrði fram á
samstarf við Stoð yrði það skoðað
innan stjórnar fyrirtækisins.
MECALUX
Bjóðum mjög hentuga fataskápa.
Aðeins vönduð vara úr gæðastáli.
Mjög gott verð!
Þjónusta ■ Þekking ■ iáðg|öf ■ Aratuga reynsla
MECALUX
- gæði fýrir gott verð
, UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
t-'/v/otycvj- uu nciLuvcn^LUivm
Siraumvr shi
SUNDABORG 1 • SlMI S68-3300
Sérhæft í ráðgjöf
vegna samruna
og yfírtöku
FJÁRFESTINGARBANKI at-
vinnulífsins hf. hefur stofnað FBA-
Ráðgjöf hf. sem tekur að sér ráð-
gjöf vegna samruna, yfirtöku og
sölu fyrirtækja á Islandi og erlend-
is. Hefur Björgólfur Thorsteinsson,
verið ráðinn framkvæmdastjóri, en
hann var áður framkvæmdastjóri
hjá Bank of Tokyo-Mitshubishi í
London.
FBA-Ráðgjöf annast einnig til-
lögugerð um leiðir til fjármögnunar
stórra og flókinna verkefna og ráð-
gjöf um endurskipulagningu fyrir-
tækja sem stefna að skráningu á
markaði. Hyggst fyrirtækið taka að
sér verkefni fyrir íslenska sem er-
lenda aðila og starfa að innlendum
og fjölþjóðlegum verkefnum.
Björgólfur segir að verkefni FBA
á sviði samruna og yfirtöku fyrir-
tækja séu mörg og fari fjölgandi.
Hann segir verkefnin hafi fram til
þessa verið unnin af sérfræðingum
bankans á markaðsviðskiptasviði og
í fyrirtækjaþjónustu, en vegna vax-
andi umsvifa muni bankinn leggja
aukna áherslu á slíka þjónustu með
stofnun hins nýja dótturfyrirtækis.
„Sérfræðingar FBA munu vinna
áfram að verkefnum í sérstökum
verkefnahópum í samvinnu við
FBA-Ráðgjöf, en starfsemi fyrir-
tækisins verður aðgreind meira frá
annarri starfsemi bankans í trúnað-
arskyni við viðskiptavini og til að
hindra hagsmunaárekstra," segir
Björgólfur. Að hans sögn búa sér-
fræðingar FBA yfir mikilli alþjóð-
legri þekkingu og með stofnun
FBA-Ráðgjafar geta viðskiptavinir
enn betur notið góðs af reynslu
þeirra.
Reynslan kemur að
góðum notum
Björgólfur, sem hóf störf hjá
FBA-Ráðgjöf skömmu fyrir ára-
mót, lauk BA-prófi í hagfræði frá
Macalester í St. Paul í Minnesota og
í rekstrarhagfræði frá The Wharton
School í Fíladelfíu og hefur starfað
hjá þremur fjármálafyrirtækjum í
London frá 1984. Fyrst hjá Scand-
inavian Bank, þá hjá franska fjár-
festingarbankanum Banque Pari-
bas frá 1987-1990 og svo hjá Bank
of Tokyo-Mitshubishi í London frá
1990-1998. Hjá Banque Paribas
vann Björgólfur á sviði yfirtöku og
samruna fyrirtækja og beinna fjár-
festinga í fyrirtækjum innan Evr-
ópulanda, en hjá Bank of Tokyo-
Mitshubishi starfaði hann einkum
við ráðgjöf er varðar kaup jap-
anskra íyrirtækja á evrópskum at-
vinnufyrirtækjum og fjárfestingar
evrópskra fyrirtækja í Asíu. „Mun
þessi reynsla koma að góðum not-
um í tengslum við hin margvíslegu
verkefni sem FBA er falið."
I þau 14 ár er Björgólfur bjó í
Lundúnum segist hann ætíð hafa
átt góð samskipti við Islendinga er
störfuðu í fjármálahverfi borgarinn-
ar. ,Jí síðustu árum hefur Islend-
ingum fjölgað sem hafa leitað fyrir
sér hjá fjármálafyrirtækjum í
London. Nú eru milli 10 og 12 Is-
lendingar starfandi hjá ýmsum fjár-
málafyrirtækjum í hverfinu. Við
höfum í gegnum árin haldið hópinn
og stofnuðum í því markmiði klúbb-
inn „Icelandic City Club“. Hefur
hópurinn komið saman í hádeginu
annan hvern mánuð og leitast við að
bjóða til sín fólki úr umhverfi við-
skipta og stjórnmála á íslandi. Slík-
ir fundir voru gagnlegir fyrir mig
eftir að hafa starfað lengi erlendis."
Viðbrigði að koma heim
Björgólfur segir miklai' breyting-
ar hafa orðið á islensku samfélagi
frá því að hann hóf nám í Banda-
ríkjunum í upphafi síðasta áratugar.
„Eg hef fylgst með Islandi úr fjar-
lægð í gegnum árin en haft fyrir
reglu að koma heim tvisvar á ári. I
hvert skipti hef ég orðið var við
breytingar. Greinilegt er að ein-
angrun landsins er minni en áður og
er það að þakka tíðari flugsamgöng-
um og öflugri fjarskiptum. Einnig
finnst mér íslenskir stjómendur
fyrirtækja mefra meðvitaðir nú um
að þeir þurfi að vera samkeppnis-
færir á alþjóðlega vísu.“
Björgólfur segir mikil viðbrigði
að hefja störf á Islandi eftir að hafa
unnið hjá alþjóðlegum fjármálafyr-
irtækjum, eins og hjá Tokyo-Mits-
hubishi-bankanum, sem hefur
stærsta efnahagsreikning heims
meðal banka og yfir 20 þúsund
starfsmenn um heim allan. „Eg
hafði ætíð hugsað mér að koma aft-
ur heim og fannst kjörið að koma er
mér bauðst starf hjá FBA. Miklar
breytingar hafa orðið á íslensku
fjármála- og efnahagslífi síðustu ár-
in. Islenskur verðbréfamarkaður er
enn að slíta barnskónum en ég tel
að framundan séu mörg spennandi
verkefni er lúta að alþjóðlegri starf-
semi íslenskra fyrirtækja og fjár-
festingum erlendra fyrirtækja hér á
landi.“
ER FYRIRTÆKIÐ
ÞITT OPIÐH
I FYRIR KflH
INNBROTUM?
Innbrotsþjófar gerast nú æ bíræfnari í að sigta út þau fyrirtæki,
þar sem allur aðbúnaður er eins og best verður á kosið, að þeirra mati.
Gerðu strax ráðstafanir til að tryggja að þessir menn sniðgangi þitt fyrirtæki.
Kostnaðurinn, samfara örygginu, er aðeins brot af skaðanum sem þ eir geta valdið.
Securitas býður nú fyrirtækjum að fá að láni fullkomið öryggiskerfi,
alsjáandi auga sem hleypir engum óboðnum gesti inn. Fyrir kerfið sjálft
og uppsetningu þess þarf ekkert að borga en mánaðarlegt þjónustugjald
felur í sér útköll og þjónustu við kerfið allan sólarhringinn.
skynjurum og sírenu.
Kerfið er sett á með einu
handtaki þegar fyrirtækið er
yfirgefið og er síðan tengt við
stjórnstöð Securitas sem er
ævinlega í viðbragðsstöðu.
Heimavörn og Firmavöm
eru vörumerki Securitas.
Síðumúla 23-108 Reykjavík • sími 533 5000 • fax 533 5330 • mtfatig sala@securitas.is • heimaslóð unvw.securitas.is