Morgunblaðið - 19.01.1999, Síða 22

Morgunblaðið - 19.01.1999, Síða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR T 1 fcELANDIC / íslenskar fyrirsætur Er þetta þitt tækifæri? Við kynnum módel/fyrirsætunámskeið sem hefjast fimintud. 21. janúar og eru í 6 vikur/12 kennslustundir • Hvernig ná má árangri • Hvað veistu um myndatökur? Ljósmyndari frá New York kennir • Hver nemandi fær video-bók Nýkaupsverslun í Spöngina Ahersla lögð á tilbúinn mat og ferska vöru Islenskir tómatar komnir í verslanir FYRSTU íslensku tómatarnir komu á markað í gær. Að sögn Kolbeins Ágústssonai- hjá Sölufélagi garð- yrkjumanna er um að ræða mjög takmarkað magn núna fyrstu vik- urnar. „Tómatarnir eru að koma á mark- að viku fyrr en í fyrra. Með hverju árinu sem líður koma þeir fyrr á markað og eflaust er þess ekki langt að bíða að þeir verði á boðstól- um allt árið ef viðunandi raforku- verð fæst. Uppskeran lítur vel út og íslensku tómatai’nir eru allir seldir í bökkum og merktir framleiðanda. Tómatarn- ir sem komnir eru á markað núna eru frá Guðjóni Birgissyni á Melum og það má geta þess að þeir eru ekki tíndir grænir.“ FRAMKVÆMDIR hefjast fljótlega við byggingu Nýkaupsverslunar í Spönginni í Grafarvogi og búist er við að verslunin verði opnuð innan árs. Að sögn Finns Árnasonar, fram- kvæmdastjóra hjá Nýkaupi, verður verslunin á nýju þjónustusvæði í Spöng en Þyrping sér um allar byggingarframkvæmdir á þessu svæði. Þar er einnig gert ráð fyrir þjónustu, eins og hreinsun, mynd- bandaleigu, heilsugæslu og apóteki. „Spöngin er vaxandi hveiil og við teljum að verslun af þessum toga sem býður upp á hátt þjónustustig og ferskleika eigi erindi þangað." Finnur segir að hönnun verslun- arinnar sé á lokastigi. Hún verður í 1.500 fermetra húsnæði og grunn- hugsunin á bakvið þessa búð er sú sama og í öðrum Nýkaupsbúðum sem á að fara að breyta á næst- unni. „Við byrjum á því að breyta Ný- kaupi á Seltjamarnesi. Auk þess sem útliti búðarinnar þar verður gjörbreytt verða áherslurnar aðrar en þær hafa verið til þessa. Með þessum breytingum fá aukið vægi það sem ég vil kalla matarlausnir fyrir viðskiptavini. Um er þá að ræða tilbúinn og hálftilbúinn mat sem þýðir að minni tími en ella fer í matargerðina. í því sambandi má geta þess að við verðum með mikið Ferskt grænmeti vítamínríkt Vítamínin eyðileggjast síður með gufusuðu Morgunblaðið/Júlíus FINNUR Árnason framkvæmdastjóri Nýkaups segir að verslunin í Spönginni verði opnuð innan árs. tilbuinna úrval af kjúklingaréttum og um þessar mundir erum við að vinna að vöruþróunarverkefni með forsvars- mönnum hjá Holtakjúklingi. Afrakstur þeirrar vinnu verður von- andi fleiri nýjar og spennandi út- færslur af kjúklingaréttum.“ Finnur segir að heiti maturinn í Nýkaupi hafi átt miklum vinsæld- um að fagna og nú er sérstakur vöruþróunarhópur að vinna að þró- un heitra, rétta. Þegar hann er innt- ur eftir því hvort þjónustustig starfs- fólks hækki í kjölfar breytinga segir hann að það sé meiningin og sér- stök þjónustunámskeið standa nú yfír fyrir staifsfólk. „Við hefjum framkvæmdir í Ný- kaupi á Seltjamarnesi næstu daga og þeim á að vera lokið í byrjun mars. Þær verða gerðar í fjórum þrepum. „Við byrjum á anddyi-inu, stækkum það og tekin verður ný stefna í búðina þar sem tilbúinn matur verður áberandi og fersk vara, eins og ávextir, grænmeti, kjöt, fiskur, brauð og kökur. Síðan verður ráðist í breytingarnar stig af stigi fram í mars. Næst verður síðan ráðist í breyt- ingar á Nýkaupi í Kringlunni." ö ít usik ÞAÐ er ekki hvað síst á veturna sem okkur veitir ekki af vítamínum í lík- amann. Ferskt grænmeti á að vera ríkt af vítamínum en þó nokkuð getur tapast við matargerð. Spergilkál (brokkolí) inniheld- ur til dæmis C-vítamín og ýmis önnur vítamín og steinefni, t d. bæði A- vítamín, járn og kalíum. En C-vítamínið getur eyðilagst fljótt ef meðhöndlunin er ekki rétt. ~ nýju tölublaði norska neytendarits- ins Forbruker rapporten er talað um að í um 100 grömmum af fersku spergilkáli geti verið um 100 mg af C- vítamíni (L-askorbínsýru). í Forbru- ker rapporten er sagt frá tilraun sem gerð var með mismunandi suðuað- ferðir og vítamínmagnið síðan at- hugað. I ljós kom að eftir að búið er að gufusjóða það í um sjö mínútur er nánast sama magn af C-vítamíni eftir. Sama á við um suðu í ör- bylgjuofni. Vítamíninnihaldið minnkaði á hinn bóginn um helming þegar það var soðið í miklu vatni í potti. Verst kom suðan út þegar frosið spergilkál var soðið í vatni. Þá voru bara um 25% C-vítamíns- ins eftir þegar það kom á kvöldverðarborðið. Sé kálið soðið í vatni borgar sig að nota suðuvatnið í matargerðina, sós- una eða pottréttinn til að njóta vítanu'nanna sem tapast, hafa út í vatnið. Mælt er með að einstakling- ar fái um 60 mg af C-vítamíni daglega og 60 g af spergilkáli innihalda það magn sé það ferskt og rétt matreitt. og Sport Músik og Sport ehf. - Reykjavíkurvegi 60 - Símar 555-2887 og 555-4487 (^mb l.is ALLTAf= G/T-THXSAÐ NÝTl H0TEL SKJALDBREIÐ, LAUGAVEGI 16 NYTT H0TEL A BESTA STAÐ í MIÐB0RGINNI VETRARTILB0Ð Verðfrá kr. 2.700 á mann í 2ja manna berbergi. Morgunverðarblaðborð innifalið. Frír drykkur á veitingabúsinu Vegamótum. Sími 511 6060, fax 511 6070 www.eyjar.is/skjaldbreid . * Choreography, uppsetning á tískusýningu, kennt að setja upp sýningu * Ganga á palli/snúningar, ganga milli borða/posing • Starf fyrirsætunnar, heilsa-, förðun-, viðtöl og fleira m * Erlendir gestakennarar I • Þekkt umboðsskrifstofa frá London sendir fulltrúa sinn til að leita að | nýjum andlitum % * Myndir teknar af öllum í vinnubók, sem þú færð að eiga og þarft að vinna með HAFIN ER LEIT AÐ ELITE-STULKU 1999 - ERT ÞAÐ ÞU? Innritun frá kl. 10-16.00. Upplýsingar í sími 588 7799/588 7727, enigma@islandia.is Skeifunni 7,108 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.