Morgunblaðið - 19.01.1999, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1999 25
Borís Jeltsín lagður inn á sjúkrahús með blæðandi magasár
Tímabært orðið að
forsetinn segi af sér?
Jeltsín Príraakov
Væntanlegir
forsetafram-
bjóðendur halda
sínu striki
Moskvu. Reuters.
NOKKRIR líklegra frambjóðenda
til að leysa Borís Jeltsín Rússlands-
forseta af hólmi sögðu í gær að það
væri ekkert nýtt að hann væri
heilsulaus. Sú staðreynd breytti
engu um pólitíska áætlanagerð
þeirra. Aðrir sögðu rétt að velta fyr-
ir sér hvort ekki væri kominn tími
til að Jeltsín segði af sér.
Jeltsín var færður á sjúkrahús á
sunnudag með blæðandi magasár.
Læknir Jeltsíns sagði í gær að lík-
lega yrði hann á sjúkrahúsinu í
tvær til þrjár vikur, ef magasárið
gi'eri vel, en verki lyfjameðferð ekki
vei á hann kynni að verða nauðsyn-
legt að skera hann upp og þá gæti
sjúkrahússdvölin orðið lengi'i.
Að forsetinn skyldi enn einu sinni
vera frá störfum vegna heilsuleysis
æsti í gær upp vangaveltur um að
hann væri ekki fær um að sitja út
kjörtímabilið, sem lýkur um mitt ár-
ið 2000 og að ef til vill muni forseta-
kosningum verða flýtt.
Segi Jeltsín af sér eða verði hann
dæmdur vanhæfur til að gegna
embættinu og sviptur því verður að
kjósa arftaka hans innan þriggja
mánaða, sem gefur frambjóðendum
lítinn tíma til undirbúnings. En þeir
sem fremst fara í flokki þeirra sem
taldir eru líklegustu forsetafram-
bjóðendurnir sögðu að fregnir af
enn einu krankleikakasti Jeltsíns
breyttu engu um áætlanir sínar.
„Að forsetinn sé heilsuveill er
okkur engin ný tíðindi," tjáði
Gennadí Zjúganov, leiðtogi komm-
únista, blaðamönnum. Hann endur-
tók það sem kommúnistar hafa
lengi haldið fram að Jeltsín ætti að
afsala meiru af völdum forsetans í
hendur forsætisráðherrans, Jev-
genís Prímakovs. Hann sagði einnig
að ríkisstjórnin og þingið ættu að
ræða lausn á því valdatómarámi
sem væri á toppi valdapýramida
rássneska stjórnkerfisins, þar á
meðal möguleikann á að flýta for-
setakosningum.
„Frá því árið 1995 hefur Jeltsín
ekki verið fær um að afkasta einni
einustu heilii vinnuviku," sagði
Zjúganov. „Eftir því sem hann kem-
ur minna nálægt daglegu lífí fólks
og sönnum stjórnmálum, þeim mun
fyrr mun landið ná heilsu á ný.“
Gennadí Zeleznjov,
forseti þingsins - sem
er í Kommúnista-
flokknum en ekki er
búizt við að bjóði sig
fram til forseta, sagði
veikindi Jeltsíns ekki
„breyta neinu um
ástandið í landinu".
Og Júrí Lúzjkov,
borgarstjóri í Moskvu,
sem reiknað er með að
taki þátt í forseta-
framboðsslagnum,
sagði nýjustu veikindi
Jeltsíns ekki koma á
óvart, en hann vakti
máls á því hvort ekki
væri tímabært að Jeltsín segði af
sér. „Forsetinn verður að gera upp
hug sinn,“ sagði Lúzjkov í sjón-
varpsviðtali.
Þinginu verði flutt skýrsla um
heilsufar forsetans
Grígorí Javlinskíj, leiðtogi hins
frjálslynda Jabloko-flokks og til-
vonandi forsetaframbjóðandi, sagði
í dúmunni, neðri deild rússneska
þingsins, að fréttirnar af magasári
Jeltsíns segðu mjög hugsanlega
ekki alla söguna. „Margt bendir til
að aðstæður varðandi heilsufar for-
setans séu alvarlegri nú en venju-
lega,“ sagði hann. „Við teljum
nauðsynlegt að forsætisráðherrann
gefi [þinginu] skýrslu innan sólar-
hrings þar sem raunverulegu
heilsufarsástandi forsetans er lýst,
hæfni hans til að stjórna landinu og
hver muni taka mikilvægar ákvarð-
anir.“
Reuters
Krónprins
Spánar
í Brussel
FELIPE de Borbon, ríkisarfi
Spánar, heimsótti í gær höfuð-
stöðvar Evrópusambandsins
(ESB) á fimm vikna ferð sinni um
Evrópu. Hér brosir hann framan
í myndavélarnar ásamt Jacques
Santer, forseta framkvæmda-
stjórnar ESB, í Breydel-bygging-
unni í Brussel, en þar eru æðstu
stjórnarskrifstofur framkvæmda-
stjórnarinnar til húsa.
Oskar Lafontaine á fjármálaráðherrafundi ESB
Baráttan g’egn atvinnu-
leysi efst á dagskrá
Brussel. Reuters.
BARÁTTAN við
atvinnuleysis-
drauginn verður
efst á dagskrá
formennskumiss-
eris Þjóðverja í
ráðherraráði Evr-
ópusambandsins
(ESB), að því er
Oskar Lafontaine, fjármálaráð-
herra Þýzkalands, sagði á fundi
með starfssystkinum sínum frá öll-
um ESB-löndunum í Brussel í gær.
Lafontaine skýrði á fundinum
frá verkefnadagskrá þýzka for-
mennskutímabilsins, sem lýkur um
mitt árið. Hann lagði enn og aftur
áherzlu á að hann væri staðráðinn í
að leika virkt hlutverk í að þróa
nýtt kerfi alþjóðlegra fjármálavið-
skipta, sem verði verði ekki eins
berskjaldað fyrir sveiflum og það
kerfi sem nú er við lýði.
„Við viljum koma á skilvirkum
alþjóðlegum samningum sem
hjálpa til við að bægja óróa frá
fjármálamörkuðum heimsins,“
sagði Lafontaine í ljósi fjár-
málakreppunnar sem nú er riðin
yfír í Brasilíu.
Hann lagði þó mesta áherzlu á
að Evrópuríkin nýttu sér það tæki-
færi sem vel heppnuð stofnun
Efnahags- og myntbandalagsins
(EMU) um áramótin skapaði með
því að stíga frekari skref í sam-
runaþróun Evrópu, einkum og sér í
lagi með því að efla um allan helm-
ing aðgerðir til að draga úr at-
vinnuleysi í álfunni. Á að gizka 18
milljónir þegna ESB eru atvinnu-
lausir.
Háð kringumstæðum
,jVð bæta atvinnuástandið er al-
gjört forgangsatriði þýzka for-
mennskumisserinsins. Við getum
þá aðeins náð árangri í þessari bar-
áttu ef efnahagslegar aðstæður í
umheiminum eru hagstæðar og ef
efnahagshorfur í Evrópu lofa
góðu,“ sagði Lafontaine.
Meiriháttar
....... „ *Y
m * $ ' & * ♦ ' d * # *0 *.
&•#♦’* y * v * y * y * v • v
SOFASETT
aðeins eitt í gerð
STOLAR
BORÐ
SKAPAR
SKENKAR
/ /
MEXICO-
HÚSGÖGN
SPEGLAR
LAMPAR
Húsgagnadeild
íJM
RISTALL
Faxafeni