Morgunblaðið - 19.01.1999, Síða 35

Morgunblaðið - 19.01.1999, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1999 35 iefur rekið fiskmarkaðinn í Bremerhaven í rúmt ár Morgunblaðið/Karl SAMUEL Hreinsson stendur í vöruskemmu fiskmarkaðarins við Islandsbryggju í Bremerhaven. og þar hóf Samúel feril sinn í Þýska- landi. „Að meðaltali fara hér í gegn þús- und tonn á mánuði," sagði hann um markaðinn 1 Bremerhaven. „Þar af er karfi 75 til 80% og næst kemur ufsi.“ Verð á markaðnum í Bremerhaven hefur hækkað frá því að Samúel tók við rekstri hans. „Það fer í taugarnar á öllum,“ sagði hann. „Hækkunin er mjög ná- lægt 10%. Síðan við tókum tölvukerf- ið í notkun hafa um þúsund tonn ver- ið seld út fyrir Þýskaland, mest til Frakklands, en einnig Belgíu. Það er athyglisvert með þessi lönd utan Þýskalands að þegar verðið fer yfir 3,20 mörk detta þeir út sem kaupend- ur því að þeir koma því ekki frá sér, en undir þessu verði kaupa þeir veru- lega mikið. Þetta hefur hins vegar breytt því að á markaðnum verður ekki frítt fall eins og áður. Þegar þessir aðilar sjá að verðið byrjar að lækka fara þeir að kaupa og þannig stöðvast verðlækkunin.“ Æfir að sjá fiskinn hverfa við nefið á sér Hann sagði að þessir aðilar keyptu oft svo mikinn fisk að fiskkaupendur á staðnum væru æfir af að sjá hann hverfa við nefið á sér. Nú væri spurn- ingin hvernig sölukerfið myndi reyn- ast í upphafi árs. Helsti fisksölutím- inn væri frá áramótum og fram að páskum. „Kerfið var sett upp í júlí, en áður seldum við með gamla laginu," sagði Samúel. „Nú kemur í ljós hvernig kerfið reynist." Hann sagði að þetta nýja kerfi, sem nefnist CASS, bæri vitni þeim breytingum, sem væru að eiga sér stað í viðskiptum í Evrópu. Fyrir nokkrum árum hefði samkeppnin verið milli hafna. Nú væri þetta ekki einu sinni spurning um einstök lönd: „Þetta er í rauninni allt orðið sameig- inlegur markaður, upplýsingarnar ganga svo hratt á milli að það er ekki lengur hægt að selja fisk á fjögur mörk í Þýskalandi ef hann kostar þrjú mörk í Belgíu. Þetta þýðir held ég það að stórfyrirtækin geta ekki lengur fengið útgerðirnar til að selja sér ódýrt og gera góð kaup. Það er liðin tíð. Þetta hefst með telefaxinu og nú vita allir allt um alla.“ Sölutölurnar á Netinu Hann sagði að hann setti fyrstu sölutölur dagsins inn milli átta og níu á morgnana og mikið væri hringt til að fá verðið því að markaðurinn í Bremerhaven væri orðinn viðmiðun. „Kaupendur voru að koma til okk- ar og spyrja mig hvort ég þyrfti að setja verðið inn,“ sagði hann. „Við- skiptavinur inni í landi hafði þá skellt framan í einn kaupandann að hann væri með miklu hærra verð en á markaðnum. Það varð því umhugsun- arefni fyrir okkur hvort við ættum að setja inn lágmarksverð og hámarks- verð eða meðalverð. A endanum var fyrri kosturinn valinn og ég sagði kaupendum að verðinu yrði haldið inni. Það þýddi ekki að berjast á móti þróuninni. Viðkomandi kaupandi yrði einfaldlega að sannfæra sinn við- skiptavin um að hann hefði keypt besta fiskinn og þess vegna væri hann dýrari." Að sögn Samúels hefur hráefnið batnað mjög samhliða þessari mark- aðsþróun: „Fyrir fjórum fimm árum kom oft mikið af slakari fiski, en með- ferðin á hráefninu er nú orðin miklu betri en áður, kannski með tilkomu minni veiðiheimilda. Það kemur eig- inlega bara orðið góður fiskur, sem þýðir einnig að verðið er stöðugra en áður þegar eitt verð var á slökum fiski og annað á góðum. Þetta gat oft leitt til vandræða þegar verið var að selja fiskinn áfram og sá, sem keypti slakari fiskinn, sagðist einfaldlega hafa gert betri kaup. Fyrir okkur var þetta vandamál því að það var alltaf lága verðið - verðið á slakari fiskin- um - sem dró niður háa verðið." Hann sagði að áður fyrr hefðu ákveðin skip haft gott orð á sér og alltaf fengið gott verð fyrir fiskinn. Þannig hefðu tvö skip getað selt svip- aðan fisk sama daginn og fengið sitt hvort verðið fyrir, en annað hefði not- ið orðsporsins: „Nú hefur þetta breyst töluvert mikið vegna þess að það eru allir orðnir góðir. Það hefur enginn efni á að vera með slakan fisk. Menn geta haft sínar skoðanir á kvótakerfinu á íslandi, en eitt hefur komið út úr því: við fáum miklu betri fisk en áður og getum þjónustað markaði, sem eru langt í burtu, út af því. Þetta var kannski óhugsandi fyr- ir fjórum fimm árum. Þá fóru um 5% af fiskinum í gúanó, en það þekkist ekki nú.“ Minna landað í Bremerhaven Mjög hefur dregið úr umfangi þess afla, sem landað er í Bremerhaven, frá því á síðasta áratug. „Þetta hefur verið á niðurleið frá ‘91 fram á síðasta ár,“ sagði hann. „Þetta er fyrsta árið, sem þetta stendur í stað eða eykst að- eins. Astæðurnar að baki eru ýmsar og erfitt að ráða við þær. Fjölgun verksmiðjutogara er helsta ástæðan - verksmiðjutogarar veiða nú úr kvóta, sem ferskfiskskip nýttu áður. Kannski er önnur ástæða fyrir þeirri þróun, sem byrjaði fyi-ir átta eða níu árum, að karfinn er mjög dýr. Ferskur fiskur er mjög dýr og karfakíló kostar um 30 mörk hér út úr búð en kjúklingur kostar fjögur mörk og nauta- eða svínasteik um átta mörk. Astæðan fyrir því að fisk- urinn er svona dýr er hins vegar ekki sú að hann hafi hækkað svo mikið, heldur er allt annað svo mikið niðurgi-eitt.“ Samúel telur að minni fiskur berist frá Islandi en ella vegna viðskipta- hindrunar af Islands hálfu og telur það skjóta skökku við að þjóð, sem á sitt undir því að fá óhindraðan að- gang að mörkuðum, skuli reisa slíka múra og sama viðhorf mátti reyndar heyra í samtölum við stjómmála- menn í borginni. „Það hefur haft áhrif á útflutning- inn frá Islandi að menn taka á sig 15% kvótaskerðingu flytji þeir út ferskan fisk,“ sagði hann. „Þetta er mikið óréttlæti. Tökum dæmi. Skip landar hluta af ferskfiskafla á Islandi og hluti fer í gáma þannig að af hlýst 15% skerðing. Verksmiðjuskip fer út og veiðir, skapar enga vinnu heima, landar engu þar, fær enga skerðingu og er að selja fiskinn miklu ódýrara. Þetta er mikið misrétti, en þegar maður fer að skipta sér af pólitík er hætt við að maður lendi í flækju." Besti markaður í heimi fyrir karfa, ufsa og blálöngu Samúel sagði að í Norður-Þýska- landi væri mikill markaður og mikið hefði verið selt af fiski þar undan- fama áratugi, oft íyrir mikið verð. „Þetta er besti fiskmarkaður í heimi fyrir karfa, ufsa og blálöngu,“ sagði hann. „Það er hvergi borgað annað eins fyrir fisk og hér. Þetta er svipað og fæst á Englandi íyrir þorsk og ýsu.“ Samúel kvaðst eiga von á því að um 80% af fiskinum, sem hann selur á markaðnum, væru íslensk og hann gæti auðveldlega selt meira. Samúel hefur verið ellefu ár í Þýskalandi, en vai: áður stýrimaður á skipum Sambandsins. Hann byrjaði að vinna hjá fyrirtækinu Peter Hein í Cuxhaven, sem var umboðsaðili fyrir íslenska togara. Eigandi þess fyrir- tækis, Rolf Rudiger Dick, var konsúll fyrir ísland og faðir hans á undan honum. „Þetta var mjög skemmtileg vinna,“ sagði hann. „Ég var einnig með austurblokkina, þannig að einn daginn gat ég verið að vinna um borð í pólsku skipi og þann næsta íslensku. Við vorum meðal annars umboðsmenn fyrir fisk og seldum aðeins gegnum markaðinn í Cuxhaven, sem þá stóð jafnfætis markaðnum í Bremerhaven. Þá leit veröldin reyndar þannig út að Cux- haven og Bremerhaven voru jafn fjarlægir staðir og Evrópa og Asía. Menn fóru ekki á milli og ákveðin skip sigldu á Cuxhaven og önnur á Bremerhaven. En mér fannst strax maira spennandi í Bremerhaven, þar væri meira líf, og lagði þegar til að stofnað yrði útibú í Bremerhaven." Þeirri hugmynd var ekki vel tekið og þegar Samúel sá það gi’eip hann til sinna ráða: „Úr varð að ég sagði að ég myndi gera það sjálfur ef þeir gerðu það ekki.“ Þegar hann stofnaði sitt fisksölu- fyrirtæki, Isey, í Bremerhaven árið 1989 voru þar fyrir átta umboðsmenn og störfuðu hjá þeim margir Islend- ingar: „Síðan hefur þróunin verið sú að aðrir hafa minnkað og við stækk- að.“ Hann sagði að umboðslaunin hefðu ekki verið há, frekar en nú, án þess þó að vilja nefna nokkra tölu. Hann hefði reynt að vega upp á móti því með magni. Fyrir fimm eða sex árum hefði síðan farið að þrengja að og þá hefðu átökin um kúnnana hafist. „Þá byrjuðu menn að lækka umboðslaunin um allt að helming og voru þau þó lág fyrir,“ sagði hann. „Við fylgdum því aldrei heldur héldum okkar og reyndum að réttlæta það gagnvart seljandanum að við væmm með betra verð eða betri þjónustu en aðrir. Við létum þá stóru heldur ekki borga minna en þá litlu, heldur alla jafnt. Það hefur alltaf verið grund- vallaratriði hjá okkur að meðhöndla alla eins og vonandi alla jafn vel. Þeir, sem voru að lækka, heltust mjög fljótt úr lestinni. Aðferðin var ekki að lækka umboðslaunin, heldur miklu frekar að vinna þannig á mark- aðnum að hæn-a verð fengist fyrir fiskinn. Það er miklu mikilvægara að fá nokkrum þúsundum króna meira fyrir fiskinn en nokkurra króna af- slátt á þjónustunni." Hæsta verðið þegar fiskurinn er mestur Samúel sagði að fiskmarkaðurinn lyti lögmálum, sem sennilega myndu koma mörgum á óvart, því oft og tíð- um héldist eftirspurnin í hendur við framboðið. „Grunntónninn í markaðnum er ekki endilega sá að verðið sé hærra þegar lítið er af fiski,“ sagði hann. „Oft fær maður mest þegar mest er af fiski. Menn gætu haldið að þama væri hugsanaskekkja 4 ferð, en málið er að ef þeir, sem kaupa fiskinn og selja hann áfram - sennilega milli 50 og 60 aðilar, vita að það er að koma mikið af fiski leita þeir hingað í stað þess að eyða tíma sínum í að kaupa á föstu verði frá Noregi og Færeyjum. Það er svo skrítið að oft fáum við hæsta verðið þegar fiskurinn er mestur. Oft brenndu menn sig hins vegar á því að hugsa sem svo að verðið hlyti að vera gott þegar lítið væri af fiski.“ Ekkert er gefið í viðskiptum með sjávarafurðir og detti ein tegund út sitja menn ekki auðum höndum og bíða eftir að hún berist aftur á mark- aðinn, heldur er reynt að finna eitt- hvað í staðinn. Afdrifaríkt verkfall „Ég er ekki viss um að menn á ís- landi geri sér grein fyrir því hvað verkföll geta haft mikil áhrif og kost- að mikið,“ sagði Samúel og fór að tala um það þegar margboðað verkfall 1995 skyndilega brast á. „Þá höfðum við fengið þrjá togara á viku og mik- inn fjölda af gámum og síðan allt í einu skall á verkfallið, sem fram að því hafði hvað eftir annað verið frestað, með þeim afleiðingum að karfamarkaðurinn tæmdist. Það kom enginn karfi. Og öll fyrirtækin, sem lifðu á því að flaka karfa og selja hann, og búðirnar, sem seldu hann, höfðu engan karfa. Svo vildi til að í nokkur ár á undan höfðu menn verið að reyna að koma svoköll- uðum Nflarkarfa úr Vikt- oríuvatni á markað, en ekki haft erindi sem erfiði vegna þess að markaður- inn er íhaldssamur og erfitt að koma nýjum tegundum að þótt sífellt sé verið að bjóða þær. Én allt í einu tæmdist sá hluti fiskborðsins þar sem karfinn átti að vera og menn prófuðu að setja Nílarkarfann í staðinn undir nafninu Viktoríukarfi. Þetta er hvítur og fallegur fiskur og miklu ódýrari. Þegar allir leggjast á eitt er hægt að selja hvað sem er. Þarna fór Viktor- íukarfi að seljast út um allt.“ Þakkar betra hráefni til- komu kvóta Nílarkarfinn haslar sér völl í verkfalli Hann sagði að menn hefðu ekki gert sér grein fyrir því strax hvað hefði gerst í verkfallinu: „En síðan leystist verkfallið, skipin fóru á veið- ar og menn kepptust við að vera íyrstir með gámana til að fá þetta rosaverð eftir verkfall. Svo kom glæ- nýr fiskur á markaðinn, en ekkert gerðist, verðið varla hreyfðist og við rétt losnuðum við fiskinn. Fyrst velti maður fyrir sér hvort um væri að ræða samantekin ráð, en auðvitað var slíkt ekki raunhæft og síðan gerði maður sér grein fyrir því að það var einfaldlega komin ný afurð, hún var ódýrari og fólk keypti hana. Viktor- íukarfinn er enn þarna í fiskborðinu og við erum enn að ýta honum til hliðar. Þannig að þetta verkfall var geysilega afdrifaríkt.“ Hann sagði að markaðurinn í Cux- haven hefði minnkað mikið, en það hefði markaðurinn í Bremerhaven einnig gert að einhverju leyti. Þá væri Hamborg dottin út og fyrirtæki þar keyptu nú fisk í Bremerhaven. Viðskipti alls staðar frá „Bremerhaven er í raun orðin mið- stöðin í Þýskalandi fyrir ferskan fisk,“ sagði hann. „Við fáum viðskipti alls staðar frá og fiskurinn fer mun víðar en staðsetning okkar kaupenda segir til um því að þeir selja fisk út um allt,_ allt suður til Austurríkis og Sviss. A mánudögum er orðin slík þröng í söluherberginu að það er varla pláss fyrir alla kaupendurna og að auki fylgjast allt að tíu kaupendur með og taka þátt í uppboðinu í gegn- um símann.“ Tveir menn sjá um uppboðin fyrir Samúel. Aðaluppboðshaldarinn heitir Berndt Ahrens og hefur starfað við þetta í tuttugu ár. „Hann veit hvernig hver og einn býður,“ sagði Samúel. „Hann tók mjög vel í að breyta kerfínu og sá strax að eina leiðin til að auka um- svifin væri að ná til annarra landa, því að ekki yrðu fleiri fyrirtæki stofn- uð í Bremerhaven." „Styrkjaiðnaður" Evrópusambandsins Samúel er lítill fylgismaður^ Evr- ópusambandsins. Hann segir Island beturkomið utan sambandsins. Það yrði til bóta ef ísland ætti þess kost að vera meðal þeirra ríkja, sem nú eru að taka upp hinn nýja Evrópu- gjaldmiðil, evruna, vegna þess að það myndi hafa góð áhrif á íslenskt efna- hagslíf og viðskiptahætti. Það sé hins vegar ólíklegt að það bjóðist án aðild- ar að ESB. Sambandinu líkir hann við Sovétríkin sálugu. A vegum þess sé að skapast ný forréttindastétt, sem ferðist án endurgjalds. Hjá fyrir- tækjum skipti ekki lengur mestu máli sú deild, sem sér um nýjungar, held- ur sérfræðingarnir í að sækja styrki í Evrópusambandið. Margt sé einfald- ara innan ESB, en sums staðar hafi menn gleymt sér, eins og til dæmis varðandi forréttindin. Kjarninn í af- stöðu Samúels til ESB varðar hins vegar lífsviðurværi hans, fiskinn, eins og kemur í ljós þegar hann fer að tala um það, sem hann kallar styrkjaiðn- aðinn. „Hugsaðu þér að við þurfum að selja fiskinn okkar fyrir allt að þrisvar og fjórum sinnum meira en kjöt,“ sagði hann. „Fiskur var áður fyrr matm* fátæka fólksins og kjöt var fyrii’ þá, sem betur máttu sín og var kannski aðeins á borðum víða á heim- ilum einu sinni í viku. Nú hefur þessu verið snúið við. Menn borða fisk einu sinni í viku og kjöt hina dagana. Það, sem hefur snúið þessu við, er styrkja- iðnaðurinn - þessir styrkir." Hann sagði að þetta væri ein ástæðan fyrir þvi hvernig komið væri fyrir þýskum sjávarútvegi, að Þjóð- verjar veiddu orðið lítið, en flyttu að- allega inn fisk, sem aðrir veiddu. „Allt í sjávarútvegi hefur farið hall- oka í styrkjaiðnaðinum," sagði hann. „Bændur og þeir, sem fást við kjöt og pylsur, hafa náð að upplifa það að fólk borðar kjöt miklu oftar. Styrkir til sjávarútvegs eru miklu takmark- aðri og fiskurinn kemur frá löndum utan ESB. Ef öll þessi veiði væri inn- an ESB væri staðan allt önnur, út- gerðin nyti styrkja, fiskurinn væri álíka dýr og kjúklingar og allir væru glaðir."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.