Morgunblaðið - 19.01.1999, Qupperneq 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJtSMBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Kristinn
Sótt hefur verið um við-
bótarlán vegna 940 íbúða
SVEITARFÉLÖGIN hafa sótt um heimildir til
veitingar viðbótarlána vegna kaupa á um 940
íbúðum á öllu landinu og segist Gunnar S. Bjöms-
son, formaður stjómar Ibúðalánasjóðs, eiga von á
því að hægt verði að afgreiða nánast allar þessar
umsóknir. Þá hafa sveitarfélögin einnig sótt um
lánveitingar vegna 200-250 leiguíbúða.
Gunnar sagði að niðurstaða varðandi viðbót-
arlánin myndi liggja fyrir eftir fund stjórnar
Ibúðalánasjóðs á morgun, miðvikudag, en þá er
einnig áætlað að ákveða vaxtakjör á viðbótar-
lánunum. Viðbótarlán koma til viðbótar al-
mennu húsbréfaláni til þeirra sem uppfylla
ákveðin skilyrði og gátu áður sótt um lán í fé-
lagslega íbúðakerfinu. Gert er ráð fyrir að
vaxtakjör á þeim ráðist af vaxtakjömm á hús-
næðisbréfum sem seld em til að afla fjár til
þessara lánveitinga. Sveitarfélögunum er skylt
að leggja upphæð sem jafngildir 5% af viðbótar-
lánum í sjóð til að mæta hugsanlegu útlánatapi í
kerfinu.
1% vextir á lánum til Ieiguíbúða
Gunnar sagði að umsóknir um leiguíbúðir
væru nálægt 200-250 frá sveitarfélögunum á
landinu öllu, eftir því sem hann best vissi, en
umsóknir hefðu verið að berast alveg fram á síð-
ustu daga, þó þær hefðu átt að berast fyrir 1.
október síðastliðinn.
Vextir á lánum til leiguíbúða era 1% sam-
kvæmt heimildum í núgildandi lögum og verða
þannig óbreyttir næstu tvö árin, í ár og næsta
ár, að sögn Gunnars. Hann sagði að þar væri
eingöngu um að ræða lán vegna leiguíbúða
sveitarfélaga og gilti ekki um lán vegna leigu-
íbúða félagasamtaka. Um vexti á þeim lánum
gilti svipað og vexti af viðbótarlánunum, að þeir
væm í ákvörðunarvaldi stjórnar Ibúðalánasjóðs.
Gunnar sagði að fjöldi umsókna frá félaga-
samtökum um byggingu leiguíbúða hefði ekki
verið tekinn saman. Megináhersla hefði verið
lögð á að vinna að tillögum um viðbótarlánin,
þar sem meira lægi á þeim, og á öðrum atriðum
yrði tekið í beinu framhaldi.
Lán til leiguhúsnæðis sveitarfélaga geta
numið allt að 90% af kaupverði og það sem á
vantar þurfa sveitarfélögin að leggja fram.
Gunnar sagði að einnig væri heimilt fyrir sveit-
arfélögin, samkvæmt núgildandi lögum og
reglugerð, að breyta ákveðnum hluta af inn-
lausnaríbúðum í félagslega kerfinu yfir í leigu-
íbúðir án þess að vaxtakjör á lánunum breytt-
ust, en þau em 2,4%, auk þess sem heimilt væri
að færa lánin upp í 90% af innlausnarverðinu.
„Við höfum mjög rúmar heimildir í raun til þess
að koma til móts við sveitarfélögin í þessum efn-
um,“ sagði Gunnar ennfremur.
Milljónatjón hjá fískeldisstöðinni Hólalaxi í óveðrinu
Atta tonn af eldis-
bleikju drápust
Sauöárkróki. Morgunblaðið.
VEGNA óveðursins um helgina
varð verulegt tjón hjá fiskeldisstöð-
inni Hólalaxi á Hólum í Hjaltadal.
Að sögn Péturs Brynjólfssonar
framkvæmdastjóra drápust um átta
tonn af eldisbleikju sem komin var
að markaðsstærð í eldi og einnig
rösklega þrjátíu þúsund laxa- og
bleikjuseiði í stöðinni.
Orsakir óhappsins voru þær að
''«* vegna óveðursins krapaði svo í öll-
um ám og aðflutningsæðum stöðv-
arinnar að ekkert rennsli varð að
stöðinni. Vaktmaður sem var á
staðnum og síðar fleiri sem komust
í stöðina um kvöldið reyndu það
sem unnt var til björgunar.
Erfiðlega gekk að kalla eftir að-
stoð því símasambandslaust varð á
svæðinu vegna óveðurs, auk þess
sem veður og færð gerði mönnum
erfitt fyrir. Stórvirkar vinnuvélar
hefði þurft að kalla til ef laga hefði
átt aðrennslið, en stöðin hafði verið
nánast vatnslaus í tíu til fimmtán
klukkustundir. Þegar tekist hafði að
koma vatni að stöðinni var varaorka
til dælingar á þrotum en rafmagns-
leysi nánast alla helgina gerði
björgunarmönnum mjög erfitt fyrir.
Pétur Brynjólfsson sagði erfitt að
gera sér grein fyrir því hversu mik-
ið tjónið væri en sagði að miðað við
að í stöðinni hefðu verið um þrjátíu
tonn mætti segja að vel væri slopp-
ið. Tjónið lægi líklega á bilinu frá
tveimur og hálfri og upp í fimm
milljónir króna. Miklu hefði þó verið
hægt að bjarga með birgðum af
fljótandi súrefni sem til hefðu verið.
Sem betur fer hefði ekkert tjón orð-
ið á svæði stöðvarinnar í Fljótum.
Barist í
boltaleik
ÍÞRÓTTIR utan húss eru stund-
aðar af kappi meðal framhalds-
skólanema og nemendur í
Menntaskólanum í Reykjavík eru
þar framarlega í flokki. MR-ingar
tóku að stunda hlaup í kringum
Tjörnina um 1970 og aðrir skólar
fylgdu í kjölfarið og bættu útií-
þróttum við leikfimikennsluna.
Það kemur þó ekki til af góðu
að nemendur skólans sparka bolta
í ís og snjó. Ástæðan er skortur á
íþróttaaðstöðu í skólanum. „Þeir
elska þetta, strákarnir, það er
ekki það,“ segir Haukur Sveins-
son íþróttakennari. Að vísu segir
hann að stundum kvarti þeir þó
yfir kulda, sérstaklega þeir sem
ekki hafa með sér vettlinga, en
menn veðrist bæði og herðist í
kuldanum. „Það er eitt markmiðið
að menn læri að klæða sig eftir
veðri og yfirleitt gengur það vel,
en ef menn vilja vera sérstaklega
hetjulegir þá leyfum við þeiin það
Iíka.“
Tilskipun um réttindi
þungaðra kvenna
ASI sendir
ESA kæru
á hendur
íslenska
ríkinu
ALÞÝÐUSAMBAND íslands
hefur sent kæru á hendur ís-
lenska ríkinu til Eftirlitsstofn-
unar EFTA (ESA) fyrir að
hafa látið undir höfuð leggjast
að fullgilda tilskipun Ewópu-
sambandsins um réttarstöðu
þungaðra kvenna á vinnumark-
aði með fullnægjandi hætti.
ASI hefur á undanförnum
misserum þrýst á félagsmála-
ráðuneytið og heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið um
að standa við þær skuldbind-
ingar sem felast í ESB-tilskip-
un 92/85 um réttindi þungaðra
kvenna með lögfestingu þeirra
eða fuilgildingu með öðrum
hætti.
Heilbrigðisráðuneytið
gagnrýnt
Að sögn Haildórs Grönvold,
skrifstofustjóra ASÍ, hefur fé-
lagsmálaráðuneytið nú gefið út
reglugerð varðandi vinnuvernd
þungaðra kvenna, sem full-
nægir þeim kröfum sem gerð-
ar eru á grundvelli tilskipunar-
innar. Hins vegar hefur heil-
brigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið ekki brugðist við
þeim þáttum sem að því snýr
varðandi réttindi þungaðra
kvenna til launagreiðslna ef
þær þurfa að fara út af vinnu-
markaði. Er kæran til ESA
fyrst og fremst komin til vegna
þessa.
„Við teljum að þunguðum
konum hafi ekki verið tryggð
laun og réttindi eins og tilskip-
unin gerir ráð fyrir ef þær
þurfa að hverfa af vinnumark-
aði vegna þungunar sinnai-. Við
vefengjum jafnframt að fæð-
ingarorlofsgreiðslur eins og
þær eru á almennum vinnu-
markaði í dag uppfylli ákvæði
þessarar tilskipunar,“ segir
Halldór.
Tjón
RARIK
yfír 15
milljónir
TALIÐ er að tjón Rafmagns-
veitna ríkisins af völdum óveð-
ursins um síðustu helgi sé á
milli 15 og 20 milljónir króna.
Kristján Jónsson rafmagns-
stjóri telur að tjónið hefði að
líkindum orðið mun meira ef
áhersla hefði ekki verið lögð á
lagningu jarðstrengja undan-
farin ár.
Rafmagnsveitustjóri segir
jarðstrengi orðna ódýrari en
áður og tækni við að plægja þá
niður sífellt að batna. Ákvörðun
um aukna áherslu á jarðstrengi
á síðustu árum var m.a. tekin í
kjölfar mikils tjóns sem varð á
loftlínum í óveðrum 1991 og
1995.
■ Óveðrið/16 og 18