Morgunblaðið - 31.01.1999, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 24/1 - 30/1
►VEXTIR banka og spari-
sjóða lækka um næstu mán-
aðamót á bilinu 0,10 til
0,25%. Ástæða lækkunarinn-
ar er fyrst og fremst lækkun
á síðustu vikum á ávöxtunar-
kröfu verðtryggðra skulda-
bréfa til langs tíma.
►VERIÐ er að undirbúa út-
boð vegna styrkja til flugs á
nokkrum áætlunarleiðum á
Vestfjörðum og Norðurlandi
á Evrópska efnahagssvæð-
inu. Er það í fyrsta sinn sem
útboð íslenskra flugleiða fer
fram á EES-svæðinu.
►ÚTLIT er fyrir að nýtt
smjörfjall sé að myndast í
landinu þar sem mjólkur-
framleiðsla á Suðurlandi
hefur í vetur verið 12-14%
meiri en á síðasta vetri.
Ástæða aukinnar framleiðslu
er betri nyt kúnna og að-
gerðir mjólkursamlaga til að
auka framleiðslu. Haldist
þessi aukning út verðlagsár-
ið er útlit fyrir um 5 til 8
milljarða lítra umframfram-
leiðslu, sem þýðir myndun
fjalls úr mjólkurdufti og
smjöri.
► ISLENSKIR vísindamenn
hafa sýnt fram á gagnsemi
þess að nýta tvö nikótínlyf
saman sem gefur þeim betri
árangur sem vilja hætta að
reykja. Séu niktótínplástur
og nefúði notuð saman í allt
að eitt ár verður árangur
tvöfalt bet.ri hjá þeim en hjá
fólki sem aðeins hefur notað
eitt lyf.
Milljarður til sykur-
sýkisrannsókna
KARL Tryggvason, prófessor í læknis-
fræðilegri erfðafræði í Svíþjóð, fékk síð-
astliðinn mánudag afhentan styrk til að
rannsaka fylgikvilla sykursýki. Novo-
Nordisk sjóðurinn veitir styrkinn en
hann er eignarhaldsaðili Novo-Nordisk
lyfjafyrirtækisins. Karl fer fyrír hópi
norrænna vísindamanna sem fá sem
svarar einum milljarði króna sem
greiddur verður út á 10 árum.
Einkaleyfí á
vindaflstöðvum
VINDORKA hf. hefur fengið alheims-
einkaleyfi á vindaflstöð sem byggð er á
hugmynd og hönnun Nils Gíslasonar
uppfinningamanns. Tekur einkalejdið
bæði til útfærslu burðarþols vindafl-
stöðvarinnar og til raforkuframleiðsl-
unnar sjálfrar. Rúm þrjú ár eru síðan
sótt var um einkaleyfið og skiptir kostn-
aður við það nokkrum tugum milljóna
króna. Hafa ýmsar innlendar stofnanir
styrkt tiltækið. Bandarísk áhættufjár-
magnsfyrirtæki hafa sýnt verkefninu
áhuga og innlendir aðilar sömuleiðis.
Penguin gefur út
fslendingasögur
BÓKAÚTGÁFAN Penguin-Press hefur
ákveðið að ganga til samstarfs við
Bókaútgáfu Leifs Einkssonar um út-
gáfu á 10 bókum með Islendingasögum.
Utgáfan mun tryggja meiri útbreiðslu
Islendingasagnanna í enskumælandi
löndum en áður hefur þekkst en Pengu-
in-útgáfan er bresk-bandarísk. Fyrstu
bækurnar eiga að koma út í haust og
síðan nokkrar á ári til ársins 2002.
Náttúruhamfarir í
Kólumbíu
ÖFLUGUR jarðskjálfti olli gífurlegu
tjóni í Kólumbíu á mánudag og er óttast
að alls hafi rúmlega tvö þúsund manns
farist í náttúruhamfórunum. Mældist
jarðskjálftinn sex á Richter. Lagði jarð-
skjálftinn tvær borgir nánast í rúst og
þar af talið að um tvö þúsund manns
hafi farist í fjallaborginni Armeníu einni
saman. Gjöreyðilagðist meira en helm-
ingur allra heimila í borginni í skjálftan-
um. Björgunarstarf hefur gengið erfið-
lega og einnig hefur nokkuð verið um
rán og gripdeildir í því öngþveiti sem
ríkt hefur í borginni, með tæplega þrjú
hundruð þúsund íbúa, í kjölfar skjálft-
ans. Er óttast að skjálftinn muni hafa
slæm áhrif á efnahag Kólumbíu en
svæðið sem hvað verst varð úti er helsta
kaffiræktarsvæði landsins, en kaffi er
ein helsta útflutningsafurð Kólumbíu.
Úrslitakostir í
Kosovo-deiiunni
TENGSLAHÓPURINN svokallaði
setti á fóstudag stríðandi fylkingum í
Kosovo úrslitakosti og sagði leiðtoga
Serba og Kosovo-Albana hafa þrjár vik-
ur til að setjast við samningaborð og
sanna fyrir umheiminum að fyrir hendi
væri vilji til að leysa deiluna með frið-
samlegum hætti. Ella myndi NATO
grípa til aðgerða í Kosovo. Spenna hef-
ur magnast í héraðinu undanfarna daga
og vikur og enn kom til grimmdarverka
í vikunni. Voru fimm Kosovo-Albanai-
skotnir til bana á mánudag. Kom einnig
til átaka seinna í vikunni og féllu tutt-
ugu og fjórir liðsmenn Frelsishers
Kosovo (KLA) í átökum við serbneska
lögreglumenn í fyiradag.
► MEIRIHLUTI öldunga-
deildar Bandaríkjaþings
ákvað á miðvikudag að
stefna þremur vitnum, m.a.
Monicu Lewinsky, til að bera
vitni fyrir luktum dyrum í
réttarhöldunum yfir BiII
Clinton Bandaríkjaforseta.
Hafnaði meirihlutinn jafn-
framt í vikunni tillögu um að
ákærum á hendur forsetan-
um yrði vísað frá. Þótt
repúblikanar í öldungadeild-
inni hafi þannig náð sínu
fram sögðu fréttaskýrendur
að Clinton hefði engu að síð-
ur unnið hálfan sigur því at-
kvæðagreiðsla um ofan-
greindar tillögur féll eftir
flokkslínum sem þykir vís-
bending um að útilokað sé að
samþykkt verði í öldunga-
deildinni að svipta Clinton
embætti.
► GÍFURLEGUR kuldi hefur
verið í norðanverðri Skand-
inavxú og Síberíu undanfarna
daga og fór frostið niður i' 50
gráður á nokkrum stöðum. I
Norður-Noregi hcfur skóla-
hald sums staðar legið niðri
og fer fólk ekki út úr húsi
nema brýna nauðsyn beri til.
►HUSSEIN Jórdaníukon-
ungur hélt á þriðjudag aftur
til Bandaríkjanna til að gang-
ast undir áframhaldandi
lyfjameðferð vegna krabba-
meins, tveimur mánuðunx
fyrr en áætlað var. Áður en
Hussein hélt af Iandi brott út-
nefndi hann son sinn
Abdullah prins ríkisarfa í
stað Hassans bróður síns. Sór
Abdullah eið sem staðgengill
föður síns á flugvellinum í
Amman.
►TALSMENN Indónesíuhers
sögðust á fimmtudag styðja
hugmyndir ríkisstjórnar
landsins um að til greina
komi að veita Austur-Tx'mor
sjálfstæði. Fagnaði Xanana
Gusmao, leiðtogi frelsissveita
A-Tímor, sinnaskiptum
stjórnvalda, en þau hafa ver-
ið undir miklum alþjóðlegum
þi-ýstingi að undanfiirnu um
að losa um tökin á landinu,
sem verið hefur undir
indónesískri stjórn í 23 ár en
var áður portúgölsk nýlenda.
Úrslit í samkeppni um yfírbyggða sundlaug í Laugardal
Arkitekt og myndlistar-
maður í fyrsta sæti
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FYRSTU verðlaun í hugmyndasamkeppni um yfirbyggða sundlaug í
Laugardal hlutu þau Helga Guðrún Helgadóttir myndlistarmaður og
Ari Már Lúðvíksson arkitekt.
TILLAGA Ara Más Lúðvíkssonar
arkitekts og Helgu Guðrúnar Helga-
dóttur myndlistarmanns lenti í
fyrsta sæti í samkeppni um hönnun
50 metra keppnislaugai- í Laugardal.
Ákveðið var í borgarráði í mars á
síðasta ári að tillögu íþiútta- og tóm-
stundaráðs að efna til samkeppni um
yfirbyggða sundlaug í Laugardal og
bárust alls 23 tillögur.
Markmið samkeppninnai- var að fá
hugmyndir um yfirbyggða sundlaug í
tengslum við Laugardalslaug sem
væri hönnuð með þarfir sundíþrótt-
arinnar í huga. Var fyrst og fremst
leitað eftir hugmyndum um staðsetn-
ingu, form byggingar og tengsl við
núverandi mannvii’ki og hugsanlegar
framtíðarbyggingar við Laugardals-
laug. Dómnefnd lagði til grandvallar
ýmis sjónarmið sem tiigreind voru í
keppnislýsingu, m.a. framleika og
framsýni, samspil við mannvirki, sér-
kenni dalsins og giúður, hagkvæmni
í uppbyggingu, skipulag og heildax--
lausn út fi-á sjónarmiðum byggingar-
listar og sundíþróttarinnar. Ákveðið
var að hafa samkeppnina opna, m.a.
til þess að gefa nýjum aðilum kost á
að koma hugmyndum á framfæri.
í niðurstöðu dómnefndar segir að
margh- tillöguhöfundai- hafi sett fram
áhugaverðar hugmyndir, einstaka
þættir hafi oft verið vel leystir og ein-
stakar tillögur verið athyglisverðar
þótt nefndin láti þeirra ekki sérstak-
lega getið. Formaður dómnefndar var
Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgar-
fulltrúi og með henni frá útbjóðanda
Ólafur Bjamason frá borgarverk-
fræðingi og Ómar Einarsson, fram-
kvæmdastjóri ÍTR, og frá Arkitekta-
félagi íslands Elísabet Gunnarsdóttir
og Knútur Jeppesen. Tæknilegur
ráðgjafi var Óli Jón Heiáervig tækni-
fræðingur, ritari Ámundi Brynjólfs-
son verkfræðingur og tránaðarmaður
Rúnar Gunnarsson ai-kitekt.
Heildarverðlaunafé 1,5 milljónir
Fyrstu verðlaun, ki-. 800 þúsund,
hlutu sem fyrr segir Ari Már Lúð-
víksson og Helga Guðrún Helgadótt-
ir. Önnur verðlaun, kr. 400.000, hlaut
tillaga arkitektanna Birgis Teitsson-
ar og Pálmars Kristmundssonar og
þriðju verðlaun, 300.000 krónur,
hlaut tillaga Teiknistofunnar Arcus
ehf., arkitektanna Harðar Harðar-
sonar og Þorsteins Helgasonar.
í umsögn dómnefndar um verð-
launatillöguna segir að hún sé mann-
eskjuleg, lausn lífi-æn og lifandi og
frumleiki í hávegum. Gott samspil sé
við núverandi mannvirki og lágreist-
ar byggingar skyggi lítið á útisvæð-
in. Þá s%ir að skipulag húss og lóðai'
sé gott, skemmtileg útfærsla á
heilsulindarþema og hugmynd um
nýtt anddyri sé góð. Um tillöguna í
öðru sæti segir að hún sé falleg,
ýmsar hugmyndir góðar og athyglis-
verðar rýmismyndanir. Um tillöguna
í þriðja sæti segir að hún sé ágæt-
lega unnin og skipulag hennar sé
gott en ákveðinn ferskleika vanti og
skortur sé á samræmi við núverandi
mannvirki á sundlaugarsvæðinu.
Veitingastaðurinn Club Clinton í Fischersundi
Takmarkað vínveitinga-
leyfí til bráðabirgða
BORGARRÁÐ samþykkti á síðasta
fundi sínum bráðabirgðavínveitinga-
leyfi til veitingastaðarins Club Clinton
í Fisehersundi, þar sem Duus-hús var
í eina tíð. Leyfið er þó með þeim tak-
mörkunum að það miðast við veitinga-
tíma til klukkan 23.30 alla daga nema
aðfaranótt laugardags og sunnudags
og almenns frídags, þegai- veitinga-
tíminn má vera til klukkan 1.00.
I umsókninni til borgarráðs er ósk-
að eftir að borgarráð heimili nýjum
rekstraraðilum vínveitmgáleyfi án
takmarkana, en það var fyrir með of-
angreindum takmörkunum. I bréfi
Félagsþjónustu borgarinnar til borg-
arrráðs vegna umsóknarinnar eru
rakin bréfaskipti vegna leyfisveitinga
á síðasta ári. Fram kemur að borgar-
ráð hafi samþykkt á fundi sínum 15.
september á síðasta ári að heimila
takmarkað vínveitingaleyfi til bráða-
birgða þar til tími og tækifæri gæfist
til afgreiðslu þess samkvæmt væntan-
legri reglugerð byggðri á áfengislög-
um sem tóku gildi um mitt síðasta ár.
Segir að með tilliti til þess að umrædd
reglugerð sé ekki væntanleg fyir en í
lok febráar sé ekki mælt gegn útgáfu
á almennu vínveitingaleyfi með ofan-
greindum takmöi-kunum.
Jafnframt kemur fram að sam-
kvæmt upplýsingum lögreglustjóra sé
skemmtanaleyfi staðarins í gildi fram
til 10. mars næstkomandi og að veit-
ingaleyfi staðarins hafi runnið út 9.
janúar og sé fyrirvai-i gerður um að
umsælqandi hafi fengið útgefið nýtt
veitingaleyfi hjá lögreglustjóra. „Með
tilliti til kvai-tana sem borist hafa frá
nágrönnum staðarins vegna ónæðis
og hávaða vegna leikinnar tónlistar
þykii- einnig rétt að skilyrða leyfisveit-
inguna við að reksturinn valdi ekki
nágrönnum slíku ónæði,“ segir enn-
fremur í bréfi Félagsþjónustunnar.
Diskótek síðast
Kolbeinn Árnason, formaður
íbúasamtaka Grjótaþorps, sagði að
borgarráð hefði samþykkt í apríl á
síðasta ári að fallast ekki á að þarna
væri rekinn skemmtistaður. íbúa-
samtökin hefðu barist árum saman
gegn rekstri skemmtistaðar í þessu
húsi, en rekstraraðilar hefðu aldi-ei
tekið tillit til þeiri-a sem byggju í
næsta nágrenni í þeim efnum. Þarna
hefði vei-ið rekið diskótek nú síðast
og tónlistin verið spiluð svo hátt að
það hefði heyrst um allt hverfið. Eft-
ir að leyfið hefði verið takmarkað
hefði starfsemin smám saman logn-
ast út af og þau hefðu haldið að þar
með væri endi bundinn á þessa starf-
semi. Nú væri hins vegar búið að
opna aftur og þá væri það nektar-
búlla og það væri allra síst það sem
þau vildu hafa í bakgarðinum hjá
sér. Svona starfsemi ætti út af fyrir
sig rétt á sér, en það næði ekki nokk-
un-i átt að hafa hana inni í skipu-
lögðu íbúðai-hverfi. Álit Félagsmála-
stofnunar, skipulags- og byggingar-
fulltrúa hefði verið andstætt því að
rekinn yrði þarna skemmtistaður á
síðasta ári og í framhaldi af því hefði
borgari-áð ályktað að það gæti ekki
fallist á að þarna væi-i rekinn
skemmtistaður. Nú væri búið að
opna slíkan stað, þrátt fyrir áskorun
íbúasamtakanna um að það yrði ekki
gert, og það sætti furðu í ljósi fyrri
samþykktar borgarráðs.
f
Opel Astra
Station
veró frá:
Station
Kr. 1.384.000,-
Bílheimar ehf.
Sœvarhöfða 2a’Sími 525 9000
I
I