Morgunblaðið - 31.01.1999, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
Christian Leitner, þjálfari Finna á skíðum og fyrrverandi þjálfari Kristins Björnssonar
Akvörðun
Kristins
.
kom mér
á óvart
Morgunblaðið/Valur B. Jónatansson
CHRISIAN Leitner þjálfari ræðir hér við Kristin Björnsson eftir eitt heimsbikarmótið í fyrra.
CHRISTIAN Leitner, skíða-
þjálfari finnska landsliðs-
ins, sem þjálfaði Kristin
Björnsson á síðasta ári,
segist hafa verið undrandi á
því að Kristinn skyldi hafa
ákveðið að skipta um þjálfara
miðað við hvernig honum
gekk í fyrra. Kristinn ákvað
að ganga til samstarfs við
sænska svigliðið sl. sumar
og var Haukur Bjarnason
ráðinn sem þjálfari Kristins
í því samstarfi.
Leitner er nú í Vail í Colorado í
Bandaríkjunum þar sem hann
er að undirbúa fínnska landsliðið
fyrir heimsmeist-
aramótið og náði
Morgunblaðið tali af
honum þar í gær.
„Ég hélt að Krist-
inn hafí verið mjög ánægður með
samstarfið síðasta vetur og ég var
það líka. Það kom mér því veru-
lega á óvart þegar hann ákvað að
ganga til samstarfs við Svíana.
Hann hafði lýst ánægju sinni með
okkar samstarf og ég bjóst við að
það myndi halda áfram, enda stóð
hann sig frábærlega síðasta tíma-
Arangur Kristins Björnssonar > svigkeppni í vetur:
22. nóv. 1998
25. nóv. 1998
28. nóv. 1998
14. des. 1998
16. des.1998
6. jan. 1999
7. jan. 1999
10. jan. 1999
15. jan. 1999
17. jan.1999
22. jan. 1999
24.
jan. 1999
£JSCZB8BnKapBHHsnEE
Park City. Heimsbikarmót:
Winter Park. Stigamót (FlS-mót):
Aspen. Heimsbikarmót:
Sestriere. Heimsbikarmót:
Obereggen. Evrópubikarmót:
Kranjska Gora. Heimsbikarmót:
Schladming. Heimsbikarmót:
Hinterstoder: Evrópubikarmót:
Adelboden: Evrópubikarmót:
Wengen. Heimsbikarmót:
Westendorf. Stigamót (FlS-mót):
Kitzbúhel. Heimsbikarmót:
11. sæti.
9. sæti.
Úr leik í fyrri umferð.
Úr ieik í fyrri umferð.
Úr leik í seinni umferð.
Úr leik í fyrri umferð.
Úr leik f seinni umferð.
18. sæti
Úr leik í fyrri umferð.
Úr leik í fyrri umferð.
Úr leik í seinni umferð
Úr leik í seinni umferð
mmmmmammmmmm
bil. Ég var farinn að gera áætlanir
síðastliðið vor fyrir þennan vetur,
með Kristin í liðinu, þegar mér var
tilkynnt að hann yrði ekki með
okkur.“
Hefur þú einhverjar skýringar á
gengi Kristins í heimsbikamum í
vetur?
„Ég vil nú helst ekki ræða það,
enda ekki í mínum verkahring.
Þetta er alfarið hans mál og ís-
lenska Skíðasambandsins.“
Telur þú að hann hafí breytt
skíðatækninni frá í fyrra?
„Ég vil heldur ekki tjá mig um
það. En það hafa margir þjálfarar
komið að máli við mig og spurt
sömu spumingar. En þar sem ég
þjálfa hann ekki lengur er það ekki
mitt að dæma um það. Ég einbeiti
mér að mínu liði. En það er ljóst að
honum gekk mjög vel í fyrra þegar
hann var með okkur og það sjá allir
hvemig honum hefur gengið í vet-
ur. Menn verða bara að dæma út
frá því.“
Nú hefur einn liðsmanna þinna,
Kalle Pallander, verið að slá í gegn
í vetur, áttir þú von á því?
„Já, alveg eins. Hann er mjög
efnilegur og hefur verið að springa
út í vetur. Hann er nú kominn í
fyrsta ráshóp í heimsbikarnum.
Hann hefur æft mjög vel og undir-
búningur okkar liðs fyrir tímabilið
var mjög góður að mínu mati. Við
náðum að æfa mjög vel við góðar
aðstæður á jöklinum í Hinter Tux í
Austurríki og það er að skila sér.
Ég er líka ánægður með frammi-
stöðu Mika Marilla. Hann hefur
unnið éltt Evrópubikarmót - í
Kranjská Gora - og verið framar-
lega í öðmm. Eins hefur hann náð
að komast tvisvar í síðari umferð í
heimsbikarnum. Hann á enn mikið
inni. Ég get því ekki annað en verið
ánægur með frammistöðu liðsins
eins og ég var líka í fyrra.“
Var Kristinn betri en þessir
strákar í fyrra á æfíngum hjá þér?
„Já, hann var bestur í liðinu.
Hann tók þá yfirleitt á æfingum og
eins sýndi hann það og sannaði í
heimsbikarnum í fyrravetur."
Verður þú áfram með fínnska
liðið?
„Já, ég er nýbúinn að gera
samning við finnska sambandið til
ársins 2002. Samstarfið hefur
gengið vel og því engin ástæða til
að breyta til.“
Úrslitaleikur ameríska fótboltans í Miami
Lokaleikur Elways
MEISTARAR Denver Broncos leika í nótt til úrsfita við Atlanta
Falcons í bandaríska fótboltanum, NFL-deildinni í Miamiborg í
Flórída og er þetta í 33. sinn sem leikiö er til úrslita í deild-
inni. Denver er álitið sigurstranglegra af flestöllum sérfræð-
ingum, enda er þetta í fyrsta sinn í sögu Atlanta sem félagið
kemst í úrslitaleikinn. Liðið kom mjög á óvart í undanúrslita-
leiknum gegn Minnesota Vikings og eyðilagði þar með
draumaúrslitaleik aðdáenda íþróttarinnar hér á landi, en flest-
ir höfðu vonast eftir að Denver og Minnesota léku til úrslita.
skrifar frá
Bandaríkjunum
Bæði Denver og Atlanta unnu
16 af 18 leikjum sínum í vetur
og því ætti úrslitaleikurinn að
geta orðið
Gunnar skemmtilegur og
Valgeirsson jafn. Denver býr
hins vegar að
reynslunni úr úr-
slitaleiknum í fyrra þar sem liðið
sigraði. Leikstjómandi Broncos,
John Elway, leikur sennilega sinn
síðasta leik fyrir liðið eftir farsæl-
an 16 ára feril. Hann ætlaði að
leggja skóna á hilluna eftir síðasta
keppnistímabil en þegar hann
náði því loks að verða meistari
ákvað hann að bæta einu tímabili
við.
Þjálfari Atlanta, Dan Reeves,
er fyrrum þjálfari Denver, en
hann hætti með liðið eftir storma-
sama stjómun. Hann rak sóknar-
þjálfarann Mike Shanahan (nú-
verandi aðalþjálfara Denver) og
samstarf hans og Elway leik-
stjórnanda var einnig erfitt.
Fréttamenn hér á landi hafa síð-
ustu tvær vikurnar beint spjótum
sínum að þessu erfiða samstarfi
þremenninganna og virðist af um-
mælum þeirra að enn hafi ekki
gróið um heilt þeirra á milli.
Reeves kom Denver fjórum
sinnu í úrslit én liðið tapaði öllum
úrslitaleikjunum. Hann gekkst
nýlega undir mikinn hjartaupp-
skurð en hefur náð sér fullkom-
lega.
Bæði lið munu reiða sig á leik-
stjómendur og bakverði sína í
sókninni. Elway hefur mikla
reynslu hjá Denver, en leikstjóm-
andi Atlanta, Chris Chandler,
leikur sinn fyrsta úrslitaleik.
Hann hefur víða farið og er Atl-
anta sjötta liðið sem hann leikur
með og kappinn hefur aldrei leikið
betur.
Liðin hafa bestu bakverðina í
deildinni (það eru þeir sem ryðj-
ast með boltann í gegnum smugur
í vamarlínunni). Terrell Davis hjá
Denver og Jamal Anderson hjá
Atlanta eru mjög svipaðir leik-
menn. Davis er heldur frárri á
fæti, en Anderson sterkur og öfl-
ugur.
Lykillinn að sigri hjá báðum lið-
um verður að stöðva þessa tvo
leikmenn og ætli Atlanta sér sigur
verður liðið að gæta þess að lenda
ekki of mikið undir snemma leiks.
Eini möguleiki Atlanta að mati
flestra er að liðinu takist að stela
boltanum af sókn Denver.
Flestir bjuggust við að
Minnesota myndi sigra Faleons
örugglega í undanúrslitaleik lið-
anna, en Vikings tókst aldrei að
stinga af og Atlanta vann leikinn
með góðum endasprett. Denver
verður því að leggja áherslu á að
ná forystunni sem fyrst og hanga
svo á boltanum með því að láta
Davis ryðjast með hann hvað eftir
annað.
Leikurinn fer fram á hinum frá-
bæra Pro Player-leikvangi,
heimavelli Miami Dolphins. Leik-
vangurinn tekur 75.000 manns í
sæti og er að sjálfsögðu löngu
uppselt á leikinn. Hvort lið fær
um 15.000 miða til ráðstöfunar, en
restina fá önnur lið og fyrirtæki.
Aðeins 1.500 miðar eru seldir til
almennings. Miðaverðið í ár er frá
325 til 400 Bandaríkjadalir. Þess
má geta að Fox-jónvarpsstöðin
mun taka 1,6 milljóna dala gjald
fyrir 60 sekúndna auglýsingu á
meðan á leiknum stendur.
Steve McManaman til Real Madrid
Fær sjö millj-
ónir á viku
STEVE McManaman miðvallarspilari hjá enska knattspyrnufé-
laginu Liverpool mun ganga í raðir Evrópumeistara Real Madrid
á sumri komanda. Mun hann skrifa undir fimm ára samning við
spænska liðið á næstu dögum sem talið er að muni tryggja
honum allt að 60.000 sterlingspundum, tæpar sjö milljónir
króna, í vikulaun. Heildartekjur hans á samningstímanum gætu
því numið um 1,8 milljarði króna. Þetta hefur ekki fengist stað-
fest en ef rétt reynist verður McManaman, sem er 26 ára gam-
all, launahæsti enski knattspyrnumaðurinn frá upphafi vega.
Samningur McManamans við
Liverpool er laus í sumar
þannig að enska félagið getur,
vegna Bosman-reglunnar svo-
nefndu, ekki farið fram á greiðslu
fyrir hann. Ef fyrrnefndar tölur
eru á rökum reistar er þetta
langstærsti samningur sem gerður
hefur verið í skjóli Bosman-regl-
unnar.
McManaman, sem er fæddur og
uppalinn í borginni Liverpool og
hefur allan sinn feril leikið með Li-
verpool, skrifaði undir sinn fyrsta
samning við félagið sumarið 1990. í
yfirlýsingu sem hann sendi frá sér
á fóstudagskvöld kvaðst hann vera
afar hryggur yfir því að yfirgefa fé-
lagið en tækifærið til að leika með
Real Madrid, ríkjandi Evrópu- og
heimsmeisturum félagsliða, hefði
verið of gott til að hafna. „Það er
metnaðarmál fyrir mig að spreyta
mig í annarri sterkri deild í Evr-
ópu.“
A ferli sínum hjá Liverpool hef-
ur McManaman tvívegis unnið til
metorða. Hann var-í sigurliði fé-
lagsins í bikarkeppni enska knatt-
spymusambandsins 1992 og gerði
bæði mörkin þegar Liverpool vann
Bolton 2-1 í úrslitaleik ensku
deildabikarkeppninnar 1995. Alls
hefur hann leikið meira en 350 leiki
fyrir Liverpool og 22 landsleiki fyr-
ir England. Hann var ein af skær-
ustu stjörnum Evrópumóts lands-
liða í Englandi fyrir hálfu þriðja ári
en hefur ekki átt upp á pallborðið
hjá Glenn Hoddle núverandi lands-
liðsþjálfara.
McManaman hefur lítið leikið að
undanfómu vegna meiðsla en er á
batavegi og lýkur vetrinum hjá Li-
verpool en samningurinn við Real
Madrid tekur gildi 1. júlí.