Morgunblaðið - 31.01.1999, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1999 57
I
I
I
(
I
Stutt
Leiddist svo
í vinnunni
►ÖRYGGISVÖRÐUR í Omaha í
Bandaríkjunum sem leiddist mik-
ið í vinnunni ákvað sl. miðvikudag
að lífga upp á líf sitt. Hann
hringdi í lögreglu og tjáði þeim
að hann hefði fengið sprengjuhót-
un í bankann sem hann gætti.
Uppi varð fótur og fit, götum lok-
að, fyrirtæki tæmd af fólki og lög-
reglan leitaði að sprengjunni í
meira en klukkutíma.
Hinn tvítugi öryggisvörður,
Nicholaus Epperson, sagði lög-
reglunni að dimmraddaður maður
hefði hringt og sagt frá sprengj-
unni. Að lokum viðurkenndi Epp-
erson að hafa spunnið upp
sprengjuhótunina. „Hann sagði að
honum leiddist og að hann vant-
aði spennu í líf sitt,“ sagði lög-
reglusljórinn Herb Evers í sam-
tali við fjölmiðla.
Ekkert hundalíf
í borginni
►BORGARSTJÓRI New York-
borgar, Rudolph Giuliani, hefur
skorið upp herör gegn hundalífi í
borginni. Giuliani, sem er þekktur
fyrir að vera fylginn sér, segir að
gangskör eigi að gera að því að
hreinsa borgina af hættulegum
hundum á lausagöngu, og er aðgerð-
in hluti af viðleitni hans að gera
borgina lífvænlegri fyrir íbúana.
Akvörðunin hefur vakið reiði
sumra hundaeigenda í borginni,
enda hafa margir þeirra þurft að
kaupa sér háar tryggingar fyrir
hunda sína, ef þeir slyppu lausir og
yllu einhveijum skráveifu. Aðrir
hafa velt því fyrir sér hvort markmið
borgarstjórans og áhersla á lífvæn-
legri borg sé hugsanlega stökkpallur
borgarstjórans í enn veigameiri póli-
tíska stöðu.
Giuliani getur ekki setið fleiri
kjörtímabil í stól borgarstjóra og
geta þess sér margir til að hann
muni sækjast eftir sæti í öldunga-
deild þingsins, en sæti repúblikana-
þingmannsins Daniel Patrick Moyni-
han losnar árið 2000 þegar hann fer
á eftirlaun. Borgarstjórinn hefur
engar yfirlýsingar gefið um málið.
Útigjöf til ills
►BRESK bóndakona féll fram af
brún námu einnar þegar hún
hugðist færa kindum á beit hey
nálægt Durham í Norðaustur-
Bretlandi. Hin 67 ára Betty
Stobbs hafði farið með heybagga
aftan á mótorhjóli að snös ónot-
aðrar grjótnámu þar sem kind-
urnar voru. Kindurnar urðu svo
æstar þegar þær sáu heyið að þær
stukku upp á hjólið svo það féil á
hliðina og konan féll af hjólinu og
niður í grjótnámuna.
„Ég sá kindurnar flykkjast að
hjólinu og síðan sá ég Betty falla
niður í námuna,“ sagði nágranni
konunnar, Alan Renfry, í samtali
við fréttamenn. Konan lést þegar
hjólið féll ofan á hana í námunni.
...þú
átt það
inni
e
**»
m
Skafkort
SÍM
798796543212
ÁfyLling á GSM FreLsi er einföLd.
Þú kaupir skafkort á næsta sölustað,
hringir i 1441 og stimplar inn
lykilnúmerió.
Frelsis skafkortíð
kostar 2Öðo krónur
SÍMINN GSM
www.gsm.is/frelsi
Sýnd
m bíó
RÁÐ
N
.«
BETRA
Ktflavik - sími 421 1170
grinm
Imeí
Eddie lÍAurphy i essinu sínu.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Thx
ATH. 5 sýningar alla virka daga
www.samfilm.is