Morgunblaðið - 04.02.1999, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999 9
Forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur
um húshitun á Álftanesi
50% lækkun á
fímm árum
HÚSHITUNARKOSTNAÐUR er
talinn hafa lækkað um 50% á Alfta-
nesi síðan Hitaveita Reykjavíkur
keypti Hitaveitu Bessastaðahrepps
fyrir fimm árum.
Þetta kemur fram í svari forstjóra
Orkuveitu Reykjavíkur, sem lagt hef-
ur verið fram í borgarráði en hrepps-
nefnd Bessastaðahrepps hefur beint
þeim tilmælum til borgarstjómar að
verð frá orkuveitu borgarinnar á
höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavík-
ur lækki í ár sem nemi hlutdeild íbúa
á svæðinu í áætluðum arðgreiðslum
orkuveitunnar í borgarsjóð á árinu.
I samþykkt Bessastaðahrepps seg-
ir enn fremur að það sé með öllu
óviðunandi að íbúar á höfuðborgar-
svæðinu utan Reykjavíkur, þai' á
meðal íbúar Bessastaðahrepps, séu
látnir taka þátt í rekstri höfuðborg-
arinnar með óeðlilega háu orkuverði
eins og tíðkast hafi.
I svari Guðmundai- Þóroddssonar
forstjóra Orkuveitunnar segir að það
sé illskiljanlegt hvernig sveitarstjórn
komist að þeiiTÍ niðui’stöðu að Orku-
veitan oki-i á íbúum Bessastaða-
hrepps. Eina þjónustan sem hrepp-
urinn fái frá veitustofnunum sé heitt
vatn á sama verði og til íbúa í
Reykjavík. Bent er á að mun dýrara
sé að sjá þeim fyrir vatni heldur en
íbúum Reykjavikur, þar sem um
dreifða byggð sé að ræða.
Fram kemur að þegar Hitaveita
Reykjavíkur keypti Hitaveitu
Bessastaðahrepps fyiir fimm árum
hafi verð á hverjum rúmmetra vatns
lækkað um 26%, samkvæmt gögnum
Orkustofnunar.
114 milljóna fjárfesting
Bent er á að Hitaveita Reykjavík-
ur hafi fjárfest fyrir 50 milljón-
ir við yfirtökuna og fyi-ir um 62 millj-
ónh' við endurnýjun á Alfta-
nesæð auk þess sem fjárfest hafi ver-
ið fyrir um 4 milljónii' í dreifi-
kerfi eða samtals um 114 milljón-
ir á verðlagi í desember 1998. Þá seg-
ir að tekjur Hitaveitunn-
ar af Bessastaðahreppi hafí ver-
ið um 20 milljónir á síðasta ári.
*
Landsbókasafn Islands -
Háskólabókasafn
Einnig opið
fyrir almenning
AFGREIÐSLUTÍMI Þjóðarbók-
hlöðunnar hefur verið lengdur um
þrjár klukkustundir á dag fyrir allan
almenning eins og námsmenn auk
þess sem einnig er opið á sunnudög-
um milli kl. 11 og 17.
Að sögn Einars Sigurðssonar
landsbókavarðar, eru þrjár hæðir
safnsins opnar almenningi jafn lengi
og fyrir námsmenn. A annam hæð er
útlánadeild og handbækur og á þriðju
og fjórðu hæð er lestraraðstaða sem
verður höfð opin frameftir en fyrsta
hæð lokar kl. 19. „Almennir borgarar,
sautján ára og eldri, hafa aðgang að
því sem er á annað borð opið,“ sagði
hann. „Þeir hafa aðgang að heilmikl-
um bókakosti og ritum sem eru á
opnum hillum en ekki að þjóðdeild-
inni, þar sem eru sérstök rit, sem
ekki eru lánuð út. Henni og handrita-
deild er lokað kl. 19.“
í frétt frá Stúdentaráði Háskóla Is-
lands segir að ákveðið hafi verið í til-
efni lengri afgi-eiðslutíma Þjóðarbók-
hlöðunnar að afhenda Einari Sigurðs-
syni landsbókaverði og Páli Skúla-
syni, rektor Háskóla Islands, 3,7
milljóna króna framlag til bókakaupa.
Er það lokauppgjör Þjóðarátaks sem
ráðist var í af stúdentum við opnun
Þjóðarbókhlöðunnar en þá voru af-
hentar 22 milljónir til rit- og bóka-
kaupa.
Helgartilboð
á ýmsum töskum
og hönskum
30% afsláttur
Veitum 30% afslátt af
ýmsum töskum og
hönskum á löngum
laugardegi.
Tilboðið gildir í dag,
föstudag og laugardag.
Stærsta töskuverslun landsins, Skólavörðustíg 7, sími 551-5814
UTSALA
Hverfisgata 6, Reykjavík, Sími 562 2862
mbl.is
Utsala
QIW
Laugavegi 101, sími 562 1510.
3 leiðir til að viðhalda
ferskleika húðarinnar
Moisture On-Call, Moisture On-Line
eða Moisture In-Control.
Fyrr en seinna þarfnast húð þín
hjálpar til að viðhalda þéttleika og
teygjanleika eða til að viðhalda
ferskleika húðarinnar.
Hjá Clinique færðu réttu hjálpina.
Moisture On-Call, Moisture On-
Line og Moisture In-Control sjá
um þarfir húðarinnar, byggja upp
rakahlíf húðarinnar og viðhalda
rakanum.
Þú getur því verið áhyggjulaus ef
þér finnst húðin vera að missa
teygjanleika sinn.
Moisture On-Call
Moisture On-Line
Moisture In-Control
Komdu eða hringdu og pantaðu tíma í ókeypis húðgreiningu og
ráðgjöf. Ráðgjafi frá Clinique verður í Lyfju Lágmúla fimmtudag,
föstudag og laugardag, og í Lyfju Setbergi fimmtudag og föstudag.
Lágmúla
sími 533 2300
LYFJA
Setbergi
sími 555 2306
Enn meiri lækknn
á ntsölnvörnm
B-YOUNG
Cinde^ella