Morgunblaðið - 04.02.1999, Side 12

Morgunblaðið - 04.02.1999, Side 12
r 12 FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999 H- MORG UNBLAÐIÐ FRETTIR Samfylkingm á Reykjanesi heldur opið prófkjör með girðingum um helgina Aí : LÞÝÐUFLOKKURINN, Alþýðu- bandalag, Þjóðvaki og Kvennalisti hafa í dag samtals fimm þingsæti á •Reykjanesi. Þótt erfitt sé að spá fyrir um úrslit alþingiskosninganna hlýtur Samfylkingin að setja sér það markmið að halda þessum fimm þingsætum. Fimmta sæt- ið getur þó alls ekki talist öruggt þingsæti. Prófkjörið er opið, en sú regla gildir að flokkunum þremur er tryggt eitt af fjórum efstu sætunum. Þetta þýðir að einn af þessum flokkum fær tvö sæti af fjórum efstu og er langlíklegast að það verði Alþýðuflokkurinn. Bæði er að Aiþýðuflokkurinn á Reykjanesi hefur um mjög langt skeið verið mun sterkari en Alþýðubandalagið og Kvennalistinn og eins taka þátt í prófkjörinu þrír þingmenn Alþýðu- flokksins, Agúst Einarsson, Guðmundur Arni Stefánsson og Rannveig Guðmundsdóttir, sem öll hafa þokkalega sterka stöðu. Þá má heldur ekki gleyma því að áratugahefð er fyr- ir prófkjörum hjá Alþýðuflokknum, en Al- þýðubandalag og Kvennalisti hafa aldrei efnt til prófkjörs í kjördæminu. Niðurstaðan gæti því orðið sú að alþýðuflokksmenn verði bæði í fyrsta og öðru sæti iistans. Bæði Guðmundur Árni og Rannveig stefna á fyrsta sæti listans. Agúst hefur ekki gefið afgerandi yfirlýsingar um að hann ætli sér fyrsta sætið. Hann hefur sagt að hann stefni á eitt af efstu sætunum og að hann vilji vera við toppinn. Vegna girðingarinnar við fjórða sæt- ið er Ijóst að eitt þeirra þriggja verður ekki ofar en í fimmta sæti. Það er því ljóst að milli þremenninganna verður hörð barátta í próf- kjörinu. Góð þátttaka í síðasta prófkjöri I síðasta prófkjöri Alþýðuflokksins tókust Rannveig og Guðmundur Arni á um fyrsta sætið. Keppnin varð mjög hörð og snerist að sumu leyti upp í baráttu milli Kópavogsbúa, sem studdu Rannveigu, og Hafnfirðinga, sem studdu Guðmund Árna. Þátttaka í prófkjörinu varð mjög góð, en um 8.800 greiddu atkvæði. Prófkjörið var haldið stuttu eftir að Guð- mundur Árni neyddist til að segja af sér ráð- herraembætti, en Rannveig var hins vegar orðin ráðherra. Það má því segja að Guð- mundur Árni hafi á þeim tíma verið væng- brotinn, enda hafði Rannveig betur í prófkjör- inu og hreppti fyrsta sætið. Ekki voru allir viðmælendur Morgunblaðs- ins sannfærðir um að pólitískur styrkleiki Rannveigar og Guðmundar Árna hafi aukist frá síðasta prófkjöri. Flestir viðmælendur blaðsins töldu þó að Rannveig næði fyrsta sætinu. í ljósi þess að flestir spáðu Össuri Skarphéðinssyni fyrsta sætinu í Reykjavík er óvarlegt að slá því föstu að Rannveig nái fyrsta sætinu. Rannveig hefur verið formaður þingflokks jafnaðarmanna á kjörtímabilinu. Hún er fyrr- verandi ráðherra og kemur frá stærsta byggðakjarnanum. Kynferði gæti einnig hjálpað henni í prófkjörinu, a.m.k. má búast við að kvennalistakonur, sem taka þátt í próf- kjörinu, greiði henni atkvæði. Þótt menn hafi kannski misjafnar skoðanir á því hversu af- gerandi forystumaður Rannveig er þá eru menn almennt sammála um að hún hafi verið tiltölulega farsæll þingmaður. Pólitískt gengi Guðmundar Áma hefur ver- ið dálítið misjafnt í gegn um tíðina. Hann vann glæsilega kosningasigra í Hafnarfirði ár- ið 1986 og 1990, var vel látinn sem bæjar- stjóri, lenti í miklum erfiðleikum sem ráð- herra, en var síðan kosinn varaformaður Al- þýðuflokksins. Guðmundur Ámi kemur úr Hafnarfirði, sem löngum hefur verið sterkasta vígi flokksins. Alþýðuflokkurinn í Hafnarfirði lenti hins vegar í miklum hremm- ingum fyrir síðustu bæjarstjómarkosningar. Harðar deilur urðu innan flokksins um hvort hann ætti að bjóða fram með Al- þýðubandalaginu eða undir eigin merkjum. Niðurstaðan varð sú að flokkur- inn bauð fram A-lista, sem tapaði miklu fylgi og því hrökklaðist flokk- urinn frá völdum. Guðmundur Árni Þingmenn Al- þýðuflokks bítast um örugg sæti Prófkjör Samfylkingar á Reykjanesi um næstu helgi einkennist ekki síst af harðri baráttu þriggja þing- manna Alþýðuflokksins um örugg þingsæti. Prófkjörs- reglurnar gera það að verkum að eitt þeirra tapar þessari baráttu og getur ekki lent ofar á listanum en í fímmta sæti, sem er ekki öruggt þingsæti. Egill Ólafs- son skoðaði baráttu frambjóðenda á Reykjanesi. MmiIJÍÍJJJ Ama sem ráðherra og það mál valdi honum því enn vissum erfiðlejkum. Þó að Guðmundur Ami stefni á fyrsta sætið verður það tæplega neitt áfall fyrir hann þótt hann nái ekki takmarki sínu. Höfuðatriði fyrir hann er að verða fyrir ofan Ágúst. Það væri hins vegar ákveðið áfall fyrir Rannveigu ef hún næði ekki fyrsta sætinu. Ágúst gæti komið á óvart Tryggt að hver flokkur fær eitt af fjórum efstu sætum tók þátt í umræðum um þessi mál og hafði áhrif á niðurstöðuna. Heimildarmenn blaðsins fullyrða að þessi innanflokksátök valdi því að Guðmundur Árni geti ekki vænst jafnóskor- aðs stuðnings úr Hafnarfirði og hann hefur jafnan fengið þaðan. Á móti kemur að hann er sagður nokkuð sterkur á Suðurnesjum. Stuðningsmenn Guðmundar Áma segja að í síðasta prófkjöri hafi afsögn hans sem ráð- herra spillt fyrir honum. Þau mál séu frá og nú geti hann vænst betri niðurstöðu. Að auki séu ýmsir þeirrar skoðunar að miðað við gagnrýni á suma ráðherra í núverandi ríkis- stjórn hafi afsögn Guðmundar Áma verið full- hörð niðurstaða. Stuðningsmenn annarra frambjóðenda segja aftur á móti að í þessu prófkjöri rifji menn upp afsögn Guðmundar Fæstir treysta sér til að spá fyrir um styrk Ágústs Einarssonar í prófkjörinu. Hann var kosinn á þing fyrir Þjóðvaka, en gekk í Al- þýðuflokkinn á miðju kjörtímabilinu. Hann hefur lengi unnið að því að styrkja pólitíska stöðu sína innan kjördæmisins. Hann hefur verið nokkuð áberandi þingmaður, haldið úti öflugri heimasíðu á Netinu og er sagður hafa verið mun duglegri að hafa samband við kjós- endur en hinir þingmenn Alþýðuflokksins. Þó að hann þyki hafa staðið sig vel sem þingmað- ur verður að hafa í huga að hann er að etja kappi við þingflokksformann jafnaðarmanna og varaformann Alþýðuflokksins. Ágúst er búsettur á Seltjarnarnesi þar sem vinstriflokkarnir hafa átt erfitt uppdráttar, auk þess sem bæjarfélagið er ekki mjög fjöl- -------- mennt. Þetta gæti valdið Ágústi erfiðleikum, þ.e.a.s. ef byggðasjón- armið verða sterkur þáttur í próf- kjörinu, eins og t.d. gerðist í próf- kjöri sjálfstæðismanna í haust. Án efa munu frambjóðendur frá stóru bæjarfélögunum reyna að koma byggðasjónarmiðunum að. Gott gengi þing- manna Þjóðvaka í prófkjörinu í Reykjavík Aðrir frambjóðendur Alþýðuflokksins eru Gestur Páll Reynisson, háskólanemi og fram- kvæmdastjóri Sambands ungra jafnaðar- manna, og Valdimar Leó Friðriksson, stjóm- málafræðingur og framkvæmdastjóri Aftur- eldingar í Mosfellsbæ. Mikil óvissa um útkomu alþýðubandalagsmanna Sú spuming vaknar hvort kjósendur muni í prófkjörinu kjósa eingöngu sína flokksmenn eða kjósa frambjóðendur úr öllum flokkum. Fleiri hallast að því að kjósendur muni kjósa þvert á flokksbönd. Reynslan úr sameiginlegu prófkjöri Alþýðufiokks og Alþýðubandalags í Reykjanesbæ í fyrra var t.d. sú að flestir kusu blandaða lista. Prófkjörsreglurnar eru líka þannig að þær tryggja frambjóðendum allra flokka eitt af efstu sætum og því væri rökrétt að kjósendur merktu við frambjóðendur fleiri en eins flokks. Vegna þess hvað Alþýðuflokk- urinn hefur verið sterkur á Reykjanesi geta kjósendur hans haft talsverð áhrif á það hvaða alþýðubandalagsmaður nær öruggu þingsæti í prófkjörinu. Mikil óvissa ríkir um hvaða alþýðubanda- lagsmaður nær bestum árangri í prófkjörinu. Frambjóðendur flokksins eru flestir nokkuð þekktir og hafa tekið virkan þátt í flokksstarfínu. Enginn fram- bjóðandi flokksins stefnir beinlínis á fyrsta sætið heldur stefna flestir á annað eða þriðja sætið. Sigríður Jóhannesdóttir alþingis- bjóðandi af Suðumesjum sem á mesta mögu- leika á þingsæti. Það hjálpar Sigríði að ákveðnu marki að hún fær marga nokkuð sterka keppinauta úr Alþýðubandalaginu og því má búast við að at- kvæði þeirra dreifist talsvert. Tveir af for- ystumönnum Alþýðubandalagsins í Hafnar- firði bjóða sig fram, Lúðvík Geirsson bæjar- fulltrúi og Magnús Jón Árnason, fyrrverandi bæjarstjóri. Nokkrar væringar urðu milli Lúðvíks og Magnúsar Jóns í tengslum við framboðsmál í Hafnarfirði fyrir síðustu bæj- arstjórnarkosningar og búast má við að þeir taki fylgi hvor frá öðrum. Lúðvík er fyrrverandi formaður Blaða- mannafélagsins og hefur setið í bæjarstjórn Hafnarfjarðar undanfarin ár. Hann var odd; viti Fjarðarlistans í síðustu kosningum. I skoðanakönnun sem efnt vai- til fyrir kosning- arnar sigi'aði hann Magnús Jón, sem lenti í 4. sæti. Möguleikar Lúðviks felast ekki síst í því ef honum tekst að fá góðan stuðning frá kröt- um í Hafnarfirði. En það á við hann eins og aðra frambjóðendur að menn verða að fá víð- tækan stuðning til að ná öruggu þingsæti. Magnús Jón Árnason aðstoðarskólastjóri hefur í nokkur ár verið forystumaður Alþýðu- bandalagsins í Hafnarfirði. Hann var bæjar- stjóri í upphafi síðasta kjörtímabils. Á síðustu tveimur árum hefur hann verið fulltrúi Al- þýðubandalagsins í samstarfsnefndum sem unnið hafa að því að koma á sameiginlegu framboði Alþýðuflokks, Alþýðubandalags og Kvennalista. Magnús Jón og Lúðvík stefna báðir að einu af efstu sætunum. Valþór Hlöðversson, blaðamaður og fram- kvæmdastjóri kynningafyrirtækisins Athygli ehf., býður sig fram í 2. sætið. Hann hefur set- ið í bæjarstjórn Kópavogs í 12 ár og var bæj- arstjóraefni sameiginlegs framboðs Kópavogs- listans í síðustu bæjarstjórnarkosningum. Bú- ast má við að hann fái öflugan stuðning úr Kópavogi m.a. frá alþýðuflokksmönnum. Eng- in leið er þó að sjá fyrir um hvort hann á meiri möguleika en t.d. Magnús Jón eða Lúðvík. Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélagsins, sækist eftir stuðningi í 1.- 3. sæti listans. Hún var þriðja á framboðslista Alþýðubandalagsins fyrir síðustu alþingis- kosningar og er því varaþingmaður. Kristín vakti athygli í verkfalli sjúkraliða fyrir nokki’um árum. Hún sækir ekki síst stuðning til fólks í verkalýðshreyfmgunni. Skúli Thoroddsen, lögmaður í Reykjanes- bæ, hefur í allmörg ár komið að starfi Alþýðu- bandalagsins, en hann er þó almennt talinn eiga nokkuð á brattann að sækja. Sama á við um Trausta Baldursson, sameindarlíffræðing úr Hafnarfirði. Fyrirsjáanleg úrslit hjá Kvennalistanum Öruggtað alþýðuflokks- maður verður í fyrsta sæti gæti hins vegar verið vísbending um að Ágúst geti vænst góðrar útkomu. Mjög eifitt verður fyi-h- aðra frambjóðend- ur Álþýðuflokksins að komast upp fyrir þing- mennina, en reynslan hefur sýnt að þingmenn hafa almennt talsvert forskot á aðra fram- bjóðendur. Jón Gunnarsson, framkvæmda- stjóri og fyiTverandi oddviti Vatnsleysu- strandarhrepps, er þó talinn eiga möguleika á góðum árangri. Hann var varaþingmaður á síðasta kjörtímabili og tók nokkrum sinnum sæti á Álþingi. Jón stefnir á annað sætið. Magnús Norðdahl, lögmaður og formaður flokksstjórnar Alþýðuflokksins, stefnir einnig að öruggu sæti. maður hefur ákveðið forskot sem þingmaður, en hún settist á þing fyrir Alþýðubandalagið árið 1996. Margir sækja að Sigríði og þykir ljóst að hún þurfi að hafa talsvert fyrir því að verja stöðu sína. Sigríður er úr Reykjanesbæ, sem er bæði kostur og galli fyrir hana ef horft er til möguleika hennar í prófkjöri. Aðeins um fjórðungur kjósenda á Reykjanesi kemur af Suðurnesjum þannig að hún verður að fá stuðning víðar í kjördæminu ef hún á að ná ör- uggu þingsæti. Búseta Sigríðar á Suðumesj- um getur hins vegar hjálpað henni að því leyti að hún er eini þingmaðurinn, sem tekur þátt í prófkjörinu, sem býr þar. Hún ætti því að geta vænst öflugs stuðnings af Suðurnesjun- um ef hún notar þau rök að hún sé sá fram- Þær sem bjóða sig fram af hálfu Kvenna- listans eru Álfheiður Jónsdóttir, kennari og húsmóðir Keflavík, Bima Sigurjónsdóttir, að- stoðarskólastjóri og varabæjarfulltrúi Kópa- vogi, Dóra Hlín Ingólfsdóttir rannsóknarlög- reglukona Mosfellsbæ, Ragna B. Björnsdótt- ir, verkakona Hafnarfirði, og Þórann Svein- bjarnardóttir, stjórnmálafræðingur og blaða- maður úr Kópavogi. Einungis Þórann og Bima hafa lýst því yfir að þær stefni á ákveðin sæti og hafa nefnt 3.- 4. sæti. Prófkjörsreglurnar tryggja að efsta kona Kvennalistans fer ekki neðar en í fjórða sæti. Talsmenn Kvennalistans segja að þær hafi metnað til að ná fjórða sætinu án þess að það reyni á regluna um girðingu við fjórða sætið. Slæm útkoma Kvennalistans í prófkjöri í Reykjavík ætti að vera kvennalistakonum hvatning að sýna að þær njóti fylgis. Þess ber að geta að prófkjörsreglumar í Reykjavík hafa án efa komið niður á fylgi við kvenna- listakonur. Það kann að hjálpa Kvennalistan- um að ná þessu markmiði að kjósendur vita af þessari reglu um að hver flokkur fær eitt af fjórum efstu sætunum og þeir geta því með vali sínu haft áhrif á hver skipar sæti Kvennalist- ans. Mestar líkur era á að það verði Þórunn sem verði efst hjá Kvenna- listanum. Hún var í þriðja sæti á framboðs- lista Kvennalistans í Reykjavík við síðustu al- þingiskosningar og hefur tekið sæti á Alþingi sem varaþingmaður. Hún hefur tekið mikinn þátt í störfum flokksins í mörg ár og hefur oft sinnis verið talsmaður Kvennalistans út á við. Þórunn er auk þess ein af fáum frambjóðend- um af yngstu kynslóð stjórnmálamanna sem á raunhæfa möguleika á þingsæti. Hún er auk þess fyrsti fonnaður Röskvu, félags stúdenta við Háskólann, og má því kalla hana verðugan fulltrúa svokallaðrar Röskvukynslóðar. Framboð Birnu er aftur á móti alvöru fram- boð og hún mun örugglega veita Þórunni verðuga keppni. Hún var í fjórða sæti fram- boðslista Kvennalistans fyi-ir síðustu alþingis- kosningar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.