Morgunblaðið - 04.02.1999, Síða 13

Morgunblaðið - 04.02.1999, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999 13 FRÉTTIR Magnús L. tekur sæti á Alþingi „EG KEM inn í fjarveni forsætis- ráðherrans. Eg segi nú ekki að ég setjist í stólinn hans, enda er það nú vandasamt,“ sagði Magnús L. Sveinsson, formaður Verslunar- mannafélags Reykjavíkur, í sam- tali við Morgunblaðið, en hann tók í fyrsta skipti sæti á Alþingi nú þegar þing kom saman. Skemmtileg lífsreynsla Magnús, sem meðal annars sat tuttugu ár í borgarstjórn, sagði að þetta væri skemmtileg lífsreynsla. A Alþingi væri verið að fjalla um þjóðmálin og auðvitað væri sann- leikurinn sá að þar væri verið að fjalla meira og minna um mál sem vörðuðu kjör launþega, sem hann væri að vinna að alla daga. Magnús sagði að þegar hann hefði verið beðinn um að taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir tæpum fjórum árum hefði það komið honum á óvart. Hann hefði látið til leiðast og sagt á þeim tíma að það væri kanski með pólitíkina eins og alkóhólismann að það væri erfitt að komast út úi’ henni ef maður væri kominn í hana á annað borð. „En þetta er vissulega gam- an og það er lífsreynsla að koma inn í þessa virðulegu stofnun," sagði Magnús ennfremur. Morgunblaðið/Árni Sæberg MAGNUS L. Sveinsson undirritar eiðstaf þingmanna að viðstöddum Friðrik Olafssyni, skrifstofustjóra Alþingis. Samningsum- boð LSS ekki viðurkennt FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ við- urkennir ekki samningsrétt Lands- sambands slökkviliðsmanna fyrir hönd sjúkraflutningamanna úti á landi sem eru í hlutastarfí. Þar er um 70-80 manns að ræða og höfðu allir sjúkraflutningamenn á Austur- landi sagt upp störfum vegna þess að ekki hafði verið gerður sérstakur kjarasamningur við þá. Gerður var samningur milli heil- brigðisráðuneytisins og Rauða krossins um áramótin 1997-1998 þar sem gert er ráð fyrir að Rauði krossinn haldi utan um sjúkraflutn- inga í landinu, annist allan rekstur og innkaup á bílum og tækjum og fær Rauði krossinn ákveðnar greiðslur í staðinn samkvæmt samn- ingnum. I samningnum felst að heil- brigðisráðuneytið tekur að sér að greiða laun sjúkraflutningamanna. Guðmundur Vignir, formaður Landssambands slökkviliðsmanna, segir að þegar samningurinn var gerður hafí verið ýmis háttur á þessum málum. Málið snúi nú að þeim sem eru í öðrum störfum með- fram sjúkraflutningum en þeir sinna um 20% af öllum sjúkraflutn- ingum í landinu. Um 80% af flutn- ingunum sinna slökkviliðsmenn. Langflestir í báðum hópum eru lög- giltir sjúki’aflutningamenn. Þessir aðilar hafa sótt um aðild að Landssambandi slökkviliðsmanna og á aðalþingi í apríl nk. verður einnig tekin afstaða til sameiningar sambandanna tveggja í ein samtök. Landssamband slökkviliðsmanna fór í þrígang á síðasta ári fram á það við heilbrigðisráðuneytið að samið yrði við sjúkraflutningamenn í hlutastörfum en ekki fékkst svar við erindunum. Guðmundur Vignir segir að sjúkraflutningamenn á Fáskrúðs- fírði hafi sagt upp frá og með ára- mótum þar sem þeir hafi ekki séð fram á að samningur næðist. Þegar aftur vom teknar upp viðræður eftir áramót kom fram að fjármálaráðu- neytið viðurkennir ekki að Lands- samband slökkviliðsmanna fari með samningsumboð fyrir þessa menn heldur einvörðungu fyrir slökkvi- liðsmenn. Fulltrúar Heilbrigðisstofnunar Austurlands buðu síðan sjúkraflutn- ingamönnum á Fáskrúðsfírði samn- ing sl. mánudag en á sama tíma sögðu aðrir sjúkraflutningamenn á Austurlandi upp störfum frá og með 15. febrúar. Guðmundur Vignir seg- ir að samningurinn liggi í þagnar- gildi meðan verið er að kynna hann öðmm sjúkraflutningamönnum á Austurlandi og því geti hann ekki tjáð sig um efni hans. Hann segir þó ljóst að samningurinn feli ekki í sér viðurkenningu á samningsumboði Landssambands slökkviliðsmanna. Landssíminn telur að til- skipun EES eigi ekki við LANDSSÍMINN telur að tilskip- un EES um að fyrirtækjum á sviði fjarskipta sé skylt að bjóða út verk sem kostar meira en 600 þúsund ECU eigi ekki við um fyrirtækið þar sem það njóti ekki sér- eða einkaleyfa og öðram aðilum sé heimilt að bjóða sömu þjónustu. Ólafur Þ. Stephensen, forstöðu- maður upplýsinga- og kynningar- mála Landssímans, segir að út frá fjárhagslegu sjónarmiði hefði Landssíminn talið æskilegast að bjóða út prentun símaskrárinnar þar sem vitað er að slík þjónusta fæst fyrir lægra verð með slíku fyi’irkomulagi. Landssíminn telji hins vegar að önnur fyrirtæki en Oddi hf. hafi ekki það bolmagn og reynslu sem þurfi til þess að prenta símaskrána. Sömu sjónar- mið eigi hins vegar ekki við hvað varðar innkaup á pappír. Eðlilegt hafí verið að bjóða út þann þátt til þess að fá hann á sem lægstu verði og var það gert. Ólafur segir að talsverður fjöldi fyrirtækja hafi skilað inn tilboðum í pappírinn og búið sé að semja við þrjú. Samið var við Skeljung um pappírinn í kápuna og hljóðar sá samningur upp á innan við eina milljón króna, en ekki rúmar 17 milljónir króna, eins og haft var eftir heimildum í blaðinu á þriðju- dag. Samið var við Umbúðamið- stöðina um pappír fyrir hvítu síð- urnar og S. Arnason fyrir pappír í gulu síðurnar. íslensk reglugerð óskýr Varðandi sjálfa prentunina segir Ólafur að til þess að draga úr líkum á villum við vinnslu skrárinnar hafi verið ákveðið að bjóða prentunina ekki út á Evrópska efnahagssvæð- inu. „Þar vó þungt að Landssíminn og viðskiptavinir hans hafa orðið fyrir áföllum þegar rangar upplýs- ingar hafa birst í símaskrá. Við vildum tryggja fyllsta öryggi við vinnsluna,“ segir Ólafur. Samkvæmt íslenskri reglugerð um útboð stofnana og fyrirtækja í eigu ríkisins er tilgreint að efna þui-fi til útboðs séu upphæðir hærri en þrjár milljónir króna. Ólafur segir að reglugerðin sé óskýr að því leyti að hún taki ekki á því hvaða reglur gildi um hlutafélög í eigu ríkisins sem em í samkeppn- isumhverfi. „Við höfum talið að það sé ekki eðlilegt að leggja þær kvaðir á fyr- irtæki í samkeppnisrekstri að fara þessa leið við sín innkaup. Tilgang- urinn með því að breyta Landssím- anum í hlutafélag var meðal annars að slíta á stjómsýslutengslin við ríkið og búa fyrirtækið undir einkavæðingu og samkeppni á al- mennum markaði. Landssíminn starfar ekki lengur á grandvelli einka- eða sérleyfa. Það geta allir veitt sömu þjónustu og Landssím- inn. Til dæmis er seldur aðgangur að gagnagrunni símaskrárinnar og hver sem er getur gefíð út síma- skrá í samkeppni við Landssímann. Við höfum einnig talið að út frá samkeppnissjónarmiði sé almennt óheppilegt að halda útboð í hvert skipti sem ráðist er í nýjar fram- kvæmdir og gera þar með áform fyrirtækisins öllum kunn í útboðs- gögnum. Þetta era atriði sem við höfum bent stjórnvöldum á að skapa óvissu en ekki hefur fengist endanleg niðurstaða í. Við höfum hins vegar viljað túlka það svo að þar sem fyrirtækið hefur verið gert að sjálfstæðu hlutafélagi geti þessi ríkiskaupaákvæði ekki átt við,“ segir Ólafur. títboðsskylda tengd einka- eða sérleyfi Samkvæmt reglum Evrópska efnahagssvæðisins er fyrirtækjum á sviði veitu vatns og orku, sam- gangna og fjarskipta skylt að bjóða út verk á EES sem kostar meira en 600 þúsund ECU. Ólafur segir að í fyrstu málsgrein áttundu greinar tilskipunarinnar komi hins vegar fram að hún eigi ekki við um samninga sem gerðir era um inn- kaup sem eingöngu era ætluð til að gera viðkomandi fyrirtæki kleift að veita eina eða fleiri tegundir fjar- skiptaþjónustu þar sem öðram sé frjálst að bjóða sömu þjónustu á sama landssvæði og með sambæri- legum skilyrðum. „Við fáum ekki annað séð en að skyldan til að bjóða út á Evrópska efnahagssvæðinu sé tengd því að um einka- eða sérleyfi sé að ræða en gildi hins vegar ekki þegar öðr- um aðilum sé heimilt að bjóða sömu þjónustu. Þess má geta að þetta atriði var rætt á síðasta ári á fundi með fulltrúum Eftirlitsstofn- unar EFTA og þeim var gerð grein fyrir áformum fyrirtækisins varð- andi símaskrána og útboð á henni. Það kom fram af hálfu fulltrúa ESA að málið horfði öðravísi við þar sem staðan er sú að það er samkeppni á þessu sviði og engu einkaleyfi til að dreifa,“ sagði Ólaf- ur. Hraðakstur í Kópavogi Tugir öku- manna teknir LÖGREGLAN í Kópavogi hafði tekið tólf ökumenn fyrir of hraðan akstur um hádegisbil í gær. Alls hafa þá verið teknir á fjórða tug manna fyrir of hraðan akstur í þess- ari viku í umdæminu. Einkum hafa ökumenn verið stöðvaðir á Nýbýlavegi, Fífu- hvammsvegi, Hafnarfjarðarvegi og víðar þar sem hámarkshraði er 50 km á klst. Ökumenn hafa verið stöðvaðir á 70-80 km hraða á þess- um götum og finnst lögreglunni það of hratt ekið miðað við aðstæður. „Við viljum draga úr þessum hraða og minnka slysin í umferðinni og yrðum manna glaðastir ef við þyrftum ekki að hafa afskipti af neinurn," sagði Láras Ragnarsson, varðstjóri í Kópavogslögreglunni. ------------------- Hættir hjá Neyðarlínunni FRAMKVÆMDASTJÓRI Neyðar- h'nunnar, Eiríkur Þorbjörnsson, hef- ur sagt upp störfum að eigin ósk og hættir á næstunni. Ráðgert er að auglýsa starfið næstu daga. Eiríkur hefur verið framkvæmda- stjóri Neyðarlínunnar frá upphafi en undirbúningur starfsins hófst árið 1995 og starfsemin sjálf árið eftir. Fyrst i stað var hún til húsa hjá Slysavarnafélagi íslands en síðar í Slökkvistöðinni í Reykjavík. UTSALA r • • r UTSOLU LYKUR laugardaginn 6. febrúar. Enn betri afsláttur síðustu daga útsölunnar. PIPAR OG SALT Klapparstíg 44 - sími 562 3614

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.