Morgunblaðið - 04.02.1999, Side 22
22 FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999
UR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Morgunblaðið/Júlíus
GUÐNY Guðmundsdóttir fyrrverandi eigandi Grænu línunnar og Kris-
tján P. Guðmundsson eigandi Vesturbæjarapóteks sem keypti versl-
unina Grænu línuna.
Græna línan í
V esturbæj ar apótek
VERSLUNIN Græna iínan er
flutt í Vesturbæjarapótek. Græna
línan hefur selt Maija Entrich
snyrtivörur frá árinu 1983 er
Guðný Guðmundsdóttir stofnaði
verslunina. Auk þess sem vörurn-
ar koma til með að fást í apótek-
inu verður þar einnig boðið upp
á þá húð- og heilsuráðgjöf sem
var í Grænu línunni.
„Maija Entrich snyrtivörurnar
komu fyrst á markað árið 1930
og vöktu athygli á þeim tíma þar
sem einkunnarorð framleiðand-
ans voru að þær innihéldu ekkert
sem ekki mætti borða líka. Að
auki fylgdu vörunum innihalds-
lýsingar en það tíðkaðist ekki á
þessum tíma. Vörurnar voru of-
næinisprófaðar og engin hráefni
notuð í framleiðsluna þar sem
dýratilraunum hafði verið beitt.“
Guðný hefur að undanförnu
verið með starfsfólk apóteksins á
námskeiði í húð- og heilsuráðgjöf
og segist munu gefa viðskipta-
vinum apóteksins ráð fimmtudag
og föstudag. Kristján P. Guð-
mundsson eigandi Vesturbæjar-
apóteks segir að þessi lífræna
snyrtivörulína Grænu línunnar sé
einungis fyrsta skrefið í að koma
upp myndarlegri heilsuvörudeild
í Vesturbæjarapóteki.
Nýtt
Kjara-
samningur
skokkarans
SÉRVERSLUN hlauparans í
Kringlunni býður nú viðskiptavin-
um sínum að gera þriggja ára
samning við verslunina um
ákveðna mánaðarlega úttekt af
greiðslukorti sínu. Verslunin veitir
í staðinn 20% afslátt af vörum sín-
um og stundum hærri afslátt. Þá
er innifalin ráðgjöf hjá næringar-
fræðingi, lækni, stoðtækjafræð-
ingi, einkaþjálfara og sérfræðingi
í hlaupaskóm sem svara spurning-
um á Netinu um allt sem lýtur að
þjálfun og heilsu. Þá gefur versl-
unin út fréttabréf á átta vikna
fresti.
LÝÐUR B. Skarphéðinsson
verslunarstjóri í Sérverslun
hlauparans í Kringlunni og Að-
alsteinu Snorrason arkitekt og
skokkari handsala fyrsta kjara-
samning skokkarans og Sér-
verslunar hlauparans.
Verðhrun í
u-rjoi iiadií
399 KR.
Frjálst val úr þessum
tegundum. Eitt verð
399 KR. ,
Á meðan birgðir endast.
Alparós
Bergpálmi
GuUpálmi
Drekatré
Reghlífartré
Gúmmítré
Ástareldur
Sólhlífartré
Mosaja^5
ANDEY IS í heimahöfn í Súðavík.
Burðargeta rúm-
lega tvöfölduð
Andey IS 440 komin úr lengingu
og gagngerri klössun í Póllandi
Isafirði. Morgunblaðið
ANDEY IS 440 kom frá Póllandi
til heimahafnar í Súðavík um síð-
ustu helgi að lokinni lengingu og
svo gagngerum endurbótum, að
heita má að um nýtt skip sé að
ræða. Andey er í eigu Hraðfrysti-
hússins hf. í Hnífsdal og kom inn í
fyrirtækið þegar Frosti hf. í Súða-
vík sameinaðist því.
Skipið var lengt um 12 metra,
sandblásið allt hátt og lágt, innan-
dekks og utan, og síðan að sjálf-
sögðu málað upp á nýtt. Vélbúnað-
ur var endurnýjaður að verulegu
leyti og settar voru í skipið nýjar
35 tonna rafdrifnar togvindur frá
Ibercisa. Lestin var einangruð sér-
staklega fyrir kör. Nýr ásrafall var
settur í skipið og aflstýribúnaður
sem gerir kleift að samkeyra ás-
rafal og rafal hjálparvélar, eins og
nú er farið að tíðkast í skipum til
að auka aflið út í skrúfu. Kælikerfi
aðalvélar var allt endurnýjað.
Verulegar endurbætur voru gerð-
ar á vistarverum áhafnar, eldhúsi
og stakkageymslum, og borðsalur
stækkaður og innréttaður upp á
nýtt. Hér mun þó ekki allt upp
talið.
Kostnaður við þessar fram-
kvæmdir allar var liðlega hundrað
milljónir króna.
Ekki liggur fyrir nákvæmur
samanburður á mælingu fyrir og
eftir lengingu. Samkvæmt gömlu
mælingunni var skipið 211 tonn en
er nú 596 brúttótonn samkvæmt
nýju mælingunni. Stækkunin er
því mjög veruleg, enda var metr-
unum tólf bætt í skipið þar sem það
er breiðast og rýmið mest.
Að sögn Ingimars Halldórsson-
ar, útgerðarstjóra Hraðfrystihúss-
ins hf., fer Andey á veiðar á ferskri
rækju og landar í Súðavík. „Við
veiðum hana bai-a þar sem hún
finnst - það er ekld flóknara en
svo,“ sagði Ingimar. Það verður þó
hér á Islandsmiðum, enda er skipið
ekki með frystibúnað og getur því
ekki sótt á fjarlæg mið.
INGIMAR Halldórsson, útgerðarstjóri Hraðfrystihússins hf., Konráð
Jakobsson framkvæmdastjóri, Jónatan Ásgeirsson skipstjóri og Einar
Valur Kristjánsson, stjómarformaður Hraðfrystihússins, er skipið
kom til hafnar í Súðavík.
Loðnaná
LOÐNUSKIPIN héldu flest úr
höfn í gærmorgun eftir þriggja
daga brælu á miðunum. Flest
bendir nú til þess að loðnan sé
gengin upp á landgnmnið og voru
mörg skip komin í land í gær til að
taka um borð grynnri nætur.
Það sem af er árinu hefur loðnu-
veiðin aðallega verið austan við
Reyðarfjarðardýpi en þar fannst
engin loðna þegar skipin komu á
miðin í gærmorgun. Hins vegar
varð vart við loðnu nokkru sunnar,
eða á Lónsbugt, skammt austan við
Stokksnes. Ekki var þar um mikið
Lónsbugt
magn af loðnu að ræða, að sögn
skipstjórnarmanna, aðeins dreif
hér og hvar, og alls ekki í veiðan-
legu ástandi. Ekkert skip hafði því
fengið afla í gær. Þeir sögðu þetta
þó vera ágætis vísbendingu um að
loðnan væri gengin upp að landinu.
Þegar hafa mörg skip skipt yfir á
grynnri hringnætur. Héldu nokkur
skip til hafnar í gær þegar fréttir
bárust af loðnu á Lónsbugtinni til
að taka grynnri nætur um borð og
gera sjómenn þannig ráð fyrir að
loðnuveiðin verði uppi við landið
næstu vikurnar.