Morgunblaðið - 04.02.1999, Síða 32
32 FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
t
LISTIR
„Norður
í Norðri“
MYNÐLIST
IVorræna húsið
Kjallari/anddyri
MYNDVERK/ÍÐIR
SAMAR
Opið alla daga frá 14-18. Til 14.
febrúar. Aðgangur 200 krónur.
HINGAÐ til lands hafa ratað
nokkrar kynningarsýningar á
menningu Sama og flestar ef ekki
allar hafa þær verið settar upp í
Norræna húsinu, sem þar með
ræktar hlutverk sitt með sóma og
í góðu samræmi við nafngiftina.
Áhugasamir ættu eftir öllum sól-
armerkjum að dæma að vera
farnir að þekkja allvel til menn-
ingar Sama, og trúlega eru ís-
lendingar sér mun betur vitandi
um hana en þeir okkar. En meg-
inmáli skiptir, að allar hafa þessar
sýningar vakið góða athygli, glatt
augað og verið hollar fyrir sálina.
Samar eru afar mikilvægur hluti
Norðurlanda, jafnvel svo að erfitt
væri að hugsa sér Norðrið án
þeirra, sem þá yrði snöggtum fá-
tækara og risminna í augum um-
heimsins, sem í vaxandi mæli
beinir sjónum til lífríkisins, hins
óspillta jarðtengda og uppruna-
lega. Hér er um að ræða flökku-
fólk lífsrýmis en ekki ríkis, og
lengi hefur verið vitað um tilvist
þess, þannig eru þeir nefndir í rit-
um Grikkjans Pytheas 300 árum
fyrir Krists burð. Fyrmm fylgdu
þeir hreindýrahjörðum sínum,
dreifðir um norðurhéruð Noregs,
Svíþjóðar, Finnlands og Rúss-
lands, en það er að mestu liðin tíð
þótt svo þeir lifi enn í góðri sátt
við móður náttúru og láti hverjum
degi nægja sínar þjáningar. Til
marks um hin nánu tengsl, skiptu
þeir árstíðunum í átta hluta, eða
orðrétt; vorvetur, vor, vorsumar,
sumar haustsumar, haust, haust-
vetur, vetur...
Það góða og heilbrigða við íðir
og listiðkanir Sama, em hin nánu
tengsl þeirra við uppranann, hið
trausta og jarðbundna handverk,
sem er undursamlega fallegt í ein-
faldleika sínum og fölskvaleysi, og
eins langt frá kaupmennskuíburði
og fáfengilegu hnoði og verða má.
Þetta hefur einkennt flesta þá
muni er hingað hafa ratað á fyni
sýningar, og er svo einnig að þessu
sinni og ber að gaumgæfa af hér-
lendum. Viðbótin sem við fáum
núna, og telja verður mikilsverð-
asta framlagið að þessu sinni, er
þó helst að finna í verkum fjögurra
menntaðra myndlistarkvenna og
BRITTA Marakatt Labba, Bitar, textíl, blönduð tækni, 1990.
Z3
MARJA Helander, Teno áin í Talvados, ljósmynd, 1997.
er mjög áhugavert að fylgja
sköpunarferli þeirra. Sýn-
ingin ber heitið, Geaidit -
sjónhverfíngar, og er rýnir-
inn ekki fullkomlega með á
nótunum hvernig beri að
skilja það, því hér er yfir-
leitt hreint gengið til verks
þótt öll gild listaverk feli í
sjálfu sér duldar skírskot-
anir. Höfuðkostirnir eru
hér, að Samar era ekkert
að flýta sér frekar en fyrri
daginn og hafa því ekki
glatað uppruna sínum né
tilfinningunni fyrir gagnsæ-
um tærleika frerans, marg-
þættum brigðum hauðurs
og gróandi né ljósinu í um-
hverfinu og hinu háa.
Greinilega má lesa þessi
atriði í verkum Brittu
Marakatt Labba, f. 1951 í
Idivuomí í Svíþjóð. Einkum
í myndunum, Bitar, 1990 og
Svífandi, 1989, en í nýrri
verkum er meira skreyti í
anda módernismans, og þó
glata þau ekki þeim sér-
staka ferskleika uppranans
sem telja verður bestu eig-
indir listakonunnar. Þrátt
fýrir að Maj-Lis Skjalte, f.
1940 í Gállivare, Svíþjóð sé
elst, eða kannski einmitt
þess vegna, eru verk henn-
ar fjölþættust. Hún gerir
tilraunir tO margra átta,
jafnvel tölvugrafík, þar sem
hún vinnur út frá ljósmynd-
um og eldri minnum, en
hinar huglægu einföldu for-
manir era þó það sem mað-
ur staðnæmist helst við.
Ingunn Utsi, f.1948, býr
í Repvág, Noregi. Hún
virtnur í sígildan efnivið
sem hún leitast við að um-
FIMMTUDAG, F0STUDAG 0G LAUGARDAG
ALLAR MC.G0RD0N
GALLABUXUR
NU
1.980
KR. STK.
ATH. 0PJÐ ALLA VIRKA DAGA 10-20
0GALLA LAUGARDAGA 10-18
Ath Sendum ípóstkröfu.
Grænt númer 800-5730. Simi 562-9730.
Fax 562-9731