Morgunblaðið - 04.02.1999, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 04.02.1999, Qupperneq 34
34 FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ MENNTUN Upplýsingaskrifstofur um Evrópumál Sumarstörf handa Islendingum Eftirlitsstofnun EFTA skal tryggja að EFTA-ríkin standi við skuldbindingar sínar samkvæmt EES-samningn- um og að fyrir- tæki fari að regl- um um virka sam- keppni. Stofnunin getur rannsakað meint brot, ann- aðhvort að eigin frumkvæði eða á grundvelli kvartana. Vefslóðin er www.efta.int og al- mennt símanúmer er 32 2 286 18 11. Nánari upplýsingar veitir Helga Óttarsdóttir í síma 00 32 2 286 18 34 eða netfang: reg- istry@surv.efta.be. Sóknarfæri í Evrópusamvinnu Reglulega berst bókasafni Euro Info skrifstofunnar mikið lestrar- efni er tengist innri markaði Evr- ópusambandsins. Á skrifstofunni er einnig hægt að nálgast upplýs- ingablöðin Sóknarfæri í Evrópu- samvinnu sem gefin voru út í sam- vinnu við Vinnuveitendasamband Islands og iðnaðar- og viðskipta- ráðuneytið. Nánari upplýsingar: www.icetrade.is , www.vsi.is, eða í síma 511 4000. Evrópskir aðstoðarkennarar Hægt er að sækja um í LINGUA-áætlunina að fá evr- ópska aðstoðarkennara, skólanum að kostnaðarlausu 12-16 tíma á viku í 3-8 mánuði. Um- sóknarfrestur er til 15. febrúar 1999. Sífellt fleiri tungumálakennarar nýta sér þessa þjónustu og hafa lýst þessari að- stoðarkennslu sem vítamínsprautu í tungumálakennslunni. Umsókn- areyðublöð eru að finna á Alþjóða- skrifstofu Háskólans. Allar nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Zoéga í síma 525 5813 netfang: rz@hi.is Fimmta ramma- áætlun ESB Stefnt er að því að fyrstu köllin í 5. Rannsóknar- og þróunaráætlun ESB verði birt um miðjan febrúar. Haldin verður kynning á veg- um ESB í París hinn 22. febrúar fyrir Upplýsinga- tækniáætlunina og fyrir allar áætl- anirnar í ESSEN í Þýskalandi 25. og 26. febrúar. Á báðum stöðum verður boðið upp á stefnumóta- þjónustu fyrir fyrirtæki sem eni að íeita að væntanlegum samstarfsað- ilum vegna áhuga á þátttöku í 5RA. Nánari upplýsingar veitir Grímur Kjartansson í sima 525 4902 - grimurk@rthj .hi.is Auglýst eftir fslendingum MEDIA kvikmynda- og sjónvarpsáætlun Umsóknafrestur fyrii’ styrki til að halda námskeið er 25. febrúar nk. Fyrsti sldlafrestur ársins 1999 íyrir dreifíngu myndbanda- og mai’gmiðlunar- verkefna verð- ur 9. apríl nk. ATH.! Næsti umsóknarfrestur íyrir undirbúningslán er 15. júlí nk. Umsóknargögn og nánari upp- lýsingar fást á skrifstofu MEDIA upplýsingaþjónustunnar, s. 562- 6366, fax. 561 7171, netfang. media- desk@centrum.is. Jafnréttismál Við minnum allt áhugafólk um jafnrétti kynjanna á styrki Evr- ópusambandsins til átaksverkefna (projects) á því sviði. Sem dæmi um styrkhæf átaksverkefni má nefna þróun aðferða til að vinna gegn kynbundnum launamun og ójafnri stöðu kynjanna á vinnu- markaði eða aðgerðir til að jafna hlut kynjanna við ákvarðanatöku á vegum sveitarstjórna, -félaga, -fyr- irtækja. Umsóknarfrestur rennur út 1. mai’s næstkomandi. Öll gögn og frekari upplýsingar fást hjá Helgu Guðrúnu Jónasdótt- ur, Skrifstofu jafnréttismála í síma 552 7420/helga@jafnretti.is. Nýtt veffang EES-Vinnumiðlun- ar: www.vinnumalastofnun.is, velj- ið síðan EES-Vinnumiðlun. Þar eru tengingar við miðlægan gagnagrunn EURES í Brussel, þar sem laus störf eru auglýst. Nú þegar eru nokkur sumarstörf auglýst. Síðast en ekki síst eru sértilboð, auglýst störf erlendis sem beint er að Islendingum. Nán- ari upplýsingar í síma 588 2580, netfang: jon.s.karlsson@svm.is Viðurkenning fyrir tungumála- nám og -kennslu VAKIN er athygli á viðurkenn- ingu framkvæmdastjórnar Evr- ópusambandsins íyrir nýbreytni- verkefni á sviði tungumálanáms og -kennslu, European Label. Menntamálaráðuneytið tekur þátt í þessu samstarfi en hefur falið Álþjóðaskrifstofu háskóla- stigsins framkvæmd hér á landi. Skrifstofan er á Neshaga 16 í Reykjavík, símbréf: 525 5850.. Viðurkenningin, European Label, er veitt í hverju þátttöku- landi en lýtur sameiginlegum evrópskum viðmiðum. Innlend dómnefnd metur umsóknir og tekur ákvörðun um veitingu við- urkenningarinnar. Er gert ráð fyrir að árlega geti 1-3 íslensk verkefni hlotið European Label. Þeir sem sótt geta um viður- kenninguna eru allir skólar inn- an opinbera skólakerfisins en einnig aðilar s.s. málaskólar, fullorðinsfræðslustofnanir, fræðslusamtök og íyrirtæki. Auglýst var eftir umsóknum í janúarbyrjun. IJmsóknarfrestur er til 28. febrúar n.k. Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Zoéga á Alþjóða- skrifstofu háskólastigsins, sími 525 5813, netfang: rz@hi.is. Einnig er bent á heimasíðu menntamálaráðuneytisins: http://www.mrn.stjr.is __________UMRÆÐAN Eru allar deilur illdeilur? BRAGI Guðbrands- son forstjóri barna- verndarstofu hefur brugðist við greinum mínum með tveim greinum í Mbl. þann 21. og 22. janúar sl. Hann svarar málefnalegri gagnrýni á ákveðna og takmarkaða þætti í starfsemi Barnavernd- arstofu með því að láta í veðri vaka að geinarhöf- undi gangi það eitt til að meiða stofnunina eða forstöðumann hennar. Bragi reynir að gera viðmælanda sinn tor- tryggilegan, geiir hon- um upp annarlegar hvatir og fákunnáttu meðan málefn- in sitja á hakanum. Svör hans gefa því tilefni til athugasemda. Bai’naverndarstofa er opinber stofnun. Hún varð til í félagsmála- ráðuneytinu á þeim tíma sem Bragi var aðstoðarmaður ráðherra. Hann hefur án alls efa tekið þátt í að skapa stofnunina þegar á frumstigi. Bragi er fyrsti og eini forstöðumaður stofnunarinnar og tengsl hans og Barnaverndarstofu því með öðrum hætti en gengur og gerist meðal for- stöðumanna ríkisstofnana. Þrátt fyr- ir þessa sérstöðu hlýtur Barna- verndarstofa að lúta sömu lögmálum og aðrar stofnanir á vegum ríkisins. Það verður að ræða starfsemi henn- ar og hún er ekki hafin yfir gagn- rýni. Faraldsfræði I áður birtum greinum mínum gerði ég m.a. athugasemdir við túlk- un Braga á tölfræðilegum upplýs- ingum og lagði áherslu á geðræna erfiðleika unglinga í áfengis- og vímuefnavanda og skort á læknis- fræðilegri þjónustu við þann hóp og aðra sem eiga við geðrænan vanda að stríða og vistast á ábyrgð Barna- verndarstofu. Það var ekki fjallað um allan starfsvettvang Barna- verndarstofu heldur einungis þá skjólstæðinga sem eiga við geðræn- an vanda að stríða með eða án vímu- efnavanda. I svörum sínum vitnaði Bragi til Flosa Ólafssonar og Benjamins Disraeli. Til Flosa sótti Bragi fyrir- sögnina og til Disraeli leitaði hann eftir ofnotuðum fi-asa um misnotk- unargildi tölfræði og fullyrti að „Pét- ur og Páll slái um sig með faralds- fræðilegum upplýsingum og reikni út líkurnar á því að unglingur úr til- teknum árgangi hafi stungið inn nef- inu á Vog.“ Hér bland- ar forstjórinn saman faraldsfræði, tölfræði og líkindareikningi. Tölur SÁA varða ein- staklinga sem hafa lagst inn á Vog og eru skráðar með sama hætti og innlagnir á önnur sjúkrahús. Inn- lögnin hafði þegar átt sér stað en ekki er ver- ið að spá um líkur á því að hún verði. Faralds- fræði varðar orsakir og tíðni sjúkdóma. Henni kastar Bragi ásamt töl- fræðinni og mælist svo til þess að greinahöf- undur leggi lönd undir fót til að „fræðast" á meðferðar- stofnunum þar sem engir sérfræð- ingar eru að störfum! Það er helst að Barnaverndarmál Það er brýn nauðsyn, segír Páll Tryggvason, að fram fari gagnrýnin, málefnaleg og fagleg umræða um efnið. skilja á Braga að þekking sé ekki til góðs! Bragi upplýsti lesendur Morgun- blaðsins um fjölda og menntun starfsliðs Barnaverndarstofu en hann sagði ekkert um það sem sætti gagnrýni af minni hálfu, þ.e. fjölda og menntun þess starfsliðs sem dag- lega sinnir meðferð ungmenna með geðræn vandamál en staðfesti hins vegar að enginn læknir sérmenntað- m- í málefnum barna og ungmenna starfi á vegum stofnunarinnar. Lækningar Bragi segir frá tilvist fagteymis með þátttöku m.a. yfirlæknis BUGL þar sem fjallað er um umsóknir og meðferðarvistun og upplýsti enn- fremur að mat á þörf einstaklinga fyrir læknisþjónustu byggist oft á niðurstöðum sérfræðinga barna- verndarnefnda og í því mati felist íyrst og fremst þörf á atferlis- og umhverfísmeðferð en ekki lyfjameð- ferð. Þessar upplýsingar eru at- hygliverðar þar sem það er ekki á færi annarra en sérmenntaðra lækna að meta hvaða meðferð hent- ar best í hverju tilviki en fágætt er að læknar, og enn síður barna- og Páll Tryggvason unglingageðlæknar, starfi fyrir barnaverndai’nefndir. Það ætti ekki að þurfa að taka það fram að lyfja- gjöf er aðeins hluti meðferðarúr- ræða í geðlæknismeðferð ung- menna. Hér er ekki fullyrt að ráð- gjöf um heppileg úrræði og nálganir af sálrænum og félagslegum toga geti ekki komið frá öðrum faghópun, en sá sem ekki hefur yfirsýn og þekkingu á öllum meðferðarúrræð- um, þ.m.t. lyfjum, getur ekki lagt á ráðin um þá meðferð sem líklegust er til að skila árangri. Fagteymið er góð lausn til stjórnunar og sam- starfs en á ekkert skylt við lækning- ar. Geðheilbrigðismál I síðustu grein minni lagði ég það tO að umboð Barnaverndarstofu til að bera ábyrgð á vímuefnameðferð ungmenna, þar sem stór hluti skjól- stæðinganna þarf á sérhæfðri geð- læknisfræðilegri þjónustu að halda, verði fært undir heilbrigðismála- ráðuneytið. Eg er ekki einn um þessa skoðun. Ég fylgi fordæmi Braga og vitna til ítarlegrar skýrslu um stefnumótun í málefnum geð- sjúkra. Þar segir m.a. um núverandi stöðu: „Þannig þarf að tryggja að ábyrgð heilbrigðisyfirvalda sé skýr og sú staða sem er í dag að öll ábyrgð á meðferð þessa hóps hvílir nú á herðum félagsmálayfirvalda er algjörlega á skjön við eðli vand- ans...“ Áður hafði í skýrslunni verið m.a. fjallað um læknisfræðilega þætti er vörðuðu áhættu- og áhrifa- þætti áfengis- og vímuefnavanda. Þar segir: „Það er því oftast flókinn undirliggjandi vandi til staðar hjá unglingi sem er í vímuefnaneyslu sem birtist í hárri tíðni geðrænna fjölkvilla. Sérfræðiþekking á hinum geðræna vanda þessa hóps er nauð- synleg á meðferðarstigi ef meir en skammvinnur árangur á að nást“. Þeir tveir læknar sem Bragi Guð- brandsson nafngreinir í ski’ifum sín- um, annar þeirra tilnefndur af Barnageðlæknafélagi Islands, áttu sæti í nefndinni um málefni geð- sjúkra og það er því ekki úr vegi að álykta að þarna komi fram sjónar- mið þeirra. Þau koma vel heim og saman við sjónarmið barnageð- lækna. Barnaverndarstofa hefur fengið verkefni sem hún rís ekki undir sök- um skorts á læknisfræðilegri þjón- ustu. Það er því biýn nauðsyn að fram fari gagnrýnin, málefnaleg og fagleg umræða um efnið. Sá er til- gangur skrifa minna en ekki að bíta í hæla forstjórans, meiða hann per- sónulega eða Barnaverndarstofu eins og Bragi lætur í veðri vaka, en framganga hans í sjónvarpi og blöð- um kallaði á viðbrögð. Hollt er að minnast að ekki eru allir viðhlæjend- ur vinir. Höfundur er formaður Barnageð- læknafélags íslands. Villur leiðréttar VALÞÓR Hlöðversson, framkvæmdastjóri og þátttakandi í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykj an eskj ördæm i - og þar með væntanleg- ur þingmaður ef kjós- endur lofa - skrifar grein í Morgunblaðið 28. jan. sl. sem nefnist „Við eigum aðeins eitt land“. Þar stendur m.a. þessi klausa: „Munum að við eig- um aðeins eitt ísland. Vissulega þurfum við að nýta gögn og gæði landsins en það er bók- stafiega út í bláinn að ríkisrekið fyrirtæki með einokun á orkuöflun og orkusölu skuli hafa nær algert sjálfdæmi um virkjanir fallvatna íslenskrar náttúru án þess að þing eða þjóð fái þar að hafa nægjanleg áhrif.“ í þessari klausu eru þrjái’ vitleysur: 1. í 7. grein Orkulaga nr. 58 frá 1967 stendur: „Til að reisa og reka raforkuver stærra en 2000 kW þarf leyfi Alþingis." (2000 kW er sama og 2 MW). Það er því rangt að nokkur geti virkjað fallvötn á Islandi svo neinu nemi án þess að þing eða þjóð fái þar að hafa nægjanleg áhrif. Þessi skipan, að þjóðþingið, hinir lýð- ræðislega kjörnu full- trúar þjóðarinnar, þurfi að heimila ein- stakar virkjanir er af- ar sjaldgæf. Þau lönd munu teljandi á fingr- um annarrar handar sem hafa svo lýðræðislega skipan á ákvörðunum um virkjanir. 2. Ekkert fyrirtæki á íslandi hefur lögum samkvæmt einkarétt á að fá leyfi til virkjunar. Alþingi hef- ur þar algerlega óbundnar hend- ur. Landsvirkjun hefur að vísu yfirburðastöðu í raforkuvinnslu á Islandi sökum stærðar sinnar en ýmsir aðrir hafa fengið leyfi Al- þingis til virkjunar vatnsorku og Virkjanir Mikilvægt er, segir Jakob Björnsson, að þeir, sem sækjast eftir þingmennsku, kynni sér mál. • jarðhita til raforkuvinnslu. Það er því rangt að tala um einokun í þessu sambandi. Alþingi hefur ávallt úrslitavaldið um hver fær að virkja. 3. Augljóst er af samhenginu að með „ríkisreknu fyrirtæki með einokun" á höfundur við Lands- virkjun. En Landsvirkjun er ekki ríkisfyrirtæki. Ríkið á aðeins helminginn í Landsvirkjun. Hinn helmingin eiga Reykjavíkurborg og Akureyrarkaupstaður. Mikilvægt er að þeir sem sækjast eftir þingmennsku kynni sér mál áður en þeir skrifa um þau. Höfundur er frv. orkumálastjóri. Jakob Björnsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.