Morgunblaðið - 04.02.1999, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999 35
_________________UMRÆÐAN
Tannheilsa aldraðra
á ári aldraðra 1999
MIKLAR breyting-
ar hafa átt sér stað á
heilsu almennings á
þessari öld hér á landi
sem annars staðar í
vestrænum heimi.
Bættur húsakostur,
bætt fæði, bætt vinnu-
aðstaða o.s.frv. hefur
þar haft mikil áhrif.
Bætt heilbrigðisþjón-
usta hefur einnig haft
mikið að segja. Undan-
farin ár hefur mikið
verið rætt um heil-
brigðismál hér á landi
og er það gott og gagn-
legt ef skynsemin ræð-
ur ferðinni.
Tannheilsa Islendinga fer mjög
batnandi. Það kemur m.a. fram í
því að stöðugt fleiri aldraðir sem
búa á sjúkrahúsum eða öðnim
stofnunum eru með eigin tennur.
Við vitum að þessi þróun heldur
áfram og að æ fleiri koma þangað
með dýrar viðgerðir svo sem brýr
og krónur. Slíkar viðgerðir þurfa
eftirlit og umhirðu fagfólks ef þær
eiga ekki að skemmast og valda
sársauka og öðrum erfiðleikum.
Ástand eigin tanna eldra fólks er
oft mjög bágborið.
Skemmdar tennur,
brotnar tennur, rótar-
brot og tannholds-
bólga, sem veldur því
að tennurnar losna,
eru dæmi um algeng
vandamál. Ef ekkert
er að gert versnar
þetta, veldur mikilli
vanlíðan og síðan þarf
e.t.v. dýrar aðgerðir ef
það er þá ekki orðið of
seint.
Sem eitt dæmi af
mörgum: Við skoðun
á munnholi sjúklings
komu í Ijós rótarbrot
og skemmdar tennur
sem augljóslega þjökuðu sjúkling-
inn. Tannbrot og illa skemmdar
tennur voru fjarlægðar. Eftir það
róaðist sjúklingurinn og nærðist
eðlilega og á stuttum tíma hafði
hann náð eðlilegri þyngd. Þetta
dæmi sýnir hversu nauðsynlegt
það er að fylgjast með munnholi
sjúklinga á sjúkrahúsum. En
einmitt sú staðreynd kallar á
meiri umönnun og eftirlit því að
aldraðir, og þá sérstaklega þeir
sem þjást af öldrunarsjúkdómum,
Tannvernd
*
Tannheilsa Islendinga,
segir Stella Margrét
Siguijónsdóttir, fer
mjög batnandi.
eru ekki alltaf færir um að annast
sjálfir eigin munnhirðu. Enda er
ástand tanna æði misjafnt og
flestir sjúklinganna eru með tann-
holdsbólgu á mismunandi háu
stigi.
En gervitennur þurfa ekki síður
eftirlit og umhirðu. Margir aldraðir
eru með margra ára gamlar gervi-
tennur sem eru slitnar og passa
ekki lengur, valda bólgum í slím-
húð, sveppasýkingu og sáram í
munnvikum. Þegar þessu fólki er
bent á að það hafi þörf fyrir nýjar
tennur er svarið oftast: Það tekur
því ekki, ég er orðin/n svo göm-
ul/gamall. Staðreyndin er þó oftast
sú að það hefur ekki ráð á að fá sér
nýjar gervitennur.
Stella Margrét
Sigurjónsdóttir
Dýr þjónusta?
Nú hafa yfírvöld ákveðið að aldr-
aðir sem dveljast á sjúkrastofnun-
um eða í þjónustuhúsnæði eigi rétt
á nauðsynlegum tannlækningum
sér að kostnaðarlausu. Þetta hefur
að sjálfsögðu í för með sér aukin
útgjöld fyrir tryggingarnar. En því
betri umhirðu og umönnun sem
stofnanimar geta veitt þessum
sjúklingum því betri verður tann-
heilsan og því minni verður þessi
kostnaður. Og gleymum því ekki að
þeim mun minni verða þjáningar
sjúklinganna.
Eins og áður sagði eru stöðugt
fleiri sjúklingar með langvinna
sjúkdóma með eigin tennur. Arið
1992 skoðaði Halla Sigurjóns tann-
læknir alla sjúklinga á hjúkrunar-
heimilinu Skjóli og kom þá í Ijós að
u.þ.b. 70% þeirra voru með gervi-
tennur og 30% með eigin tennur.
16% af þeim vora með skemmdar
tennur. Engin sambærileg rann-
sókn hefur verið gerð síðan. A
hjúkrunarheimilunum Eir og
Skjóli er ekki gert ráð fyrir tann-
vemd á fjárhagsáætlunum. Þessar
stofnanir hafa því engan möguleika
á að ráða tannfræðing til þess að
fylgjast með ástandi tanna og
munnhols sjúklinga sem liggja á
sj úkrastofnunum.
Ennþá er meirihluti aldraðra
með gervitennur bæði í efri og
neðri góm, sumir era með gervi-
tennur í efri góm og eigin tennur í
neðri góm, aðrir með nokkrar eigin
tennur og partgóma.
Eftirlit og hirðing munnhols
sjúklinga vill því miður sitja á hak-
anum. Hjúkrunarfólk hefur oft
ekki fengið nægilega tilsögn í því
að annast þessa þætti og hefur oft
ekki tíma til þess vegna annarra
verkefna.
Sjálfsögð þjónusta
Alls staðar á Norðurlöndum er
fastráðið sénnenntað fólk, þ.e. tann-
fræðingar og tannlæknai-, til þess
að annast tannhirðu og tannvið-
gerðir á sjúkrahúsum og hjúkran-
arheimilum nema á Islandi. Má
segja að það sé furðulegt að ekki
skuli vera aðstaða til þessa starfs á
öllum stærri sjúkrahúsum hérlend-
is. Öldranarsvið Sjúki’ahúss
Reykjavíkur hefur nú ráðið til sín
tannfræðing í hálft starf t.il þess að
annast eftirlit með tannheilsu sjúk-
linga á SHR Landakoti og á öldran-
arlækningadeild í Fossvogi. Þetta
er stórt skref í rétta átt en vinnuað-
staðan er ekki fyrir hendi enn sem
komið er. Tannfræðingurinn og
tannlæknh-inn sinna sjúklingum þar
sem þeir liggja í rámum sínum eða
sitja í hjólastól. Þetta stendur til
bóta á Landakoti þar sem von er á
fullkominni aðstöðu.
Eg vona að þessi áríðandi og
sjálfsagða þjónusta verði komin á
öll sjúkrahús og hjúkranarheimili
innan tíðar svo að sérmenntað fólk
hafi í framtíðinni aðstöðu til þess
að taka á móti vaxandi fjölda aldr-
aðra sem eru með eigin tennur.
Höfundur er tannfræðingur.
Tekur5 kg. I
60 mín. tímast
2 hitastiihngar
Snýr í báöár B
Notar Iraiki
o.fl. I B:
17187E
37635E |
Verð áður kr.
32.900.
1200 sn. þvottavél.
Tekur 5 kg. og er búln J
öllu því besta sem prýöir góöa þvottavéi.
M.a. innb.vigt sem stýrir vatnsmagni
eftir þvottamagni, ullarvöggu,
flýtiþvottakerfi o.fl. o.fl. |
Tekurökg. I
120 mín. tímarofi
2 hitastillingar,
barki fylgir o.fl.
Tekur 3 kg.
120 mín. timarofi
2 hitastillingar,
barki o.fl.
Creda.
37697 |
Verð áður kr.
52.900.
- AN NO 1 929 -
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
Ath. Öll verð eru staðgreiðsluverð
BVerð nú kr.
32.900
Þú sparar kr.
BVerð nú kr.
24.900
Þú sparar kr.
verð nú kr.
B ig.goo
Þú soarar kr.
Þu sparar kr.